Fleiri fréttir Sýknaður af ákæru um fíkniefnabrot Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði í dag karlmann af ákæru um fíkniefnabrot sem átti að hafa átt sér stað um síðustu verslunarmannahelgi. 19.12.2006 17:03 Bjart er yfir beljunum Þýskir lögregluþjónar gripu til skotvopna þegar þeir komu á bóndabæ suður af Frankfurt, til þess að framfylgja lögum um að kýr skuli hafa dagsbirtu í fjósum sínum. Viðkomandi bóndi geymdi kýr sínar í gluggalausu útihúsi. 19.12.2006 17:02 Spyr forsætisráðherra um misræmi í matarverðsútreikingum Talsmaður neytenda hefur sent forsætisráðherra bréf vegna misræmis sem hann segir vera í upplýsingum um hve mikið matarverð lækki með aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þar vísar hann í fréttapóst Samtaka verslunar og þjónustu þar sem segir að matvælaverð muni með aðgerðunum lækka um 9-10 prósent en ekki 16 prósent eins og ríkisstjórnin haldi fram 19.12.2006 16:41 Stóri bróðir snýr aftur Bretar ætla að skylda alla innflytjendur sem ekki eru frá Evrópulöndum til þess að skrá líffræðileg auðkenni eins og fingraför og augna-skann, frá árinu 2008. Útlendingar verða að sækja um slík skilríki ef þeir sækja um áritanir til langdvalar í Bretlandi. 19.12.2006 16:40 Þrettán hengdir í Írak Þrettán menn voru teknir af lífi í Írak, í dag, fyrir morð, nauðganir og pyntingar. Í tilkynningu frá stjórnvöldum sagði að einn mannanna hefði viðurkennt að hafa myrt tíu manns, og annar að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu. 19.12.2006 16:18 Björgunarvesti látins sjóliða sagt hafa rifnað Vesti danska sjóliðans af varðskipinu Triton, sem drukknaði í björgunaraðgerðum úti fyrir Sandgerði í morgun, rifnaði þegar björgunarbátnum hvolfdi. Frá þessu greinir Jótlandspósturinn. Þar segir einnig að tveir af félögum hans hafi reynt að halda honum á floti en að galli hans hafi smám saman fyllst af vatni og hann því orðið æ þyngri. 19.12.2006 16:17 Slökkvilið kvatt að Engeynni við Reykjavíkurhöfn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt niður á Reykjavíkurhöfn nú á fjórða tímanum vegna gruns um eld í togaranum Engey sem liggjur við bryggju. Óttast var að glóð hefði komist á milli þilja í skipinu en sögn slökkviliðs virðist svo ekki hafa verið. Því reyndist ekki hætta á ferðum. 19.12.2006 15:55 Gert ráð fyrir 300 milljóna króna afgangi hjá Akureyrarbæ Akueyrarbær gerir ráð fyrir tæplega 300 milljóna króna rekstrarafgangi á næsta á samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Síðari umræða um fjárhagsáætluna verður á bæjarstjórnarfundi í dag og fram kemur í tilkynningu frá bænum að heildartekjur bæjarins verði tæpir 12,2 milljarðar króna en heildargjöld tæplega 11,9 milljarðar. 19.12.2006 15:49 Vel launað framhjáhald Tæplega þrítugur lagermaður í vöruhúsi fékk sér dæmdar 400 milljónir króna bætur í Lundúnum í dag, fyrir að halda tvisvar framhjá konunni sinni og elta vændiskonur út um alla móa. 19.12.2006 15:47 Sjötíu ára starfi St. Franciskussystra lýkur Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og systir Belén Aldonando, fulltrúi St. Franciskusreglunnar, undirrituðu í dag samkomlag um að ríkið kaupi St. Franciskuspítalann í Stykkishólmi. Greiddar verða 140 milljónir fyrir hlut reglunnar í spítlanum en ríkið tekur auk þess að sér lífeyrisréttindi starfsmanna eftir því segir í fréttatilkynningu. 