Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fernt flutt á sjúkrahús eftir árekstur - Hellisheiði ófær Fernt var flutt á sjúkrahús í Reykjavík eftir að jeppa var ekið aftan á fólksbíl á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Að sögn vaktahafandi læknis á slysadeild var fólkið allt í fólksbílnum, þar af eitt barn, og gengst það nú undir rannsókn. 18.3.2007 17:25
Munurinn á Sarkozy og Royal minnkar Aðeins hefur dregið saman með Ségolène Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista í Frakklandi, og helsta andstæðingi hennar, íhaldsmanninum og innanríkisráðherranum Nicolas Sarkozy, samkvæmt tveimur nýjum skoðana könnunum. Tölurnar benda hins vegar enn til þess að Sarkozy verði næsti forseti Frakklands. 18.3.2007 17:03
Segja fyrirheit um fjárhagslegan ávinning af stækkun brostin Samtökin Sól í Straumi, sem berjast gegn stækkun álvers Alcan í Straumsvík, segja fyrirheit Alcan um fjárhagslegan ávinning Hafnarfjarðarbæjar um allt að 800 milljónum króna af stækkuðu álveri brostin þar sem Alþingi hafi ekki samþykkt lagafrumvarp um breytingu á skattaumhverfi Alcan. 18.3.2007 16:37
Tafir á umferð á Hellisheiði vegna umferðarslyss Umferðarslys varð á Hellisheiði nú á fjórða tímanum þar sem jeppi og fólksbíll rákust saman. Um aftanákeyrslu var að ræða en ekki er vitað hvor ók aftan á hvorn. Tveir eða þrír munu hafa verið fluttir á sjúkrahús vegna slyssins en meiðsli þeirra eru ekki sögð alvarleg. 18.3.2007 16:26
Eldri gerðir berklabóluefnis betri Eldri gerðir berklabóluefnis virðast virka betur er þær nýrri. Þetta segja franskir læknar. Breytingar sem gerðar hafa verið á erfðaþáttum bóluefnisins til að reyna að draga úr hliðarverkunum þess hafa einnig leitt til þess að það virkar verr. Rannsakendur við Lois Pasteur-stofnunina vilja nú gera tilraunir með eldri gerðir bóluefnis og taka það aftur í notkun. 18.3.2007 16:21
Stjórnarandstæðingum meina að yfirgefa Simbabve Yfirvöld í Simbabve hafa meinað fjórum félögum í stjórnarandstöðunni að fara úr landi og börðu einn þeirra þegar hann hugðist fljúga til Evrópu á fund. 18.3.2007 16:15
Formaður Rafiðnaðarsambandsins dæmdur fyrir meiðyrði Héraðdsómur Reykjavíkur hefur dæmt Guðmund Gunnarsson, formann Rafiðnaðarsambands Íslands, til að greiða eigendum starfsmannaleigunnar 2b ehf. samtals 800 þúsund krónur vegna ummæla sem hann lét falla um þau í fréttum Stöðvar 2 og Sjónvarpsins 23. október 2005. 18.3.2007 15:58
Íhuga að malbika tunglið Vísindamenn kanna nú mögulega hættu sem geimförum stafar af því að anda að sér tunglryki. Rannsókn bendir til þess að smæstu agnir tunglryks gætu verið eitraðar en sannreyna á kenninguna með tilraunum á músum. NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur sett saman rannsóknarteymi sem á að kanna málið og komast að niðurstöðu fyrir fyrirætlaða tunglferð árið 2020. 18.3.2007 15:52
Framtíðarlandið býður þjóð og ráðamönnum sáttmála Framtíðarlandið kynnti í dag sáttmála um framtíð Íslands sem samtökin bjóða þjóðinni og ráðamönnum að undirrita. Sáttmálinn kveður á um að þjóðin hafi kjark til að byggja upp fjölbreytt og lifandi samfélag þar sem hugvit og sköpunargleði fær að njóta sín ásamt því að áætlanir um náttúruvernd verði lögfestar áður en nokkuð frekar verður aðhafst í orkuvinnslu og stóriðju. 18.3.2007 15:35
Níu skipverja saknað eftir árekstur flutningaskipa í Kínahafi Átta hafa fundist látnir og níu er saknað er eftir að tvö flutningaskip rákust saman á Austur-Kínahafi snemma í morgun. Björgunarsveitum tókst að bjarga 12 manns af skipunum upp í þyrlu og voru myndir af því sýndar í kínversku sjónvarpi. 18.3.2007 14:59
