Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blandar flokkspólitík í uppsagnir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ furða sig á því að fyrsti fundur forsætisráðherra um málefni starfsmanna varnarliðsins eftir að herinn tilkynnti að hann hefði sig á brott verði haldinn á kosningaskrifstofu A-listans. 19.3.2006 10:05
Tveir gistu fangageymslur Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt vegna ölvunar og óláta. Þá var einn ökumaður tekinn grunaður um ölvun við akstur og tveir fyrir að keyra réttindalausir, báðir eru aðeins sextán ára og virtist liggja meira á að setjast undir stýri en svo að þeir gætu beðið eftir að fá bílpróf. 19.3.2006 10:03
Lögreglumaður skotinn til bana í Berlín Lögreglumaður féll eftir að hafa verið skotinn til bana í Berlín, höfuðborg Þýskalands í gærkvöld. Lögreglumaðurinn, sem var 42ja ára gamall, var óeinkennisklæddur þegar hann var að athuga með mann sem hann hafði grunsemdir um að stundaði fíkniefnasölu í almenningsgarði í borginni. Lögreglan í Berlín leggur nú allt kapp á að hafa upp á hinum seka sem flúði af vettvangi eftir árásina. 18.3.2006 17:38
Tekinn tvisvar á ellefu mínútum Nítján ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á hálftíma á Akureyri. Allir voru á 50 kílómetra hraða eða meira þar sem er 30 kílómetra hámarkshraði. Einn þeirra sem lögreglan tók fyrir of hraðan akstur var stöðvaður aftur ellefu mínútum síðar og þá fyrir að tala í síma undir stýri. 18.3.2006 17:37
Hussein vill deyja í Írak Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks vill ekki að réttarhöldin yfir honum verði flutt frá Írak eins og verjendur hans hafa lagt þetta til við hann. Samkvæmt lögmönnum hans sagði Saddam að hann væri fæddur í Írak og þar vildi hann deyja. Saddam og sjö fyrrum samverkamanna hans eru sakaðir um að hafa staðið á bak við morð á 148 sjíum í bænum Dujail árið 1982 eftir að Saddam hafði verið sýnt banatilræði þar. Verði þeir fundnir sekir geta þeir átt von á því að verða teknir af lífi. 18.3.2006 17:35
Mikill sinueldur Mikill og þykkur reykur steig upp er bændur brenndu sinu í Eyjafjarðarsveit, sunnan við Akueyrarflugvöll í dag. Flug raskaðist ekki og er það að þakka hagstæðri vindátt. Bændur hafa leyfi til að brenna sinu fyrir fuglavarpið og nýta þeir sér það grimmt samkvæmt einum heimildamanni NFS að norðan. Þá segir Akureyrarlögreglan það hafa gerst, oftar en einu sinni, að flug hafi raskast vegna reyks, og biður hún bændur um að brenna sinu þegar vindátt er hagstæð og reyk leggi ekki yfir Akueyri eða flugvöllinn þar í bæ. 18.3.2006 17:30
Oddur Helgi leiðir Lista fólksins Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi leiðir L-lista, Lista fólksins, við bæjarstjórnarkosningar á Akureyri. Þetta er í þriðja skipti sem listinn býður fram og hefur Oddur helgi leitt listann í öll þrjú skiptin. 18.3.2006 17:25
Vilja starfslokasamning frá hernum Undirskriftasöfnun er hafin meðal starfsmanna Varnarliðsins þar sem farið er fram á að þeir fái starfslokasamning vegna uppsagna allra starfsmanna Varnarliðsins. Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn ekki rétt á öðrum greiðslum við uppsögn en þær sem felast í uppsagnarfresti. 18.3.2006 16:55
Verðlaunuð fyrir stærðfræðikunnáttu 24 börn á aldrinum níu til tólf ára hafa varið frítíma sínum í vetur við að leysa stærðfræðiþrautir sem reyndust flestum fullorðnum einstaklingum um megn. Útskriftarhátíð þeirra var haldin í Háskólanum í Reykjavík í gær. 18.3.2006 15:45
Hamas-stjórnin að líta dagsins ljós Hamas-samtökin hafa lokið við að skipa í ráðherraembætti í nýrri heimastjórn Palestínumanna. 18.3.2006 15:24
