Erlent

Rússnesk yfirvöld ákæra bloggara í fyrsta sinn

Rússneska yfirvöld hafa ákveðið að ákæra bloggara fyrir skrif sín á vinsælli netsíðu í landinu. Bloggarinn er ákærður fyrir að blása upp hatur í garð lögreglu landsins

Um er að ræða fyrsta mál sinnar tegundar í Rússlandi. Bloggarinn sem hér um ræðir, músliminn Savva Terentyev, býr í borginni Syktyvkar og hann fór hörðum orðum um lögregluna eftir að hún ráðist inn á skrifstofur dagblaðs í borginni í fyrra. Blaðið var þekkt fyrir andstöðu gegn stjórnvöldum.

Savva sagði meðal annars í bloggi sínu að gott væri ef brennsluofnar væru til staðar í hverri borg til að brenna lögreglumenn svona svipað og gert var í Auswitch á sínum tíma.

Málið hefur vakið töluverða athygli í Rússlandi þar sem talið er að stjórnvöld ætli nú að herða eftirlit sitt með Internetinu og jafnvel setja skorður við því hvað má og hvað má ekki segja á vefsíðum.

Putin fyrrum forseta landsins tókst á átta ára ferli sínum að berja flesta fjölmiðla landsins til hlýðni við sig og stefnu sína. Því hefur netið verið sá miðill sem fólk andsætt stjórn hans hefur getað notað til skoðanaskipta.

Verði Savva fundinn sekur í málinu á hann yfir höfði sér allt að 1,5 milljón króna sekt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×