Fleiri fréttir

Utanríkisráðherrar Arabaríkja funda í Kaíró

Utanríkisráðherrar nokkurra arabaríkja munu hittast á fundi í Kaíró í Egyptalandi í dag til að bregðast við tillögum George Bush Bandaríkjaforseta um að alþjóðlegur friðarfundur verði haldinn seinna á þessu ári, um ástandið í Miðausturlöndum.

Kristinn Hallsson óperusöngvari látinn

Kristinn Hallsson óperusöngvari andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfararnótt laugardags. Hann var fæddur í Reykjavík árið 1926 og var áttatíu og eins árs að aldri. Hann hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk síðan brottfararprófi frá Konunglega tónlistarskólanum í London. Kristinn tók þátt í fjölda óperusýninga og tónleika, bæði hér á landi og erlendis og stundaði tónlistarkennslu.

Hann bjargaði lífi dóttur minnar

Hann bjargaði lífi dóttur minnar, segir móðir stúlkunnar sem ráðist var á með hrottafengnum hætti fyrir utan skemmtistaðinn Sólon um helgina, og vísar þar til sjónarvotts sem kom stúlkunni til hjálpar. Stúlkan, sem var meðal annars bitin á eyra, liggur enn á sjúkrahúsi, en hún undirgekkst aðgerð í gær.

Sýndarveruleikinn færist nær

Í Second Life-sýndarheiminum halda tónlistarmenn tónleika, háskólar kenna fjarnemum og fyrirtæki opna reglulega útibú. Notendur eru tæplega tvær milljónir og er heimurinn opinn öllum.

Nafn mannsins sem lést við Minni-Borg

Maðurinn sem lést í bifhjólaslysi á laugardagskvöldið á Biskupstungnabraut á móts við verslunina Minni-Borg hét Gunnlaugur Björnsson, fæddur 1977. Gunnlaugur bjó í foreldrahúsum í Hveragerði. Hann var ókvæntur og barnslaus.

Tekjur ríkisins af fjármagnstekjuskatti aukast um þriðjung

Fjármagnstekjuskattur hækkar um þriðjung á milli ára og nú greiða rösklega níutíuþúsund landsmenn skatt af fjármagnstekjum. Skattgreiðendum hefur aldrei fjölgað jafn mikið á milli ára en nú og er skýringin sá mikli fjöldi útlendinga sem bæst hefur á íslenskan vinnumarkað.

Talibanar framlengja lokafrest til hálftólf í dag

Talibanar sem hafa 22 Suður-Kóreumenn í haldi hafa framlengt lokafrest sinn til klukkan hálftólf í dag. Fresturinn sem þeir gáfu upphaflega rann út í morgun og ekki var vitað hvort að gíslarnir væru enn á lífi. Talsmaður talibana staðfesti þó í dag að þeir væru enn á lífi.

Norðmenn hætta að þjálfa írakskar löggur

Norðmenn eru hættir að taka að sér þjálfun íraskra lögregeluforingja í Noregi. Ein ástæðan er sú að tíu þeirra hafa notað tækifærið til þess að stinga af og hefja nýtt líf á Vesturlöndum. Þeir hafa hreinlega horfið sporlaust nema hvað einn hefur sótt um hæli í Noregi sem pólitískur flóttamaður.

Fjöldaframleidd lífverkfræðihönd

Skoskt fyrirtæki býður almenningi upp á fyrst u fjöldaframleiddu taugast ýrðu lí fverkfræðihöndina. Þetta hljómar eins og eitthvað úr Terminator eða Star Wars en er deginum sannara. Búið er að setja á markað svokallaðan „bionic arm“, eins konar lífverkfræðilega hönd.

Úrvalsvísitalan sveiflaðist mikið í júlí

Miklar hreyfingar voru á Úrvalsvísitölunni í júlí. Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að eftir miklar hækkanir í byrjun mánaðarins þar sem vísitalan náði hæsta lokagildi sínu 18. júlí í 9.016 stigum hafi Úrvalsvísitalan gefið töluvert eftir. Lokagildi vísitölunnar á föstudaginn var 8.697 stig sem samsvarar 3,54 prósenta lækkun frá lokagildinu 18. júlí.

Nærri 82 milljarðar greiddir í almennan tekjuskatt

Alls greiða 175.399 einstaklingar, eða 69% framteljenda almennan tekjuskatt, sem nemur samtals 81,9 milljarði króna fyrir árið 2006. Skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur hækkað um 5,1 % milli ára, eða mun minna en gjaldstofninn, sem hækkaði um 10%. Þetta er meðal annars vegna þess að tekjuskattshlutfallið lækkaði úr 24,75% í 23,75% í upphafi ársins 2006 auk þess sem persónuafsláttur hækkaði um 2,5%.

Bilun í götuljósarafstreng

Í nótt var Orkuveitu Reykjavíkur tilkynnt um bilanir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, við Eskiholt í Garðabæ og Skipholt í Reykjavík. Við eftirgrennslan fannst ekki bilun í Garðabæ en við Skipholt hafði götuljósarafstrengur bilað.

