Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn bilar Farice-strengurinn Bilun hefur enn einu sinni orðið á Farice-sæstrengnum, að þessu sinni nærri bænum Brora í Norður-Skotlandi. Fram kemur á heimasíðu Farice að viðgerðarmenn séu á leið á vettvang en vegna bilunarinnar verður netsamband við útlönd hægara en venjulega. 7.11.2005 13:30
Þrjár blokkir byggðar í miðbæ Eskifjarðar Þrjú fjögurra og fimm hæða fjölbýlishús með samtals rúmlega 50 íbúðum verða byggð í miðbæ Eskifjarðar og hefur verið undirritaður samningur við Edduborgir ehf. um land á þessum stað. 7.11.2005 13:21
Íranar rétta fram sáttahönd Evrópusambandið fer nú yfir nýjar tillögur Írana um að hefja aftur viðræður vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Viðræður hafa legið niðri frá því í ágúst en þá höfnuðu Íranar tilboði ESB um ýmiss konar aðstoð á sviði efnahagsmála og stjórnmála gegn því að þeir legðu kjarnorkuáætlun sín á hilluna. 7.11.2005 13:15
Hraðbankar peningalausir í Svíþjóð vegna verkfalls Öryggisverðir í Svíþjóð eru enn í verkfalli eftir gróft rán á peningaflutningabíl Securitas norður af Gautaborg á fimmtudaginn. Flestir hraðbankar eru nú peningalausir og verslanir sitja uppi með mikið magn fjár. 7.11.2005 13:00
Fujimori handtekinn í Chile Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, var handtekinn í morgun skömmu eftir að hann kom í óvænta heimsókn til Chile. Fujimori er eftirlýstur í heimalandi sínu vegna meintrar spillingar og mannréttindabrota í valdatíð sinni á árunum 1990 til 2000 en hann hefur undanfarin fimm ár verið í útlegð í Japan. 7.11.2005 12:45
Kostur að kunna pólsku Það telst nú orðið til kosta íslenskra verkamanna, sem leita sér að vinnu á Mið-Austurlandi, að kunna eitthvað í pólsku og getur sú kunnátta vegið þyngra en vinnuvélaréttindi og meirapróf. 7.11.2005 12:30
Vantar stefnu um gervifrjóvgun Norðurlöndin hafa enga sameiginlega stefnu varðandi gervifrjóvgun þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma sér saman um slíka stefnu. Finnar hafa frjálslyndustu stefnuna því að þeir hafa engin lög. Norðmenn eru hinsvegar með ströngustu lagasetninguna. 7.11.2005 12:16
Hátt í 400 handteknir í óeirðum í Frakklandi Rúmlega 1400 bifreiðar voru brenndar og hátt í 400 manns voru handteknir í óeirðum í Frakklandi - elleftu nóttina í röð. Lögregla hefur átt í vök að verjast enda hefur hún bæði verið grýtt og skotið á hana. 7.11.2005 12:15
Fyrstur að hefja prófkjörsbaráttuna Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi er fyrstur til að hefja prófkjörsbaráttu Samfylkingarinnar í borginni með auglýsingu sem birtist í blöðunum í morgun. Stefán Jón býst við að eyða einni til tveimur milljónum í auglýsingar. 7.11.2005 12:06
Mistókst að ráða héraðsstjóra af dögum Sjálfsmorðsárásarmaður særðist þegar hann reyndi að sprengja sig og bíl sinn í loft upp fyrir utan skriftstofu héraðsstjórans í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans í morgun. Árásin var gerð skömmu fyrir fund leiðtoga í héraðinu en enginn annar en árásarmaðurin særðist. 7.11.2005 11:45
Ásakanir um kosningasvindl í Aserbaídjan Flokkur Ilhams Alievs, forseta Aserbaídjan, fór með sigur í kosningum sem fram fóru í landinu í gær. Stjórnarandstaðan hefur lýst yfir að kosningasvindl hafi átt sér stað og stefnir á götumómæli vegna kosninganna. 7.11.2005 11:30
