Innlent

Sýndi snör handtök þegar klórgasslanga gaf sig

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. MYND/GVA

Verksmiðja Mjallar-Friggjar á Akureyri var rýmd í morgun eftir að klórgasleki kom upp í kjallara byggingarinnar. Að sögn slökkviliðsstjórans á Akureyri, gaf klórgasslanga sig með þeim afleiðingum að klórgas lak út en starfsmaður verksmiðjunnar sýndi snör handtök og náði að skrúfa fyrir gasið. Hann mun hafa orðið fyrir lítils háttar eitrun og var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar.

Bæði dælubíll og sjúkrabíll frá slökkviliðinu voru sendir á vettvang og fóru tveir eiturefnakafarar með mæli ofan í kjallarann. Lítið af klórgasi mun hafa sloppið út frá versksmiðjunni og þá var vindátt hagstæð, sunnanátt þannig að gasið fór út á Eyjafjörðinn. Slökkvilið felldi niður eiturefnaský í kjallaranum með vatni og í kjölfarið hann ræstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×