Fleiri fréttir

Dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að skera mann á háls

Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi í morgun fyrir að skera leigubílstjóra á háls í fyrrasumar. Dómurinn hafði áður sýknað manninn en Hæstiréttur vísaði málinu aftur í hérað.

Hannar einn fimm nýrra turna þar sem Tvíburaturnarnir stóðu

Breski arkitektinn Norman Foster hefur verið valinn til að hanna einn af fimm skrifstofuturnum á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður. Á meðal verka Fosters eru nýju Hearst-turnarnir á Manhattan, flugstöðin í Peking og höfuðstöðvar svissneska tryggingarisans Swiss Re í Lundúnum.

Farþegaflugvél nauðlenti á eyju við Venezuela

Betur fór en á horfðist þegar farþegaflugvél með fjörutíu manns innanborðs nauðlenti á eyjunni Margarita við Venezuela í gær eftir að eitt hjólanna vildi ekki fara niður. Flugvélin, sem er af gerðinni Turboprop Dash 7 og er í eigu flugfélagsins Vonviasa, lenti heilu og höldnu og slasaðist enginn í lendingunni.

35 fórust í eldsvoða á sjúkrahúsi í Kína

Að minnsta kosti 35 manns fórust og á annan tug eru slasaðir eftir að eldur kom upp í fjögurra hæða sjúkrahúsi í norðausturhluta Kína í gær. Fjöldi fólks reyndi að bjarga sér með því að henda sér út um glugga sjúkrahússins til að forða sér frá eldinum.

Enn eitt ránið í Svíþjóð

Peningaflutningabíll frá Securitas var rændur skammt frá Södertälje, suður af Stokkhólmi, í Svíþjóð nú í morgun. Ræningjarnir notuðu sjálfvirka riffla og sprengjur við ránið sem er að verða algeng aðferð við rán í Svíþjóð.

Rannsóknin á morðinu á Hariri víkkuð út

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að víkka út rannsóknina á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar var ekki samþykkt að setja á laggirnar alþjóðlegan dómstól í tengslum við málið, eins og líbönsk stjórnvöld óskuðu eftir.

Flestir með nettengingu á Íslandi af norrænu þjóðunum

Hlutfallslega fleiri heimili hér á landi eru tengd Netinu en annars staðar á Norðurlöndum að því er fram kemur í upplýsingum frá Hagstofunni. Árið 2005 voru 84% íslenskra heimila með nettengingu á meðan 75% danskra heimila, 73% sænskra, 64% norskra og 54% finnskra heimila gátu tengst Netinu.

Fyrrverandi yfirmaður ETA framseldur

Frönsk yfirvöld hafa framselt Francisco Xabier Garcia Gaztelu, fyrrverandi yfirmann í aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA, til Spánar en Gaztelu er gefið að sök að hafa myrt baskneskar þingmann árið 1997.

Tölvunotendur læsi þráðlausri nettengingu

Tölvunotendur verða að gæta þess að læsa þráðlausri nettengingu til að koma í veg fyrir að óprúttnir náungar geti hlaðið niður efni á þeirra kostnað og hugsanlega stolið fé úr heimabanka þeirra. Þetta segir sérfræðingur í tölvuöryggi.

Fleiri fíkniefnamál en í fyrra

Fjöldi skráðra mála hjá svonefndri götudeild fíkniefnadeildar Lögreglunnar í Reykjavík það sem af er árinu fór yfir 200 í vikunni samanborið við 150 mál allt árið í fyrra og talsvert færri árið þar áður. Þá var lagt hald á mun meira af fíkniefnum en í fyrra, en um er að ræða efni sem komist hafa í gegn um tollleit og eru komin í smásölu á götunni.

Enn ósamkomulag um langtímafjárlög ESB

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna undirbúa sig nú fyrir erfiðar viðræður um langtímafjárlög ESB fyrir árin 2007-2013. sagði að loknum kvöldverðarfundi leiðtoga aðildarríkja Evrópusambandsins í Brussel í gær að enn væri mikill munur á hugmyndum leiðtoganna um tillögur að langtímafjárlögum ESB.

Neitar að hafa ætlað að dreifa efninu

Maðurinn, sem var handtekinn í vikunni eftir að hátt í tvö hundruð kannabisplöntur og nokkur kíló af fíkniefnum úr þess háttar plöntum fundust í vörslu hans, neitar að hafa ætlað að dreifa efninu og selja það.

Bush hrósaði þingkosningunum í Írak

George Bush, forseti Bandaríkjanna, hrósaði þingkosningunum í Írak sem fram fóru í gær og sagði þær mikilvægt skref í að stofna lýðræðislega bandalagsþjóð Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum. Þá sagði hann kosningarnar marka upphaf að brottflutningi bandarískra hermanna frá Írak.

Bréf Magnúsar Þórs skoðað af Ríkislögreglustjóra

Ríkislögreglustjóri segist hafa móttekið bréf Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns, og hann sé að skoða það. Magnús Þór sendi ríkislögreglustjóra bréf í kjölfar útvarpsviðtals þar sem Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður, ræddi störf fyrrverandi forstjóra Byggðastofnunar. Í útvarpsviðtalinu bar Kristinn ýmsar ásakanir á hendur fyrrum forstjóra Byggðastofnunar, sem gætu varðað við lög reynist þær réttar.

Aukin fríverslun með landbúnaðarvörur gagnast einnig þróunarlöndunum

Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðisofnunar HÍ, segir að afnemi Íslendingar innflutningshöft á landbúnaðarvörum lækki það matvælaverð umtalsvert. Þá segir Tryggvi að gangi Íslendingar úr hinum íhaldssama G10 hópi innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, myndi það styðja enn frekari fríverslun með landbúnaðarvörur. Slíkt myndi ekki bara gagnast íslenskum neytendum heldur einnig þróunarlöndunum.

Fleiri Íslendingar tengdir internetinu en á hinum Norðurlöndunum

Hlutfallslega fleiri heimili hér á landi eru tengd interneti en annars staðar á Norðurlöndum að því er kemur fram í upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Árið 2005 voru 84% íslenskra heimila með tengingu við internet á meðan 75% danskra heimila, 73% sænskra heimila, 64% norskra heimila og 54% finnskra heimila gátu tengst interneti. Notkun háhraðatenginga er einnig útbreiddari meðal heimila hér á landi en á hinum Norðurlöndunum. Internetnotkun einstaklinga er algengust hér á landi en 73-81% einstaklinga á aldrinum 16-74 ára notuðu internet annars staðar á Norðurlöndum í byrjun árs 2005 á móti 86% Íslendinga.

Samruninn út um þúfur

Ekkert verður af fyrirhuguðum samruna verktakafyrirtækjanna RIS ehf. og Keflavíkurverktaka. Stjórnir félaganna hafa um nokkurt skeið unnið að samrunanum, en hafa nú fallið frá honum eftir að hafa gaumgæft kosti og galla. Sameinuð hefðu félögin orðið að þriðja stærsta verktakafyrirtæki landsins, en stjórnarmenn komust að þeirri niðurstöðu að sameiningin hefði ekki leitt til þeirrar hagræðingar sem að var stefnt og var því ákveðið að falla frá henni.

Nýtt veftímarit um stjórnmál og stjórnsýslu opnað í dag

Fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen, opnaði nýtt veftímarit íslenskra stjórnmála- og stjórnsýslufræðinga í dag, föstudag. Tímaritið er gefið út af Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og er öllum opið. Vefslóðin er www.stjornmalogstjornsysla.is

Enn vantar í 58 stöðugildi á leikskólum borgarinnar

Enn vantar starfsfólk í tæp 58 stöðugildi á leikskólum borgarinnar samkvæmt nýjum tölum frá menntasviði borgarinnar. Mestur er skorturinn á starfsfólki í Grafarvogi og Kjalarnesi, en þar vantar 17 starfsmenn, og í Árbæ og Grafarholti vantar fólk í ellefu og hálft stöðugildi

Starfaði sem læknir í átta ár án leyfis

Lögreglan í Tokyó handtók í dag mann sem hefur starfað sem læknir án leyfis í heil átta ár. Maðurinn hefur starfað á tuttugu heilbrigðisstofnunum í Japan, án þess að hafa tekið svo mikið sem einn tíma í læknisfræði.

Stjórnarflokkarnir ósammála um Íbúðalánasjóð

Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir ólgu innan stjórnarflokkanna um Íbúðalánasjóð tifandi tímasprengju. Greinilegt sé að þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilji loka Íbúðalánasjóði strax á morgun, en flestir framsóknarmenn vilji að hann starfi áfram. Óljóst sé þó með formann flokksins og forsætisráðherra.