Hátt olíuverð dró úr hrefnuveiðum við Noreg Norskir hrefnuveiðimenn veiddu ekki nema 639 af þeim 796 dýrum, sem heimilt var að veiða í ár, en vertíðinni er lokið. Það þýðir að 157 dýr eru óveidd í ár. Reuters-fréttastofan hefur það eftir norskum hvalveiðimönnum að hátt olíuferð hafi dregið úr sókninni og svo hafi verið þrálát bræla, en skytturnar eiga erfitt með að finna hrefnur í öldugangi. 7.11.2005 11:15
Dóu af völdum görótts drykkjar Um þrjátíu manns hafa látist og fjöldi manna er á sjúkrahúsi vegna áfengiseitrunar í borginni Magadan í austurhluta Rússlands. Lögreglumenn þar í landi hafa handtekið fjórar konur sem grunaðar eru um að hafa framleitt og selt heimagert áfengi en hald hefur verið lagt á á 1.200 lítra af drykknum. 7.11.2005 11:00
Ætla að tvöfalda íbúafjöldann Hreppsstjórn Vatnsleysustrandar stefnir að því að tvöfalda íbúafjöldann á næstu fimm árum. Gangi það eftir verða íbúarnir orðnir tvöþúsund við lok þessa áratugar, hátt í þrefalt fleiri en þeir voru um miðbik síðasta áratugar. 7.11.2005 10:54
Beittu táragasi þegar landamæri voru opnuð Pakistanskir lögreglumenn þurftu að beita táragasi til að dreifa hundruðum íbúa í Kasmír sem reyndu að komast yfir landamæri Indlands og Pakistans þegar þau voru opnuð í morgun vegna jarðskjálftans sem skók svæðið fyrir tæpum mánuði. 7.11.2005 10:30
Rukka aðkomumenn meira en heimamenn Sveitarstjórn Húnaþings vestra þarf í dag að svara stjórnsýslukæru vegna þess að aðkomumenn eru rukkaðir um fimm þúsund krónur fyrir leyfi til að fá að stunda rjúpnaveiði en heimamenn um aðeins þrjú þúsund krónur. 7.11.2005 10:08
Eldur í grilli á skyndibitastað Betur fór en á horfðist þegar eldur gaus upp í grilli á skyndibitastað við Geirsgötu í Reykjavík í gærkvöld. Starfsfólk kallaði strax á slökkvilið, en beið ekki boðana og náði að kæfa eldinn áður en hann næði útbreiðslu. Þegar slökkviliðið kom á vettvang beið þess að reykræsta staðinn, en eitthvað tjón mun hafa hlotist af reyk. Engan sakaði. 7.11.2005 10:05
Sautján látnir eftir hvirfilbyl í Indiana Að minnsta kosti 17 manns fórust í öflugum hvirfilbyl í Suðvestur-Indiana í Bandaríkjunum um helgina. Þá er talið að um 160 manns séu slasaðir en skýstrokkur eyddi hjólhýsabyggð í Evansville þar í landi. Fjöldi fólks missti heimili sín í hvirfilbylnum og er talið að yfir 20 þúsund heimili séu rafmagnslaus. 7.11.2005 10:01
30 lögreglumenn særðust í óeirðum í Frakklandi Þrjátíu lögreglumenn særðust, þar af tveir alvarlega, í óeirðum í Grigny suður af París í gærkvöld og nótt. Uppþot héldu áfram víða um Frakkland ellefta daginn í röð. 7.11.2005 09:56
Fasteignaverð hækkaði mest í Garðabæ Fasteignaverð í Garðabæ hækkaði um fimmtán prósent á öðrum ársfjórðungi þessa árs, meira en nokkurs staðar annar staðar á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins. 7.11.2005 09:30
Vatnsleysuströnd verður að bæ Hreppum landsins fækkar um einn á næstunni, verði hreppsstjórn Vatnsleysustrandarhrepps að ósk sinni. Hreppsstjórnin hefur ákveðið að óska eftir því við félagsmálaráðuneytið að Vatnsleysuströnd og Vogar verði hér eftir bær en ekki hreppur. 7.11.2005 09:15
Íbúar snyrti tré sín Akureyringar skulu snyrta þau tré sín sem ná út fyrir lóðamörk þeirra eða eiga á hættu að bæjarstarfsmenn geri það og þá á kostnað íbúanna sjálfra. 7.11.2005 08:54