19.12.2006 15:38 Búið að bjarga öllum skipverjum af Wilson Muuga Búið er að bjarga öllum skipverjum af kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði úti fyrir Sandgerði í dag. Lent var með síðustu fjóra skipverjana, þar á meðal skipstjórann, og stýrimann frá Landhelgisgæslunni í Keflavík klukkan kortér í þrjú og er skipið því mannlaust nú. 19.12.2006 15:18 Myndir af morðum Saddams 19.12.2006 15:02 Kanna möguleika á 100 þúsund fermetra gagnamiðstöð hér á landi Breska stórfyrirtækið BT Group, sem áður hér British Telecom, hefur gert samning við Data Íslandia um að gera hagkvæmnisathugun á byggingu allt að 100.000 fermetra gagnamiðstöðvar á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Data Íslandia. 19.12.2006 14:58 Leggur til sæstreng til Írlands fyrir haustið 2008 Starfshópur um öruggt varasamband fjarskipta við umheiminn leggur til að lagningu nýs sæstrengs milli Íslands og meginlands Evrópu verði lokið haustið 2008. Hópurinn telur það hafa ákveðna kosti að leggja strenginn til Írlands þar sem það auki öryggi. 19.12.2006 14:44 Bandarískir demókratar innleiða tæpast Kyoto Ólíklegt er talið að Bandaríkjamenn undirgangist Kyoto bókunina, jafvel þótt Demókratar komist til valda í landinu. Stuart Eizenstat, aðal samningamaður Bills Clintons, í Kyoto, segir að breytingar séu fyrirsjáanlegar í Bandaríkjunum, en Kyoto sé ennþá eins og blótsyrði. 19.12.2006 14:29 Ólíklegt að olíu verði dælt úr flutningaskipi í dag Eitthvað af hráolíu hefur lekið frá flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði úti fyrir Sandgerði í nótt og er útlit fyrir að ekki takist að dæla olíu úr skipinu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Keflavík. Þar segir að göt séu á skrokki skipsins og vinna fulltrúar frá Umhverfisstofnun og Olíudreifingu vinna að mengunarvörnum á slysstað. 19.12.2006 14:18 Faðir Flintstones látinn 19.12.2006 14:12 Vilja tryggja rekstur Konukots til 1. maí Fjármagn til reksturs Konukots og auknar niðurgreiðslur til dagforeldra og sjálfstætt rekinna leikskóla eru meðal breytinga sem meirihluti borgarstjórnar leggur til á frumvarpi að fjárhagsáætlun borgarinnar sem tekið verður til seinni umræðu í dag. 19.12.2006 14:04 Finnar hafna rússnesku rafmagni 19.12.2006 13:59 Háskóli Íslands missir netsambandið aftur Háskóli Íslands er aftur orðinn sambandslaus við umheiminn. Starfsfólk og nemendur hafa þurft að glíma við afar slitrótta tengingu við Internetið vegna bilunar sem varð í CANTAT-3 strengnum um helgina. 19.12.2006 13:53 Háskóli Íslands brýtur jafnréttislög í annað sinn á árinu Kærunefnd jafnréttismála komst í gær að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands hefði brotið gegn jafnréttislögum þegar hann réð karlmann í stöðu sérfræðings við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar HÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmanni konunnar. 19.12.2006 13:36 Ísraelar fallast á liðsauka frá Jórdaníu Ísraelar hafa fallist á að palestinsk hersveit sem er staðsett í Jórdaníu, verði flutt til Gaza strandarinnar, til þess að styrkja Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í sessi. Ehud Olmer, forsætisráðherra Ísraels, kom í óvænta heimsókn til Jórdaníu, í dag. 19.12.2006 13:31 Skipverjar fluttir með þyrlu - veður fer versnandi Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur nú flutt átta af tólf skipverjum á kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga í land og því eru aðeins fjórir skipverjar og stýrimaður frá Landhelgisgæslunni eftir í bátnum. 