Innlent

Með kúffiskveiðiskip í togi

Björgunarskip fóru frá Vopnafirði og Þórshöfn.
Björgunarskip fóru frá Vopnafirði og Þórshöfn.

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar er nú með kúffiskveiðiskipið Fossá ÞH í togi, eftir að Fossá fékk veiðarfæri í skrúfuna þegar skipið var statt austur af Langanesi undir morgun.

Þar með varð skrúfan óvirk og kallaði skipstjórinn eftir aðstoð. Áhöfnin, sem er sex menn, varpaði ankerum svo skipið ræki ekki stjórnlaust á meðan beðið var eftir bjrögunarskipum frá Raufarhöfn og Vopnafirði, sem komu að Fossá í morgun.

Þokkalegt veður er á svæðinu og amar ekkert að áhöfninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×