Fleiri fréttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til taks á Selfossi Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu fara nú á fjórða tímanum austur fyrir fjall til þess að vera til taks á Selfossi ef fer að flæða þar inn í hús með hækkandi vatnsborði Ölfusár. Allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út og slökkviliðin í umdæminu eru í viðbragðstöðu. 20.12.2006 15:16 Forseti Íslands sendir samúðarkveðju vegna andláts sjóliðsforingja Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Margréti Danadrottningu samúðarkveðju vegna andláts sjóliðsforingjans Jans Nordskovs Larsens sem drukknaði við björgunarstörf í tengslum við strand kýpverska skipsins Wilson Muuga. 20.12.2006 15:05 Sýknaður af ákæru um nauðgun Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í maí síðastliðnum. Fólkið mun hafa hist á skemmtun og farið saman af skemmtuninni og á maðurinn að hafa naugðað stúlkunni á víðavangi skammt þar frá. 20.12.2006 14:58 Mesta vatnshæð síðan mælingar hófust Vatnamælirinn þar sem Hvítá rennur um Fremstaver hefur aldrei sýnt meiri vatnshæð síðan hann var settur upp. Snorri Zóphóníasson, hjá Vatnamælingum Orkustofnunar, býst við að rennsli Ölfusár við Selfoss vaxi fram að miðnætti í kvöld og geti náð 2000 rúmmetrum á sekúndu, sem er fimmfalt meðalrennsli þessarar vatnsmestu ár landsins. 20.12.2006 14:42 Ísraelar íhuga að borga Abbas Ísraelar eru að íhuga að greiða Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, tugi milljóna dollara af sköttum sem þeir hafa innheimt fyrir heimastjórnina, en haldið eftir síðan Hamas myndaði ríkisstjórn undir forystu Ismails Hainyehs. 20.12.2006 14:38 Ísland dýrast í Evrópu -Norðmenn gleðjast Ísland er dýrasta land í Evrópu, sam kvæmt niðurstöðum norsku hafstofunnar. Norðmenn eru í öðru sæti og eru aldrei þessu vant ánægðir með að vera ekki númer eitt. Norska hagstofan segir að á síðasta ári hafi verð á neysluvörum á Íslandi verið fimmtíu og einu prósenti hærra en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins. 20.12.2006 14:35 Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun brast í úrhellinu Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit, skammt frá Melgerðismelum, brast í úrhellinu í morgun og æddi flóðbylgja niður ána og yfir Eyjafjarðarveg vestri þannig að hann rofnaði. 20.12.2006 14:11 Hestabjörgunin gengur vonum framar Hestabjörgun Björgunarfélagsins Eyvindar við Auðsholt í Hrunamannahreppi gengur vonum framar, að sögn Borgþórs Vignissonar, sem er á vettvangi. Í kringum hundrað hestar voru á flæðiskeri staddir í morgun þegar björgunarmenn komu á vettvang. Tveir litlir gúmmíbátar hafa smalað hestunum á sund og farið með þá á öruggan stað. 20.12.2006 14:09 Grjóthrun úr Óshlíð í morgun Nokkuð grjót hrundi á veginn um Óshlíð í morgun og var lögregla kölluð út til að aðstoða vegfaranda. Kona sem var á leið til Bolungarvíkur keyrði á grjóthnullung og sprengdi dekkið og skemmdi felguna. Vegagerðin ruddi veginn en ekki þurfti að loka honum. Ekki hefur hrunið frekar í dag, að sögn lögreglu á Ísafirði. 20.12.2006 13:47 Kína herðir reglur um ættleiðingar Kínverjar eru að setja nýjar og hertar reglur til þess að fækka ættleiðingum barna frá landinu. Feitt og ógift fólk fær ekki að ættleiða börn, og heldur ekki fólk sem er á þunglyndislyfjum eða fatlað á einhvern hátt. Nýju reglurnar verða kynntar í vikunni. 20.12.2006 13:47 Lyngdalsheiðin orðin ófær vegna vatnavaxta Lyngdalsheiði, sem liggur milli Þingvalla og Laugarvatns er orðin ófær vegna vatnavaxta og bætist þar með í hóp vega á Norður- og Suðurlandi sem lokast hafa vegna þess. