Öllum barnaskólum lokað í Hong Kong vegna flensu 13. mars 2008 12:31
Öllum leik- og barnaskólum í Hong Kong hefur verið lokað eftir að dularfull flensa dró fjögur börn til bana. Um tvö hundruð eru sýktir. Í síðustu viku veiktust tvær stúlkur, tveggja og þriggja ára. Nokkrum dögum síðar létust þær. Um síðustu helgi veiktist sjö ára strákur. Hann lést á þriðjudaginn. Læknar segja að svo virðist sem heilabólga hafi valdið dauða hans. Öll voru börnin með flensueinkenni. Mikill ótti hefur gripið um sig meða foreldra í Hong Kong og segja yfirvöld að þau hafi ákveðið að loka leik- og grunnskólum fyrir páska fyrr en ella til að róa foreldra. Skólarnir verða lokaðir næsta hálfa mánuðinn. Óttast margir í Hong Kong að nú sé að blossa upp afbrigði af bráðalungnabólgu - SARS eða HABL - sem greindist í Asíu og víðar veturinn 2002-2003. Þá sýktust rúmlega átta þúsund manns og sjúkdómurinn dró 774 til dauða. Þeir svartsýnustu óttast að hér sé um að ræða fuglaflensuafbrigði en sú flensa greindist nýlega aftur í fuglum í Hong Kong. Hún berst þó ekki auðveldlega í menn og alls ekki milli þeirra. Vísindamenn óttast þó að fuglaflensan stökkbreytist og berist þannig hæglega milli fólks. Yfirvöld í Hong Kong hafa áhyggjur af þróuninni og hafa því falið einum helsta vísindamanni þar Yuen Kwok-yung að rannsaka þessa flensu. Hann rannsakaði bráðalungnabólguna á sínum tíma.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira