Fleiri fréttir

Björgunarsveitir kallaðar út - Reykjanesbraut lokuð

Vegurinn undir Hafnarfjalli er nú lokaður vegna þess hve færðin er slæm en það á við víða á landinu. Lögreglan á Akranesi segir í tilkynningu að ekkert ferðaveður sé nú á Vesturlandsvegi og vegunum kring um Akrakfjall.

Rafmagnsleysi í Miðdal um stund

Miðdalslínu leysti út í morgun sem leiddi til þess að rekstrartruflun varð á háspennu á níunda tímanum. Það leiddi til þess að rafmagnslaust varð í Miðdal og á Hafravatnssvæðinu.

Ófærð í Reykjavík og nágrenni

Það hefur snjóað talsvert í Reykjavík og nágrenni í nótt og þung færð færð á öllu höfuðborgarsvæðinu og austur í sveitir.

Blæs nýju lífi í glæsivillu

Ingunn Wernersdóttir fjárfestir er að breyta Þingholtstræti 29a aftur í fjölskylduhús. „Það er verið að endurnýja húsið og gera það í eins upprunalegri mynd og hægt er,“ segir Ingunn.

Fóður og fjör verður Við Pollinn

Veitingastaðurinn Við Pollinn á Ísafirði tekur þátt í hátíðinni "Fóður og fjör“ sem haldin verður víðs vegar um land dagana 21.-24. febrúar. Fjölmargir veitingastaðir hafa tekið sig saman og ætla að kynna íslenskt hráefni til matargerðar auk þess sem hvert landsvæði ætlar að kynna það sem er að vetrarlagi. Á undanförnum árum hefur matarhátíðin Food & fun í Reykjavík áunnið sér veglegan sess í borgarlífinu í febrúar og nú vilja veitingastaðir úti á landi bjóða upp á spennandi matseðil í stórbrotinni íslenskri náttúru á þessum tíma árs.

Fór á strippbúllu í Reykjavík og borgaði með korti konunnar

Norðmaður einn er í vondum málum eftir að eiginkona hans fékk kreditkortareikninginn sinn. Maðurinn hafði farið í ferðalag til Íslands og eytt tveimur kvöldum á nektardansstað. Hann borgaði fyrir herlegheitin með kreditkorti en virðist ekki hafa áttað sig á því að um kreditkort eiginkonunnar var að ræða. Frá þessu er sagt á danska vefmiðlinum avisen.dk.

REI skýrslan í heild sinni

Hér fyrir neðan má nálgast lokaskýrslu stýrihópsins sem fjallaði um málefni Orkuveitunnar og REI. Vísir hefur í kvöld sagt frá efni skýrslunnar en samkvæmt heimildum Vísis hyggst Svandís Svavarsdóttir leggja skýrsluna fyrir borgarráð á morgun. Heimildir herma einnig að sjálfstæðismenn í Reykjavík hafi fundað í kvöld vegna skýrslunnar en ekki munu allir vera á eitt sáttir um innihaldið.

REI skýrslan: Aðkoma FL Group ráðandi

Vísir hefur undir höndum skýrslu stýrihóps sem falið var að fjalla um REI málið. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks fundar nú um innihald hennar en skýrslan verður lögð fyrir borgarráð á morgun.

Sigríður Lillý nýr forstjóri TR

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Sigríði Lillý Baldursdóttur í embætti forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins til fimm ára frá og með 6. febrúar

Obba með mestu nytin í fyrra

Kýrin Obba á bænum Brakanda í Hörgárdal mjólkaði mest allra íslenskra kúa á síðasta ári eða rúmlega 12.200 kíló af mjólk.

Hundrað almennir borgarar féllu í bardögunum í Tsjad

Að minnsta kosti hundrað almennir borgarar féllu í átökum skæruliða og stjórnarhermanna í Afríkuríkinu Tsjad um síðustu helgi. Samtökin Læknar án landamæra halda þessu fram og segja einnig að um 700 manns hafi slasast í átökunum.

Hnúfubak rak á land við Garðskaga

Stóreflis hnúfubakstarfur fannst í fjöru við Garðskaga í dag. Á vef Víkurfrétta kemur fram að dýrið sé rúmir 10 metrar á lengd hið minnsta og liggi á bakinu í fjöruborðinu.

Göturnar meira saltaðar en fyrri ár

Meira hefur verið borið af salti á götur höfuðborgarinnar í vetur en síðustu ár. Í janúar kom það að minnsta kosti einu sinni fyrir að saltbílar voru á ferðinni samfellt í sólarhring.

Listaverk Ólafs kostar tvo milljarða

Kostnaður við nýtt tónlistar- og ráðstefnuhús er áætlaður fjórtán milljarða króna, en var í upphafi áætlaður tólf milljarðar. Listaverk Ólafs Elíassonar á húsinu kostar tvo milljarða, en smíði þess er hafin í Kína.

FL tjáir sig ekki um REI skýrslu

Halldór Kristmannsson upplýsingafulltrúi FL Group segst ekki hafa séð REI skýrsluna og vill kynna sér efni hennar áður en hann tjáir sig um hana.

Tillögur REI stýrihópsins

Í skýrslu stýrihópsins sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að nýrri stjórn OR ásamt fulltrúum eigenda verði falið að vinna að tillögum um frekari framtíðarstefnumótun fyrir Orkuveitu Reykjavíkur í anda skýrslunnar.

Beðið eftir úttekt Ríkisendurskoðunar

Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, segir að nefndin muni bíða eftir stjórnsýsluúttekt á Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar áður en skoðað verði hvort endurskoða þurfi forsendur fjárlaga.