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð og þá er Auðsholtsvegur, vegur 340, ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. 20.12.2006 13:43 Metfjöldi innflytjenda til Svíþjóðar 20.12.2006 13:27 Vegstikur hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöpp 5000 þúsund óhöpp, um 2500 slys og 54 banaslys hafa orðið á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss. Vegstikur beggja megin vegarins hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöppin sem orðið hafa á veginum. 20.12.2006 13:15 Al-Kæda býður Bandaríkjamönnum til samninga Næst æðsti leiðtogi al-Kæda gaf í dag sterklega í skyn að Bandaríkjamenn ættu að semja við hryðjuverkasamtökin um brotthvarf sitt frá Írak. Það séu þau sem hafi völdin í landinu. 20.12.2006 13:02 Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu hugi að eigum sínum Þrjár af fjórum almannavarnarnefndum í Árnessýslu funduðu á lögreglustöðinni á Selfossi kl. 11:30. Á fundinum sátu einnig fulltrúar Vatnamælinga og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu eru hvattir til að gæta að eignum sínum. 20.12.2006 12:59 Hugsanlega stærsta flóð í hálfa öld Átta íbúðarhús eru innlyksa í Auðsholti og Hvítáin beljar allt um kring. Steinar Halldórsson, bóndi í Auðsholti í Hrunamannahreppi, segir fólkið vant vatnavöxtum en þetta gæti verið stærsta flóð síðan foreldrar hans fluttu að Auðsholti, fyrir 50 árum síðan. Og það rignir enn og vatnsborðið hækkar. 20.12.2006 12:59 Rannsaka dánarorsök vændiskvenna Dánardómsstjórar í Suffolk komu saman í morgun til að skera úr um dánarorsök fjögurra af fórnarlömbum raðmorðingjans frá Ipswich. Enn er óvíst hvernig tvær þeirra dóu en vitað er að Anneli Alderton kafnaði og Paula Clennel lést vegna höfuðhöggs. 20.12.2006 12:55 Björguðu manni úr Djúpadalsá - lögreglubílar innlyksa Slökkviliðið á Akureyri bjargaði í morgun manni eftir að bíll hans lenti úti í Djúpadalsá í Eyjarfjarðarsveit nú fyrir hádegið. Svo virðist sem áin hafi grafið veginn í sundur með fyrrgreindum afleiðingum. Slökkvilið segir manninn hafa verið kaldan og hrakinn eftir volkið en lítið meiddan. 20.12.2006 12:33 Vegir víða lokaðir vegna vatnavaxtanna Vegfarendur eru varaðir við vatnavöxtum víða um land þar sem vatn gæti flætt upp á vegi. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð. Auðsholtsvegur, vegur 340, er ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. Það er ófært vegna vatnaskemmda við Ferjukot í Borgarfirði. Í Eyjafirði loka skriður vegi á þremur stöðum; á Hörgárdalsvegi við bæinn Skriðu, á Hólavegi við Grænuhlíð og á Eyjafjarðarbraut vestri er skriða í námunda við Skáldstaði. Eyjafjarðarbraut vestri er einnig í sundur vegna flóðs við Samkomugerði og má búast við að viðgerð þar taki einhverja daga. 20.12.2006 12:32 Hvítárnar í ham Hvítárnar bæði á Suðurlandi og í Borgarfirði eru í miklum ham og er búið að loka brúm og vegum við báðar árnar. Í Borgarfirðinum er búið að loka gömlu brúnni yfir Hvítána sem er millli Ferjukots og Hvítárvalla. Á Suðurlandi var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem brúin var komin á kaf og vatn komið upp á veginn beggja vegna brúarinnar. 20.12.2006 12:30 Forðuðu sér undan skriðunni við Grænuhlíð Hjón og barn þeirra sluppu ómeidd út úr íbúðarhúsi sínu að Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit í morgun, þegar aurskriða féll á íbúðarhúsið og gripahúsin. Fólk átti svo fótum sínum fjör að launa þegar önnur skriða féll um ellefuleytið í morgun. Talið er tíu til fimmtán kálfar hafi drepist í fyrri skriðunni. 