Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Auðvelt að týnast í Brussel segir lögreglustjóri Sómalska baráttukonan og ofurfyrirstæan Waris Dirie baðst í gærkvöldi afsökunar á að hafa valdið uppnámi með hvarfi sínu. Hún var týnd í Brussel í Belgíu í 3 daga. 8.3.2008 18:46
Dómsmálaráðherra vill skýr svör Dómsmálaráðuneytið hefur kallað forsvarsmenn lögregluembættisins á Suðurnesjum á sinn fund vegna fyrirhugaðra sparnaðaraðgerða hjá embættinu. Ráðuneytið vill fá ítarlegar upplýsingar og útskýringar á því hvers vegna rekstaráætlun embættisins fyrir árið í ár er ríflega 200 milljónum hærri en ráð er gert fyrir í fjárlögum. 8.3.2008 18:45
UNIFEM á Íslandi sett ný viðmið í söfnunum Starfandi aðalframkvæmdastýra UNIFEM í New York segir Íslandsdeild samtakanna hafa sett öðrum landsdeildum ný viðmið í fjáöflun. Milljónir hafa safnast í Fiðrildaviku sem lýkur í kvöld. Utanríkisráðherra Líberu segir framlag Íslandsdeildar UNIFEM mikilvægt til að draga úr ofbeldi gegn konum í heimalandi hennar. 8.3.2008 18:31
Spasskí kominn til landsins Skáksnillingurinn Boris Spasskí er kominn til landsins en hann lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu. Spasskí, sem háði hið heimsfræga einvígi við Bobby Fischer í Reykjavík 1972 er kominn hingað til þess að heiðra minningu Fischers en á morgun hefði hann orðið 65 ára. 8.3.2008 17:27
Thatcher útskrifuð af spítalanum Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Thatcher var í matarboði hjá vinum sínum í gærkvöldi þegar hún fékk aðsvif. Rannsóknir næturinnar leiddu ekkert í ljós en um tíma var óttast að hún hefði fengið slag. Hún var því útskrifuð í dag og er við góða heilsu að sögn aðstandenda. 8.3.2008 16:53
Stúlkan komin í leitirnar Stúlkan sem lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir í dag, Viktoría Guðmundsdóttir, er komin í leitirnar. Ekkert hafði spurst Viktoríu í nokkurn tíma en hún hefur nú skilað sér, heil á húfi. 8.3.2008 16:00
Kostunica segir af sér Forsætisráðherra Serbíu, Vojuslav Kostunica, sagði af sér á blaðamannafundi fyrir stundu. Hann segir stjórnarsamstarfið í landinu vera fyrir bí og því sé ekkert annað að gera enn að leysa upp stjórnina. 8.3.2008 15:08
Harður árekstur á Sæbraut Harður árekstur varð á gatnamótum Sæbrautar og Súðarvogs um tvöleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði skullu tveir bílar saman og voru þrír um borð í bílunum. Að sögn vaktstjóra leit atvikið illa út í upphafi en betur fór en á horfði. 8.3.2008 14:13
Meirihluti útlendra fanga eru ferðamenn 35 af 140 föngum sem nú sitja inni eru með erlendan ríkisborgararéttn eða einn af hverjum fjórum. Mikill meirihluti útlendinga sem dæmdir eru í fangelsi á Íslandi eru ferðamenn en ekki fólk sem búsett er á landinu. 8.3.2008 13:52
Frábært veður á skíðasvæðunum Frábært veður er nú í Bljáfjöllum og í Skálafelli og færið með besta móti. Mikið er af nýföllnum snjó og er sólskin og logn. Þar skemmta ungir og aldnir sér nú við skíða og brettarennsli í blíðunni. 8.3.2008 13:44
Hillary sögð skreyta sig með stolnum fjöðrum David Trimble, fyrrverandi forsætisráðherra Norður-Írlands, segir að Hillary Clinton skreyti sig með stolnum fjöðrum. Í yfirstandandi kosningabaráttu hefur Hillary sagst hafa átt stóran þátt í því að koma á friði á Norður-Írlandi þegar hún var forsetafrú í Hvíta húsinu. Trimble, sem fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir aðkomu sína að málinu, kannast hins vegar ekki við að Hillary hafi lagt mikið af mörkum. 8.3.2008 13:28
