Brown reyndi að slá á sögur um kólnandi samskipti 29. júlí 2007 19:09
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, flaug til fundar við Bush Bandaríkjaforseta í dag. Brown reyndi fyrir ferðina að slá á sögur um að samskipti þjóðanna færu kólnandi og lagði áherslu á mikilvægi þeirrar öflugu samvinnu sem ríki þeirra á milli. Þetta er fyrsta ferð nýja forsætisráðherrans til Bandaríkjanna frá því að hann tók við embættinu af Tony Blair. Blair lagði mikla áherslu á góð samskipti milli þjóðanna tveggja og þótti mörgum honum hann jafnvel of hliðhollur Bush. Margir hafa velt fyrir sér hvernig samskipti þjóðanna komi til með að þróast eftir að nýr maður tók við hans embætti. Vangaveltur hafa verið uppi um hvort að forsætisráðherraskiptin í Bretlandi muni veikja sambandið á milli þjóðanna tveggja og hafa ráðherrar Brown jafnvel gefið það í skyn. Stjórnmálaskýrendur hafa margir hverjir hvatt Brown til að fara þá leið sem forverar hans Margaret Thatcher og Winston Churchill fóru. Þau áttu bæði náin samskipti við Bandaríkjastjórn en stóðu föst á sínum eigin markmiðum og stefnu en mörgum þótti Blair fylgja Bush í of mikilli blindni. Brown reyndi fyrir ferðina að slá á sögur um að samskipti þjóðanna færu kólnandi og lagði áherslu á mikilvægi þeirrar öflugu samvinnu sem ríki þeirra á milli. Hann sagði samband þjóðanna geta orðið enn betra á komandi árum. Á fundi sínum í dag ætla Brown og Bush meðal annars að ræða Íraksstríðið. Enn óljóst er hvort koma Brown í embættið breyti einhverju um veru breskra hermanna í Írak og hvort hann ákveði að kalla herlið Breta heim. Fimm þúsund og fimm hundruð breskir hermenn eru í Írak og hafa Bretar verið helstu bandamenn Bandaríkjamanna í stríðinu. Í lok maí greindi breska dagblaðið Sunday Telegraph frá því að ráðgjafar George Bush bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu telja að Brown kalli herlið Breta heim frá Írak næstunni og sögðu forsetanum að vera viðbúin því. Þeir Brown og Bush hittast í sumarbústað forsetans í Camp David en Brown hittir síðar Ban Ki-moon aðalritara Sameinuðu þjóðanna.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Sjá meira