20.12.2006 12:19 Ekkert gert á strandstað fyrr en veður lægir Mengunarvarnarbúnaður er kominn á strandstaðinn í Hvalsnesi en ekkert verður að gert fyrr en veðuraðstæður leyfa og hægt verður að slaka mönnum og tækjakosti niður í skipið. Umhverfisstofnun stjórnar aðgerðum á strandstað nú þegar búið er að bjarga áhöfninni af skipinu. 20.12.2006 12:15 Laun æðstu embættismanna hækka í október og um áramót Kjararáð hefur ákveðið að laun þeirra sem heyra undir ráðið, þar meðal þingmenn, ráðherrar, forseti og dómarar, skuli hækka um 3,6 prósent afturvirkt frá 1. október 2006. Þá skuli þau hækka um 2,9 prósent um áramót. Úrskurður þar að lútandi var kveðinn upp í gær. 20.12.2006 12:01 Rescue at Sea 20.12.2006 11:45 Tveggja mánaða dómur fyrir kannabisrækt Karlmanns á fimmtugsaldri bíður tveggja mánaða fangelsi en hann var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sakfelldur fyrir fíkniefnabrot með því að hafa í vörslu sinni 2,5 grömm af hassi og kannabisræktun. 20.12.2006 11:36 Forðuðu sér undan skriðunni Önnnur skriða féll við bæinn Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit nú á tólfta tímanum. Fréttamaður Stöðvar 2 var að ræða við bóndann á bænum þegar miklar drunur kváðu við og allir forðuðu sér. 20.12.2006 11:31 Hjálmar Árnason vill lögreglurannsókn í málefnum Byrgisins Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að lögreglurannsókn fari fram á málefnum meðferðarheimilisins Byrgsins í Grímsnesi og forstöðumanns þess Guðmundar Jónssonar í ljósi upplýsinga um kynferðislega misneytingu í sjónvarpsþættinum Kompási á sunnudaginn var. Hjálmar sagði í þættinum Ísland í bítið á Stöð2 í morgun, að hann væri ekki alveg sammála Ólafi Helga Kjatanssyni, sýslumanni á Selfossi, um að ekki væri ástæða til að láta fara fram rannsókn í málinu. 20.12.2006 11:31 Óheppni bensínþjófurinn Þegar Tom Fischer, í Seattle, sá að bíllinn hans var að verða bensínlaus, ákvað hann að spara sér peninga og stela bensíni af öðrum bíl. Hann valdi sér stóran húsbíl i, læddist að honum og smeygði slöngu ofan í tankinn. Svo saug hann fast, til að fá bensínið til að renna. 20.12.2006 11:23 Hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 20.12.2006 11:16 Ketkrókur dæmdur í hálfs árs fangelsi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir búðarhnupl í sumar og haust. Manninum var gefið að sök að hafa stolið þremur lambalærum í einni verslun, einu læri í annarri verslun og lambakótilettum í þriðju versluninni. 20.12.2006 10:58 Flóðið í Hvítá verður við Selfoss um kl. 17 Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu vegna flóðs í Hvítá en veginum um Brúarhlöð hefur þegar verið lokað þar sem áin flæðir yfir veginn. Samkvæmt almannavörnum má búast við því að flóðið í ánni verði komið niður fyrir Vörðufell á Skeiðum upp úr kl.15 í dag og verði við Selfoss upp úr kl.17. 20.12.2006 10:43 Gefur pening í stað jólakorta Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið að senda ekki hefðbundin jólkort þetta árið en gefa andvirði þess kostnaðar til fátækra barna á Íslandi og erlendis. Mæðrastyrksfnefnd og SOS barnaþorp njóta góðs af jólakortapeningum Samfylkingarinnar þetta árið. 20.12.2006 10:39 Nýtt vopnahlé samþykkt á Gaza Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tilkynnti í kvöld að náðst hefði nýtt samkomulag um vopnahlé milli Fatha-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gaza. 19.12.2006 23:51 Holtavörðuheiði lokuð vegna vatnsflaums Þjóðvegur eitt er lokaður milli Brúar í Hrútafirði og Dalsminnis við Bröttubrekkuafleggjarann en mikill vatnsflaumur er á veginum vegna rigninga. Lokað er því fyrir alla umferð á Holtavörðuheiðina. Umferð er beint um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði en sú leið er mun lengri og ekki öll malbikuð. 