Fiðrildavikunni lýkur í dag Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er í dag. Fiðrildaviku UNIFEM á Íslandi lýkur í dag en með henni hefur verið vakin athygli á ofbeldi gegn konum á stríðshrjáðum svæðum. Heiðursgestir á fundi í morgun voru Ólúbanke King-Ake-rele, utanríkisráðherra Líberíu, og Joanna Sandler, aðalframkvæmdarstýra UNIFEM í New York. 8.3.2008 12:16
Lögreglustjórinn krafinn um útskýringar á rekstraráætlun Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur kallað eftir ítarlegum upplýsingum og útskýringum frá lögreglustjóraembættinu á Suðurnesjum vegna rekstraráætlunar sem embættið lagði fram fyrir árið í ár. Ráðuneytið leggur til að embættið spari um 191 milljón króna með fækkun stöðugilda, yfirvinubanni og fækkun stöðugilda svo fátt eitt sé nefnt. 8.3.2008 12:11
Fjögurra ára fangelsi fyrir nauðgun Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær Andrzej Kisiel í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa ráðist á konu eftir dansleik í Vestmannaeyjum í september síðast liðnum og nauðgað henni. 8.3.2008 12:04
Flugvöllur á Hólmsheiði vond hugmynd Innanlandsflugvöllur á Hólmsheiði er vond og óskynsamleg hugmynd út frá veðurfarssjónarmiðum, segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem telur að ef völlurinn hefði verið kominn á heiðina núna, hefði hann verið meira og minna lokaður vegna veðurs síðustu þrjá til fjóra daga. 8.3.2008 12:01
Flest skíðasvæði landsins opin Flest skíðasvæði landsins eru opin í dag. Opið er í Bláfjöllum frá klukkan 10 til 18 en þar er nánast logn og frost þrjár gráður. Í Skálafelli er einnig opið frá klukkan 10 til 18 en þar er smá snjókomma. 8.3.2008 10:27
Margaret Thatcher lögð inn á spítala Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi breska Íhaldsflokksins, var lögð inn á sjúkrahús í Lundúnum í gær. Að sögn lækna er líðan Thatcher stöðug. 8.3.2008 10:09
Kallaði Hillary skrímsli og þurfti að segja af sér Helsti ráðgjafi Baracks Obama í utanríkismálum sagði af sér í gær. Samantha Power sagði í viðtali við skoska blaðið The Scotsman að Hillary Clinton væri skrímsli sem svifist einskis til að ná völdum. 8.3.2008 10:04
Sex stútar teknir í nótt Sex voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt. 11 gistu fangaklefa lögreglunnar meðal annars vegna minniháttar líkamsárásar, þjófnaði og brot á lögreglusamþykktum. 8.3.2008 09:53
Dagblöðin í sókn í Danmörku Óli Tynes skrifar frá Svíþjóð Síðan fríblöðunum fjölgaði í Danmörku með tilkomu Nyhedsavisen, sem hin íslenska Dagsbrún gefur út , hefur upplag áskriftarblaðanna minnkað og tekjur sömuleiðis. Nú virðist hilla í viðsnúning. 8.3.2008 09:44
Sættir í deilu ríkja Rómönsku-Ameríku Forsetar Kólumbíu, Ekvadors og Venesúela hafa náð sátt í vikulöngum landamæradeilum sínum. 7.3.2008 22:54
Járnfrúin á spítala Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var í kvöld flutt á sjúkrahús í Lundúnum. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins 7.3.2008 23:40
