REI skýrslan: Aðkoma FL Group ráðandi 6. febrúar 2008 17:46 Vísir hefur REI skýrsluna undir höndum.
Vísir hefur undir höndum skýrslu stýrihóps sem falið var að fjalla um REI málið. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks fundar nú um innihald hennar en skýrslan verður lögð fyrir borgarráð á morgun. Á meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er það álit stýrihópsins að aðkoma utanaðkomandi hagsmunaaðila á borð við FL Group við ákvarðanir í REI málinu hafi verið mikil og jafnvel ráðandi. Þá segir: "Ljóst er bæði af ferlinu eins og það liggur fyrir en ekki síður af vinnu stýrihópsins að engan veginn lá fyrir hvert væri umboð stjórnarmanna, fulltrúa eigenda eða stjórnenda til að taka stórar ákvarðanir." Stýrihópurinn telur að verulega hafi skort á að hagsmunum OR og eigenda henn hafi verið haldið til haga í málinu. Í fylgiskjali þar sem farið er yfir röð atburða kemur fram að að fulltrúi FL Group hafði „beina aðkomu að gerð þjónustusamningsins milli IR og REI.“ Þá segir að hópurinn sé sammála um að í ferlinu hafi orðið trúnaðarbrestur milli æðstu stjórnenda REI og Orkuveitunnar annars vegar, og ákveðinna brogarfulltrúa hins vegar. „Brýnt er að endurvinna það traust." Í framhaldi kemur reyndar fram að ákveðinn klofningur er í stýrihópnum því skýrslunni segir að ekki sé einróma skilningur innan stýrihópsins á því atriði. Undir kaflanum "lærdómar" í skýrslunni segir að atburðarrás REI málsins sé áfellisdómur yfir "stjórnsýslu málsins" og þá sérstaklega á vettvangi fyrirtækja í eigu borgarbúa. Við lestur skýrslunnar kemur það bersýnilega í ljós að í henni er að finna miklar málamiðlanir. Veigamiklum þáttum í málinu er gert skil með loðnu orðalagi og óvíst að þetta verði til að svara öllum spurningum sem enn standa eftir varðandi REI málið. Tillögur stýrihópsins til úrbóta má lesa hér
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira