Allt í hnút 15. desember 2005 16:38
Flest bendir til að lokatilraun til að berja saman fjárlagafrumvarp fyrir Evrópusambandið fari út um þúfur. Á maraþonfundum næstu tvo dagana munu leiðtogar sambandsríkjanna reyna að ná saman. Öll spjót standa á Tony Blair, forsætisráðherra Breta. Hann vill landa fjárlagafrumvarpi fyrir árin 2007 -2013 áður en Bretar láta forsæti sambandsins af hendi um árámótin. Tillögur hans hingað til hafa hins vegar fallið í grýttan jarðveg, enda gera þær ráð fyrir að styrkir til fátækari ríkja sambandsins verði lækkaðir verulega, án þess að Bretar gefi eftir nema lítinn hluta af endurgreiðslum sínum frá sambandinu. Margret Thatcher samdi á sínum tíma um endurgreiðslurnar, sem nema tugum milljarða á ári, en nú eru fórkólfar annarra ríkja sambandsins á því að þær séu barn síns tíma og Bretar verði að gefa stóran hluta þeirra eftir. Hingað til hafa þeir aðeins boðið hluta af því sem önnur ríki krefja þá um. Eins og svo oft áður í málefnum Evrópusambandsins stendur deilan líka á milli stórveldanna Frakklands og Bretlands. Á meðan Frakkar eru harðastir allra í að Bretar verði að gefa eftir endurgreiðslurnar, fara Bretar fram á að landbúnaðarstyrkir til Frakka verði lækkaðir verulega. Sem stendur fá franskir bændur stóran hluta af landbúnaðarstyrkjum ESB og þarlend stjórnvöld mega ekki heyra á það minnst að því verði breytt. Líklegt er talið að Jacques Chirac forseti Frakklands muni hitta Blair einslega í Strasbourg á morgun, þar sem farið verður yfir málin. Blair viðurkenndi í dag að frumvarpið héngi á bláþræði. Hann sagðist þó enn gera sér vonir um að sátt næðist um nýtt frumvarpo um helgina, en varaði við of mikilli bjartsýni.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Sjá meira