19.12.2006 13:25 Varnarviðræður við Norðmenn í dag Viðræður Norðmanna og Íslendinga um mögulegt varnarsamtarf þjóðanna hófust í utanríkisráðuneytinu í morgun og standa enn. Viðræðunefnd Norðmanna kom til landsins í gærkvöldi. Sendinefndin mun meðal annars skoða varnarsvæðið í Keflavík eftir hádegi. 19.12.2006 13:00 Framsóknarmenn kynna framboðslista sína í Reykjavík Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins í Reykjavík norður og suður hafa boðað til blaðamannafundar klukkan hálfsex í dag í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu þar sem framboðslistar flokksins í kjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar verða kynntir. 19.12.2006 12:40 One died during rescue 19.12.2006 12:35 Byrgið þarf að rannsaka Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum segir alveg ljóst að rannsaka þurfi mál þeirra kvenna sem saka forstöðumann Byrgisins um að hafa misnotað sér sjúkleika þeirra. 19.12.2006 12:31 48 ára karlmaður handtekinn í Ipswich Breska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna morða á fimm vændiskonum í Suðaustur-Englandi. Þrjátíu og sjö ára karlmaður var handtekinn vegna málsins í gær. 19.12.2006 12:22 Fá að áfrýja í Líbíu Fimm búlgarskir hjúkrunarfræðingar og palestínskur læknir sem voru dæmd til dauða í Líbíu í dag fá að áfrýja, samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra landsins. Fólkið var dæmt fyrir að hafa viljandi smitað 426 börn af HIV-veirunni. Aðrir segja að fólkið sé blórabögglar, því sé kennt um bágar hreinlætisaðstæður á sjúkrahúsinu. 19.12.2006 11:56 Dómara dæmd laun í samræmi við úrskurð Kjaradóms Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri að greiða Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara rúmar sextíu þúsund krónur vegna þeirrar ákvörðunar alþingis að fella úr gildi ákvörðun Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna frá því seint á síðasta ári. 19.12.2006 11:53 Beðið eftir konunglegu brúðkaupi Breska slúðurpressan bíður með öndina í hálsinum eftir að Vilhjálmur prins biðji unnustu sína, Kate Middleton, að giftast sér. Hún hefur hingað til fengið frið frá ljósmyndurum en eftir að hún var við útskrift hans frá Sandhurst herskólanum byrjaði kjaftagangurinn. Nú telja slúðurfréttamenn, rithöfundar og jafnvel minjagripasmiðir að brúðkaup sé í nánd. 19.12.2006 11:29 Fangi á Litla-Hrauni dæmdur fyrir vörslu fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands dæmdi dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fangelsinu fyrr á árinu. Hass og amfetamín fannst í munnholi og í klefa fangans í júlí í sumar og tæpum tveimur vikum síðar fannst einnig hass og tóbaksblandað kannabisefni við klefaleit. 19.12.2006 11:16 Dæmdur fyrir vörslu nærri 260 barnaklámsmynda Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot með með því hafa haft nærri 260 ljósmyndir af barnaklámi í tölvu sinni sem margar hverjar voru mjög grófar. 