Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Langar biðraðir við sölustaði Bæjarins bestu Fleiri hundruð manns eru nú við pylsuvang Bæjarins bestu í miðbæ Reykjavíkur til að kaupa pylsu og kók á tuttugu krónur. Biðröðin nær frá pylsuvagninum alla leið að Lækjargötu. Eigandinn segist vera mjög ánægður með móttökurnar. 8.9.2007 14:17
Ráðist á aðstoðarlögreglustjóra í miðborginni Ölvaður maður réðst að Herði Jóhannessyni, aðstoðarlögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á meðan hann var við eftirlit í miðbænum í nótt. Í fylgd með Herði voru þeir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, Jón HB. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn. Saman tókst þeim að snúa manninn niður. 8.9.2007 13:48
Dýrt að pissa í Reykjavík Alls voru tuttugu og tveir einstaklingar sektaðir fyrir að kasta af sér hlandi á almannafæri í miðborginni í nótt. Mennirnir voru allir færðir á lögreglustöð og gert að greiða sekt. 8.9.2007 13:03
Páfi heimsækir kraftaverkamynd Þúsundir kristinna pílagríma tóku vel á móti Benedikti páfa sextánda í bænum Mariazell í Austurríki í dag. Tilefni heimsóknarinnar er 850 ára afmæli Mariazell en bærinn er mikilvægur kaþólikkun vegna útskorinnar helgimyndar af Maríu Mey en myndin sú er talin geta gert kraftaverk. Pílagrímarnir létu ekki hellirigningu stoppa sig í að berja páfann augum og ganga með honum að altari helgimyndarinnar. 8.9.2007 12:34
Fossett ófundinn Enn hefur ekkert spurst til milljarðarmæringsins og ævintýramannsins Steves Fossett en hans hefur verið leitað síðan á mánudag. 26 flugvélar og þyrlur leita hans nú í Nevada og eru leitarmenn vongóðir um að finna Fossett á lífi þar sem hann er þekktur fyrir að bjarga sér oft á ótrluegan hátt úr háska. 8.9.2007 12:32
Pavarotti jarðsunginn í dag Tenórinn og stórsöngvarinn Luciano Pavarotti verður jarðsunginn í heimabæ sínum Modena á Ítalíu dag. Tugþúsundir manna hafa undanfarna daga safnast saman við kirkju bæjarins til að kveðja tenórinn sem með áreynslulausum söng sínum heillaði alla heimsbyggðina. Útförinni verður sjónvarpað beint á Ítalíu en aðeins boðsgestir fá að vera viðstaddir hana. 8.9.2007 12:30
Bílvelta við Blönduós Flytja þurfti unga stúlku á sjúkrahúsið á Blönduósi eftir að bíll sem hún ók valt við bæinn Húnsstaði sunnan við Blönduós um klukkan ellefu í morgun. Ekki er talið að stúlkan hafi slasast alvarlega. Þá fór bíll útaf veginum við Langadal laust eftir klukkan níu í morgun. 8.9.2007 12:29
Heimurinn er hættulegur, segir Bush Varnir Bandaríkjanna eru takmarkaðar þrátt fyrir efnahagslegan og hernaðarlegan styrk landsins sagði Osama Bin Laden á myndbandi sem hann sendi frá sér í gær. George Bush, Bandaríkjaforseti, segir ummæli Osamas bin Ladens á myndbandinu, sýni hver langtímamarkmið hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Írak séu og hversu heimurinn, sem við lifum í, sé hættulegur. 8.9.2007 12:23
Sextán láta lífið í átökum á Sri Lanka Tólf liðsmenn Tamíl tígra féllu í átökum milli þeirra og stjórnarhersins í norðurhluta Sri Lanka í morgun. Fjórir hermenn féllu í átökunum. 8.9.2007 12:06
Lítil þungmálmamengun í sjónum umhverfis landið Mengun þungmálma í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið. Hár styrku kadmíns við landið er talinn eiga sér náttúrulegar orsakir. 8.9.2007 11:59