Sex til átta bílnum bjargað ofan af Holtavörðuheiði Tvær Björgunarsveitir á Vestur- og Norðvesturlandi hafa frá því um hádegisbil í dag aðstoðað fólk sem lent hefur í erfiðleikum á Holtavörðuheiði en þar er veður vont og hefur heiðinni verið lokað vegna ófærðar. 18.3.2007 14:48
Harður árekstur í Breiðholtinu í hádeginu Harður árekstur varð á umferðarljósum á gatnamótum Höfðabakka og Stekkjarbakka í Breiðholti í hádeginu í dag. Þar rákust tveir fólksbílar saman en talið er að annar þeirra hafi ekið gegn rauðu ljósi. Ökumenn beggja bíla voru fluttir á sjúkrahús en meiðsli þeirra voru ekki talin alvarleg. 18.3.2007 14:32
Innkallar katta- og hundamat vegna veikinda og dauða dýra Stór framleiðandi katta- og hundamatar í Bandaríkjunum innkallaði í gær 60 milljónir skammta af framleiðslu sinni eftir að bæði hundar og kettir hafa veikst og drepist eftir að hafa étið matinn. 18.3.2007 14:21
Fimm umferðaróhöpp á korteri í Danmörku Það er víðar en á Íslandi sem illviðri hefur áhrif á ferðir fólks því fimm umferðaróhöpp urðu á hraðbraut nærri Randers í Danmörku í morgun þegar mikið haglél skall skyndilega á. Óhöppin urðu á einungis fimmtán mínútum en í öllum tilvikum runnu bílarnir út af hraðbrautinni. 18.3.2007 13:34
Unglingur stunginn til bana í Lundúnum Fimmtán ára unglingur var stunginn til bana nærri heimaveill knattspyrnuliðsins West Ham í í Lundúnum í gærkvöld. Hann er annar unglingurinn sem stunginn er til bana á þremur dögum í borginni. 18.3.2007 13:15
Málþingi á Eskifirði aflýst vegna veðurs Málþingi um friðlýsingu Gerpissvæðisins frá Búlandsborgum að Karlsskála sem halda átti í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Að sögn aðstandenda er slæmt veður á Eskifirði eins og víða annars staðar á landinu og því ekki annað að gera en að fresta þinginu. 18.3.2007 13:01
Stærsta jarðýta landsins á ferðinni Stærsta jarðýta landsins var á ferðinni um höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi. Um er að ræða 117 tonna ferlíki enda dugði ekkert minna en stærsti tengivagn landsins sem og öflugasti dráttarbíllinn. 18.3.2007 12:45
Lögregla leitar enn manns vegna nauðgunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki enn haft hendur í hári manns sem grunaður er um að hafa nauðgað ungri konu laust eftir miðnætti í gær á kvennasalerni í kjallara Radisson SAS hótelsins. 18.3.2007 12:30
Tannheilsa barna einnig á ábyrgð foreldra Heilbrigðisráðherra segir ábyrgð foreldra mjög mikla þegar tannheilsa barna er annars vegar. Stefnt sé að því að ná samningum við Tannlæknafélag Íslands um ókeypis forvarnir fyrir tiltekinn aldurshóp barna. 18.3.2007 12:19
Þingkosningar í Finnlandi í dag Kosið er til þings í Finnlandi í dag. Búist er við að mið- og vinstristjórn Matti Vanhanen, forsætisráðherra, haldi velli en svo gæti þó farið að einhverjar hrókeringar yrðu. 18.3.2007 12:15
Alþingismenn farnir heim Störfum Alþingis á kjörtímabilinu er lokið. Geir H. Haarde forsætisráðherra las upp forsetabréf um þingfrestun og sleit síðasta þingfundi klukkan hálfeitt í nótt. Óvenju margir þingmenn, sem kjörnir voru síðast, sækjast ekki eftir endurkjöri. 18.3.2007 12:13
Björgunarsveitir til aðstoðar fólki á Holtavörðuheiði - heiðinni lokað Holtavörðuheiði hefur verið lokað vegna umferðarteppu og ófærðar og hafa björgunarsveitir frá Hvammstanga og Varmalandi verið kallaðar út til að aðstoða fólk í vandræðum. 18.3.2007 12:12
Búið að opna Hellisheiðina en ekkert ferðaveður Hellisheiðinni var lokað í morgun vegna blindhríðar og var lögregla og hjálparsveit kölluð út til að aðstoða ökumenn. Á Vestfjörðum og Norðurlandi er hins vegar víða búið að opna vegi eftir snjóflóð eða snjóflóðahættu. 18.3.2007 12:02