Hvetur til mótmæla Alexander Milinkevítsj, helsti frambjóðandi stjórnarandstöðunnar í forsetakosningum í Hvíta-Rússlandi sem fram fara á morgun, hvatti í dag til mótmælaaðgerða þrátt fyrir að stjórnvöld hafi hótað að bæla niður slíkar aðgerðir með ofbeldi. Stjórnmálaskýrendur segja líklegt að Alexander Lukashenkó, forseti landsins, vinni sigur í kosningunum. 18.3.2006 15:18
Hyggja á sókn í sveitarstjórnum Markmið Vinstri-grænna í sveitarstjórnarkosningunum í maí er að stórefla Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í sveitarstjórnum landsins segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins. 18.3.2006 14:46
Kalla eftir samstöðu ríkja Bandaríkin, Ástralía og Japan hvetja Írana að hætta auðgun úrans og Norður-Kóreumenn til þess að halda áfram með kjarnorkuviðræður. Þetta kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu þjóðanna eftir fund þeirra í Ástralíu í dag. Þá kölluðu ríki þrjú eftir breiðari samstöðu með öðrum valdamiklum ríkjum gegn úranframleiðslu Írana. 18.3.2006 14:35
Átak vegna geðfatlaðra skilar samfélaginu arði Það átak sem gera á í búsetu- og stoðþjónustumálum geðfatlaðra á næstu árum mun skila samfélaginu arði ef stjónvöld standa sína sína pligt, segir framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Hann segir að ekki dugi að taka til í búsetumálunum, styðja þurfi við bakið á geðfötluðum í samræmi vilja þeirra og getu en ekki forskrift embættismanna. 18.3.2006 12:30
Viðræður boðaðar við íslensk stjórnvöld. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, kvaðst á fréttamannafundi í gær búast við að viðræður myndu senn hefjast á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda um framtíðarfyrirkomulag varna landsins. 18.3.2006 12:00
Sjö létust í Úrúgvæ Skemmtidagskrá í smábænum Young í Úrúgvæ snerist upp í skelfingu í gær þegar lest sem bæjarbúar drógu komst á svo mikinn skrið að sjö þeirra lentu undir henni og dóu þegar í stað. Lestardrátturinn var liður í fjáröflun til góðgerðarstarfsemi og átti að sýna dagskrána í sjónvarpi. Til viðbótar vi þá sjö sem létust slasaðist fjöldi bæjarbúa í öngþveitinu sem myndaðist í kjölfarið. Þeir sem skipulögðu uppákomuna hafa sent þeim sem eiga um sárt að binda samúðaróskir en ekki er vitað hvort þeim verði boðnar miskabætur. 18.3.2006 11:39
Eldri maður barinn og rændur Karlmaður á sjötugsaldri var fluttur á slysadeild eftir að tveir menn réðust á hann og rændu hann í Vesturbænum í gærkvöldi. Maðurinn var á göngu nærri gatnamótum Hringbrautar og Suðurgötu þegar mennirnir réðust á hann, börðu hann í jörðina og létu höggin dynja á honum. 18.3.2006 11:17
Árið 2006 eitt mesta framkvæmdaár Íslandssögunnar Útlit er fyrir að árið 2006 verði eitt mesta framkvæmdaár sögunnar á vegum hins opinbera þar sem gert er ráð fyrir framkvæmdum fyrir um áttatíu milljarða á árinu. Þá horfa verktakar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð fram á áframhaldandi gósentíð miðað við áætlaðar framkvæmdir á næstu árum. 18.3.2006 10:30
Ísraelsher skaut átta ára stúlku Ísraelski herinn skaut átta ára palestínska stúlku til bana á Vesturbakkanum gær, að því er palestínsk yfirvöld greindu frá. Ísraelski herinn hefur staðfest að þar standi yfir aðgerðir er miði að handtöku meintra palestínskra vígamanna. Átök brutust út á milli Palestínumanna og ísraelska hersins í kjölfarið en ekki er vitað til þess að nokkur hafi fallið eða særst í átökunum. 18.3.2006 10:06
Reykingabann í Kaliforníu Allsherjar reykingabann á opinberum stöðum tók gildi í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum í gær. Eiga nú reykingamenn, sem neita að drepa í sígarettu á almannafæri á hættu á að verða sektaðir um 500 dollara eða sem nemur um 35 þúsund krónum. 18.3.2006 10:03
