Ómannúðlegt ástand i Kenía 7. febrúar 2008 08:53
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna segir ástandið í Kenía vera ómannúðlegt og hvetur stjórnmálaleiðtoga þar í landi til þess að leysa stjórnarkreppuna sem þar ríkir með samningum og málamiðlunum. Þetta eru fyrstu viðbrögð sem koma frá öryggisráðinu vegna óeirða sem hafa ríkt í landinu frá því að kosningar fóru þar fram í desember. Næstum eitt þúsund keníubúar hafa farist í átökum þar og 300 þúsund hafa særst. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Raila Odinga, sakar Mwai Kibaki forseta um svindl í forsetakosningunum. Í yfirlýsingu sinni krefst Öryggisráðið þess að Kofi Annan, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, beiti sér fyrir sáttum í deilunni. Þá er þess jafnframt krafist að þeir sem beri ábyrgð á ódæðisverkum sem hafa verið framin síðan í desember verði látnir svara fyrir verk sín. Þá vill öryggisráðið að Odinga og Kibaki axli ábyrgð og finni pólitíska lausn á deilunni. Öryggisráðið segir jafnframt að uppræta þurfi glæpagengi og afvopna þau og tryggja þurfi að mannréttindi séu virt að nýju. Utanríkisráðherrar frá Djibouti, Eþíópíu, Súdan, Úganda og Sómalíu eru komnir til Naíróbi höfuðborgar Kenía til fundar í Austur Afríkuráðinu, þar sem þeir hyggjast ræða ástandið í Kenía í dag.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Sjá meira