Fjórir sérsveitarmenn við eftirlit og löggæslu í miðborginni í nótt Aukin sýnileiki lögreglu í miðbæ Reykjavíkur í nótt hafði jákvæð áhrif á ástandið að sögn Jóns Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra. Fjórir sérsveitarmenn og fimm lögreglumenn úr liði höfuðborgarlögreglunnar voru við eftirlit og löggæslu í miðborginni í nótt til viðbótar þeim lögreglumönnum sem almennt sinna þessu eftirliti. 8.9.2007 10:54
Sautján láta lífið í sprengjuárás í Alsír Sautján létu lífið í sprengjuárás í borginni Dellys í austurhluta Alsír í morgun og 30 særðust. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bifreið sem stóð á hafnarsvæði borgarinnar. 8.9.2007 10:47
Pavarotti borinn til grafar á Ítalíu Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti verður borinn til grafar á Ítalíu í dag. Meðal þeirra sem verða viðstaddir útförina eru söngvararnir Placido Domingo, Jose Carreras og Bono, söngvari hljómsveitarinnar U2. Þá mun Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, einnig verða viðstaddur athöfnina. 8.9.2007 10:24
Áfengisreglur brotnar á veitingastöðum Óeinkennisklæddir lögregluþjónar voru á ferð í miðborg Reykjavíkur í nótt. Voru mennirnir meðal annars að fylgjast með því að veitingastaðir færu að settum reglum. Mikið var um að fólk labbaði út af stöðum með áfengi í glösum að sögn lögreglu. 8.9.2007 10:06
Ráðist á pilt fyrir utan skemmtistað á Selfossi Fimmtán ára piltur hlaut töluverða höfuðáverka eftir að tæplega tuttugu ára karlmaður réðst á hann fyrir utan skemmtistaðinn Kaffi krús á Selfossi um tvöleytið í nótt. Lögreglan kom á vettvang skömmu síðar og fylgdi piltinum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem sauma þurfti nokkur spor á höfði hans. 8.9.2007 09:53
Eldur í fjölbýlishúsi í Njarðvík Fjölbýlishús að Brekkustíg 31 C í Njarðvík er mikið skemmt eftir að eldur kom þar upp rétt eftir miðnætti í nótt. Íbúar hússins voru allir komnir út þegar lögreglan og slökkvilið kom á vettvang. 8.9.2007 09:50
Lögreglan leysir upp unglingagleðskap í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gær unglingapartý í Garðabæ eftir að húsráðandi hafði óskað eftir aðstoð hennar til leysa upp gleðskapinn. Unglingurinn á heimilinu hafði boðið nokkrum vinum sínum í partý en fljótlega fylltist húsið af óboðnum gestum. 8.9.2007 09:44
Ofurölvi á felgunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ölvaðan ökumann á Strandgötu í Hafnarfirði. Maðurinn ók um á loftlausu dekki á móti einstefnugötu og var ekki með ökuskírteini. 8.9.2007 09:35
Fjórir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Fjórir voru fluttir á slysadeild í gærkvöldi eftir harðan árekstur tveggja bifreiðar á Hringbraut við Birkimel. Fjölmörg vitni gáfu sig fram og bar öllum saman um að annarri bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða. 8.9.2007 09:30
Réðust á mann með golfkylfu og piparúða Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og var mikið um ölvun og almenn ólæti í miðborginni. Fangageymslur fylltust og þurfti lögreglan að rýma til svo fleiri kæmust að. Einn maður fannst rotaður í Hafnarstræti og þá var ráðist á mann með golfkylfu og piparúða við Broadway. 8.9.2007 09:22
Harður árekstur á Hringbraut Tvær bifreiðar lentu harkalega saman á Hringbraut rétt hjá Birkimel laust eftir klukkan tíu í kvöld. Lögregla og sjúkraliðar eru enn á staðnum. 7.9.2007 22:52
Eldur í hópbifreið í Þrastarlundi Eldur kom upp í rútu í Þrastarlundir laust fyrir klukkan átta í kvöld. Um þrjátíu manns voru í rútunni en þá sakaði ekki. Bílstjóra tókst að slökkva eldinn áður en slökkvilið bar að garði. 7.9.2007 22:48