19.12.2006 23:00 Bush vill efla bandaríska herinn George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að stækka bandaríska herinn til að geta betur tekist á við þá ógn sem stafar af hryðjuverkum. Frá þessu er greint á heimasíðu The Washington Post. 19.12.2006 22:41 Flutningaskipið snéri sér aðeins á kvöldflóðinu Svo virðist sem að flutningaskipið Wilson Muugo, sem strandaði við Hvalsnes skammt frá Sandgerði snemma í morgun, hafi snúið sér um tíu til fimmtán gráður á kvöldflóðinu. Björgunarsveitarmenn vakta strandstaðinn í alla nótt en lítið sést til skipsins núna enda er myrkur og leiðinlegt veður á staðnum. 19.12.2006 21:53 Vatnsflaumur hamlar umferð um Norðurárdal Verið er að meta hvort að loka þurfi veginum um Norðurárdal en þar flæðir vatn yfir veginn á nokkrum stöðum eftir miklar rigningar. Lögreglan í Borgarnesi en vatnið hefur valdið nokkrum vandræðum fyrir ökumenn. 19.12.2006 21:18 Sló mann með álstöng í höfuðið Tuttugu og fimm ára karlmaður var í dag dæmdur í Hæstarétti Íslands í átta mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundið, fyrir hættulega líkamsárás. Maðurinn sló annan mann með tveggja kílóa álstöng í höfuðið og tvisvar með krepptum hnefa í andlitið. 19.12.2006 21:07 Ekki Birkis mál að vekja athygli á svartri skýrslu um Byrgið Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis segir það ekki hafa verið sitt hlutverk að vekja athygli nefndarinnar á svartri skýrslu um málefni Byrgisins. Slíkt sé hlutverk fagráðuneyta og Ríkisendurskoðunar. 19.12.2006 20:45 Stórtjón í brjáluðu veðri á Akureyri Stórtjón varð í brjáluðu veðri á Akureyri í nótt. Tré rifnuðu upp með rótum, bílar fuku og sumir vöknuðu upp við að hurðir vantaði á húsið. 19.12.2006 20:00 Könnunarviðræður halda áfram Könnunarviðræðum um varnarsamstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn lauk í dag. Þeim verður fram haldið á næsta ári auk þess sem rætt verður við Breta og Kanadamenn. Utanríkisráðherra segir að byggt verði á eldra samstarfi við þessar fjórar þjóðir. 19.12.2006 19:30 Dauðadómur í Líbíu Dómstóll í Líbíu hefur dæmt fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og palestínskan lækni til dauða fyrir að myrða rúmlega fjögur hundruð líbönsk börn. Þeim er gefið að sök að hafa sýkt börnin viljandi með HIV-vírusnum sem veldur alnæmi. 19.12.2006 19:15 Á stærð við 15 knattspyrnuvelli Breska stórfyrirtækið BT Group hefur gert samning við Data Íslandia um að gera hagkvæmnisathugun á byggingu allt að 100 þúsund fermetra gagnamiðstöðvar á Íslandi en það jafnast á við 15 knattspyrnuvelli. 200 ný störf gætu þá skapast. Framkvæmdastjóri Data Íslandia ætlar að bjóða fleiri alþjóðlegum fyrirtækjum samskonar þjónustu. 19.12.2006 18:59 Hefur áhyggjur af flugstjórnarmálum Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur áhyggjur af stöðu flugumferðarstjórnar hér við land eftir að sextíu flugumferðarstjórar nýttu ekki lokafrest til að ráða sig hjá Flugstoðum sem tekur til starfa um áramót. 19.12.2006 18:57 Sveitarfélögin ákveða útsvar Hlutfall tekjuskatts lækkar á næsta ári um 1% og verður 22,75%. Meðalútsvar hjá sveitarfélögunum á árinu 2007 verður 12,97% sem er það sama og í ár. Af 79 sveitarfélagum ætla 61 þeirra að innheimta hámarksútsvar á næsta ári en 3 sveitarfélög verða með lágmarksútsvar. 19.12.2006 18:53 Sjá næstu 50 fréttir
