Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flensa í Hong Kong í rannsókn Yfirvöld í Hong Kong hafa falið helstu vísindamönnum sínum að rannsaka flensu sem hefur dregið 3 börn þar til dauða. Ekki er vitað hvort hér er um ræða afbrigði af bráðalungnabólgu eða fuglaflensu - sem hefur aftur gert vart við sig í Hong Kong. 12.3.2008 18:30
Rafiðnaðarmenn samþykkja samning við SA Rafiðnaðarmenn bættust í dag í hóp þeirra fjölmörgu stétta sem samþykkt hafa nýgerðan kjarasamning verkalýðsforystunnar við Samtök atvinnulífsins, 12.3.2008 17:57
Fjármálaráðherra Breta gegn drykkju og reykingum Drykkjufólk, reykingafólk og ökumenn bíla sem menga mikið eru skotmörk Alistairs Darling, fjálaráðherra Bretlands, í nýju fjárlagafrumvarpi. Í því eru áform um endurskoðun á niðurskurði bifreiðatolls og kynntur til sögunnar nýr skattur gegn þeim bílum sem menga hvað mest. 12.3.2008 16:55
Umboðsmanns aldraðra ekki getið í stjórnarsáttmála Ekki kemur fram í stjórnarsáttmálanum að til standi að koma á fót umboðsmanni aldraðra og því þurfa stjórnarflokkarnir að ræða það, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 12.3.2008 15:59
Ríkisstjóri New York segir af sér Eliot Spitzer ríkisstjóri New York sagði af sér nú rétt í þessu. Á blaðamannafundi sem sjónvarpað var beint á CNN baðst hann innilega afsökunar á því að hafa ekki staðist væntingar. Með konu sína sér við hlið sagðist hann iðrast mjög, en bætti jafnframt við að sem opinber starfsmaður hefði hann náð miklum árangri. Hann gæti þó ekki leyft persónulegum mistökum að skemma fyrir opinberum störfum sínum. 12.3.2008 15:39
Um 1600 einstæðir foreldrar leigja en fá ekki húsaleigubætur Um sextán hundruð einstæðir foreldar á höfuðborgarsvæðinu áttu hvorki fasteign né fengu húsaleigubætur í fyrra og ekki liggja fyrir upplýsingar um búsetuaðstæður þeirra. 12.3.2008 15:27
Atvinnuleysið nánast hið sama Atvinnuleysi í febrúar 2008 var 1% og voru að meðaltali 1.631 einstaklingur á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þetta er lítilsháttar fjölgun frá janúarmánuði, eða um 86 manns, þó atvinnuleysið mælist óbreytt. Fyrir ári síðan, eða í febrúar 2007, var atvinnuleysið 1,3%. 12.3.2008 15:19
Ánægja með þjónustu á vegum velferðasviðs Reykjavikurborgar 86% þeirra sem nýta sér þjónustu þjónustumiðstöðva borgarinnar eru ánægðir með hana og rúm 58% þjónustunotenda eru mjög eða frekar ánægðir með þjónustu Barnaverndar. 12.3.2008 14:58
Eiginkona Guðmundar í Byrginu vill þrjár milljónir í skaðabætur Helga Haraldsdóttir, eiginkona Guðmundar Jónssonar í Byrginu, hefur stefnt Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni DV, og tveimur viðmælendum hennar, Magnúsi Einarssyni og Ólöfu Ósk Erlendsdóttur, fyrir meiðyrði sem Helga segir að hafi verið höfð um sig í helgarblaðsviðtali sem DV birti þann 2. ágúst í fyrra. 12.3.2008 14:57
Íbúar New York vilja afsögn ríkisstjórans Ný skoðanakönnun sýnir að sjö af hverjum tíu íbúum New York vilja að Eliot Spitzer ríkisstjóri segi af sér eftir að upp komst um tengsl hans við vændishring. 12.3.2008 14:54