Vilja að Shinawatra segir af sér Tugþúsundir Taílendinga söfnuðust saman í Bangkok, höfuðborg landsins í gær og kröfðust afsagnar forsætisráðherra landsins, Thaksin Shinawatra. Mótmælin hafa staðið yfir dögum saman en ráðherrann er sakaður um valdníðslu og spillingu. Dropinn sem fyllti mælinn var þegar hann seldi Shin símafyrirtækið til Singapore. Fyrirtækið var að mestu leyti í eigu fjölskyldu forsætisráðherrans en landsmenn hafa þó alltaf litið á það sem þjóðareign sem ekki megi selja úr landi. 18.3.2006 10:01
Jarðarför Milosevic í dag Talið er að þúsundir manna muni mæta til jarðarfarar Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Jógóslavíu, sem hefst klukkan 11 í dag að íslenskum tíma. Sérstakar rútuferðir verða farnar að kirkjugarðinum en Milosevic verður jarðaður í heimabæ sínum Pozarevac, um fimmtíu kílómetra suðaustur af Belgrad, höfuðborg landsins. Engir nánustu ættingjar Milosevic verða þó viðstaddir. Milosevic lést í fangaklefa sínum í Haag í Hollandi þar sem réttað var yfir honum vegna stríðsglæpa sem hann var ákærður fyrir. 18.3.2006 09:59
Fleiri fuglaflensutilfelli greinast í Danmörku Fuglaflensuveira af H5-stofni hefur greinst í níu öndum sem fundust dauðar á eynni Ærö í Danmörku. Ekki er hefur verið staðfest hvort um H5N1 gerð veirunnar er að ræða, en hún er hættuleg mönnum. Þetta er í annað skipti sem fuglaflensuveira greinist í dauðum fugli í Danmörku, en í fyrra skiptið gerðist það sunnan við Kaupmannahöfn. Danmörk er tuttugasta og fyrsta. Evrópulandið þar sem veiran greinist. 18.3.2006 09:56
Börn stöðvuð við drykkju Keflavíkurlögreglan batt enda á unglingagleðskap í Vogunum í nótt þar sem sex ungmenni á fjórtánda og fimmtánda aldursári höfðu neytt áfengis. 18.3.2006 09:18
Dagbækur prins ekki gefnar út í bili Karl Bretaprins vann hálfan sigur í máli sem hann höfðaði á hendur blaðinu Mail on Sunday en blaðið hafði komið höndum yfir einkadagbækur prinsins og birt brot úr þeim þar sem prinsinn kallaði stjórnmálamenn í Hong Kong "afdankaðar gamlar vaxdúkkur." 17.3.2006 22:12
Frakkar fokreiðir Frakkland logar enn eina ferðina í uppþotum. Tvö hundruð og fimmtíu þúsund manns mótmæltu svokölluðu CPE-frumvarpi víða um landið í gær og hafa enn frekari aðgerðir verið boðaðar á morgun. 17.3.2006 21:38
Mekka mýrarboltans í Tungudal Tungudalur við Skutulsfjörð verður hugsanlega Mekka mýrarboltaiðkunar á Íslandi ef tillaga umhverfisnefndar Ísafjarðarbæjar hlýtur náð fyrir augum bæjarstjórnar. Þetta kemur fram á vefsvæði Bæjarins besta. 17.3.2006 20:57
Ný föt, sami skátinn Árlegt skátaþing var sett í kvöld og það stendur alla helgina. Yfirskrift þingsins er "Ný dagskrá, nýir tímar" og verða meðal annars kynntir nýir skátabúningar, merki og önnur ytri einkenni. 17.3.2006 20:47
Tvítyngi er mannauður Tvítyngd börn eru ekki vesen í skólakerfinu, heldur mannauður til framtíðar sem við verðum að hlúa að. Þetta kom fram á ráðstefnu um tvítyngi og móðurmálskennslu í Háskóla Íslands í dag. 17.3.2006 20:19
Bush styður lokun herstöðvarinnar Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu nú síðdegis greindi Scott McClellan, talsmaður Bandaríkjaforseta, frá því að Bush væri sammála ráðleggingum landvarnaráðuneytisins um lokun herstöðvarinnar. 17.3.2006 19:11
Nælonstúlkur á barmi heimsfrægðar Íslenska stúlknabandið Nælon rambar nú á barmi heimsfrægðar, en Nælonstúlkur verða upphitunarband fyrir strákana í Westlife á tónleikaferðalagi um Bretland. 17.3.2006 19:06
Efla þarf Landhelgisgæsluna Fyrir utan þær spurningar sem hafa vaknað varðandi varnarmál Íslands, atvinnumál á Suðurnesjum og rekstur Keflavíkurflugvallar er ljóst að gangskör þarf að gera hjá Landhelgisgæslunni. Ríkisstjórnin er í viðbragðsstöðu, segir forsætisráðherra, og ljóst að kaupa þarf nýjar þyrlur og stórefla björgunarsveitir. 17.3.2006 19:04