Bandaríkin - 48 látnir eftir ofsaveður

Björgunarsveitir leituðu í dag að fórnarlömbum ofsaveðurs og hvirfilbylgja í Suðurríkjum Bandaríkjanna sem tekið hafa líf 48 manns og slasað meira en 100 til viðbótar. Veðrið gjöreyðilagði hús og stórskemmdi verslunarmiðstöð, auk þess var fjöldi manns fastur innan um brak á heimavistum og elliheimilum. Veðrið hefur gengið eitthvað niður í dag og færst austur. Veðurstofa Bandaríkjanna hefur þó gefið út storm og hvirfilbyljaviðvörun svo enn er búist við slæmu veðri.

Unglingagengi slógust í Kringlunni

Öryggisverðir í Kringlunni hafa átt erfiðan dag þar sem hópur unglinga safnaðist saman í verslunarmiðstöðinni fyrir stundu. Svo virðist sem tvö gengi unglinga hafi mæst í Kringlunni og áttu þau greinilega eitthvað sökótt hvort við annað.

Heitavatnsrör gefa sig í þíðu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að fjölbýlishúsi í Flétturima í Grafarvogi um eittleytið í dag en þar hafði ofn sprungið og flæddi vatn úr honum.

Byggingarstofnun í stað Brunamálastofnunar

Byggingarstofnun mun taka við hlutverki Brunamálastofnunar og hlutverk slökkviliðs verður betur skilgreint í lögum samkvæmt frumvarpi um breytingar á lögum um brunavarnir sem Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi.

Forseti Tsjad með fulla stjórn

Idriss Deby forseti Tsjad sagði í dag að ríkisstjórnin hefði náð fullri stjórn á höfuðborginni D'Djamena og landinu öllu. Þetta er í fyrsta sinn sem forsetinn kemur opinberlega fram síðan uppreisnarmenn réðust á borgina um síðustu helgi.

Mikil óánægja með stjórnendur Sláturfélagsins

Mikil óánægja er á meðal margra starfsmanna Sláturfélags Suðurlands en á síðustu dögum hafa sex starfsmenn sölu og markaðsdeildar, þar af þrír stjórnendur, sagt upp störfum hjá fyrirtækinu.

Beðið eftir skýrslu starfshóps um uppbyggingu í heilsugæslu

Starfshópur á vegum heilbrigðsráðherra fer nú yfir stöðuna í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu og hyggst ráðherra bíða eftir skýrslu hans áður en frekari áform um uppbyggingu verða tekin. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Kvikmynd um einkalíf Putin

Ný kvikmynd um einkalíf Vladimir Putin Rússlandsforseta verður brátt gefin út á DVD í Rússlandi. Myndin nefnist A Kiss - Off the record og er væntanlegur útgáfudagur Valentínusardagurinn, 14. febrúar.

Skimun vegna ristilkrabbameins hefst í byrjun næsta árs

Reiknað er með að skimun á krabbameini í ristli hefjist í upphafi næsta árs. Þetta kom fram í svari Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri - grænna, á Alþingi í dag.

48 látnir og þúsundir flýja flóð í Bólivíu

Að minnsta kosti 48 eru látnir og 40 þúsund hafa misst heimili sín í flóðum í Bólivíu í kjölfar hellirigninga síðustu vikna. Tvær ár í héruði sem verst varð úti í flóðunum flæddu yfir bakka sína og ógna nú samgönguæðum frá Trinidad, helstu borg héraðsins. Ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi og hafið björgunarstörf.

Milljörðum minni afborganir en gert var ráð fyrir

Ríkisendurskoðun áformar að ljúka stjórnsýsluúttekt á starfsemi Þróunarfélagsins á Keflavíkurflugvelli fyrir miðja febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá formanni fjárlaganefndar, Gunnari Svavarssyni, en nefndin fjallaði um málið á fundi sínum í morgun.

Óskar segir nýjan meirihluta ýta málum á undan sér

"Þetta staðfestir það sem ég óttaðist að deiluskipulag miðborgarinnar væri í uppnámi," segir Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokks eftir að meirihlutinn samþykkti á fundi Skipulagsráðs í dag að skipa vinnuhóp og stofna miðborgarteymi vegna endurskoðunar á deiliskipulagi Laugavegsreits.

Fordæmdu pyntingar Bandaríkjamanna

Þingmenn allra flokka fordæmdu í dag pyntingar Bandaríkjamanna í Guantanamo-búðunum og farið var fram á að tillaga Vinstri - grænna um yfirlýsingar frá Alþingi þessa efnis yrði hraðað í gegnum þingið.

Alyson Bailes fær sænska orðu fyrir störf sín

Karl Gústaf Svíakonungur hefur ákveðið að veita Alyson Bailes, sendiherra og gestaprófessor við Háskóla Íslands, viðurkenningu með Stórriddarakrossi hinnar konunglegu sænsku Norðurstjörnuorðu.

Furðuverur á sveimi í borginni

Öskudagurinn er í dag og á þessum degi má búast við að sjá ýmsar furðuverur á sveimi um borg og bæ, syngjandi í von um góðgæti.

Segir hross tekin fram yfir sjómenn

„Það er greinilegt á þessum viðbrögðum að Landhelgisgæslan, með tilliti til þarfa fyrir þyrluaðstoð að hross eru tekin fram yfir sjómenn,“ skrifar Bergþór Gunnlaugsson yfirstýrimaður og afleysingarskiptsjóri á Hrafni GK 111.

Illa farið með hesta

Veðrið hefur verið óblítt við útigangshross undanfarnar vikur. Bæði mikil óveður og svo snjókoma og frost með tilheyrandi jarðbanni.

Sjá næstu 50 fréttir