Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kínverjar lofa aðgerðum í umhverfismálum Ríkisstjórn Kína hefur opinberað skýrslu þar sem fram kemur stefna þeirra og áætlaðar aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. Í skýrslunni heitir stjórnin því að láta ekki sitt eftir liggja í baráttunni. Þó er tekið skýrt fram að ekkert verði aðhafst, ógni það örum vexti efnahagskerfis landsins. 5.6.2007 12:10
Fjársjóðsskip vekur deilur Spænsk stjórnvöld hafa lagt fram kæru hjá dómstól í Bandaríkjunum vegna skipsflaks sem bandaríska fyrirtækið Odyssey Marine Exploration hefur fundið og hirt fjársjóð úr. Fjársjóðurinn er sagður vera rúmlega þrjátíu milljarða króna virði. 5.6.2007 12:00
Krónan lækkar enn Krónan hélt áfram að lækka í morgun eftir að hafa lækkað um rúm tvö prósent í gær, sem er mesta lækkun á einum degi um langt skeið. 5.6.2007 12:00
Móta stefnu í málefnum barna af erlendum uppruna Efla á íslensku- og móðurmálskennslu fyrir börn af erlendum uppruna í grunnskólum Reykjavíkur, skýra verklagsreglur við innritun slíkra barna í skóla og koma á laggirnar vinafjölskyldum fyrir fjölskyldur barna af erlendum uppruna til þess að bæta aðlögun og virkni barnanna í reykvískum skólum. 5.6.2007 11:51
Megum flytja inn ótakmarkað vín Sænskum stjórnvöldum er óheimilt að banna einstaklingum að flytja inn áfengi samkvæmt niðurstöðu Evrópudómstólsins í Lúxemborg. Það stríðir gegn frjálsu vöruflæði innan Evrópska efnahagssvæðisins. Hér á landi er innflutningur til einkaneyslu frjáls, og ekkert þak á leyfilegu magni. 5.6.2007 11:42
Húsleit vegna gruns um samkeppnisbrot Fulltrúar frá Samkeppniseftirlitinu stormuðu inn á skriftstofur Mjólkursamsölunnar, Auðhumlu og Osta- og smjörsölunnar á Bitruhálsi í morgun vegna gruns um að fyrirtækin hefðu brotið samkeppnislög. 5.6.2007 11:24
Hikk hikk húrra Margir Svíar eru ærir af gleði yfir því að Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að sænska ríkið hefði ekki heimild til þess að banna einstaklingum að kaupa áfengi á netinu. Einni klukkustund eftir að fregnirnar bárust höfðu yfir 13000 manns tekið þátt í skoðanakönnun sænska Aftenposten um hvort þetta væru góðar eða slæmar fréttir. Um 75 prósent sögðust mundu versla á netinu. 5.6.2007 11:14
Rætt um vanda sjávarbyggðanna á þingfundi í dag Utandagskrárumræða um vanda sjávarbyggðanna fer fram við upphaf þingfundar í dag klukkan hálftvö. Það er Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, sem er málshefjandi en til andsvara verður Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. 5.6.2007 11:05
Svandís segir grímulausa stóriðjustefnu ríkja áfram Á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í gær var samþykktur samningur um sölu á raforku til álvers í Helguvík. Svandís Svararsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn samningnum. Hún segir tillögu um samninginn óásættanlega. 5.6.2007 11:04
Fundu þrjátíu nýjar plánetur Tuttugu og átta plánetur hafa fundist á braut um aðrar stjörnur undanfarið ár. Samtals er nú vitað um 236 plánetur utan okkar sólkerfis. Vísindamenn segja milljarða byggilegra pláneta geta verið til, samkvæmt fréttavef Reuters. 5.6.2007 11:00
Elsta melóna í heimi fundin Fornleifafræðingar í Vestur-Japan grófu á dögunum upp lítinn skífulaga hlut sem þeir telja vera elstu óröskuðu leifar af melónu sem fundist hafa. 5.6.2007 10:54
Samkeppniseftirlitið í húsleit hjá MS Fulltrúar frá Samkeppnieftirlitinu komu fyrir stundu í húsnæði Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi. Þetta fékkst staðfest á skrifstofu forstjóra Mjólkursamsöllunnar. Frekari upplýsingar er ekki að fá að svo stöddu hjá Mjólkursamsölunni og Samkeppniseftirlitinu en von er á tilkynningu frá MS innan stundar. 5.6.2007 10:39