Flugmálastjórn kæmist af án ratsjárkerfis hersins Það ylli verulegri röskun og vandræðum við flugumferðarstjórn, ef ratsjárkerfi hersins hér á landi yrði lagt niður. Framtíð kerfisins er meðal þess sem rætt verður í viðræðum Bandaríkjanna og Íslands um framtíð varnarsamningsins. 17.3.2006 19:00
Bandaríkin brutu varnarsamninginn segir formaður Samfylkingarinnar Einhliða ákvörðun bandarískra stjórnvalda um framkvæmd varnarsamningsins jafngildir broti á honum, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Hún vill nýta sérstakt ákvæði og fá Nató til að meta hvort samningurinn hafi enn raunverulegt varnargildi fyrir Ísland. 17.3.2006 18:55
300 Rúmenar handteknir á Spáni Spænska lögreglan hefur handtekið tæplega 300 Rúmena í tengslum við röð innbrota, eiturlyfjasölu og vændi. Innanríkisráðherra landsins greindi frá þessu í dag. 17.3.2006 17:30
Samþykktu áætlun vegna loftslagsbreytinga á Norðurslóðum Umhverfisráðherrar Norðurlandanna samþykktu í gær áætlun vegna loftslagsbreytinga og mengunar á Norðurslóðum á fundi sínum í Kaupmannahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. 17.3.2006 17:10
Dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann Tímamótadómur féll í Héraðsdómi Austurlands í dag þegar maður var dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann. Var sakborningurinn dæmdur til að greiða þrjátíu þúsund krónur í sekt fyrir athæfið. 17.3.2006 17:06
Aldrei fleiri byggingar jafnaðar við jörðu en í fyrra Aldrei hafa fleiri byggingar verið jafnaðar við jörðu í Reykjavík en í fyrra og hefur niðurrif bygginga í borginni aukist jafnt og þétt frá árinu 2001. Þetta kemur fram í erindi sem Erpur Snær Hansen hjá Menungarvörnum Reykjavíkur flytur á ráðstefnunni Verk og vit á morgun. 17.3.2006 16:20
Verður þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtækið ef af kaupum verður Actavis Group gæti orðið þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi innan nokkurra mánaða ef óformlegu tilboði félagsins í króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA verður tekið. Velta Actavis myndi aukast um 70 prósent og starfsmönnum fjölga um ríflega helming við kaupin. 17.3.2006 16:03
Fjölskyldan ekki viðstödd jarðarförina Fjölskylda Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, verður ekki viðstödd jarðarför hans í Serbíu á morgun. Fjölmargir hafa vottað honum virðingu sína í dag en kista Milosevic liggur í Byltingarsafninu í Belgrad. 17.3.2006 16:00
SUS ályktar um varnarsamstarfið Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna skorar á íslensk stjórnvöld að hvika hvergi frá þeirri stefnu sinni að tryggja varnir Íslands, þrátt fyrir einhliða breytingar af hálfu Bandaríkjastjórnar á varnarsamstarfi ríkjanna. 17.3.2006 16:00
Óvissa um samninga Eflingar og Orkuveitunnar Kjarasamningar Orkuveitu Reykjavíkur og Eflingar hafa verið lausir í rúma þrjá mánuði. Ekki er útlit fyrir að samningar náist í bráð þrátt fyrir að staðan sé í sjálfu sér auðveld að sögn Sigurðar Bessasonar, formaður Eflingar. Starfsmenn Eflingar hjá Orkuveitu Reykjavíkur eru orðnir ansi óþreyjufullir eftir að samningar náist. 17.3.2006 15:53
Nýr sendiherra Íslands í Lettlandi Hannes Heimisson, sendiherra, afhenti í gær Vaira Vike-Freiberga, forseta Lettlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Lettlandi með aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Riga. 17.3.2006 15:45
Ekki þvo ykkur með kvikasilfri Connie Hedegaard, umhverfisráðherra Danmerkur, vill koma af stað norrænu fræðsluátaki í Afríku um skaðsemi kvikasilfurs til að koma í veg fyrir að konur í Afríku þvoi húð sína með kvikasilfurssápu til að lýsa húðina. 17.3.2006 15:34
Þriggja bíla árekstur í Ártúnsbrekkunni Þriggja bíla árekstur varð í Ártúnsbrekkunni um kl. 13:30 í dag. Tvennt var flutt á slysadeild og var annar þeirra með höfuðáverka. 17.3.2006 15:30