Innlent

Skelfisksbátur fékk veiðarfærin í skrúfuna

Frá Vopnafirði.
Frá Vopnafirði.

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Raufarhöfn og Vopnafirði eru nú á leið til skelfisksbáts frá Þórshöfn sem fékk veiðarfærin í skrúfuna um klukkan hálf fimm í nótt þegar báturinn var austur af Langanesi.

Við það stöðvaðist skrúfan þannig að báturinn getur ekki siglt af eigin ramleik. Nokkrir menn eru um borð og vörpuðu þeir akkerum á meðan hjálpar er beðið. Gott veður er á svæðinu og er ekki talin hætta á ferð. Björgunarskipin munu væntanlega draga bátinn til hafnar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×