Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ofbeldið færist enn í aukana Í það minnsta 26 manns létust í fjórum sprengjuárásum sem gerðar voru á einni og hálfri klukkustund í og við Bagdad í gær. Þá létust tveir starfsmenn bresks öryggisfyrirtækis í árás vígamanna og hollenskir hermenn skutu íraskan bílstjóra til bana eftir að hann stöðvaði bifreið sína ekki við vegatálma. 19.1.2005 00:01
Vígamenn helsta þolraun Íslams Ungir menn sem eru lokkaðir til vígaferla eru helsta þolraun Íslams, sagði Sheik Abdul-Aziz al-Sheik, æðsti klerkur Sádi-Arabíu þegar hann ávarpaði hluta þeirra tveggja milljóna múslima sem lögðu leið sína til Arafatsfjalls í Sádi-Arabíu í pílagrímsför við upphaf Hajj trúarhátíðar múslima. 19.1.2005 00:01
Spænskir kaþólikkar vilja smokkinn Kaþólska kirkjan á Spáni hefur kúvent í afstöðu sinni til smokka og er nú samþykk því að fólk noti þá til að verja sig gegn HIV-veirunni sem veldur alnæmi. Þetta er þvert á afstöðu Jóhannesar Páls páfa II, æðsta yfirmanns kaþólsku kirkjunnar, sem er alfarið andvígur notkun smokka. 19.1.2005 00:01
225 þúsund látin Ljóst er orðið að minnst 225 þúsund manns létu lífið af völdum flóðbylgjunnar í Asíu. Hún er því orðin að næst mannskæðustu náttúruhamförum í rúma öld. Óttast að enn verr geti farið ef náttúruhamfarir verða í stærstu borgum heims. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Sátt um fyrirkomulag um rýmingu Sýslumenn, bæjarstjórar og sveitarstjórar á þéttbýlisstöðum á sunnan- og norðanverðum Vestfjörðum lýsa yfir að þeir hafi góða reynslu af því fyrirkomulagi sem er um rýmingu húsa. Ástæða yfirlýsingarinnar er umfjöllun í fjölmiðlum um að Veðurstofan hafi of mikið vald til rýmingar. 19.1.2005 00:01
Þekkta fólkið neytir kókaíns Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir hóp fíkniefnaneytenda orðinn breiðari. Áður hafi verið litið á fíkniefnaneytendur sem hálfgerða aumingja en annað eigi við þá sem eru í kókaínneyslu sem eru mikið til þekkta og fína fólkið. 19.1.2005 00:01
Stuðningur Finna lítill Fyrrum forsætisráðherra Eistlands, Edgar Savisaar, gagnrýnir Finna í nýútkominni minningabók sinni fyrir að styðja land sitt ekki nægjanlega til sjálfstæðis. 19.1.2005 00:01
Fleygði hassinu fram af svölum Fjögur hundruð grömm af hassi fundust í húsleit á heimili tuttugu og fimm ára manns í Reykjavík seinni partinn á þriðjudag. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöðina til yfirheyrslu. 19.1.2005 00:01
Atvinnuleysi minnkar lítillega Á fjórða ársfjórðungi 2004 var atvinnuleysi 2,5 prósent samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysið 2,9 prósent. 19.1.2005 00:01
Fór strax úr landi Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við innflutning á tæpu kílói kókaíni fyrir tveimur vikum hefur verið látinn laus. Sá sem flutti kókaíni inn er tæplega þrítugur Ungverji en hann situr enn í gæsluvarðhaldi. 19.1.2005 00:01
Komin mynd á utanríkisstefnu BNA Nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna útnefnir sex lönd sem vígi helstu harðstjórna heimsins og telur að Bandaríkin þurfi að beina sjónum sínum þangað. Yfirlýsingin þykir gefa allgóða vísbendingu um utanríkisstefnu Bandaríkjanna næstu fjögur árin. 19.1.2005 00:01
Milljónamæringur týndur Forstjóra og eins af erfingjum sænsku raftækjaverslanakeðjunnar Siba, hins 32 ára margmilljónamærings Fabians Bengtsson, er saknað og óttast lögreglan í Gautaborg að honum hafi verið rænt. Þó hefur ekki komið fram krafa um lausnargjald. 19.1.2005 00:01
Mikla olíu að finna Norska olíufyrirtækið Statoil heldur því fram að olíu sem sé rúmlega 27 milljarða króna virði sé að finna í Barentshafi. Eftir því sem fram kemur í dagblaðinu Politiken gera Rússar kröfur til hluta af olíulindunum. 19.1.2005 00:01
Lóan fauk til Noregs Vorboðinn kom óvenjusnemma til Noregs í ár, en það sást til fyrstu lóunnar síðasta laugardag á suðvesturströnd landsins. Daginn eftir sást svo til stórs hóps af lóum, auk þess sem nokkrir spóar voru á stjá. 19.1.2005 00:01
Sænskum milljónamæringi rænt Einum af ríkustu mönnum Svíþjóðar, Fabian Bengtsson, var rænt í Gautaborg í gær. Bengtsson er eigandi stærstu rafeindaverslanakeðju Svíþjóðar og ekkert hefur til hans spurst frá því hann yfirgaf íbúð sína á leið til vinnu í gær. 19.1.2005 00:01