Væri hægt að forða 9 þúsund mönnum frá dauða

Það væri hægt að forða níu þúsund Evrópubúum frá dauða á næstu árum með því að auka skatt á áfengi um tíu prósent í löndum Evrópusambandsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu sem heilbrigðissérfræðingar unnu fyrir sambandið. Drykkja ungmenna um alla álfuna hefur aukist verulega síðstliðinn áratug.

Ómannúðleg meðferð bönnuð

Stjórnvöld í Washington hafa samþykkt að banna ómannúðlega meðferð á föngum í baráttunni gegn hryðjuverkum. Öldungadeildarþingmaðurinn John McCain lagði fram tillögu þessa efnis fyrir stuttu og nú hefur Hvíta Húsið samþykkt tillögu McCains að sögn talsmanns hans.

Héraðsdómur hafnaði frávísunarkröfu í Baugsmáli

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu sakborninga í Baugsmálinu um að ákæruliðirnir átta, sem enn eru fyrir héraðsdómi, verði látnir niður falla. Þegar hefur verið ákveðið að kæra niðurstöðuna til Hæstaréttar.

Nýtt útboðsferli í Héðinsfjarðargöng

Nýtt útboðsferli Héðinsfjarðarganga er hafið og óskuðu sex verktakasamstæður eftir því að fá að bjóða í verkið, þeirra á meðal kínverskt járnbrautafyrirtæki. Stefnt er að því að borun ganganna hefjist næsta sumar.

Eins mánaðar gömlu barni bjargað úr eldsvoða í NY

Eins mánaðar gamalt barn bjargaðist með undraverðum hætti í New York í gær þegar eldur kom upp í íbúð í Bronx-hverfinu. Á öryggismyndbandi sést hvernig móðir barnsins lét það falla út um glugga á alelda íbúðinni. Karlmaður sem var fyrir neðan greip barnið. Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að konan væri með barn í höndunum. Barnið var svart af reyk og andaði ekki þegar maðurinn greip það, en hann beitti blástursaðferðinni og þá fór það að draga andann. Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga konunni. Móður og barni líður vel.

Afnám viðskiptahafta með landbúnaðarafurði hjá WTO talið ólíklegt

Verulega hefur dregið úr líkum á því að samkomulag náist um afnám viðskiptahafta með landbúnaðarafurðir á fundi Alheimsviðskiptastofnunarinnar í Hong Kong. Samningamenn Evrópusambandsins og Bandaríkjanna eru þegar farnir að skella skuldinni hvorir á aðra um að spilla fyrir samkomulagi.

Á valdi íslenskra stjórnvalda að lækka vöruverð

Það er algjörlega á valdi íslenskra stjórnvalda að lækka verð á matvælum með því að afnema innflutningshöft og draga úr ofurskattlagningu matvæla. Þetta segir forstjóri Haga, þess fyrirtækis sem ræður 47 prósentum af matvörumarkaðnum hérlendis.

Evópuþingið hyggst rannsaka fangaflug CIA

Evrópuþingið ákvað í dag að koma á fót nefnd til að rannsaka fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar í Evrópu. Tillaga þessa efnis var samþykkt með 359 atkvæðum gegn 127. Megintilgangur rannsóknarinnar verður að kanna hvað sé hæft í ásökunum um að bandaríska leyniþjónustan hafi starfrækt fangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn í Póllandi og Rúmeníu.

Góð kjörsókn í kosningum í Írak í dag

Írakar flykktust á kjörstaði snemma í morgun og þegar komið varð að lokun áttu margir enn eftir að komast að. Ákveðið var að halda opnu í klukkustund til viðbótar um allt land og víða enn lengur.

Pakkajól fara vel af stað

Í dag var fulltrúum Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Hjálparstarfs Kirkjunnar afhentir fyrstu pakkarnir sem safnast hafa saman undir jólatrénu í Kringlunni. Jólapakkarnir eru til handa þeim sem þurfa á aðstoð að halda um jólin og er hægt að merkja pakkana með aldri og kyni þess barns sem pakkinn höfðar til. Síðasti dagurinn sem tekið er á móti pökkum í Kringlunni er miðvikudagurinn, 21. desember. Það eru Kringlan, Bylgjan og Íslandspóstur sem standa að þessi árlegu pakkasöfnun.

