Samræmd stúdentspróf í endurskoðun 6. nóvember 2005 20:13
Samræmd stúdentspróf eru í endurskoðun segir menntamálaráðherra, en ekki kemur til greina að hætta við þau. Námstími til stúdentsprófs verður styttur eins og boðað hefur verið, en sérstakt tillit verður þó tekið til framhaldsskóla með bekkjakerfi. Kennar við nokkra framhaldsskóla ætla að leggja niður vinnu í eina kennslustund á þriðjudag, til að mótmæla fyrirhugaðri styttingu á námstíma til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú, eins og til stendur. Fyrstu nemendurnir í þriggja ára námið byrja í framhaldskólum haustið 2009 og ættu því að útskrifast 2012. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði það vera löngu ljóst að það yrði haldið áfram með þetta verkefni. Hún mat það svo á sínum tíma að seinka ætti breytingunni til ársins 2009. Þorgerður sagði að það væri hins vegar ljóst að námstími til stúdentsprófs yrði styttur en menntaskólar með bekkjakerfi væru með mikla sérstöðu og í ljósi þess yrði þeim skólum veitt ákveðið svigrúm en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Það eru ekki bara framhaldsskólakennarar sem eru ósáttir. Það er líka urgur í framhaldsskólanemum en sá urgur er vergna samræmdra stúdentsprófa. Forystumenn framhaldsskólanema hittust í gær til að ræða aðgerðir en þeir ætla að safna undirskriftum og hvetja nemendur til að sniðganga samræmd stúdentspróf. Þorgerður vildi ítreka að samræmd stúdentsróf væru skylda fyrir framhaldsskólanemendur sem hygðust klára stúdentspróf. Hins vegar vildi hún minna á að samræmdu stúdentsprófin hefðu verið sett og samþykkt af öllum flokkum árið 1996 og þau hefðu verið sett fram til að gæðameta framhaldsskóla og framhaldsskólanám en það hefði tekið ákveðin tíma til að fara af stað með þau. Þorgerður sagði þó að það væru til aðrar leiðir til gæðamats framhaldsskólanna og ekki kæmi til greina að hætta við þau núna en hún væri með prófin í endurskoðun.
Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Erlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Fleiri fréttir Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Sjá meira