Kaþólska kirkjan greiðir 13 milljarða í skaðabætur Fulltrúar Kaþólsku kirkjunnar í San Diegoborg í Kaliforníu hafa samþykkt að greiða um 13 milljarða íslenskra króna í skaðabætur til þeirra sem segjast hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun af hálfu presta. Samkomulagið var gert í dag milli lögfræðinga kirkjunnar og fórnarlambanna sem eru 144 talsins. 7.9.2007 22:04
Ný þyrla leigð í stað TF-SIF Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Björns Bjarnason, dómsmálaráðherra, um leigu á nýrri björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Þyrlan á að koma í stað TF-SIF sem eyðilagðist eftir að hún féll í sjóinn skammt frá Straumsvík fyrr í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns. 7.9.2007 21:52
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaðan ökumann Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF Gná, var kölluð út laust fyrir klukkan sex í kvöld til að ná í slasaðan ökumann til Breiðdalsvíkur. Maðurinn slasaðist í bílslysi í Berufirði. 7.9.2007 21:28
Einkavæðing leikskóla ekki lausn á manneklu Einkavæðing leikskóla er ekki lausn á núverandi manneklu að mati Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa og fulltrúa Samfylkingarinnar í leikskólaráði Reykjavíkur. Hún gagnrýnir ummæli formanns leikskólaráðs sem segist vilja kanna einkarekstur til að draga úr manneklu. 7.9.2007 21:13
Seinheppinn þjófur brýst inn í karateskóla Kólumbískur þjófur í Santander héraðinu skammt frá höfuðborginni Bogota hefði eflaust geta fundið betri stað til að ræna en karateskóla. Nemendur skólans voru ekki lengi að afvopna þjófinn sem nú liggur illa slasaður á spítala eftir hina misheppnuðu ránsferð. 7.9.2007 20:39
Mörg umferðaróhöpp í höfuðborginni Óvenju mörg umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag milli klukkan þrjú og sjö síðdegis. Að sögn lögreglu var í öllum tilvikum um að ræða minniháttar slys. 7.9.2007 20:24
Fundu þrjú grömm af hassi í bifreið Lögreglan á Blöndósi lagði í dag hald á um þrjú grömm af hassi en efnin fundust í bifreið tveggja ungmenna. Að sögn lögreglu var bíllinn stöðvaður við reglubundið eftirlit. Fólkið þótti hins vegar grunsamlegt og var ákveðið að láta fíkniefnahund leita í bifreiðinni. 7.9.2007 20:19
Keyrt á ölvaðan reiðhjólamann Keyrt var á reiðhjólamann í Lækjargötu laust eftir klukkan sjö í dag. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, slasaðist ekki en við nánari skoðun kom í ljós að hann var ölvaður. 7.9.2007 19:56
Segir frekari hryðjuverkaárásir á Bandaríkin mögulegar Bandaríkjamönnum hefur enn ekki tekist að koma veg fyrir að hægt sé að gera hryðjuverkaárás þar í landi. Þetta kemur fram í ræðu Osama bin Laden, leiðtoga Al Kaída samtakanna, í myndbandi sem gert var í tilefni af því að sex ár eru liðin frá árásinni á tvíburaturnana í New York. Sérfræðingum hefur ekki tekist að sannreyna að myndbandið sé nýtt. 7.9.2007 19:42
Vistaskipti í utanríkisráðuneytinu Þórir Ibsen, skrifstofustjóri auðlinda- og umhverfisskrifstofu, og Jón Egill Egilsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, munu hafa hlutverkaskipti í næst viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 7.9.2007 19:06
Háskólanám hafið á Sólheimum í Grímsnesi Háskólanám hófst í dag á Sólheimum í Grímsnesi. Á meðan hinn landskunni Reynir Pétur Ingvarsson sýslar við lífrænt ræktaðar tómatplöntur leggja bandarískir háskólastúdentar stund á nám í umhverfisfræðum á Sólheimum. 7.9.2007 19:03