Telja bráðabirgðaflugstöð skynsamlegasta kostinn Það er óþolandi að flug fái ekki að þróast á Reykjavíkurflugvellli eins og það ætti að gera sagði, Kristján L. Möller samgönguráðherra á Alþingi dag. Hann upplýsti jafnframt að hann hefði fundað með framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands og borgarstjóra um málefni flugvallarins og skynsamlegasta leiðin væri að byggja bráðabirgðaflugstöð á vellinum. 12.3.2008 14:43
Lögreglumenn íhuga stöðu sína eftir sýknudóm „Þessi dómur vekur hjá mér mikla furðu," segir Steinar Adolfsson, formaður Landsambands lögreglumanna, en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag tvo af þremur Litháum sem ákærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn sem voru við hefðbundið fíkniefnaeftirlit á Laugavegi í janúar. 12.3.2008 14:40
Aðstoðarmannafrumvarp samþykkt eftir fimm og hálfs tíma umræður Þingmenn samþykktu á Alþingi í dag frumvarp um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað sem gerir ráð fyrir að hluti þingmanna fái aðstoðarmann. Frumvarpið var samþykkt eftir rúmlega fimm og hálfs tíma umræðu á þingi. 12.3.2008 14:16
Leiðtogar Kýpur hittast í næstu viku Demetris Christofias nýr forseti Kýpurgrikkja mun hitta leiðtoga tyrkneska hluta Kýpur 21. mars næstkomandi. Eftir kosningu Christofias í síðasta mánuði óskaði hann eftir því að SÞ hefði milligöngu um fund milli hans og Mehmet Ali Talat til að endurvekja friðarviðræður sem sigldu í strand árið 2004. 12.3.2008 14:16
Kjarabætur aldraðra og öryrkja í samræmi við lög Kjarabætur til aldraðra og öryrkja breytast í samræmi við ákvæði laga þar um sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. 12.3.2008 14:04
Tryggingastofnun endurgreiðir 72 milljónir króna Um þessar mundir er Tryggingastofnun að endurgreiða 32 þúsund sjúkratryggðum einstaklingum kostnað vegna heilbrigðisþjónustu. 12.3.2008 13:35
Sakar Continental flugfélagið um manndráp Franskur saksóknari hefur farið fram á að dómarar kæri bandaríska flugfélagið Continental fyrir manndráp vegna flugslyss árið 2000 þegar Concorde þota brotlenti við París. Saksóknarinn mælti einnig með svipuðum ákærum gegn tveimur starfsmönnum Continental og tveimur frönskum embættismönnum. 12.3.2008 13:24
Allsherjarnefnd ræddi eftirlaunafrumvarp Valgerðar Eftirlaunafrumvarp þingmanna var ásamt öðrum þingmannafrumvörpum til umræðu allsherjanefndar Alþingis í morgun, 12.3.2008 13:17
Tveir Litháanna sýknaðir af árás á lögreglu Tveir af Litháunum þremur sem ákærðir voru fyrir að ráðast á lögreglumenn við skyldustörf í miðborg Reykjavíkur í janúar hafa verið sýknaðir af ákæru í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ekki þótti komin fram lögfull sönnun fyrir aðild þeirra að árásinni. Þriðji maðurinn var hins vegar dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að slegið tvo lögreglumenn í andlitið. 12.3.2008 13:17
Annar verðbréfamiðlari handtekinn Annar verðbréfamiðlari stórbankans Societe Generale hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á verðbréfaviðskiptum fjárhættumiðlarans Jerome Kerviel. Miðlarinn er sagður vera kollegi Kerviel sem er í haldi í fangelsi í París. 12.3.2008 13:00
Taka afstöðu til framkvæmdaleyfis fyrir Helguvíkurálver Boðað hefur verið til aukafunda í bæjarstjórnum Garðs og Reykjanesbæjar klukkan hálfsex í dag og er ætlunin á báðum stöðum að taka afstöðu til byggingar- og framkvæmdaleyfa fyrir álver í Helguvík. 12.3.2008 12:48