19.12.2006 10:58 Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir tvö fíkniefnabrot fyrr á þessu ári. Í fyrra tilvikinu var hann handtekinn eftir að tvær e-pillur og rúm tvö grömm af hassi fundust á honum en í síðara tilvikinu fundust nærri 15 grömm af amfetamíni og tæp 80 grömm af hassi. 19.12.2006 10:49 Óskar vill rifta samningi við Faxaflóahafnir Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir gagnrýni á verktakasamning hans við Faxaflóahafnir ómaklega og af pólitískum rótum sprottna. Hann vill að sátt ríki um verkefnið og biður því um að verktakasamningi hans við Faxaflóahafnir verði rift. 19.12.2006 10:46 Vildu gista í bílum sínum á Breiðdalsheiði Björgunarsveitin Hérað var kölluð út fyrr í kvöld vegna tveggja bíla sem voru í vandræðum við Axarafleggjarann á Breiðdalsheiði. Björgunarsveitarmenn komu að bílnum um klukkan tíu. Fólkið í bílunum, sem var erlent, neitaði allri aðstoð og kvaðst ætla gista í bílunum í nótt. Björgunarsveitin hélt því aftur heim. 18.12.2006 23:50 Maður fastur uppi í mastri hjá Fjarðaráli Björgunarsveitarmenn vinna nú að því að ná niður manni sem fastur er uppi í mastri í lóð Fjarðaráls á Reyðarfirði. Björgunarsveitarmenn frá Héraði og Norðfirði aðstoða björgunarsveitina Ársól á Reyðarfirði við aðgerðirnar. Maðurinn er fastur í 20 til 30 metra hæð. 18.12.2006 23:25 Hamas ætla að sniðganga kosningar Hamas samtökin ætla að sniðganga kosningar sem haldnar verða fyrr en kjörtímabilinu lýkur. Kahled Meshaal, einn af leiðtogum Hamas-samtakanna, segir aðgerðir forseta Palestínu þess efnis að boða til kosninga innan skamms ólöglegar. 18.12.2006 22:32 Lögreglan í Vík heimsækir skotvopnaeigendur Lögreglan í Vík hefur síðustu vikur verið að heimsækja eigendur skotvopna um sýsluna sem eiga þrjú skotvopn eða fleiri. 18.12.2006 22:22 Blysför á Þorláksmessu í tuttugasta og sjöunda sinn Íslenskir friðarsinnar standa fyrir sinni árlegu blysför niður Laugarveginn á Þorláksmessu. Þetta er í tuttugasta og sjöunda sinn sem ganga er farin. 18.12.2006 22:00 Gæsluvarðhald yfir 18 ára síbrotamanni fellt úr gildi Hæstiréttur Íslands felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir átján ára gömlum pilti. Hann var fyrir viku dæmdur í gæsluvarðhald til 4. janúar í Héraðsdómi Reykjaness. Pilturinn er grunaður um ítrekaðan þjófnað en hann er í mikilli fíkniefnaneyslu og hefur fjármagnað neysluna með þjófnuðum. 18.12.2006 21:27 Umferðaróhöpp í hálkunni á Akureyri Átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Akureyri í dag. Þau mátti nær öll rekja til mikillar hálku á götunum en hálka er víðs vegar á götum bæjarins og í nágrenni. 18.12.2006 21:03 Vilja fella niður leikskólagjöld á námsmenn Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum hvetja bæjarfélögin á Suðurnesjum til að fella niður leikskólagjöld á námsmenn. Í ályktun sem þeir sendu frá sér er bent á að leikskólagjöld séu dýr baggi á námsmenn sem þurfa að treysta á námslán til þess að framfleyta sér. 18.12.2006 20:27 Jólagæsin uppseld Jólagæsina mun víða vanta á borð landsmanna í ár, þar sem hún er uppseld í verslunum. Neysluvenjur landsmanna á aðfangadagskvöld eru að taka miklum breytingum. 18.12.2006 20:15 Samruni Statoil og Norsk Hydro kynntur Norski olíurisinn Statoil og orkufyrirtækið Norsk Hydro ætla að sameinast um olíu- og gasborun á grunnsævi. Nýja fyrirtækið verður stærst allra á þeim vettvangi. Samningurinn er sagður jafnvirði rúmlega tvö þúsund milljarða íslenskra króna. 18.12.2006 20:00 Sjá næstu 50 fréttir
