Tillögur REI stýrihópsins 6. febrúar 2008 18:09 Svandís Svavarsdóttir formaður stýrihópsins.
Í skýrslu stýrihópsins sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að nýrri stjórn OR ásamt fulltrúum eigenda verði falið að vinna að tillögum um frekari framtíðarstefnumótun fyrir Orkuveitu Reykjavíkur í anda skýrslunnar. Hér að neðan má sjá kafla úr skýrslunni þar sem stýrihópurinn fjallar um tillögur sínar. Stýrihópur borgarstjórnar telur mikilvægt að náð verði niðurstöðu um hvaða leiðir fara skuli í málefnum Reykjavík Energy Invest á næstu mánuðum og árum. Nýrri stjórn OR ásamt fulltrúum eigenda verði falið að vinna að tillögum um frekari framtíðarstefnumótun fyrir Orkuveitu Reykjavíkur í anda þeirrar skýrslu sem hér er lögð fram og þær tillögur hljóta svo að koma til meðferðar í þeim sveitastjórnum sem í hlut eiga. Hið endanlega vald í þessum efnum hlýtur að vera þar, hjá sveitarstjórnunum sjálfum. Stýrihópurinn telur að Orkuveitan eigi að vera áfram í 100% í eigu sveitarfélaganna og leggur ríka áherslu á að meginhlutverk hennar sé að sinna almannaþjónustu. Í vinnu stýrihópsins hefur komið fram að Orkuveitan er ýmist talin starfa á sviði einkaréttar eða á sviði opinberrar stjórnsýslu. Stýrihópurinn telur að allt þetta ferli sýni mikilvægi þess að tekinn verði af allur vafi á þessu lykilatriði. Stýrihópurinn er sammála um þá meginreglu að þau fyrirtæki verði ekki gert að hlutafélagi eins og lagt var til á fundi stjórnar í ágúst 2007. Hópurinn leggur því til að í samvinnu Orkuveitunnar og eigenda verði farið yfir lagaumhverfi fyrirtækisins, samstarfssamning um það sem og starfsreglur stjórnar og stjórnenda sem gilda um ákvarðanatöku og rekstur Orkuveitunnar. Stýrihópurinn telur að starfsemi Orkuveitunnar, líkt og stjórnsýslan verði að starfa fyrir kjörna fulltrúa, embættismenn og lúta pólitískum vilja og lýðræðislegum ákvörðunum. Áhöld eru um hvort Orkuveitan hafi þróast of langt frá eigendum og á eigin forsendum. Hópurinn leggur því til að fundargerðir Orkuveitunnar verði hér eftir sendar borgar- og bæjarráðum til upplýsingar og umfjöllunar eftir atvikum. Stýrihópurinn telur eðlilegt að REI verði áfram rekið með það hlutverk að sinna þróunar- og fjárfestingarverkefnum á erlendri grund og það verði 100% í eigu OR. REI taki þátt í verkefnum erlendis eitt sér eða með öðrum samkvæmt ákvörðun stjórnar OR hverju sinni. Hópurinn leggur jafnframt áherslu á að lýðræðislegt aðhald verði tryggt við stjórn REI. Umboð stjórnarmanna þarf að vera skýrara og beinir jafnframt sjónum okkar að því hvert sé umboð kjörinna fulltrúa, hvert sé valdsvið stjórnenda, embættismanna og umboð og jafnframt hvert hlutverk kjörinna fulltrúa sé og með hvaða hætti hægt sé að sinna því og halda því til haga gagnvart kjósendum. Hópurinn leggur til að stjórnarmenn fái erindisbréf frá viðkomandi borgar- og bæjarstjórnum til að tryggja skýrt umboð til ákvarðanna. Aðgangur kjörinna fulltrúa að upplýsingum verði jafnframt bættur, bæði fulltrúa meirihluta og minnihluta. Stýrihópurinn er sammála um að í ferlinu hafi orðið trúnaðarbrestur milli æðstu stjórnenda REI og Orkuveitunnar annars vegar og ákveðinna borgarfulltrúa hins vegar. Brýnt er að endurvinna það traust. Stýrihópurinn gerir það að tillögu sinni að lærdómur þessi verði kynntur í stjórnum Orkuveitunnar, Strætó, Sorpu og Faxaflóahafna ásamt lykilstofnunum og embættismönnum í stjórn borgarinnar. Í framhaldi af því verði skrifstofu borgarstjórnar falið að halda niðurstöðum og tillögum skýrslunnar til haga við mögulega endurskoðun á samþykktum borgarinnar.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Fleiri fréttir Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Sjá meira