Ráðherra gefur vestfirsku lögreglunni tetrastöðvar Björn Bjarnason ráðherra hefur gefið lögreglunni á Vestfjörðum 13 tetrastöðvar og mun hver og einn lögreglumaður framvegis hafa eigin tetrastöð til afnota. 12.3.2008 12:35
Yfir hundrað skjálftar norður af Upptyppingum í morgun Yfir eitt hundrað jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu við Álftadalsdyngju norðaustur af Upptyppingum frá því klukkan sjö í morgun. 12.3.2008 12:27
Yifrlögregluþjónn sem fékk áminningu farinn í veikindaleyfi Yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki hefur hætt störfum vegna veikinda. Skammt er síðan hann fékk áminningu og segir sýslumaður að átök fari ekki vel með fólk. 12.3.2008 12:22
Ráðning Sigríðar Önnu ekki pólitískur bitlingur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir einu leiðina til að fjölga konum í stétt sendiherra að sækja þær út fyrir utanríkisþjónustuna. Hún segir ráðningu Sigríðar Önnu Þórðardóttur ekki pólitískan bitling. 12.3.2008 12:14
„Hefur í mínum huga alltaf legið ljóst fyrir“ Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, fagnar nýrri samantekt OECD sem sýnir að skattar barnafjölkskyldna hér á landi hafi aukist á árunum 2000-2006 eins og hann hafi haldið fram. Hann veltir fyrir sér hvort Árni Mathiesen fjármálaráðherra muni draga til baka orð sem hann lét falla um að Stefán kynni ekki að reikna. 12.3.2008 11:42
Óveður gengur enn yfir Bretland Mikið hvassviðri heldur áfram að ganga yfir Bretland og valda tjóni. Vörubílar fjúka um koll og tré rifna upp með rótum. Skipuleggjendur Cheltenham kappaksturshátíðarinnar ákváðu að aflýsa öðrum degi kappakstursins. Sömu sögu er að segja af veðreiðum í Gloucesterskíri þar sem búist var við 55 þúsund manns. 12.3.2008 11:40
Nýjar spurningar um "hobbitana" í Kyrrahafinu Nýjar spurningar hafa vaknað um "hobbitana" eftir að bein fundust á Palau eyjaklasanum í Kyrrahafinu nýlega. Áður höfðu svipaðar leyfar af smávöxnu mannfólki fundist á eyjunni Flores sem er í 2000 km fjarlægð. 12.3.2008 11:15
Björgvin virkastur ráðherra í umfjöllun ljósvakamiðla Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra reyndist virkastur sem viðmælandi ljósvakamiðla í tengslum við umfjöllun þeirra um ráðherrana eða ráðuneyti þeirra á síðari hluta síðasta árs. 12.3.2008 11:14
Táragasi skotið að munkum í Tíbet Kínverska lögreglan notaði táragas til að leysa upp hundruð Búddamunka sem mótmældu nálægt höfuðborg Tibet í gær. Samkvæmt fréttum Free Asia útvarpsstöðvarinnar sem er styrkt af bandarísku ríkisstjórninni umkringdu öryggisverðir um 500 munka í gær þegar þeir gengu nálægt lögreglustöðinni í Lhasa. Vitni sagði útvarpsstöðinni að um tvö þúsund vopnaðir lögreglumenn í mismunandi einkennisbúningum hefðu verið á staðnum og skotið táragasi að fólkinu. 12.3.2008 11:10
250 mótmælendur í Danmörku ekki ákærðir Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur fallið frá því að ákæra 250 manns sem handteknir voru í tengslum við óeirðir vegna niðurrifs Ungdómshússins í borginni í september 2006. 12.3.2008 10:59
Harmar rasistatal í tengslum við bílslys Anna Guðbjörg Kristinsdóttir, móðir Kristins Veigars Sigurðssonar, sem lést í hörmulegu bílslysi skömmu fyrir síðustu jól, segir það vera agalega sorglegt hvað fólk sé fljótt að snúa umræðunni upp í rasistatal. 12.3.2008 10:42