Ummæli iðnaðarráðherra útúrsnúningar

Orkufyrirtæki hafa fengið loforð fyrir nýtingarleyfi samhliða rannsóknarleyfi vegna jarðhita. Iðnaðarráðherra segir hins vegar að slíkum leyfum sé ekki úthlutað ef nota eigi orkuna til raforkuframleiðslu. Þingmenn Samfylkingarinnar í iðnaðarnefnd segja þetta útúrsnúninga. Ekki sé hægt að skilja á milli raforkuframleiðslu og annarrar nýtingar. Ljóst sé að ef búið sé að úthluta auðlindum á þennan hátt verði þeim ekki úthlutað aftur.

Sögulegar þingkosningar

Sögulegar þingkosningar í Írak í dag tókust með afbrigðum vel. Kjörstaðir voru víða opnir fram yfir áætlaða lokun, svo mikil var ásóknin í að fá að kjósa til nýs þings. Í þetta sinn létu súnnítar í Írak sig ekki vanta á kjörstað en þeir hafa sniðgengið kosningar í landinu hingað til.

Indriði H. Þorláksson sýknaður af meiðyrðum

Hæstiréttur sýknaði í dag Indriða H. Þorláksson af meiðyrðakröfu danska skattasérfræðingsins Edwin G. Shelton. Shelton krafðist þess að ummæli sem Indriði birti í Morgunblaðinu í desember 2003 yrðu dæmd dauð og ómerk.

Heildarafli íslenskra skipa minni en í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa í nóvember var 97,4 þúsund tonn og dróst saman um 29,2% frá sama mánuði í fyrra. Samdráttinn má helst skýra með minni síldarafla en einnig minnkaði þorsk- og ýsuafli á milli ára. Milli ára dróst verðmæti fiskaflans saman um 11,1% á föstu verðlagi. Frá þessu er greint í Vegvísi Landsbankans.

Íslandsbanki áformar að opna skrifstofu í Kína

Alþjóða- og fjárfestingasvið Íslandsbanka áformar að opna skrifstofu í Shanghai, Kína á næsta ári. Skrifstofan mun auðvelda bankanum að þjónusta viðskiptavini Íslandsbanka í Kína og Asíu. Bjarni Ármannsonn, forstjóri Íslandsbanka, segist segir æ fleiri Norsk og Íslensk fyrir þegar komin með eða hafa í hyggju að koma á starfsemi í Kína og Asíu. Íslandsbanki er fyrst íslenskra fjármálafyrirtækja til að koma á fót skrifstofu í Asíu.

Norrænir ráðherrar hittast á morgun og ræða viðbrögð við fuglaflensufaraldri

Á morgun, föstudag, munu norrænu heilbrigðisráðherrarnir funda í Kaupmannahöfn til að móta norræna stefnu um hvernig bregðast skuli við ef fuglaflensufaraldur brýst út. Óformlegur fréttamannafundur verður haldinn á hádegi á Hotel Hilton við Kastrup flugvöll. Síðastliðinn þriðjudag tilkynnti Morgan Johansson heilbrigðisráðherra Svíþjóðar að ákveðið hefði verið að taka upp samstarf við einkalyfjafyrirtæki um byggingu nýrrar lyfjaverksmiðju í Svíþjóð.

Holræsagjald borgarbúa lækkar á næsta ári

Orkuveita Reykjavíkur tekur við rekstri fráveitna fjögurra sveitarfélaga um áramótin. Holræsagjald borgarbúa mun lækka í framhaldinu. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir þetta mikið framfaraskref.

Allt í hnút

Flest bendir til að lokatilraun til að berja saman fjárlagafrumvarp fyrir Evrópusambandið fari út um þúfur. Á maraþonfundum næstu tvo dagana munu leiðtogar sambandsríkjanna reyna að ná saman.

Hefja rannsókn á ásökunum um leynifangelsi

Evrópuþingið hefur ákveðið að hefja rannsókn á ásökunum þess efnis að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi haldið úti leynifangelsum í Evrópu. En því hefur verið haldið fram að bandaríska leyniþjónustan hafi haldið úti leynilegum fangelsum í Rúmeníu og Póllandi og hafi notaði flugvelli landa Evrópusambandsins á leið sinni þangað.

Gunnarsstofnun fagnar upplýsingum um Nóbelsverðlaun

Stofnun Gunnars Gunnarssonar fagnar því að loksins skuli komnar fram upplýsingar sem varpa ljósi á ástæður þess að Gunnar Gunnarsson varð ekki þess heiðurs aðnjótandi að taka við Nóbelsverðlaunum í Stokkhólmi 1955.

Sjá næstu 50 fréttir