Á annan tug kvenna of feitar fyrir tæknifrjóvgun hjá Art Medica Á annan tug kvenna getur ekki farið í tæknifrjóvgun hjá Art Medica á ári hverju vegna ofþyngdar. Læknar þar segja of feitar konur vera í meiri hættu að fá sjúkdóma á meðgöngu og auknar líkur séu á fæðingargöllum. 7.9.2007 19:00
Bæjarins beztu 70 ára og pylsan á 20 kall um helgina Elsti veitingastaður landsins, Bæjarins beztu, er 70 ára í dag. Í tilefni afmælisins fæst pylsan og kókið á 20 krónur um helgina, laugardag og sunnudag. Öll velta helgarinnar fer til stuðnings Konukoti. 7.9.2007 18:58
Jafnlaunastefna KÍ úrelt Formaður leikskólaráðs Reykjavíkur efast um að opinbert kerfi leikskóla þrífist í markaðsdrifnu hagkerfi Íslands. Hún segir jafnlaunastefnu Kennarasambandsins úrelta í þjóðfélaginu í dag. 7.9.2007 18:58
Eðlilegt að ráða erlenda flugmenn til starfa Flug Icelandair gæti raskast um helgina vegna kjaradeilu við íslenska flugmenn. Forstjóri félagsins segir fullkomlega eðlilegt að ráða erlenda flugmenn til starfa hjá fyrirtækjum sem félagið rekur út í heimi, íslenskir flugmenn hafi ekki forgang að þeim störfum. 7.9.2007 18:54
Astrópía valtar yfir Bourne Ultimatum Aðsókn á kvikmyndina Astrópíu hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Fjallað er um málið í nýjasta tölublaði bandaríska kvikmyndablaðsins Screen International. Þar þykir það eftirtektarvert að á sama tíma og aðsókn á stórmyndina Bourne Ultimatum dregst saman hérlendis eykst aðsókn á Astrópíu. 7.9.2007 18:49
Samson fjárfestir fyrir milljarða í miðborginni Samson Properties hefur fjárfest í húseignum á Laugavegi og nágrenni hans fyrir um tíu milljarða króna. Félagið hyggur á mikla uppbyggingu í miðborginni. 7.9.2007 18:45
Vilja rannsóknarnefnd um Gjástykki Fulltrúar þrennra náttúruverndarsamtaka kröfðust þess á fundum tveggja þingnefnda í dag að Alþingi skipaði sérstaka rannsóknarnefnd til kafa ofan í ákvörðun fyrrverandi iðnaðarráðherra að veita Landsvirkjun rannsóknarleyfi í Gjástykki tveimur dögum fyrir síðustu þingkosningar. 7.9.2007 18:45
Móðir Madeleine grunuð Lögreglurannsókn í Portúgal vegna hvarfs breskrar stúlku síðastliðið vor beinist nú að foreldrum stúlkunnar. Móðir Madeleine McCann fékk í dag stöðu grunaðrar hjá yfirvöldum í Portúgal og verið er að yfirheyra föðurinn. 7.9.2007 18:40
Orka Þjórsár boðin öðrum til kaups Forgangur Alcan í Straumsvík að orku Þjórsárvirkjana er úr sögunni og hefur Landsvirkjun þegar hafið viðræður við önnur fyrirtæki. Ekki er þó búið að loka á Alcan. 7.9.2007 18:30
Fyrstu etanólbílarnir komnir til Íslands Nú eru komnir til landsins þrír bílar, einn Saab og tveir Volvoar, sem eru knúðir af etanólblöndu. Etanól er umhverfisvænt eldsneyti, tiltölulega ódýrt og auðvelt í dreifingu. 7.9.2007 18:22
Ósanngjörn, óþolandi og ómálefnaleg gagnrýni Gagnrýni Afls, starfsgreinasambands, á þann frest sem Vinnumálastofnun veitti verktökum á Kárahnjúkasvæðinu í gær er ósanngjörn, ómálefnaleg og óþolandi að mati forstjóra stofnunarinnar. Hann segir gagnrýni starfgreinasambandsins fara langt út fyrir öll mörk og varla sé mark takandi á henni. 7.9.2007 18:17
Einhliða upptaka ekki sniðug Einhliða upptaka evru nú gæti leitt til atvinnuleysis segir framkvæmdastjóri ASÍ. Hann telur skynsamlegast að Ísland gangi í Evrópusambandið í framtíðinni. 7.9.2007 18:00