Byrjaður að auglýsa Prófkjörsbaráttan er hafin hjá Samfylkingunni í Reykjavík þrátt fyrir að prófkjörið sjálft fari ekki fram fyrr en í febrúar á næsta ári. Stefán Jón Hafstein er með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem birtast myndir af 46 einstaklingum sem segjast vilja fá Stefán Jón sem næsta borgarstjóra. 7.11.2005 08:49
Byggja 50 íbúðir á Eskifirði Verktakafyrirtækið Edduborgir hefur samið við bæjarstjórn Fjarðabyggðar um að byggja þrjú fjölbýlishús í miðbæ Eskifjarðar. Húsin verða fjögurra og fimm hæða og í þeim verða rúmlega 50 íbúðir sem verða hannaðar með þarfir fólks yfir 50 ára aldri í huga. 7.11.2005 08:48
Kveiknaði í djúpsteikingarpotti Slökkvilið Reykjavíkur fékk tilkynningu klukkan 21:13 um að kveiknað hefði í djúpsteikingarpotti á veitingastað við Geirsgötu. Búið er að slökkva eldinn og verið er að reykræsta staðinn. Ekki liggur fyrir hversu mikið tjón varð að völdum brunans. 6.11.2005 21:22
Bruggverksmiðja að erlendri fyrirmynd Hjónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, á Litla Árskógarsandi í Eyjafirði hyggjast reisa bruggverksmiðju í þorpinu í upphafi nýs árs. Í verksmiðjunni verður framleiddur áfengur bjór að erlendri fyrirmynd og stefna þau á 200 lítra ársframleiðslu eftir tvö ár. 6.11.2005 21:05
Knattspyrnumenn hafa lítin rétt á skaðabótum ef þeir slasast í leik Knattspyrnumenn afsala sér nokkrum rétti til skaðabóta og menn komast upp með hegðun sem væri refsiverð annars staðar en á knattspyrnuvellinum. Þetta kemur fram í lögfræðiúttekt sem birtast mun í næsta tölublaði Úlfljóts, tímariti laganema. 6.11.2005 20:52
Þingkosningar í Aserbædjan taldar breyta litlu Íbúar Aserbædjans gengu til þingkosninga í dag. Ekki er talið að þær muni breyta miklu í þessu fyrrverandi Sovétlýðveldi þar sem starfsemi stjórnarandstöðuflokka er ekki vel liðin og olíugróðinn virðist seint ætla að skila sér til almennings. 6.11.2005 20:41
6.000 íbúðir byggðar á næstu fimm árum Varlega áætlað verða 6.000 íbúðir byggðar næstu fimm árin í Reykjavík samkvæmt áætlunum skipulagsyfirvalda. Á næstu mánuðum verða boðnar út lóðir í Úlfarsárdal fyrir um 1.000 íbúðir af öllum stærðum og gerðum, þar sem Þingholtin verða höfð sem fyrirmynd. 6.11.2005 20:32
Samræmd stúdentspróf í endurskoðun Samræmd stúdentspróf eru í endurskoðun segir menntamálaráðherra, en ekki kemur til greina að hætta við þau. Námstími til stúdentsprófs verður styttur eins og boðað hefur verið, en sérstakt tillit verður þó tekið til framhaldsskóla með bekkjakerfi. 6.11.2005 20:13
Parísarbúar eru áhyggjufullir vegna óeirðanna Íbúar Parísar hafa verulegar áhyggjur af ástandinu, enda tjónið mikið og fólk orðið hrætt við að vera á ferli í ákveðnum hverfum. Eyðileggingin er gríðarleg, eftir tíu kvöld og nætur af stöðugum óeirðum, skemmdarverkum, brunum og jafnvel líkamsárásum. 6.11.2005 20:00
Hrikalegt ástand í Frakklandi Þrettán hundruð bílar til viðbótar fuðruðu upp í nótt víðs vegar um Frakkland, tíunda óeirðadaginn í röð. Ekkert virðist geta stöðvað brennuvargana, sem nú eru farnir að færa sig inn í miðborg Parísar. Sara M. Kolka býr í París og er stödd í Aulney-sous-Bois, einu þeirra hverfa sem hvað verst hafa orðið úti. 6.11.2005 19:56