Dagblöð og ruslpóstur gætu þakið vegakerfi Íslands fimm sinnum Ársskammtur Íslendinga af dagblöðum og auglýsingapósti dugar til þess að þekja vegakerfi landsins rúmlega fimm sinnum. Að meðaltali fá íslensk heimili 176 kíló af þessum blöðum og auglýsingapósti inn um lúguna hjá sér á hverju ári. 5.6.2007 10:28
Farþegum um Keflavíkurflugvöll heldur áfram að fjölga Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað um ellefu prósent á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta leiða tölur Hagstofunnar í ljós. 5.6.2007 10:23
Bæjarráð Bolungarvíkur vonsvikið með skýrslu Hafró Í ályktun Bæjarráðs Bolungarvíkur sem samþykkt var nú í morgun er lýst miklum vonbrigðum með nýúkomna skýrslu Hafrannsóknarstofnunar. Bæjarráðið segir að verði farið að ráðum stofnunarinnar muni það þýða 1200 tonna skerðingu í aflaheimildum á slægðum þorski í Bolungarvík og að útflutningsverðmæti frá bænum dragist saman um 300 milljónir króna á ársgrundvelli. 5.6.2007 10:09
Bráðnun íss hraðar hlýnun Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna segir að bráðnun jökla, íss og snjós geti haft áhrif á allt að 40 prósent jarðarbúa, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá stofnuninni. 5.6.2007 10:00
Lygalaupur afhjúpaður á lögreglustöð Piltur á tvítugsaldri reyndi að blekkja lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gær til að komast hjá því að hljóta sekt vegna ölvunarakstur. Pilturinn hafði kvöldið áður keyrt ölvaður inn í garð í Kópavogi og flúið af vettvang. Daginn eftir mætti hann svo á lögreglustöðina og tilkynnti að bíl sínum hefði verið stolið. Upp komst um ungan mann sem reyndi að blekkja lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í þeim tilgangi að sleppa við sekt. Pilturinn, sem er 17 ára, tilkynnti lögreglunni að bíl sínum hefði verið stolið daginn eftir að hann 4.6.2007 23:42
Réttað yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan í Bandaríkjunum Réttarhöld yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan hófust í Atlanta í Bandaríkjunum í dag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa myrt tvo svarta unglingspilta árið 1964. Málið er í hópi fjölmargra annarra mála sem tengjast kynþáttaofbeldi á 6. og 7. áratug síðustu aldar sem tekin hafa verið upp að nýju í Bandaríkjunum á undanförnum árum. 4.6.2007 23:28
Tilkynnt um reyk á Laugavegi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hálf áttaleytið í kvöld eftir að tilkynning barst um reyk í lyftugöngum í húsi við Laugaveg 120. 4.6.2007 23:02
Létu lífið þegar bananakassar hrundu yfir þá Sex létu lífið þegar stæður af bananakössum hrundi yfir þá í flutningabíl við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó í dag. Mennirnir voru að reyna smygla sér ásamt öðrum yfir landamærin til Bandaríkjanna þegar slysið átti sér stað. Tíu aðrir slösuðust. 4.6.2007 22:28
Tekinn á 148 kílómetra hraða Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á 148 kílómetra kílómetra hraða á Suðurlandsvegi um þrjúleytið í dag. Ökumaðurinn, sem er karlmaður á fertugsaldri, var undir áhrifum fíkniefna. 4.6.2007 21:59
Kalla eftir samstöðu til að draga úr mengun Kanadamenn hafa kallað eftir samstöðu meðal átta stærstu iðnríkja heims um að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda. Þetta kom fram í máli Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada, á fundi átta stærstu iðnríkja heims í Berlín í dag. Hann telur þó ólíklegt að Kanada nái að draga úr mengun í samræmi við Kyoto bókunina. 4.6.2007 21:39