Waris Dirie er fundin Waris Dirie, sómalska fyrirsætan og fyrrverandi James Bond stúlkan, er fundin, eftir því sem fram kemur á vefsiðu Fox fréttastofunnar. Lögreglan fann hana í miðborg Brussel í dag, þremur dögum eftir að hún hvarf, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þar í landi. 7.3.2008 23:08
Fangelsi og há fjársekt fyrir skattsvik og bókhaldsbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir stórfellt skattalaga- og bókhaldsbrot sem framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og prókúruhafi einkahlutafélags. Þá var hún og fyrirtækið dæmd til að greiða 78 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs 7.3.2008 21:16
Filippus og Bretadrottning ekki yfirheyrð í Díönumáli Hvorki Elísabet Bretadrottning né Filippus drottningarmaður verða kölluð til að bera vitni í réttarrannsókninni á dauða Díönu prinsessu. 7.3.2008 23:16
Segir ferð ráðuneytisstjóra til Íran eðlilega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra segist hafa átt frumkvæði að því að ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fór í heimsókn til Írans. Megintilgangur ferðarinnar hafi verið viðskiptalegs eðlis og að skapa góðvild vegna umsóknar Íslands í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Ingibjörg segir óþarfa að hafa áhyggjur af því að heimsóknin geti skaðað umsókn Íslendinga. 7.3.2008 20:00
Tillaga um að leggja niður FÍS felld Á aðalfundi FÍS, Félagi íslenskra stórkaupmanna, í dag var gengið til atkvæða um tillögu um að leggja FÍS niður og vinna að stofnun nýrra hagsmunasamtaka í verslun og þjónustu á grundvelli FÍS og SVÞ, Samtaka verslunnar og þjónustu. Atkvæði féllu á þann veg að já sögðu 56 og nei sögðu 87. 7.3.2008 19:55
Stórfelldur niðurskurður á Keflavíkurflugvelli Lögreglustjóra og sýslumanni á Suðurnesjum sem fer með lög- og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli verður gert að spara 191 milljón króna á þessu ári og tæplega 260 milljónir króna á næsta ári, samkvæmt tillögum dómsmálaráðuneytisins. Ekki verður ráðið í sumarafleysingar hjá lögreglu og tolli. 7.3.2008 18:30
Tími aðgerða runninn upp Formaður Vinstri grænna segir að tími aðgerða sé runnin upp í efnahagsmálum og leggur til víðtækar aðgerðir í efnahagsmálum sem m.a. fela í sér að styrkja stöðu Seðlabankans verulega. Hann segir Íslendinga nú vera að greiða herkostnaðinn af stóriðju- og útrásarveislunni undanfarin ár. 7.3.2008 18:30
Fimm bílar í árekstrum við Arnarnesbrú Einn var fluttur á slysadeild með minni háttar áverka eftir árekstur þriggja bíla nærri Arnarnesbrúnni í Garðabæ nú á fimmta tímanum. 7.3.2008 17:42
Enn óvíst hvort bólusett verði við leghálskrabbameini Heilbrigðisráðherra hefur enn ekki ákveðið hvort teknar verða upp bólusetningar gegn leghálskrabbameini eins og sóttvarnarráð hefur lagt til. Í dag hófst átak gegn krabbameini hjá körlum, en þar beinist athyglin helst að ristilkrabbameini sem skimun verður hafin á á næsta ári. 7.3.2008 17:26
Aðalfundur RÚV tveimur mánuðum of seint Aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. verður að líkindum haldinn í lok mánaðarins, tveimur mánaðum síðar en samþykktir félagsins gera ráð fyrir. Á aðalfundinum verður þó aðeins birt uppgjör fyrstu fimm mánaða félaginsins, en það tók til starfa 1. apríl í fyrra. 7.3.2008 17:21
Sjúkraflutningar hafa gengið vel eftir breytingar Landlæknir segir að sjúkraflutningar og viðbrögð við bráðavanda á höfuðborgarsvæðinu hafi gengið vel á þeim tæpu tveimur mánuðum síðan hætt var að hafa lækni í áhöfn neyðarbíls. 7.3.2008 17:14