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til taks á Selfossi Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu fara nú á fjórða tímanum austur fyrir fjall til þess að vera til taks á Selfossi ef fer að flæða þar inn í hús með hækkandi vatnsborði Ölfusár. Allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út og slökkviliðin í umdæminu eru í viðbragðstöðu. 20.12.2006 15:16
Forseti Íslands sendir samúðarkveðju vegna andláts sjóliðsforingja Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Margréti Danadrottningu samúðarkveðju vegna andláts sjóliðsforingjans Jans Nordskovs Larsens sem drukknaði við björgunarstörf í tengslum við strand kýpverska skipsins Wilson Muuga. 20.12.2006 15:05
Sýknaður af ákæru um nauðgun Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í maí síðastliðnum. Fólkið mun hafa hist á skemmtun og farið saman af skemmtuninni og á maðurinn að hafa naugðað stúlkunni á víðavangi skammt þar frá. 20.12.2006 14:58
Mesta vatnshæð síðan mælingar hófust Vatnamælirinn þar sem Hvítá rennur um Fremstaver hefur aldrei sýnt meiri vatnshæð síðan hann var settur upp. Snorri Zóphóníasson, hjá Vatnamælingum Orkustofnunar, býst við að rennsli Ölfusár við Selfoss vaxi fram að miðnætti í kvöld og geti náð 2000 rúmmetrum á sekúndu, sem er fimmfalt meðalrennsli þessarar vatnsmestu ár landsins. 20.12.2006 14:42
Ísraelar íhuga að borga Abbas Ísraelar eru að íhuga að greiða Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, tugi milljóna dollara af sköttum sem þeir hafa innheimt fyrir heimastjórnina, en haldið eftir síðan Hamas myndaði ríkisstjórn undir forystu Ismails Hainyehs. 20.12.2006 14:38
Ísland dýrast í Evrópu -Norðmenn gleðjast Ísland er dýrasta land í Evrópu, sam kvæmt niðurstöðum norsku hafstofunnar. Norðmenn eru í öðru sæti og eru aldrei þessu vant ánægðir með að vera ekki númer eitt. Norska hagstofan segir að á síðasta ári hafi verð á neysluvörum á Íslandi verið fimmtíu og einu prósenti hærra en meðaltalið í ríkjum Evrópusambandsins. 20.12.2006 14:35
Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun brast í úrhellinu Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit, skammt frá Melgerðismelum, brast í úrhellinu í morgun og æddi flóðbylgja niður ána og yfir Eyjafjarðarveg vestri þannig að hann rofnaði. 20.12.2006 14:11
Hestabjörgunin gengur vonum framar Hestabjörgun Björgunarfélagsins Eyvindar við Auðsholt í Hrunamannahreppi gengur vonum framar, að sögn Borgþórs Vignissonar, sem er á vettvangi. Í kringum hundrað hestar voru á flæðiskeri staddir í morgun þegar björgunarmenn komu á vettvang. Tveir litlir gúmmíbátar hafa smalað hestunum á sund og farið með þá á öruggan stað. 20.12.2006 14:09
Grjóthrun úr Óshlíð í morgun Nokkuð grjót hrundi á veginn um Óshlíð í morgun og var lögregla kölluð út til að aðstoða vegfaranda. Kona sem var á leið til Bolungarvíkur keyrði á grjóthnullung og sprengdi dekkið og skemmdi felguna. Vegagerðin ruddi veginn en ekki þurfti að loka honum. Ekki hefur hrunið frekar í dag, að sögn lögreglu á Ísafirði. 20.12.2006 13:47
Kína herðir reglur um ættleiðingar Kínverjar eru að setja nýjar og hertar reglur til þess að fækka ættleiðingum barna frá landinu. Feitt og ógift fólk fær ekki að ættleiða börn, og heldur ekki fólk sem er á þunglyndislyfjum eða fatlað á einhvern hátt. Nýju reglurnar verða kynntar í vikunni. 20.12.2006 13:47