Vill lögreglurannsókn á mögulegum mannréttindabrotum á Goldfinger Mögulegt er að eigandi súlustaðarins Goldfinger í Kópavogi brjóti á mannréttindum starfsmanna sinna með því að meina þeim að yfirgefa vinnustað í allt að átta klukkutíma eftir að vinnu þeirra lýkur. Þetta kom fram í máli Guðríðar Arnardóttur, oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, í viðtali í Íslandi í dag. Hún segir þetta kalla á lögreglurannsókn og vill að lögreglan hafi frumkvæði í málinu. 4.6.2007 20:56
Pálmi ógnar plönturíki Noregs Suðrænn nýbúi í plönturíki Noregs stefnir nú innlendum gróðri í hættu með því að breiðast út á ógnarhraða. Hlýnun jarðar í kjölfar loftslagsbreytinga hefur valdið því að plantan, sem kallast Tromsö pálmi, hefur þrifist óvenjulega vel á þessum norðlægum slóðum. Yfirvöld í Tromsö hafa skorið upp herör gegn pálmanum. 4.6.2007 20:25
Tveir dæmdir fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni Tveir menn hafa verið dæmdir í 70 ára fangelsi fyrir morðið á Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Salinas í El Salvador í fyrra samkvæmt frétt Ríkissjónvarpsins. Fjórir voru ákærðir fyrir morðið en tveir voru sýknaðir. 4.6.2007 20:00
Líffæragjafi nema annað sé tekið fram Yfirlæknir hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi telur mikilvægt að breyta löggjöf um líffæragjafir. Þá verði gengið út frá því að látnir hafi viljað gefa líffæri sín hafi þeir ekki tekið annað fram fyrir andlátið. 4.6.2007 19:15
Rannsóknir sýna að bólusetningar ungbarna valda ekki einhverfu Greina má einkenni einhverfu hjá börnum strax á fyrstu tveimur árunum. Fyrstu einkennin geta verið, að þau svara hvorki nafni né horfa í augu fólks. Getgátur hafa verið uppi um að ungbarnabólusetningar valdi einhverfu en því vísar franskur geðlæknir alfarið á bug. 4.6.2007 19:14
Íslenski fáninn á barnafötum á Spáni Verslanakeðjan, C&A hefur í sumar selt barnaflíkur á Spáni með eftirlíkingu af íslenska fánanum. Samkvæmt íslenskum lögum er óheimilt að bjóða útlendar vörur með myndum af þjóðfánanum. Þórhallur Vilhjálmsson, lögfræðingur hjá forsætisráðuneytinu, segir að lögreglunni beri að taka málið til meðferðar. 4.6.2007 19:14
Krónan veiktist eftir að skýrsla Hafró var birt Krónan veiktist um rúm tvö prósent í dag þegar markaðir voru opnaðir á ný eftir að Hafrannsóknarstofnun kynnti dökka skýrslu sína um stöðu þorskkvótans. 4.6.2007 19:06
Vilja nota risabor til að bora veggöng á Austurlandi Verið er að kanna hvort einn risaboranna, sem nú borar göng að Kárahnjúkum, verði notaður til að bora veggöng á Austurlandi. Slíkt gæti dregið verulega úr kostnaði við gangagerð á svæðinu. 4.6.2007 19:03
Ólíklegt að ákært verði Ólíklegt er talið að hægt verði að fá opinbert mál höfðað á Íslandi gegn meintum morðingja Ashley Turner, flugliða sem myrt var á varnarsvæðinu á Miðnesheiði fyrir tæpum tveimur árum. Slíkt væri líkast til brot á ákvæðum marréttindasáttmála að mati íslenskra lögspekinga. 4.6.2007 19:00
Sýndi snör handtök þegar klórgasslanga gaf sig Verksmiðja Mjallar-Friggjar á Akureyri var rýmd í morgun eftir að klórgasleki kom upp í kjallara byggingarinnar. Að sögn slökkviliðsstjórans á Akureyri, gaf klórgasslanga sig með þeim afleiðingum að klórgas lak út en starfsmaður verksmiðjunnar sýndi snör handtök og náði að skrúfa fyrir gasið. Hann mun hafa orðið fyrir lítils háttar eitrun og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. 4.6.2007 18:59
Varað við Yasmín pillunni í Danmörku Læknar í Danmörku vara við notkun Yasmin getnaðarvarnarpillunnar vegna hættu á blóðtappa. Rekja má tvö dauðsföll ungra kvenna þar í landi beint til pillunnar. Um 1700 íslenskar konur nota hana sem getnaðarvörn. 4.6.2007 18:55
Stjórn peningamála komin í ógöngur Stjórn peningamála er komin í ógöngur að mati Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnin þarf að bregaðst við. Forsvarsmenn samtakanna funduðu með forsætisráðherra og utanríkisráðherra í morgun. 4.6.2007 18:44
