Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leynifangelsi verða könnuð Þótt Bandaríkjastjórn hafi ekki enn viðurkennt að hún starfræki leynileg fangelsi erlendis þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru geymdir segist hún hafa meðtekið þau hörðu viðbrögð sem málið hefur vakið. 1.12.2005 06:30
Ríkisstjóri náðar Lovitt Innan við sólarhring áður en til stóð að Robin Lovitt yrði þúsundasti fanginn sem tekinn yrði af lífi í Bandaríkjunum frá því að dauðarefsingar voru teknar þar upp á ný fyrir 28 árum, ákvað ríkisstjóri Virginíu að þyrma lífi hans í gær. Refsingu Lovitts var breytt í ævilangt fangelsi án möguleika á náðun fyrir að stinga mann til bana með skærum í leikjasalarráni árið 1998. 1.12.2005 06:30
Frjálsar íþróttir á hærra plan Frjálsíþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal var formlega tekin á miðvikudag. Frjálsíþróttahöllin er samtengd Laugardalshöllinni og ljóst er að þar er að finna eina bestu aðstöðu til íþróttaiðkunar hér á landi. 1.12.2005 06:30
Afbrýðisamur barði mann Rúmlega tvítugur Mosfellingur var í gær dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að berja mann, sem var nýbyrjaður með fyrrum kærustu árásarmannsins. Fimm mánuðir af refsingunni voru skilorðsbundnir í þrjú ár, en maðurinn þarf að auki að greiða rúmar 360 þúsund krónur í miskabætur og málskostnað. 1.12.2005 06:15
Thelma er kona ársins Thelma Ásdísardóttir var í gærkvöld valin kona ársins í vali tímaritsins Nýs lífs, þegar valið fór fram í fimmtánda sinn. Í bókinni Myndin af pabba, sem Gerður Kristný skrifar, lýsir Thelma áralangri misnotkun af hendi föður hennar. 1.12.2005 06:15
Lögregla handtekur nakta bankaræningja í El Salvador Lögreglan í El Salvador handtók tvo nakta menn á þriðjudag þar sem þeir voru að grafa göng að bankahvelfingu í höfuðborginni San Salvador. Unnið hafði verið að gangagerðinni dögum saman. Mennirnir voru nærri komnir að bankanum þegar þeir uppgötvuðust af tilviljun þegar hluti ganganna hrundi svo að stór hola myndaðist á götunni. 30.11.2005 23:00
Þorski er fimmtungur aflans Um 40 prósent af afla fiskiskipa Evrópusambandsins sem fá að veiða karfa í íslenskri lögsögu er þorskur eða ufsi að því er segir á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna. 30.11.2005 22:31
Bræðslan ræst eftir langt stopp Bræðslan á Eskifirði var ræst í dag eftir fjögurra mánaða vinnslustöðvun, þegar tvö fiskiskip lönduðu fyrstu kolmunnaförmunum. Ráðamenn Eskju líta björtum augum til komandi vertíðar, ekki síst eftir að fregnir bárust af loðnu í gær. 30.11.2005 22:15
Þrýstingur eykst á Bandaríkjastjórn Þrýstingur jókst enn á Bandaríkjastjórn í dag þegar breska stjórnin staðfesti að hún hefði farið formlega fram á upplýsingar um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Evrópusambandið er að kanna hvort aðildarríki þess, eða ríki sem sækjast eftir aðild, hafi leyft starfsemi ólöglegra fangelsa á vegum Bandaríkjastjórnar. 30.11.2005 21:51
Brasilíumenn krefjast launa Brasilískir verkamenn hafa leitað á náðir Samiðnar til að innheimta tveggja mánaða ógreidd laun hjá fyrirtækinu Nýgifs. Þeir segjast hafa þurft að leita til íslenskra kollega til að brauðfæða sig á tíðum. Eigandi Nýgifs, sem réð þá hingað á grundvelli þjónustusamninga, segir að þetta sé haugalygi. 30.11.2005 21:48
Björgólfur til Icelandic Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, hefur verið ráðinn til Icelandic Group. Hann tekur við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar 1. janúar næstkomandi, um leið og hann lætur af störfum hjá Síldarvinnslunni. 30.11.2005 21:06
