30 lögreglumenn særðust í óeirðum í Frakklandi 7. nóvember 2005 09:56 Franskur lögreglumaður á vettvangi bruna í París í morgunsárið. MYND/AP
Þrjátíu lögreglumenn særðust, þar af tveir alvarlega, í óeirðum í Grigny suður af París í gærkvöld og nótt. Uppþot héldu áfram víða um Frakkland ellefta daginn í röð. Um 200 óeirðaseggir réðust gegn lögreglu og beittu til þess byssum og grjóti. Þá var kveikt í hátt í níu hundruð bílum í nokkrum borgum og bæjum, en alls voru 186 handteknir í gærkvöld og nótt. Í Toulouse þurfti lögregla að að beita táragasi til að hafa hemil á æstum múgnum og þá kom einnig til átaka í Orleans, Rennes and Nantes. Lögregla segir óeirðagengi reyna að ögra lögreglumönnum og stofna þannig til átaka. Gengin séu farin að nota byssur og því óttist lögreglan að það endi með mannfalli í öðrum hvorum hópnum. Óeirðirnar hafa stigmagnast frá degi til dags í hverfum innflytjenda í París og víðar, en þær brutust út fyrir ellefu dögum þegar tveir ungir piltar létust af völdum raflosts í rafstöð þegar lögregla veitti þeim eftirför Clichy-sous-Bois, úthverfi Parísar. Mönnum ber ekki þó ekki saman um hver sé raunveruleg ástæða uppþotanna. Sumir segja það aðgerðarleysi stjórnvalda í málefnum ungra innflytjenda en aðrir segja glæpaklíkur og gengi nýta sér ástandið og reyna að skapa glundroða. Forseti Frakklands, Jacques Chirac, sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í gær að það væri forgangsmál franskra stjórnvalda að koma á lögum og reglu í úthverfum Parísar, þeir sem ýttu undir ofbeldi og ótta yrðu handsamaðir. Chirac sagði einnig, að nauðsynlegt væri að tryggja að allir nytu jafnra tækifæra og réttlætis svo hægt yrði að binda enda á óeirðirnar. Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Rússlandi hafa varað þegna sína við að fara til Parísar, sem er einn vinsælasti ferðamannastaður heims, vegna óeirðanna. Ferðamenn eru beðnir um að fara ekki á þá staði þar sem mótmælagöngur eru haldnar og ef fólk gæti mögulega frestað ferðum sínum til borgarinnar, væri það æskilegt.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira