Erlent

Lúkasjenko sigraði með yfirburðum

Alexander Lúkasjenko var endurkjörinn forseti Hvíta-Rússlands með miklum yfirburðum í gær.
Alexander Lúkasjenko var endurkjörinn forseti Hvíta-Rússlands með miklum yfirburðum í gær. MYND/AP

Alexander Lúkasjenko, forseti Hvíta-Rússlands, var endurkjörinn í embætti með yfirburðum í kosningum sem fram fóru í landinu í gær. Andstæðingar forsetans segja brögð hafa verið í tafli og vilja að boðað verði til nýrra kosningar.

Kjörstjórn Hvíta Rússlands tilkynnti í nótt að Alexander Lúkasjenko hefði verið endurkjörinn með 82,6% atkvæða. Næstu hefði komið helsti andstæðingur forsetans, Alexander Milinkevitsj, með 6% atkvæða. Lúkasjenko mun því sitja í embætti þriðja kjörtímabilið í röð en hann hefur leitt landið frá árinu 1994.

Stjórnarnadstaðan í Hvíta-Rússlandi segir framkvæmd kosninganna meingallaða og brögð í talfi. Þess er krafist að kosið verði að nýju. Um það bil tíu þúsund stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar komu saman á Októbertorginu í miðborg Minsk í gærkvöldi og nótt til að mótmæla úrslitunum þrátt fyrir að fjöldafundir væru bannaðir.

Yfirmaður leyniþjónustunnar í Hvíta-Rússlandi sagði í síðustu viku að mótmælendur yrðu meðhöndlaðir sem hryðjuverkamenn þar sem þeir ætluðu sér að koma forsetanum frá völdum með óheiðarlegum hætti. Ekki kom þó til átaka í nótt.

Fulltrúar frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu höfðu eftirlit með kosningunum í gær. Stofnunin mun gefa álit sitt á framkvæmd þeirra síðar í dag og búist við að sú skýrsla verði harðorð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×