Búðarhnupl í Reykjavík Lögreglan í Reykjavík hefur þurft að skipta sér að nokkrum tilfellum búðarhnupls í dag. Jólatíminn er afar vinsæll hjá búðarhnuplurum, en samkvæmt lögreglunni eru slíkir þjófar á öllum aldri og af báðum kynjum. 30.11.2005 20:38
Leikskólinn Reynisholt opnar í Grafarholti Nýr leikskóli sem kennir lífsleikni og jóga opnaði í Grafarholti í dag. Leikskólinn hefur hlotið nafnið Reynisholt. Markmið skólans er að starfsmenn verði meðvitaðir um aðferðir sem beita megi til að draga úr streitu og hraða í umhverfinu og skapa traust og öryggiskennd meðal barna og fullorðinna. 30.11.2005 20:33
Peres sagði skilið við flokk sinn Rúmlega sex áratuga langri samleið Shimon Peres og ísraelska Verkamannaflokksins lauk í dag þegar hann sagði sig úr flokknum og lýsti yfir stuðningi við Ariel Sharon og nýstofnaðan flokk hans sem nefnist Kadima. 30.11.2005 20:27
Viðræður innan tveggja vikna Íranir ætla að hefja viðræður við Evrópusambandið um framtíð kjarnorkuáætlunar þeirra innan tveggja vikna sagði Manouchehr Mottaki, utanríkisráðherra Írans, í dag. 30.11.2005 19:40
Peres hættur í Verkamannaflokknum Shimon Peres, einn helsti stjórnmálaleiðtogi í Ísrael, ætlar að hætta í Verkamannaflokknum. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í kvöld. Lýsti Peres jafnframt stuðningi við Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og nýjan miðjuflokk sem Sharon hefur stofnað. Peres sagði jafnframt að Sharon hefði einsett sér að halda áfram friðarferlinu og væri opinn fyrir nýjum hugmyndum í þeim málum. Sagðist Peres þess vegna styðja Sharon. 30.11.2005 19:08
Thelma útnefnd kona ársins Thelma Ásdísardóttir, var útnefnd kona ársins af tímaritinu Nýju lífi við hátíðlega athöfn sem fram fór í Iðnó í dag. Þetta er í fimmtánda sinn sem Nýtt líf útnefnir konu ársins á Íslandi. 30.11.2005 19:04
Lögreglan lýsir eftir konu Lögreglan lýsir eftir Guðnýju Heiðu Magnúsdóttur. Guðný er 164 sm á hæð, með axlarsítt svart hár. Hún var klædd í bláar gallabuxur, svartan Metallica-bol og græna hettuúlpu síðast þegar hún sást en hún fór heiman frá sér laust eftir miðnætti í fyrradag. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar vinsamlegast látið lögregluna í Reykjavík vita í síma 444-1000. 30.11.2005 18:31
Grunur um sprengju á lestarstöðinni í Hróarskeldu Öll umferð um lestarstöðina í Hróarskeldu í Danmörku var stöðvuð um tíma í dag vegna grunsamlegs poka sem skilinn hafði verið eftir á stöðinni. Lögregla var kölluð á vettvang vegna gruns um að sprengja leyndist í pokanum. 30.11.2005 18:23
Varð fyrir hraðlest í Svíþjóð 15 ára gömul stúlka lést í gærkvöld þegar hún gekk ásamt tveimur jafnöldrum sínum í veg fyrir hraðlest skammt frá Gautaborg í Svíþjóð. Stúlkurnar fóru fram hjá hindrunum sem stöðva eiga umferð yfir járnbrautarteinana eftir að tvær lestir höfðu farið hjá og náðu tvær stúlknanna yfir sporin áður en hraðlestin hafnaði á þeirri þriðju. 30.11.2005 18:07
Dæmdur fyrir að falsa sjúkraskýrslur og læknisvottorð Karlmaður var fundinn sekur í Héraðsdómi Reykjaness í dag um að hafa falsað sjúkraskýrslur, læknisvottorð og reikninga frá erlendum sjúkrahúsum fyrir fjórtán árum. Málið hafði áður fyrnst hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. 30.11.2005 16:53
Gengishækkanir éta upp tekjurnar Fjórða til fimmta hver króna sem Hjartavernd hefur fengið í styrki og greiðslur frá útlöndum síðustu ár hefur tapast vegna þess hversu dýr krónan er orðin. Þetta er ástæðan fyrir því að segja þarf upp um það bil helmingi starfsmanna segir Vilmundur Guðnason forstöðulæknir. 30.11.2005 16:47