Sýknaður af ákæru um fíkniefnabrot Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði í dag karlmann af ákæru um fíkniefnabrot sem átti að hafa átt sér stað um síðustu verslunarmannahelgi. 19.12.2006 17:03
Bjart er yfir beljunum Þýskir lögregluþjónar gripu til skotvopna þegar þeir komu á bóndabæ suður af Frankfurt, til þess að framfylgja lögum um að kýr skuli hafa dagsbirtu í fjósum sínum. Viðkomandi bóndi geymdi kýr sínar í gluggalausu útihúsi. 19.12.2006 17:02
Spyr forsætisráðherra um misræmi í matarverðsútreikingum Talsmaður neytenda hefur sent forsætisráðherra bréf vegna misræmis sem hann segir vera í upplýsingum um hve mikið matarverð lækki með aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þar vísar hann í fréttapóst Samtaka verslunar og þjónustu þar sem segir að matvælaverð muni með aðgerðunum lækka um 9-10 prósent en ekki 16 prósent eins og ríkisstjórnin haldi fram 19.12.2006 16:41
Stóri bróðir snýr aftur Bretar ætla að skylda alla innflytjendur sem ekki eru frá Evrópulöndum til þess að skrá líffræðileg auðkenni eins og fingraför og augna-skann, frá árinu 2008. Útlendingar verða að sækja um slík skilríki ef þeir sækja um áritanir til langdvalar í Bretlandi. 19.12.2006 16:40
Þrettán hengdir í Írak Þrettán menn voru teknir af lífi í Írak, í dag, fyrir morð, nauðganir og pyntingar. Í tilkynningu frá stjórnvöldum sagði að einn mannanna hefði viðurkennt að hafa myrt tíu manns, og annar að hafa myrt fjögurra manna fjölskyldu. 19.12.2006 16:18
Björgunarvesti látins sjóliða sagt hafa rifnað Vesti danska sjóliðans af varðskipinu Triton, sem drukknaði í björgunaraðgerðum úti fyrir Sandgerði í morgun, rifnaði þegar björgunarbátnum hvolfdi. Frá þessu greinir Jótlandspósturinn. Þar segir einnig að tveir af félögum hans hafi reynt að halda honum á floti en að galli hans hafi smám saman fyllst af vatni og hann því orðið æ þyngri. 19.12.2006 16:17
Slökkvilið kvatt að Engeynni við Reykjavíkurhöfn Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt niður á Reykjavíkurhöfn nú á fjórða tímanum vegna gruns um eld í togaranum Engey sem liggjur við bryggju. Óttast var að glóð hefði komist á milli þilja í skipinu en sögn slökkviliðs virðist svo ekki hafa verið. Því reyndist ekki hætta á ferðum. 19.12.2006 15:55
Gert ráð fyrir 300 milljóna króna afgangi hjá Akureyrarbæ Akueyrarbær gerir ráð fyrir tæplega 300 milljóna króna rekstrarafgangi á næsta á samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum. Síðari umræða um fjárhagsáætluna verður á bæjarstjórnarfundi í dag og fram kemur í tilkynningu frá bænum að heildartekjur bæjarins verði tæpir 12,2 milljarðar króna en heildargjöld tæplega 11,9 milljarðar. 19.12.2006 15:49
Vel launað framhjáhald Tæplega þrítugur lagermaður í vöruhúsi fékk sér dæmdar 400 milljónir króna bætur í Lundúnum í dag, fyrir að halda tvisvar framhjá konunni sinni og elta vændiskonur út um alla móa. 19.12.2006 15:47
Sjötíu ára starfi St. Franciskussystra lýkur Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og systir Belén Aldonando, fulltrúi St. Franciskusreglunnar, undirrituðu í dag samkomlag um að ríkið kaupi St. Franciskuspítalann í Stykkishólmi. Greiddar verða 140 milljónir fyrir hlut reglunnar í spítlanum en ríkið tekur auk þess að sér lífeyrisréttindi starfsmanna eftir því segir í fréttatilkynningu. 19.12.2006 15:38