Lyngdalsheiðin orðin ófær vegna vatnavaxta Lyngdalsheiði, sem liggur milli Þingvalla og Laugarvatns er orðin ófær vegna vatnavaxta og bætist þar með í hóp vega á Norður- og Suðurlandi sem lokast hafa vegna þess. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð og þá er Auðsholtsvegur, vegur 340, ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. 20.12.2006 13:43
Vegstikur hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöpp 5000 þúsund óhöpp, um 2500 slys og 54 banaslys hafa orðið á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss. Vegstikur beggja megin vegarins hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöppin sem orðið hafa á veginum. 20.12.2006 13:15
Al-Kæda býður Bandaríkjamönnum til samninga Næst æðsti leiðtogi al-Kæda gaf í dag sterklega í skyn að Bandaríkjamenn ættu að semja við hryðjuverkasamtökin um brotthvarf sitt frá Írak. Það séu þau sem hafi völdin í landinu. 20.12.2006 13:02
Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu hugi að eigum sínum Þrjár af fjórum almannavarnarnefndum í Árnessýslu funduðu á lögreglustöðinni á Selfossi kl. 11:30. Á fundinum sátu einnig fulltrúar Vatnamælinga og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu eru hvattir til að gæta að eignum sínum. 20.12.2006 12:59
Hugsanlega stærsta flóð í hálfa öld Átta íbúðarhús eru innlyksa í Auðsholti og Hvítáin beljar allt um kring. Steinar Halldórsson, bóndi í Auðsholti í Hrunamannahreppi, segir fólkið vant vatnavöxtum en þetta gæti verið stærsta flóð síðan foreldrar hans fluttu að Auðsholti, fyrir 50 árum síðan. Og það rignir enn og vatnsborðið hækkar. 20.12.2006 12:59
Rannsaka dánarorsök vændiskvenna Dánardómsstjórar í Suffolk komu saman í morgun til að skera úr um dánarorsök fjögurra af fórnarlömbum raðmorðingjans frá Ipswich. Enn er óvíst hvernig tvær þeirra dóu en vitað er að Anneli Alderton kafnaði og Paula Clennel lést vegna höfuðhöggs. 20.12.2006 12:55
Björguðu manni úr Djúpadalsá - lögreglubílar innlyksa Slökkviliðið á Akureyri bjargaði í morgun manni eftir að bíll hans lenti úti í Djúpadalsá í Eyjarfjarðarsveit nú fyrir hádegið. Svo virðist sem áin hafi grafið veginn í sundur með fyrrgreindum afleiðingum. Slökkvilið segir manninn hafa verið kaldan og hrakinn eftir volkið en lítið meiddan. 20.12.2006 12:33
Vegir víða lokaðir vegna vatnavaxtanna Vegfarendur eru varaðir við vatnavöxtum víða um land þar sem vatn gæti flætt upp á vegi. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð. Auðsholtsvegur, vegur 340, er ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. Það er ófært vegna vatnaskemmda við Ferjukot í Borgarfirði. Í Eyjafirði loka skriður vegi á þremur stöðum; á Hörgárdalsvegi við bæinn Skriðu, á Hólavegi við Grænuhlíð og á Eyjafjarðarbraut vestri er skriða í námunda við Skáldstaði. Eyjafjarðarbraut vestri er einnig í sundur vegna flóðs við Samkomugerði og má búast við að viðgerð þar taki einhverja daga. 20.12.2006 12:32
Hvítárnar í ham Hvítárnar bæði á Suðurlandi og í Borgarfirði eru í miklum ham og er búið að loka brúm og vegum við báðar árnar. Í Borgarfirðinum er búið að loka gömlu brúnni yfir Hvítána sem er millli Ferjukots og Hvítárvalla. Á Suðurlandi var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem brúin var komin á kaf og vatn komið upp á veginn beggja vegna brúarinnar. 20.12.2006 12:30
Forðuðu sér undan skriðunni við Grænuhlíð Hjón og barn þeirra sluppu ómeidd út úr íbúðarhúsi sínu að Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit í morgun, þegar aurskriða féll á íbúðarhúsið og gripahúsin. Fólk átti svo fótum sínum fjör að launa þegar önnur skriða féll um ellefuleytið í morgun. Talið er tíu til fimmtán kálfar hafi drepist í fyrri skriðunni. 20.12.2006 12:19
Ekkert gert á strandstað fyrr en veður lægir Mengunarvarnarbúnaður er kominn á strandstaðinn í Hvalsnesi en ekkert verður að gert fyrr en veðuraðstæður leyfa og hægt verður að slaka mönnum og tækjakosti niður í skipið. Umhverfisstofnun stjórnar aðgerðum á strandstað nú þegar búið er að bjarga áhöfninni af skipinu. 20.12.2006 12:15
Laun æðstu embættismanna hækka í október og um áramót Kjararáð hefur ákveðið að laun þeirra sem heyra undir ráðið, þar meðal þingmenn, ráðherrar, forseti og dómarar, skuli hækka um 3,6 prósent afturvirkt frá 1. október 2006. Þá skuli þau hækka um 2,9 prósent um áramót. Úrskurður þar að lútandi var kveðinn upp í gær. 20.12.2006 12:01
Tveggja mánaða dómur fyrir kannabisrækt Karlmanns á fimmtugsaldri bíður tveggja mánaða fangelsi en hann var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sakfelldur fyrir fíkniefnabrot með því að hafa í vörslu sinni 2,5 grömm af hassi og kannabisræktun. 20.12.2006 11:36
Forðuðu sér undan skriðunni Önnnur skriða féll við bæinn Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit nú á tólfta tímanum. Fréttamaður Stöðvar 2 var að ræða við bóndann á bænum þegar miklar drunur kváðu við og allir forðuðu sér. 20.12.2006 11:31
Hjálmar Árnason vill lögreglurannsókn í málefnum Byrgisins Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að lögreglurannsókn fari fram á málefnum meðferðarheimilisins Byrgsins í Grímsnesi og forstöðumanns þess Guðmundar Jónssonar í ljósi upplýsinga um kynferðislega misneytingu í sjónvarpsþættinum Kompási á sunnudaginn var. Hjálmar sagði í þættinum Ísland í bítið á Stöð2 í morgun, að hann væri ekki alveg sammála Ólafi Helga Kjatanssyni, sýslumanni á Selfossi, um að ekki væri ástæða til að láta fara fram rannsókn í málinu. 20.12.2006 11:31
Óheppni bensínþjófurinn Þegar Tom Fischer, í Seattle, sá að bíllinn hans var að verða bensínlaus, ákvað hann að spara sér peninga og stela bensíni af öðrum bíl. Hann valdi sér stóran húsbíl i, læddist að honum og smeygði slöngu ofan í tankinn. Svo saug hann fast, til að fá bensínið til að renna. 20.12.2006 11:23
Hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 20.12.2006 11:16
Ketkrókur dæmdur í hálfs árs fangelsi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir búðarhnupl í sumar og haust. Manninum var gefið að sök að hafa stolið þremur lambalærum í einni verslun, einu læri í annarri verslun og lambakótilettum í þriðju versluninni. 20.12.2006 10:58
Flóðið í Hvítá verður við Selfoss um kl. 17 Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu vegna flóðs í Hvítá en veginum um Brúarhlöð hefur þegar verið lokað þar sem áin flæðir yfir veginn. Samkvæmt almannavörnum má búast við því að flóðið í ánni verði komið niður fyrir Vörðufell á Skeiðum upp úr kl.15 í dag og verði við Selfoss upp úr kl.17. 20.12.2006 10:43
Gefur pening í stað jólakorta Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið að senda ekki hefðbundin jólkort þetta árið en gefa andvirði þess kostnaðar til fátækra barna á Íslandi og erlendis. Mæðrastyrksfnefnd og SOS barnaþorp njóta góðs af jólakortapeningum Samfylkingarinnar þetta árið. 20.12.2006 10:39
Nýtt vopnahlé samþykkt á Gaza Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tilkynnti í kvöld að náðst hefði nýtt samkomulag um vopnahlé milli Fatha-hreyfingarinnar og Hamas-samtakanna á Gaza. 19.12.2006 23:51