Brotist inn í nýbyggingu í Njarðvík Brotist var inn í nýbygginu í Njarðvík í morgun og handverkfærum stolið. Enn liggur ekki fyrir hver eða hverjir voru þar að verki enn málið er enn í rannsókn. 4.6.2007 18:41
Samherji boðar samdrátt vegna erfiðrar stöðu í sjávarútvegi Fyrirhuguðum framkvæmdum útgerðarfyrirtækisins Samherja hf. við uppbyggingu landvinnslunnar á Dalvík verður frestað um eitt ár. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja. Hann segir erfiðleikar í íslenskum sjávarútvegi vegna óhagstæðrar gengisþróunar, hárra vaxta og niðurstöður Hafrannsóknarstofnunar um ástand þorskstofnsins gera það að verkum að fresta verði framkvæmdunum. 4.6.2007 18:34
Miðar á Evrópu verði ekki hætt við Pútín Rússlandsforseti hótar hefndaraðgerðum láti Bandaríkjamenn verða af því að byggja eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. Hann segir að eldflaugum, búnum kjarnaoddum, verði miðað á Evrópuríki verði ekki hætt við þau áform. Svör frá Evrópuríkjum eru varfærin. Talsmaður Atlantshafsbandalagsins segir yfirlýsingu Pútíns ógagnlega. 4.6.2007 18:30
Krefjast 150 milljarða í skaðabætur frá lyfjafyrirtæki Dómstóll í Nígeríu ákvað í dag að fresta réttarhöldum yfir lyfjafyrirtækinu Pfizer til júlímánaðar. Fyrirtækið er meðal annars sakað um að hafa valdið dauða margra nígerískra barna eftir að þau voru notuð í tilraunaskyni fyrir ósamþykkt lyf. Fyrirtækið hefur vísað ákærunum á bug. 4.6.2007 18:17
Frakkar herða tökin á ólöglegum innflytjendum Frönsk stjórnvöld lýstu því yfir í dag að þau hyggðust senda að minnsta kosti 25 þúsund ólöglega innflytjendur til baka til heimalands síns fyrir árslok. Eru þetta mun stærri hópur en áður stóð til að vísa úr landi. Þetta í samræmi við fyrri yfirlýsingar franskra stjórnvalda um hertari aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum þar í landi. 4.6.2007 17:58
Þingmaður ákærður fyrir spillingu Reiknað er með því að bandarísk yfirvöld gefi út ákæru á hendur bandaríska þingmanninum William Jefferson í dag fyrir spillingu og mútuþægni. Þingmaðurinn hefur hingað til neitað öllum sakargiftum. 4.6.2007 17:31
Konungsskipið bjargaði ungum Svíum Aðeins nokkrum klukkustundum eftir að allt fór í háaloft í knattspyrnuleik Dana og Svía á föstudaginn, mátti sjá hina hliðina á samskiptum landanna. Danska konungsskipið Dannebrog bjargaði tveim ungum Svíum úr sjávarháska. 4.6.2007 16:51
Talsmaður danskra neytenda kærir Sterling Flugfélagið Sterling, sem er í eigu íslenskra aðila, hefur verið kært til lögreglu í Danmörku fyrir verðauglýsingar félagsins á Netinu. Á heimasíðu félagsins var gefið upp verð án skatta og það var ekki fyrr en viðskiptavinurinn var kominn lengra í bókunarferlinu að hið raunverulega verð var gefið upp. Frá þessu er greint á heimasíðu Neytendasamtakanna. 4.6.2007 16:47
Máli vísað frá í Gvantanamo Bandarískur yfirdómari herdómstóls í Gvantanamo fangabúðunum á Kúbu, hefur vísað frá öllum ákærum á hendur ungum Kanadamanni. Dómarinn sagði að Kanadamaðurinn, Omar Khadr félli ekki undir hans lögsögu. 4.6.2007 16:29
Íranar borga ekki kjarnorkuverið Rússar segja að Íranar hafi ekki borgað nema brot af því sem þeir eigi að inna af hendi fyrir aðstoð Rússa við smíði Bushehr kjarnorkuversins. Íranar neita þessu og segja að Rússar seinki verkinu vegna þrýstings frá Vesturlöndum. 4.6.2007 16:15
Forsætisráðherra skili skýrslu um loforð ráðherra fyrir kosningar Alþingi samþykkti í dag beiðni frá þinmönnum vinstri grænna þess efnis að forsætisráðherra taki saman skýrslu um þá samninga, viljayfirlýsingar og fyrirheit sem veitt voru í aðdraganda kosninga. Beiðnin var samþykkt samhljóðar. 4.6.2007 15:52