Fulltrúi íhaldsins að mati oddvita Samfylkingarinnar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er fulltrúi gamla íhaldsins sem borgarbúar kusu burt fyrir áratug og úrslitin úr prófkjöri Sjálfstæðismanna horfa aftur til fortíðar að mati oddvita Samfylkingarinnar í borginni, Stefáns Jóns Hafsteins. 6.11.2005 19:48
Hanna Birna fékk flest atkvæði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vann yfirburðarsigur yfir Gísla Marteini Baldurssyni í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hlaut tæp fimmtíu og tvö prósent atkvæða í fyrsta sætið en Gísli Marteinn fjörutíu og tvö prósent. Hanna Birna Kristjánsdóttir vann ekki síður sigur en Vilhjálmur. 6.11.2005 19:32
Gríðarleg eyðilegging af völdum hvirfilbylsins Nú er ljóst að 17 manns fórust og um rúmlega hundruð manns eru slasaðir eftir að öflugur hverfilbylur fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. 6.11.2005 18:33
Kúrdísk sjónvarpsstöð í rannsókn lögreglu í Danmörku Danska lögreglan rannsakar nú sjónvarpsstöðina ROJ TV sem er með útsendingar í Danmörku en tyrknesk stjórnvöld vilja meina að sjónvarpsstöðin sé hliðholl Kúrdum og ali á hatri gagnvart tyrkenskum stjórnvöldum 6.11.2005 18:03
Norski krónprinsinn í opinberi heimsókn í Danmörku Hákon krónprins er nú í opinberi heimsókn í Danmörku í tilefni þess að Noregur fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli sínu sem sjálfstætt ríki. 6.11.2005 17:29
Víða mikil hálka á vegum Vegagerðin varar við flughálku í Reykjahverfi í Þingeyjarsýslu og á milli Raufarhafnar og Þórshafnar. Hálka eða hálkublettir eru í öllum landshlutum, þó síst á Suðausturlandi. 6.11.2005 17:17
Flugeldur sprakk nærri áhorfendum á flugeldasýningu Sjö börn og fjórir fullorðnir voru fluttir á spítala til aðhlynningar vegna brunasára sem þau hlutu þegar flugeldur sprakk nærri þeim á flugeldasýningu í skemmtigarði á Englandi í gærkvöldi. 6.11.2005 17:08
Tala látinna hækkar Nú er ljóst að 18 manns fórust og um rúmlega hundruð manns eru slasaðir eftir að öflugur hvirfilbylur fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. 6.11.2005 17:04
Kosningar í Aserbædjan í dag Íbúar Aserbædjan ganga til þingkosninga í dag. Ekki er reiknað með neinum breytingum, enda er stjórnarandstöðunni ekki leyft að starfa nema að afar takmörkuðu leyti. Kosningastjóra stærstu stjórnarandstöðuhreyfingarinnar var þó sleppt úr fangelsi í dag. 6.11.2005 15:18
Kínverjar lóga fiðurfénaði Öllum fiðurfénaði í norðausturhluta Kína verður lógað fyrir mánudag til að hindra útbreiðslu fuglaflensu. Sautján hundruð embættismenn hafa verið sendir á staðinn með her- og lögregluvernd, til að lóga fuglunum, en þeir eru allt að ein milljón talsins. 6.11.2005 15:16
Hálka í öllum landshlutum Vegagerðin varar ökumenn við flughálku víða um land. Sérstaklega er hált í Reykjahverfi í Þingeyjarsýslu og sömuleiðis bæði á Öxi og Breiðdalsheiði. Annars eru hálka eða hálkublettir í öllum landshlutum og því ráð að keyra varlega um allt land. 6.11.2005 15:11
Sprengja sprakk í Mógadishu Þrír létust og minnst tuttugu særðust þegar öflug sprengja sprakk í Mógadishu, höfuðborg Sómalíu í dag. Allt útlit er fyrir að um árás hafi verið að ræða og að ætlunin hafi verið að ráða forsætisráðherrann Mohammad Al Gedi af dögum. 6.11.2005 15:09
Íranar falast eftir viðræðum um kjarnorkumál Yfirmaður samninganefndar Írana um kjarnorkumál hefur falast eftir viðræðum við Frakka Breta og Þjóðverja vegna kjarnorkuáætlunar Írana. 6.11.2005 15:06