Holtavörðuheiði lokuð vegna vatnsflaums Þjóðvegur eitt er lokaður milli Brúar í Hrútafirði og Dalsminnis við Bröttubrekkuafleggjarann en mikill vatnsflaumur er á veginum vegna rigninga. Lokað er því fyrir alla umferð á Holtavörðuheiðina. Umferð er beint um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði en sú leið er mun lengri og ekki öll malbikuð. 19.12.2006 23:00
Bush vill efla bandaríska herinn George Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar að stækka bandaríska herinn til að geta betur tekist á við þá ógn sem stafar af hryðjuverkum. Frá þessu er greint á heimasíðu The Washington Post. 19.12.2006 22:41
Flutningaskipið snéri sér aðeins á kvöldflóðinu Svo virðist sem að flutningaskipið Wilson Muugo, sem strandaði við Hvalsnes skammt frá Sandgerði snemma í morgun, hafi snúið sér um tíu til fimmtán gráður á kvöldflóðinu. Björgunarsveitarmenn vakta strandstaðinn í alla nótt en lítið sést til skipsins núna enda er myrkur og leiðinlegt veður á staðnum. 19.12.2006 21:53
Vatnsflaumur hamlar umferð um Norðurárdal Verið er að meta hvort að loka þurfi veginum um Norðurárdal en þar flæðir vatn yfir veginn á nokkrum stöðum eftir miklar rigningar. Lögreglan í Borgarnesi en vatnið hefur valdið nokkrum vandræðum fyrir ökumenn. 19.12.2006 21:18
Sló mann með álstöng í höfuðið Tuttugu og fimm ára karlmaður var í dag dæmdur í Hæstarétti Íslands í átta mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundið, fyrir hættulega líkamsárás. Maðurinn sló annan mann með tveggja kílóa álstöng í höfuðið og tvisvar með krepptum hnefa í andlitið. 19.12.2006 21:07
Ekki Birkis mál að vekja athygli á svartri skýrslu um Byrgið Birkir Jón Jónsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis segir það ekki hafa verið sitt hlutverk að vekja athygli nefndarinnar á svartri skýrslu um málefni Byrgisins. Slíkt sé hlutverk fagráðuneyta og Ríkisendurskoðunar. 19.12.2006 20:45
Stórtjón í brjáluðu veðri á Akureyri Stórtjón varð í brjáluðu veðri á Akureyri í nótt. Tré rifnuðu upp með rótum, bílar fuku og sumir vöknuðu upp við að hurðir vantaði á húsið. 19.12.2006 20:00
Könnunarviðræður halda áfram Könnunarviðræðum um varnarsamstarf Íslendinga við Dani og Norðmenn lauk í dag. Þeim verður fram haldið á næsta ári auk þess sem rætt verður við Breta og Kanadamenn. Utanríkisráðherra segir að byggt verði á eldra samstarfi við þessar fjórar þjóðir. 19.12.2006 19:30
Dauðadómur í Líbíu Dómstóll í Líbíu hefur dæmt fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og palestínskan lækni til dauða fyrir að myrða rúmlega fjögur hundruð líbönsk börn. Þeim er gefið að sök að hafa sýkt börnin viljandi með HIV-vírusnum sem veldur alnæmi. 19.12.2006 19:15
Á stærð við 15 knattspyrnuvelli Breska stórfyrirtækið BT Group hefur gert samning við Data Íslandia um að gera hagkvæmnisathugun á byggingu allt að 100 þúsund fermetra gagnamiðstöðvar á Íslandi en það jafnast á við 15 knattspyrnuvelli. 200 ný störf gætu þá skapast. Framkvæmdastjóri Data Íslandia ætlar að bjóða fleiri alþjóðlegum fyrirtækjum samskonar þjónustu. 19.12.2006 18:59
Hefur áhyggjur af flugstjórnarmálum Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur áhyggjur af stöðu flugumferðarstjórnar hér við land eftir að sextíu flugumferðarstjórar nýttu ekki lokafrest til að ráða sig hjá Flugstoðum sem tekur til starfa um áramót. 19.12.2006 18:57
Sveitarfélögin ákveða útsvar Hlutfall tekjuskatts lækkar á næsta ári um 1% og verður 22,75%. Meðalútsvar hjá sveitarfélögunum á árinu 2007 verður 12,97% sem er það sama og í ár. Af 79 sveitarfélagum ætla 61 þeirra að innheimta hámarksútsvar á næsta ári en 3 sveitarfélög verða með lágmarksútsvar. 19.12.2006 18:53