Búið að bjarga öllum skipverjum af Wilson Muuga Búið er að bjarga öllum skipverjum af kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði úti fyrir Sandgerði í dag. Lent var með síðustu fjóra skipverjana, þar á meðal skipstjórann, og stýrimann frá Landhelgisgæslunni í Keflavík klukkan kortér í þrjú og er skipið því mannlaust nú. 19.12.2006 15:18
Kanna möguleika á 100 þúsund fermetra gagnamiðstöð hér á landi Breska stórfyrirtækið BT Group, sem áður hér British Telecom, hefur gert samning við Data Íslandia um að gera hagkvæmnisathugun á byggingu allt að 100.000 fermetra gagnamiðstöðvar á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Data Íslandia. 19.12.2006 14:58
Leggur til sæstreng til Írlands fyrir haustið 2008 Starfshópur um öruggt varasamband fjarskipta við umheiminn leggur til að lagningu nýs sæstrengs milli Íslands og meginlands Evrópu verði lokið haustið 2008. Hópurinn telur það hafa ákveðna kosti að leggja strenginn til Írlands þar sem það auki öryggi. 19.12.2006 14:44
Bandarískir demókratar innleiða tæpast Kyoto Ólíklegt er talið að Bandaríkjamenn undirgangist Kyoto bókunina, jafvel þótt Demókratar komist til valda í landinu. Stuart Eizenstat, aðal samningamaður Bills Clintons, í Kyoto, segir að breytingar séu fyrirsjáanlegar í Bandaríkjunum, en Kyoto sé ennþá eins og blótsyrði. 19.12.2006 14:29
Ólíklegt að olíu verði dælt úr flutningaskipi í dag Eitthvað af hráolíu hefur lekið frá flutningaskipinu Wilson Muuga sem strandaði úti fyrir Sandgerði í nótt og er útlit fyrir að ekki takist að dæla olíu úr skipinu í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í Keflavík. Þar segir að göt séu á skrokki skipsins og vinna fulltrúar frá Umhverfisstofnun og Olíudreifingu vinna að mengunarvörnum á slysstað. 19.12.2006 14:18
Vilja tryggja rekstur Konukots til 1. maí Fjármagn til reksturs Konukots og auknar niðurgreiðslur til dagforeldra og sjálfstætt rekinna leikskóla eru meðal breytinga sem meirihluti borgarstjórnar leggur til á frumvarpi að fjárhagsáætlun borgarinnar sem tekið verður til seinni umræðu í dag. 19.12.2006 14:04
Háskóli Íslands missir netsambandið aftur Háskóli Íslands er aftur orðinn sambandslaus við umheiminn. Starfsfólk og nemendur hafa þurft að glíma við afar slitrótta tengingu við Internetið vegna bilunar sem varð í CANTAT-3 strengnum um helgina. 19.12.2006 13:53
Háskóli Íslands brýtur jafnréttislög í annað sinn á árinu Kærunefnd jafnréttismála komst í gær að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands hefði brotið gegn jafnréttislögum þegar hann réð karlmann í stöðu sérfræðings við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar HÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmanni konunnar. 19.12.2006 13:36
Ísraelar fallast á liðsauka frá Jórdaníu Ísraelar hafa fallist á að palestinsk hersveit sem er staðsett í Jórdaníu, verði flutt til Gaza strandarinnar, til þess að styrkja Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í sessi. Ehud Olmer, forsætisráðherra Ísraels, kom í óvænta heimsókn til Jórdaníu, í dag. 19.12.2006 13:31