Írakar heimsækja Tyrki eftir hernaðaraðgerðir Jalal Talabani forseti Íraks hóf sína fyrstu opinberu heimsókn til Tyrklands í dag, einni viku eftir að Tyrkir enduðu umdeilda hernaðaraðgerð gegn Kúrdískum uppreisnarmönnum í norðurhluta Írak. 7.3.2008 16:41
Seðlarnir ónýtir í sumar Þann 1. Júní næstkomandi verður ekki lengur hægt að innleysa 10, 50 og 100 króna seðla, sem voru mikið notaðir hér á árum áður. 7.3.2008 16:23
Leita réttar til að koma í veg fyrir lestarverkfall Þýska lestarfyrirtækið Deutsche Bahn hefur lagt fram lagalega kvörtun fyrir þýskum dómstólum til að koma í veg fyrir verkfall lestarstjóra sem áætlað er í næstu viku. Fréttastofa Reuters hefur eftir þýskum dómsstól í Frankfurt að kvörtunin verði tekin fyrir á mánudagsmorgun. 7.3.2008 16:23
Spænska stjórnin sakar ETA um manndráp Alfredo Perez Rubalcaba innanríkisráðherra Spánar sakaði í dag aðskilnaðarsinna Baska, ETA, fyrir morð á fyrrverandi bæjarfulltrúa í Baskahéraði í dag. Helstu stjórnmálaflokkar Spánar frestuðu lokakosningafundum sínum í dag vegna morðsins, en kosið verður á sunnudag. 7.3.2008 16:02
Ekki hægt að sanna eldsupptök í bruna á Kaffi Króki Ekki er hægt að færa óyggjandi sannanir fyrir eldsupptökum í bruna í einu sögufrægasta húsi Skagafjarðar um miðjan janúarmánuð. 7.3.2008 15:56
UPS-maður áfram í gæsluvarðhaldi og Annþór í afplánun Gæsluvarðhald yfir Tómasi Kristjánssyni sem handtekinn var í tengslum við svokallað hraðsendingarmál var framlengt til 18. apríl í dag. Hann sat í gæsluvarðhaldi sem rann út í dag en var framlengt á grundvelli almannahagsmuna. 7.3.2008 15:54
Hamas lýsir ábyrgð á skotárás í skóla Hamasliðar hafa lýst yfir ábyrgð á skotárásinni á prestaskóla gyðinga í Jerúsalem sem varð átta að bana í gær. Ónafngreindur liðsmaður Hamas sagði fréttastofu Reuters í dag að samtökin lýstu yfir fullri ábyrgð á árásinni í Jerúsalem. Samtökin myndu birta nánari atvik árásarinnar síðar. 7.3.2008 15:32
Tölvuþjófur úr Borgartúni handtekinn Maðurinn, sem lögreglan hefur leitað vegna tilraunar til stuldar á fartölvum úr tölvubúð við Borgartún í fyrradag, hefur verið handtekinn og hefur hann játað verknaðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 7.3.2008 15:18
Hoydal fundar með Ingibjörgu Sólrúnu á sunnudag Von er á Høgna Hoydal, sem fer með utanríkismál í færeysku landsstjórninni, til Íslands á sunnudag. 7.3.2008 15:15
FBI yfirheyrir mann vegna Times Square sprengingar Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur yfirheyrt mann sem sendi bandarískum þingmönnum bréf með mynd af skrifstofu nýliðaskráningar hersins á Times Square. Bréfið þótti grunsamlegt þar sem það var afhent í gær, daginn sem sprengja sprakk fyrir utan skrifstofuna. 7.3.2008 14:57
Ekki fleiri leitað til Stígamóta í 13 ár Tuttugu og þrír einstaklingar leituðu hjálpar Stígamóta í fyrra vegna kláms og vændis og hafa þeir ekki verið fleiri í sögu samtakanna. Þá leituðu alls yfir 500 manns aðstoðar hjá samtökunum í fyrra. 7.3.2008 14:57
Íhuga málssókn vegna umfjöllunar um Madeleine málið Lögmenn Kate og Gerry McCann íhuga nú að höfða mál gegn breskum dagblöðum sem þeir telja að hafi fjallað um mál Madeleine á ósanngjarnan og rangan hátt. 7.3.2008 14:30