Innlent

Þorskafli minni en sem nemur niðurskurði

Þorskaflinn það sem af er fiskveiðiárinu sem hófst 1. september er minni en sem nemur miklum niðurskurði á kvótanum á þessu fiskveiðiári.

Það gefur vísbendingu um að sjómönnum hafi tekist að forðast þorskinn þegar þeir sækja í aðrar tegundir til þess að þurfa ekki hætta að veiða þær vegna skorts á þorskkvóta en eitthvað af þorski veiðist alltaf með öðrum tegundum.

Það sem af er þessu fiksveiðiári er aðeins búið að veiða 45 prósent af þorskkvótanum en á sama tíma í fyrra var búið að veiða 50 prósent og það af mun meiri kvóta en núna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×