Skipverjar fluttir með þyrlu - veður fer versnandi Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur nú flutt átta af tólf skipverjum á kýpverska flutningaskipinu Wilson Muuga í land og því eru aðeins fjórir skipverjar og stýrimaður frá Landhelgisgæslunni eftir í bátnum. 19.12.2006 13:25
Varnarviðræður við Norðmenn í dag Viðræður Norðmanna og Íslendinga um mögulegt varnarsamtarf þjóðanna hófust í utanríkisráðuneytinu í morgun og standa enn. Viðræðunefnd Norðmanna kom til landsins í gærkvöldi. Sendinefndin mun meðal annars skoða varnarsvæðið í Keflavík eftir hádegi. 19.12.2006 13:00
Framsóknarmenn kynna framboðslista sína í Reykjavík Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins í Reykjavík norður og suður hafa boðað til blaðamannafundar klukkan hálfsex í dag í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu þar sem framboðslistar flokksins í kjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar verða kynntir. 19.12.2006 12:40
Byrgið þarf að rannsaka Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum segir alveg ljóst að rannsaka þurfi mál þeirra kvenna sem saka forstöðumann Byrgisins um að hafa misnotað sér sjúkleika þeirra. 19.12.2006 12:31
48 ára karlmaður handtekinn í Ipswich Breska lögreglan hefur handtekið annan mann vegna morða á fimm vændiskonum í Suðaustur-Englandi. Þrjátíu og sjö ára karlmaður var handtekinn vegna málsins í gær. 19.12.2006 12:22
Fá að áfrýja í Líbíu Fimm búlgarskir hjúkrunarfræðingar og palestínskur læknir sem voru dæmd til dauða í Líbíu í dag fá að áfrýja, samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðherra landsins. Fólkið var dæmt fyrir að hafa viljandi smitað 426 börn af HIV-veirunni. Aðrir segja að fólkið sé blórabögglar, því sé kennt um bágar hreinlætisaðstæður á sjúkrahúsinu. 19.12.2006 11:56
Dómara dæmd laun í samræmi við úrskurð Kjaradóms Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkinu bæri að greiða Guðjóni St. Marteinssyni héraðsdómara rúmar sextíu þúsund krónur vegna þeirrar ákvörðunar alþingis að fella úr gildi ákvörðun Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna frá því seint á síðasta ári. 19.12.2006 11:53
Beðið eftir konunglegu brúðkaupi Breska slúðurpressan bíður með öndina í hálsinum eftir að Vilhjálmur prins biðji unnustu sína, Kate Middleton, að giftast sér. Hún hefur hingað til fengið frið frá ljósmyndurum en eftir að hún var við útskrift hans frá Sandhurst herskólanum byrjaði kjaftagangurinn. Nú telja slúðurfréttamenn, rithöfundar og jafnvel minjagripasmiðir að brúðkaup sé í nánd. 19.12.2006 11:29
Fangi á Litla-Hrauni dæmdur fyrir vörslu fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands dæmdi dag fanga á Litla-Hrauni í eins mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnabrot í fangelsinu fyrr á árinu. Hass og amfetamín fannst í munnholi og í klefa fangans í júlí í sumar og tæpum tveimur vikum síðar fannst einnig hass og tóbaksblandað kannabisefni við klefaleit. 19.12.2006 11:16
Dæmdur fyrir vörslu nærri 260 barnaklámsmynda Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot með með því hafa haft nærri 260 ljósmyndir af barnaklámi í tölvu sinni sem margar hverjar voru mjög grófar. 19.12.2006 10:58
Átta mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í morgun karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir tvö fíkniefnabrot fyrr á þessu ári. Í fyrra tilvikinu var hann handtekinn eftir að tvær e-pillur og rúm tvö grömm af hassi fundust á honum en í síðara tilvikinu fundust nærri 15 grömm af amfetamíni og tæp 80 grömm af hassi. 19.12.2006 10:49