Moldóvi dæmdur í farbann Hæstiréttur hefur dæmt Moldóva í farbann til 7. desember næst komandi. Maðurinn var færður til yfirheyrslu hjá lögreglu 15. nóvember eftir að í ljós kom að hann ferðaðist hingað frá Færeyjum á fölsuðu grísku vegabréfi. 30.11.2005 16:42
Björgólfur hættir Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, lætur af starfi framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um áramót. Aðalsteinn Helgason hefur verið ráðinn í hans stað en hann er nú framkvæmdastjóri þróunarsviðs Samherja. 30.11.2005 16:30
Fjórfalt dýrara þar sem mestu munar Bankaþjónusta er allt að fjórfalt dýrari í einni bankastofnun en annarri samkvæmt verðkönnun Neytendasamtakanna og SFR. Mesti hlutfallslegi munurinn er á veðbókarvottorðum. Þau kosta 400 krónur hjá Íslandsbanka en 1.600 krónur hjá SPRON. 30.11.2005 16:20
Flestir skiluðu auðu Hið fyrsta af þremur samræmdum stúdentsprófum var lagt fyrir nemendur í framhaldsskólum landsins í morgun en undirtektir nemenda voru dræmar. Tveir af hverjum þremur nemendum sem tóku prófið í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi skiluðu auðum prófblöðum. 30.11.2005 16:14
Svör ráðherra ekki fullnægjandi Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ekki gefið fullnægjandi svör við því hvort Byggðastofnun haldi áfram starfsemi, segir formaður Frjálslynda flokksins. 30.11.2005 15:10
Reyndu að smygla hálfu tonni kjöts Fjórtán skipverjar á tveimur íslenskum fiskiskipum sem voru að koma frá Færeyjum hafa viðurkennt að eiga rúmlega hálft tonn af fugla-, nauta- og svínakjöti sem lögregla og tollverðir fundu við komu skipanna til Eskifjarðar. 30.11.2005 14:35
Kókaínsmyglari svikinn Karlmaður um þrítugt var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir fíkniefnasmygl í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Maðurinn faldi innvortis 140 grömm af efni sem hann taldi vera kókaín og var gripinn með það í Leifsstöð í nóvember í fyrra við komuna til landsins frá Amsterdam í Hollandi. 30.11.2005 14:00
Íslenskir togarar mæta hörku norsku strandgæslunnar Rússar virðast ætla að komast upp með að hylja nöfn og númer á togurum sínum í Barentshafi, svo að norska strandgæslan beri ekki kennsl á þá, og hún virðist ekkert ætla að aðhafast. Samtímis hóta Noðrmenn íslenskum skipum fullri hörku og íslensk stjórnvöld draga enn á langinn að kæra Norðmenn til Alþjóðadómstólsins fyrir að taka sér einhliða yfirráð á Svalbarðasvæðinu, og hygla einum en hóta öðrum. 30.11.2005 12:30
Stefnt að því að kalla um 20.000 bandaríska hermenn heim frá Írak Bandaríkjastjórn stefnir að því að kalla tuttugu þúsund hermenn heim frá Írak eftir þingkosningar í landinu um miðjan desember. Bush forseti segir að vilji Íraka muni ráða því hvort bandarískum hermönnum í landinu verði fækkað eða fjölgað á næstu mánuðum. 30.11.2005 12:15
Valdheimildir lögreglu auknar í Frakklandi Allt útlit er fyrir að franska þingið samþykki frumvarp um hryðjuverk, sem eykur valdheimildir lögreglu til muna. Neðri deild franska þingsins samþykkti frumvarpið í gær. 30.11.2005 12:00
Þúsundasta aftakan vekur umræður í Bandaríkjunum Reiknað er með að í dag fari fram eitt þúsundasta aftakan í Bandaríkjunum frá því þær voru aftur teknar upp þar eftir tíu ára hlé árið 1977. 30.11.2005 12:00
Sjö hundruð á sjúkrahús vegna kuldanna Sjö hundruð manns hafa verið fluttir fárveikir á sjúkrahús á veturbörðum hamfarasvæðunum í Pakistan. Átta manns hafa þegar fallið af völdum vetrarkuldanna við Himalaja-fjallgarðinn. 30.11.2005 11:57