Krotað á flugvél El Al Veggjakrot með skilaboðum í þágu Palestínumanna var skrifað á arabísku inn í farangusgeymslu El Al flugvélar. Veggjakrotið uppgötvaðist þegar verið var að afferma vélina á Malpensa flugvelli í Mílanó. Atvikið hefur vakið áhyggjur meðal Ísrela um flugvallaöryggi á Ítalíu. 12.3.2008 10:30
Fangar í Guantanamo fá að hringja í ættingja sína Bandaríkjaher hyggst leyfa föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu að hringja reglulega í ættingja sína, í fyrsta sinn frá því að búðirnar voru settar á fót fyrir rúmum sex árum. 12.3.2008 10:27
Frjáls og opinn hugbúnaður fær sömu tækifæri hjá ríkinu Ríkisstjórnin samþykkti í gær stefnu um að gaf frjálsum og opnum hugbúnaði sömu tækifæri og séreignarhugbúnaði þegar tekin væri ákvörðun um kaup á nýjum búnaði fyrir ríkið. 12.3.2008 10:18
BNA: Afsögn þýðir ekki stríð við Íran Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna ,hefur vísað á bug sem „fáránlegum" sögusögnum að afsögn æðsta yfirmanns hersins í Írak þýði að Bandaríkin ætli í stríð við Íran. 12.3.2008 10:17
Gaf sig fram við lögreglu Fimmti aðilinn sem lögreglan leitaði vegna þjófnaðar á skotvopnum í Hafnarfirði er nú fundinn. Hann gaf sig fram í gærkvöld eftir að lögreglan hafði náð tali af honum. Maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, viðurkenndi þátt sinn í málinu og einnig aðild sína að öðrum þjófnaðarmálum á höfuborgarsvæðinu að undanförnu. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku og telst málið upplýst. 12.3.2008 10:05
Top Gear kynnir í farsíma undir stýri Mynd sem virðist sýna Jeremy Clarkson kynni Top Gear þáttanna tala í farsíma á meðan hann keyrir hefur verið afhent lögreglu. 12.3.2008 09:48
Konur og börn létust í skothríð í Afganistan Tvær konur og tvö börn létust þegar þau lentu í miðri skothríð milli hersveita á vegum NATO og uppreisnarmanna í suðurhluta Afganistans í gær. 12.3.2008 09:26
Laun hækkuðu mest í iðnaði í fyrra Heildarlaunakostnaður í landinu jókst um á bilinu 6,3 til 9,6 prósent á milli áranna 2006 og 2007 samkvæmt vísitölu launakostnaðar sem birt er á vef Hagstofunnar. 12.3.2008 09:09
Vill ekki að teikning verði notuð í pólitískum tilgangi Danski teiknarinn Kurt Westergaard hefur ákveðið að leita til dómstóla til þess að koma í veg fyrir að andstæðingar múslíma í Danmörku noti teikningu hans af Múhameð spámanni í mótmælum sem fyrirhuguð eru í Álaborg á laugardag. 12.3.2008 09:01
Fundu 250 kíló af kókaíni í gámi í Sydney Fíkniefnalögreglan og tollverðir í Ástralíu hafa lagt hald á kókaín að andvirði rúmlega fimm milljarða króna. 12.3.2008 08:37
Skattar á barnafjölskyldur hafa aukist á síðustu árum, segir OECD Ísland er í hópi þeirra ríkja þar sem skattar á barnafjölskyldur hafa aukist á árabilinu 2000-2006 samkvæmt samtantekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Þá hafa breytingar á skattkerfi hér á landi fyrst og fremst gagnast þeim tekjumeiri ólíkt því sem víða gerist innan OECD. 12.3.2008 08:20
Skarst illa á hendi við að leggja bárujárn Maður skarst illa á hendi þegar hann var að leggja bárujárn á þak sumarbústaðar í Grímsnesi í gær. 12.3.2008 08:12
Línubátur strandaði á leið frá Sandgerði Engan sakaði þegar línubáturinn Björgmundur ÍS strandaði á leið frá Sandgerði um klukkan hálf fimm í morgun. 12.3.2008 08:09