Óskar vill rifta samningi við Faxaflóahafnir Óskar Bergsson, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir gagnrýni á verktakasamning hans við Faxaflóahafnir ómaklega og af pólitískum rótum sprottna. Hann vill að sátt ríki um verkefnið og biður því um að verktakasamningi hans við Faxaflóahafnir verði rift. 19.12.2006 10:46
Vildu gista í bílum sínum á Breiðdalsheiði Björgunarsveitin Hérað var kölluð út fyrr í kvöld vegna tveggja bíla sem voru í vandræðum við Axarafleggjarann á Breiðdalsheiði. Björgunarsveitarmenn komu að bílnum um klukkan tíu. Fólkið í bílunum, sem var erlent, neitaði allri aðstoð og kvaðst ætla gista í bílunum í nótt. Björgunarsveitin hélt því aftur heim. 18.12.2006 23:50
Maður fastur uppi í mastri hjá Fjarðaráli Björgunarsveitarmenn vinna nú að því að ná niður manni sem fastur er uppi í mastri í lóð Fjarðaráls á Reyðarfirði. Björgunarsveitarmenn frá Héraði og Norðfirði aðstoða björgunarsveitina Ársól á Reyðarfirði við aðgerðirnar. Maðurinn er fastur í 20 til 30 metra hæð. 18.12.2006 23:25
Hamas ætla að sniðganga kosningar Hamas samtökin ætla að sniðganga kosningar sem haldnar verða fyrr en kjörtímabilinu lýkur. Kahled Meshaal, einn af leiðtogum Hamas-samtakanna, segir aðgerðir forseta Palestínu þess efnis að boða til kosninga innan skamms ólöglegar. 18.12.2006 22:32
Lögreglan í Vík heimsækir skotvopnaeigendur Lögreglan í Vík hefur síðustu vikur verið að heimsækja eigendur skotvopna um sýsluna sem eiga þrjú skotvopn eða fleiri. 18.12.2006 22:22
Blysför á Þorláksmessu í tuttugasta og sjöunda sinn Íslenskir friðarsinnar standa fyrir sinni árlegu blysför niður Laugarveginn á Þorláksmessu. Þetta er í tuttugasta og sjöunda sinn sem ganga er farin. 18.12.2006 22:00
Gæsluvarðhald yfir 18 ára síbrotamanni fellt úr gildi Hæstiréttur Íslands felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir átján ára gömlum pilti. Hann var fyrir viku dæmdur í gæsluvarðhald til 4. janúar í Héraðsdómi Reykjaness. Pilturinn er grunaður um ítrekaðan þjófnað en hann er í mikilli fíkniefnaneyslu og hefur fjármagnað neysluna með þjófnuðum. 18.12.2006 21:27
Umferðaróhöpp í hálkunni á Akureyri Átta umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Akureyri í dag. Þau mátti nær öll rekja til mikillar hálku á götunum en hálka er víðs vegar á götum bæjarins og í nágrenni. 18.12.2006 21:03
Vilja fella niður leikskólagjöld á námsmenn Ungir jafnaðarmenn á Suðurnesjum hvetja bæjarfélögin á Suðurnesjum til að fella niður leikskólagjöld á námsmenn. Í ályktun sem þeir sendu frá sér er bent á að leikskólagjöld séu dýr baggi á námsmenn sem þurfa að treysta á námslán til þess að framfleyta sér. 18.12.2006 20:27
Jólagæsin uppseld Jólagæsina mun víða vanta á borð landsmanna í ár, þar sem hún er uppseld í verslunum. Neysluvenjur landsmanna á aðfangadagskvöld eru að taka miklum breytingum. 18.12.2006 20:15
Samruni Statoil og Norsk Hydro kynntur Norski olíurisinn Statoil og orkufyrirtækið Norsk Hydro ætla að sameinast um olíu- og gasborun á grunnsævi. Nýja fyrirtækið verður stærst allra á þeim vettvangi. Samningurinn er sagður jafnvirði rúmlega tvö þúsund milljarða íslenskra króna. 18.12.2006 20:00