Fellybylir hafa aldrei valdið jafn mikilli eyðileggingu og árið 2005 Fellibylir gætu valdið jafnmiklum eða meiri óskunda á næsta ári en þessu að mati sérfræðinga. Fellibyljatímabilinu lýkur formlega á morgun og aldrei í sögunni hafa fellibylir valdið jafnmikilli eyðileggingu og árið 2005. 30.11.2005 11:56
Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs íslenskra barna verða afhent í fyrsta sinn á morgun Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs íslenskra barna verða afhent í fyrsta sinn á morgun, 1. desember. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar en það er Kári Stefánsson, forstóri Íslenskrar erfðagreiningar, sem afhendir verðlaunin. 30.11.2005 11:54
Ráðherra bregðist við vanefndum Öryrkjabandalag Íslands hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir að hafa ekki efnt samkomulag sem Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, og Garðar Sverrisson þáverandi formaður gerðu í marsmánuði árið 2003. Með samkomulaginu átti að koma til móts við þá sem verða öryrkjar snemma á lífsleiðinni og fól það í sér að grunnlífeyrir yngstu öryrkjanna myndi nær tvöfaldast. 30.11.2005 11:00
Síminn gefur eina milljón króna í framkvæmdasjóð BUGL Síminn hefur ákveðið að gefa eina milljón kórna í framkvæmdasjóð til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans, BUGL. 30.11.2005 10:45
Þrír handteknir vegna fíkniefnamisferlis á Ísafirði Þrír voru handteknir á Ísafirði í morgun vegna vörslu fíkniefna og tækja til neyslu. Efnin, 18 grömm af ætluðum kannabisefnum, fundust eftir að lögreglan stöðvaði bifreið karlmanns og konu sem voru að koma frá Reykjavík. Þriðji aðilinn var handtekinn eftir húsleit í tveimur íbúðum á Bolungarvík. 30.11.2005 10:30
Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið á áætlun Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Hlíð á Akureyri ganga samkvæmt áætlun. Uppsteypu er nú lokið og er unnið við að loka þaki en áætlað er að byggingin verði útibyrgð fyrir áramót. Í 30.11.2005 10:00
Herinn vill kaupa þjónustu Fulltrúar bandaríska hersins og herspítalans á Keflavíkurflugvelli hafa frá því í sumar margsinnis komið að máli við ráðamenn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til að kynna sér aðstöðu og kanna hvaða heilbrigðisþjónustu mætti kaupa af henni. 30.11.2005 09:00
Tveir fórust í eldsvoða í Færeyjum Kona á níræðisaldri og sonur hennar á sjötugsaldri, fórust í eldsvoða í Suðurvogi í Færeyjum í gærkvöldi, sennilega vegna reykeitrunar. Ekki var um mikinn eld að ræða en talið er að eldsupptök hafi verið í kjallara hússins. Mæðginin voru ein í húsinu þegar eldurinn kom upp. 30.11.2005 09:00
Kosningabandalag líklegt á Ísafirði Allt útlit er fyrir að Samfylkingin, Vinstri- grænir og Frjálslyndir og óháðir bjóði fram saman á Ísafirði í bæjarstjórnarkosningum í vor. Samfylkingarmenn og frjálslyndir og óháðir hafa þegar samþykkt sameiginlegt framboð en félagsfundur Vinstri - grænna á Ísafirði tekur afstöðu til þess í kvöld, en það voru þeir sem höfðu frumkvæði að myndun kosningabandalagsins. 30.11.2005 08:00
Styrkur Golfstraumsins hefur minnkað um 30% Golfstraumurinn hefur veikst um 30 % á síðustu fimmtíu árum, samkvæmt nýjasta tölublaði vísindaritsins Nature. Þá kemur einnig fram að hluti Golfstraumsins sé fastur í hringiðu í sunnanverðu Atlantshafi í stað þess að fara alla leið norður til Íslands og Grænlands. 30.11.2005 08:00
Átta manns fórust í skothríð tíu grímuklæddra uppreisnarmanna í Írak Átta manns fórust í skothríð tíu grímuklæddra uppreisnarmanna á sendibifreið nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Tveir slösuðust í árásinni. Yfirvöld í Írak búast við hrinu árása í landinu í næstu tveim vikum, í aðdraganda þingkosninganna fimmtánda desember. 30.11.2005 07:27