Eldur í bíl á Hverfisgötu

Eldur kom upp í bíl á Hverfisgötu um klukkan hálf sex í kvöld. Að sögn lögreglunnar var bíllinn á ferð þegar skyndilega byrjar að rjúka upp úr vélarhlífinni.

11 teknir fyrir hraðakstur

Lögreglan á Selfossi stöðvaði í dag 11 ökumenn fyrir hraðakstur. Sá sem fór hraðast var á 135 kílómetra hraða á klukkustund á Hellisheiði. Hann var ennfremur próflaus og grunaður um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna.

Álagningarseðlar skattstjórans á Netinu

Hægt verður að nálgast álagningarseðla frá skattstjóra á Netinu eftir klukkan fjögur á morgun. Seðlarnir sjálfir verða bornir út á þriðjudaginn.

Í fangelsi fyrir ólæti og ölvun

Tveir gistu fangaklefa lögreglunnar í Snæfellsbæ í nótt vegna óláta og ölvunar í Grundarfirði en þar fór fram um helgina bæjarhátíðin Á góðri stund. Að öðru leyti gekk hátíðin áfallalaust fyrir sig að sögn lögreglunnar í Snæfellsbæ.

Keyrt á tvö lömb í Öxnadal

Keyrt var á tvö lömb í Öxnadal um helgina en bæði skiptin lét ökumaður sig hverfa án þess að tilkynna atvikið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri eru nokkur tilvik á hverju sumri að keyrt sé á búfénað. Oftast láta menn þó vita. Bæði lömbin fundust dauð.

Fara á ösnum í skólann

Borgarstjóri einn í Kólumbíu hefur fundið nýja leið til að reyna að auka menntun barna í þorpunum í kring.

Til álita að Danir, Norðmenn, Bretar eða Kanadamenn fljúgi eftirlitsflug

Utanríkisráðherra segir að til álita komi að Danir, Norðmenn, Bretar eða Kanadamenn taki þátt í lofteftirliti NATO hér á landi, þótt ekkert hafi enn verið staðfest varðandi þátttöku ríkjanna. Formaður Vinstri grænna og þingmaður Frjálslynda flokksins eru sammála um að byrjað hafi verið á öfugum enda í málinu.

Samgönguráðherra telur óeðlilegt að lágflug verði heimilað

Samgönguráðherra telur óeðlilegt að veitt sé leyfi fyrir lágflugi orrustuþotna í tengslum við heræfinguna Norður-víkingur, hér á landi um miðjan ágúst. Stjórnandi æfinganna hefur staðfest að búið sé að senda inn beiðni um slíkt. Formaður Vinstri grænna telur æfingarnar sýndarmennsku og utanríkisráðherra er ókunnugt um málið.

Brown reyndi að slá á sögur um kólnandi samskipti

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, flaug til fundar við Bush Bandaríkjaforseta í dag. Brown reyndi fyrir ferðina að slá á sögur um að samskipti þjóðanna færu kólnandi og lagði áherslu á mikilvægi þeirrar öflugu samvinnu sem ríki þeirra á milli.

Tveir þýskir ferðmenn drukkna við strendur Jótlands

Tveir þýskir ferðamenn, móðir og sonur, drukknuðu í sjónum úti við danska bæinn Söndervig á vesturströnd Jótlands í dag. Pilturinn var á sundi þegar sterk undiralda hreif hann með sér á haf út. Móðirinn gerði tilraun til að bjarga syni sínum með fyrrgreindum afleiðingum.

Einkahagsmunir á kostnað almannahagsmuna í Þorskafirði

Sýslumaðurinn á Patreksfirði sem barist hefur af krafti fyrir úrbótum á Vestfjarðavegi, segir að landeigendur í Þorskafirði láti einkahagsmuni framar almannahagsmunum með því að höfða mál gegn umhverfisráðherra. Ráðherra hefur heimilað að Vestfjarðavegur liggi um Teigsskóg í Þorskafirði. Landeigendur segja að Teigsskógur sé ósnortinn og að arnarvarpi sé ógnað með nýja veginum.

Bútur bitinn af eyra konu fyrir utan skemmtistað

Tuttugu og sjö ára kona varð fyrir hrottafenginni líkamsárás þriggja kvenna um tvítugt, í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðborginni á þriðja tímanum í nótt. Hún var dregin á hárinu eftir gangstéttinni, sparkað í hana og stór bútur bitinn af eyra hennar, að sögn sjónarvotta.

Shinzo Abe segir ekki af sér þrátt fyrir kosningaósigur

Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að hann viðurkenni ósigur síns flokks í kosningum til efri deildar japanska þingsins í dag. Ekki er þó útilokað að gerðar verði breytingar á ráðherraskipan innan ríkisstjórnarinnar á næstunni.