Fagna 75 ára afmæli Hafnarbrúarinnar í Sydney Ástralir fagna í dag 75 ára afmæli Hafnarbrúarinnar í Sydney sem er eitt af einkennum borgarinnar. Fjölbreytt dagskrá verður við brúna að þessu tilefni, þar á meðal munu um 200 þúsund manns nýta sér fágætt tækifæri og ganga yfir brúna þar sem hún verður lokuð í dag fyrir bílaumferð. 18.3.2007 11:30
Safna undirskriftum gegn reykingabanni í Danmörku Andstaða við fyrirhugað reykingabann á veitingastöðum og krám í Danmörku sem taka á gildi um miðja ágústmánuð fer vaxandi eftir því sem greint er frá á vef Jótlandspóstsins. Þar segir að hópur veitingahúsaeigenda hafi nú hafið undirskriftasöfnun til þess að mótmæla banninu. 18.3.2007 11:15
Ræða ekki við ráðherra Hamas Bandaríkjamenn ætla ekki að aflétta banni sínu á fjárhagsaðstoð við palestínsku heimastjórnina þó ný þjóðstjórn hafi verið skipuð. Bandarísk stjórnvöld ætla ekki að ræða við ráðherra úr hópi Hamas-liða en útiloka ekki samskipti við aðra ráðherra eftir því sem þurfa þyki. 18.3.2007 11:00
Ók á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi Kona um tvítugt var flutt á sjúkrahús í sjúkrabifreið eftir að hafa ekið bifreið sinni á staur á afrein á Hafnarfjarðarvegi sem liggur upp í Hamraborg í Kópavogi. 17.3.2007 20:56
Ekkert ferðaveður á norðanverðum Vestfjörðum Vegagerðin varar fólk við að vera á ferðinni á norðanverðum Vestfjörðum og segir að Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði sé enn lokuð en þar féllu að minnsta kosti tvö snjóflóð í kvöld. Bæði Ísafjarðardjúp og Óshlíð eru lokuð. 17.3.2007 20:50
Lögregla og lögmenn takast á í Pakistan Til harðra átaka kom í dag milli lögreglumanna og lögfræðinga í borginni Lahore í Pakistan þar sem lögmennirnir mótmæltu brottvikningu eins af hæstaréttardómurum landsins úr embætti. 17.3.2007 20:07
Getur verið sóun á almannafé að styrkja veikustu svæðin Veikustu byggðasvæðin á landinu ætti síður að styrkja en hin sterkari, segir sérfræðingur. Forgangsröðun er mikilvæg og það getur verið sóun á almannafé að styrkja veikustu svæði landsins. 17.3.2007 19:45
Óhóf í drykkju Íra Dagur heilags Patreks er haldinn hátíðlegur í dag og þá innbyrða Írar töluvert af áfengi. Samkvæmt nýrri könnun eru Írar mestu óhófsdrykkjumenn í Evrópu og því vekur sérstakt bjórtilboð, hjá stórmarkaði í Dublin, nokkrar deilur. 17.3.2007 19:30
Tvö umferðaróhöpp á Suðurnesjum Tvö umferðaróhöpp urðu eftir hádegi í dag í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Á Sandgerðisvegi varð umferðarslys þar sem tveir bílar rákust saman. Ökumenn þeirra slösuðust lítils háttar en báðar bifreiðarnar eru ónýtar. Þá var bíl ekið út af Grindavíkurvegi en enginn slasaðist þar. 17.3.2007 19:18
Fyrsta konan formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins Mona Sahlin var í dag kosin formaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, fyrst kvenna í 118 ára sögu flokksins. Formaður Samfylkingarinnar ávarpaði aukalandsfund flokksins í Stokkhólmi í dag og sagði það sögulegt að konur leiddu nú jafnaðarmenn í þremur Norðurlandanna. 17.3.2007 19:15
Deilt um barnabætur við upphaf þingfundar Nýr þingfundur hófst á Alþingi nú um klukkan 18.20 þar sem ætlunin er að taka fjölmörg frumvörp til þriðju og síðustu umræðu og þingsályktunartillögur til seinni umræðu svo hægt verði að fresta þingfundum fram yfir kosningar. Hins vegar hófust miklar deilur undir liðnum störf þingsins vegna svars fjármálaráðherra við fyrirpspurn um þróun barnabóta á síðustu árum. 17.3.2007 19:06
Hnignandi tannheilsa barna afrakstur stefnu stjórnvalda Formaður Tannlæknafélags Íslands segir hnignandi tannheilsu íslenskra barna vera afrakstur stefnu stjórnvalda síðastliðin 10 ár. Miklu hærri fjárframlög þurfi vilji þjóðin halda góðri tannheilsu. 17.3.2007 19:03
7 týndu lífi í flugslysi Að minnsta kosti 7 týndu lífi og nærri 30 slösuðust, þegar farþegaþota skall utan flugbrautar í lendingu í Síberíu í morgun. 50 farþegar og 7 manna áhöfn voru um borð. Vélin rann inn á flugbrautina og eftir henni þegar hún skall niður. Síðan valt hún. 17.3.2007 19:00
Íslendingar héldu sínum hlut í fiskveiðum við Evrópusambandsaðild Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að þótt fullveldisáhrif yfir fiskimiðunum færðust yfir til Evrópusambandsins við aðild, myndu Íslendingar halda sínum hlut í fiskveiðum. 17.3.2007 18:59
Fyrningarfrestur afnuminn í alvarlegustu kynferðisbrotum gegn börnum Fyrningarfrestur verður afnuminn í alvarlegustu kynferðisafbrotum gagnvart börnum og refsingar þyngdar, samkvæmt breytingum sem Alþingi er að samþykkja á hegningarlögum þessa stundina. Þá verður svokallaður kynferðislegur lágmarksaldur hækkaður úr fjórtán árum upp í fimmtán. 17.3.2007 18:56
Olíusamráðsmálið hafði áhrif á væntanlega lagabreytingu Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að olíusamráðsmálið hafi haft áhrif á að samkeppnislögunum yrði breytt. Breytingar á lögunum verða að öllum líkindum samþykktar á Alþingi í kvöld. Í þeim er kveðið á um skýrari refsiábyrgð einstaklinga og fyrirtækja í samráðsmálum. 17.3.2007 18:55
Tvö snjóflóð falla á veginn milli Súðavíkur og Ísafjarðar Vegurinn milli Súðavíkur og Ísafjarðar í Skutulsfirði er lokaður vegna snjóflóðs sem féll laust eftir klukkan 18 Í kvöld. Snjóruðningstæki var komið á vettvang og hugðist ryðja veginn en þá féll annað flóð og lenti á tækinu en ökumann sakaði ekki. 17.3.2007 18:55
Störfum Alþingis á kjörtímabilinu að ljúka Störfum Alþingis á kjörtímabilinu lýkur í kvöld. Þingmenn eru þessa stundina að samþykkja tugi nýrra laga og þingsályktana. Fyrr í dag tókst samkomulag um lok þingstarfa en ríkisstjórnin neyddist til að falla frá nokkrum þýðingarmiklum málum á lokasprettinum. 17.3.2007 18:53
Klórgas notað í Írak 8 eru sagði látnir og 350 veikir, eftir 3 sjálfsmorðssprengjuárásir í Anbar-héraði í Írak í gær. Bílarnir voru allir fullir að klóri. Sprengjurnar sprungu með þriggja tíma millibili á þremur mismunandi stöðum í héraðinu en tveir árásarmannanna óku tankbílum og sá þriðji pallbíl. 17.3.2007 18:45
Lögreglan lýsir eftir vitnum í tengslum við nauðgun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu auglýsir eftir vitnum að nauðgun sem átti sér stað á milli klukkan hálfeitt og eitt í nótt. Þá réðst karlmaður á unga konu inni á kvennasalerni í kjallara Radisson SAS hótelsins og nauðgaði henni. 17.3.2007 18:25
Þrettán þingmenn sitja sína síðustu þingfundi Þrettán þingmenn sitja væntanlega sína síðustu þingfundi í dag en ætlunin er að fresta þingfundum síðar í kvöld fram yfir kosningar þegar búið verður að samþykkja frumvarpa og þingsályktunartillagna. Þingmennirnir tíu eiga það sameiginlegt að hafa annaðhvort ekki sóst eftir sæti á þingi aftur eða ekki náð settum árangri í prófkjörum. 17.3.2007 18:10
Hlaut slæm útlimabrot en er ekki í lífshættu Unga konan sem slasaðist í árekstri fólksbíls og pallbíls á Þrengslavegi í hádeginu í dag hlaut slæm útlimabrot en er ekki í lífshættu. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Landspítalans hefur konan verið í aðgerð í dag og reiknað er með að hún verði á gjörgæsludeild í nótt. 17.3.2007 17:52