Erlent

Vændiskonan sem felldi Spitzer er tilvonandi söngkona

Vændiskonan sem kostaði Eliot Spitzer ríkisstjóra í New York starfið er 22 ára gömul söngkona sem reynt hefur án árangurs að koma sér áfram á tónlistarsviðinu.

Í hleruðu símtölunum sem FBI tók upp gekk hún undir nafninu Kirsten en í rauninni er nafn hennar Ashley Alexandra Dupre. Bandaríska blaðið The New York Times greinir frá nafni hennar í dag og birtir myndir af henni. Og þar er greint frá MySpace síðu stúlkunnar.

Ashley flutti að heiman 17 ára gömul og hefur búið í New York frá árinu 2004.

Á vefsíðu sinni segir Ashley m.a. að hún hafi verið einmanna, hafi misnotað fíkniefni og hafi verið blönk og heimilislaus. "En ég lifði þetta af. Ég er hér í New York vegna tónlistar minnar," segir í færslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×