Hrottafengin líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur

Kona á þrítugsaldri varð fyrir hrottafenginni líkamsárás þriggja kvenna um tvítugt í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðborg Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Hún var dregin á hárinu eftir gangstéttinni, sparkað í hana og stór bútur bitinn af eyra hennar, að sögn sjónarvotta.

Sameinað Írak fagnar sigri á Asíuleikunum

Írakar hafa safnast þúsundum saman á götum úti til að fagna í sigri íraska fótbaltalandsliðsins á Saudi Aröbum í úrslitaleik liðanna á Asíuleikunum í Indónesíu í dag. Sjíar, Sunníar og Kúrdar þustu með fagnaðarlátum út á göturnar og heyra hefur mátt bílflautur þeyttar og byssuskot eftir að úrslitin lágu fyrir.

Málið upplýst - morðinginn svipti sig lífi

Árásarmaður mannsins sem skotinn var til bana á Sæbrautinni í morgun svipti sig lífi á Þingvöllum tæpri klukkstund eftir árásina. Í fórum mannsins fannst bréf og skotvopn sem tengir hann við skotárásina. Fórnarlambið hóf fyrir stuttu samband við fyrrverandi eiginkonu árásarmannsins. Lögreglan segir málið upplýst.

Morðið ekki tengt undirheimunum

Skotmaðurinn var enn á staðnum þegar sendibílstjórinn forðaði særða manninum af vettvangi. Málið er ekki talið tengjast undirheimum samkvæmt heimildum Vísis.

Skotinn með riffli í brjóstið

Maðurinn sem lést af völdum skotsára eftir árás á Sæbrautinni í morgun var skotinn með .22 kalibera riffli í brjóstið. Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Lögreglan útilokar ekki að um árás án tilefnis hafi verið að ræða. Heimildir segja að maðurinn hafi verið að skipta um dekk þegar á hann var ráðist. Sérsveit lögreglunnar er í viðbragðsstöðu.

Sjö létu lífið þegar flutningavél hrapaði í Rússlandi

Sjö létu lífið þegar flutningavél hrapaði skömmu eftir flugtak í Moskvu í Rússlandi í nótt. Engan á jörðu niðri sakaði en flugvélin lenti í skóglendi og varð alelda á svipstundu. Ekki er vitað hver orsök slysins er.

Steingrímur segir samkomulag sýndarmennsku

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, gagnrýnir að ekki hafi verið haft eðlilegt samráð um áætlun um lofteftirlit Atlantshafsbandalagsins. Hann telur að fyrst ætti að móta stefnu í varnarmálum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir sjálfsagt að endurskoða mat á vörnum landsins, en er ánægð með að samkomulagið við NATO sé í höfn.

Hætta á flóðum hefur rénað

Lík nítján ára pilts fannst umflotið vatni á vestur-Englandi í nótt en piltsins hafði verið saknað í um viku, eða frá því flóðin á svæðinu hófust. Hætta á flóðum á Bretlandseyjum hefur minnkað en rigningar sem gengu yfir suðvestur England í nótt höfðu töluvert minni áhrif en spáð hafði verið.

Alvarleg líkamsárás á Sæbraut

Mjög alvarleg líkamsárás átti sér stað rétt fyrir hádegi við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar. Einn maður hefur verið fluttur á slysadeild og óstaðfestar heimildir herma að þetta hafi verið skotárás. Talið er að vettvangur árásarinnar nái einnig til Laugardalslaugarinnar og eru lögregla og sjúkrabílar þar. Hefur inngang laugarinnar veri lokað af. Litlar upplýsingar hafa fengist frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um málið enn sem komið er.

Utanríkisráðherra ekki kunnugt um lágflugsbeiðni

Utanríkisráðherra hefur ekki vitneskju um að óskað verði eftir heimild til lágflugs á varnaræfingunni Norður-víkingur, sem fram fer hér á landi í haust, sem stjórnandi æfinganna hefur staðfest að sótt verði um til Flugmálastjórnar. Formaður vinstri grænna segir æfingarnar ekkert annað en sýndarmennsku, nær sé að verja fjármununum í eflingu almannavarna, björgunarstarfsemi og löggæslu.

Lögregla á þyrlu tekur þrjá ökumenn fyrir utanvegaakstur

Lögreglan á Hvolsvelli fékk fréttir af utanvegaakstri inni á friðlandi í gær og fóru lögreglumenn á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-Eir, inn að Álftavatni þar sem þrír ökumenn voru staðnir að því að aka utan vega að sögn lögreglunna á Hvolsvelli.

Maður gekk berserksgang í Þórsmörk

Á Hvolsvelli voru öll tjaldstæði full og mikil ölvun og erill hjá lögreglu. Lögreglan þar var kölluð inn í Bása í Þórsmörk, en þar gekk maður berserksgang að sögn lögreglu og hafði í hótunum við konu sína. Maðurinn hélt konu sinni í gíslingu að sögn lögreglu og hafði í hótunum við aðrar konur á svæðinu.

Sjá næstu 50 fréttir