Útflutningur og einkaneysla drifu áfram hagvöxt í fyrra 13. mars 2008 09:04
Hagvöxtur á landinu reyndist 3,8 prósent í fyrra samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar um landsframleiðslu. Þar segir að landsframleiðslan hafi numið tæplega 1280 milljörðum og jókst hún um 3,8 prósent sem fyrr segir. Til samanburðar var hagvöxtur 4,4 prósent árið 2006 en vel yfir sjö prósent árin 2004 og 2005. Hagvöxt á síðasta ári má öðru fremur rekja til verulegs vaxtar útflutnings og aukningar einkaneyslu. Á sama tíma dróst fjárfesting saman og einnig vöruinnflutningur. Þessi þróun er allt önnur en á undanförnum fjórum árum þegar hagvöxtur var drifinn áfram af einkaneyslu og fjárfestingu segir Hagstofan. Bent er á í samantekt Hagstofunnar að til langs tíma litið hafi vöxtur einkaneyslu að mestu haldist í hendur við vöxt landsframleiðslu. Á árinu 2007 var einkaneysla 85 prósentum meiri en hún var á árinu 1990 en á sama tíma hefur landsframleiðsla vaxið um 72 prósent. Mannfjöldinn jókst á sama tíma um rúmlega 22 prósent. Einkaneysla á mann hefur því aukist um 52 prósent en landsframleiðsla um 41 prósent.Árið 2007 reyndist hlutfall einkaneyslu af landsframleiðslu vera tæp 60 prósent sem er svipað og árið 2006. „Í sögulegu samhengi er þetta hlutfall nokkuð hátt og undanfarin fimmtán ár hefur það fimm sinnum verið hærra," segir í tilkynningu Hagstofunnar.Tölur Hagstofunnar sýna enn fremur að laun- og fjármagnstekjur frá útlöndum jukust meira en nam aukningu launa- og fjármagnsgjalda til útlanda. Þessi aukning og óbreytt viðskiptakjör leiddu til þess að þjóðartekjur jukust á árinu 2007 mun meira en landsframleiðslan eða um 6,7 prósent samanborið við 1,6 prósenta vöxt árið áður.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira