Innlent

Getur verið sóun á almannafé að styrkja veikustu svæðin

Veikustu byggðasvæðin á landinu ætti síður að styrkja en hin sterkari, segir sérfræðingur. Forgangsröðun er mikilvæg, og það getur verið sóun á almannafé að styrkja veikustu svæði landsins.

Við höfum sagt frá byggðavanda Vestfirðinga hvernig framleiðsla hefur dregist þar saman og íbúum stórfækkað. Á Norðurlandi vestra er ástandið víða svipað. Hagvöxtur jafnvel neikvæður, framleiðsla dregist saman, meðalaldur íbúa er hár og fólksfækkun.

 

Lítum á stöðuna í einum af helsta þéttbýliskjarna Norðurlands vestra, Hvammstanga, sem dags daglega er ekki í fréttum. Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, segir að sumt sé þar jákvætt, fasteignaverð sé býsna hátt og spurn eftir húsnæði mikil.

En íbúum hefur fækkað um 120 manns á Hvammstanga. Þeir eru nú um 580 talsins en voru um 700 ekki alls fyrir löngu. Fyrirtæki hafa helst úr leik í atvinnulífinu. Mjólkursamlagið er stopp. Prjónastofa sem veitti fjölda kvenna atvinnu er úr sögunni, Kaupfélagið hefur minnkað umsvif sín og rækjuvinnsla mjög átt undir högg aðsækja.

Á hinn bóginn eru nýsköpunarsprotar fyrir hendi og þá hafa stjórnvöld beitt sértækri byggðaaðgerð eins og nú er víða kallað eftir með því að flytja Fæðingarorlofssjóð til Hvammstanga og urðu þar til nokkur ný stöðugildi.

 

Hagfræðiprófessorinn Jón Þorvaldur Heiðarsson sem skoðað hefur byggðamál gjörla varar við því að sértækar byggðaaðgerðir eigi sér stað á þeim svæðum sem veikust séu. Fremur eigi að styrkja þau svæði sem sannarlega séu lífvænleg.

 

Sveitarstjóri Húnaþings vestra tekur undir þetta og bendir einnig á þótt lítill pólitískur vilji hafi verið síðari ár fyrir sértækum byggðaaðgerðum séu mörg dæmi um svoleiðis stuðning þekkt alls staðar í nágrannalöndunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×