Viðurkennir fyrningu kærunnar Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum viðurkennir að kæra sem kona lagði fram á hendur fyrrverandi eiginmanni sínum fyrir líkamsárás var orðin fyrnd þegar maðurinn var ákærður. 19.1.2005 00:01
Stærsti ísjaki jarðarinnar Vísindamenn fylgjast spenntir með stærsta ísjaka jarðarinnar sem hefur verið á hraðri siglingu við Suðurskautslandið. Ísjakinn er 160 kílómetra langur og inniheldur samsvarandi vatnsmagn og rennur um ána Níl í Egyptalandi á áttatíu árum. Ein afleiðing þessa ferðalags jakans er að 3000 mörgæsir þurfa að fara um 180 kílómetra hjáleið heim í hreiðrin með mat fyrir ungana sína. 19.1.2005 00:01
Halldór neitar að tjá sig Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra neitar að tjá sig um ákvörðun hans og Davíðs Oddssonar um stuðning Íslands við Íraksstríðið. Fréttastofan hefur nú í þrjá daga leitað eftir skýringum hans á svörum þess efnis að ákvörðunin hafi verið rædd í utanríkismálanefnd. 19.1.2005 00:01
Afkoman versnar Afkoma botnfiskveiða versnaði frá árinu 2002 til ársins 2003 en afkoma botnfiskvinnslu batnaði. Þetta kemur fram í hefti Hagstofunnar um sjávarútveg. Helstu botnfisktegundir eru þorskur, ýsa og karfi. 19.1.2005 00:01
Þiggja eftirlaun í fullu starfi Sex fyrrverandi ráðherrar, sem enn eru í fullu starfi á vegum ríkisins, þiggja eftirlaun í samræmi við lög um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins sem samþykkt voru í árslok 2003. 19.1.2005 00:01
Nauðugur einn kostur Sr. Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur í Garðasókn, hefur vísað ágreiningi sínum við formann og varaformann sóknarnefndar, auk sóknarprests og djákna, til úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar. 19.1.2005 00:01
Bara bréf frá biskup Matthías G. Pétursson, formaður sóknarnefndar Garðanefndar segir að greinargerð verði send úrskurðanefnd þjóðkirkjunnar þann 8. febrúar og úrskurði sé að vænta eftir þann tíma. 19.1.2005 00:01
Koma fjörutíu Kínverja stöðvuð Koma rúmlega 40 Kínverja sem hugðust starfa á Kárahnjúkum hefur verið stöðvuð. Þeir fá ekki atvinnuleyfi meðan rannsókn ráðuneyta á starfsmannamálum Impregilo fer fram. Kínverjarnir höfðu fengið dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun þrátt fyrir að atvinnuleyfi lægi ekki fyrir. 19.1.2005 00:01
Kennara að taka til eftir sig Skilaboð frá borgarfulltrúum til kennara eru að þeir hafi gengið of langt, segir Bergþóra Valsdóttir, framkvæmdastjóri SAMFOKS, sambands foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur. 19.1.2005 00:01
Mjöll Frigg gæti átt rétt á bótum Eigandi Mjallar Friggjar hafði samband við skipulagsyfirvöld Kópavogsbæjar áður en klórverksmiðjan fluttist þangað. Hafi fyrirtækið fengið vilyrði fyrir starfsleyfi gæti bærinn verið skaðabótaskyldur. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Ofsaveður á Hellisheiði Ofsaveður gekk yfir Hellisheiði og Hveragerði í dag. Loka þurfti heiðinni fyrir umferð vegna veðurs og björgunarsveitarmenn hjálpuðu gangandi vegfarendum og skólabörn í Hveragerði. 19.1.2005 00:01
Fleiri þarf í iðngreinar Það er áhyggjuefni hversu fáir sækja iðn- og tæknimenntun hér á landi og það þarf að breyta ríkjandi viðhorfum í garð iðnmenntunar þar sem aukin þörf er fyrir verk- og iðnmenntað fólk. Þetta var meðal þess sem kom fram á málþingi í tilefni Menntadags iðnaðarins á þriðjudag. 19.1.2005 00:01
Margir fastir á Hellisheiði Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út um hádegi í gær til að aðstoða bíla sem voru í vandræðum á Hellisheiði. Margir bílar lentu í vandræðum í gær vegna ófærðar. Þá voru björgunarsveitarmenn úr Hveragerði beðnir um aðstoð innanbæjar í Hveragerði við að koma skólabörnum til síns heima og aðstoða heilbrigðisstarfsfólk við að komast leiðar sinnar. 19.1.2005 00:01
Minnka áhættu á vímuefnafíkn Hægt er að draga úr áhættu á vímuefnafíkn og afbrotahneigð til muna með því að meðhöndla væga ofvirkni og athyglisbrest þegar í barnæsku. Stefán J. Hreiðarsson, barnalæknir á Greiningarstöð ríkisins, segir umræðuna um geðraskanir barna á villigötum. Um mikilvægt forvarnarstarf sé að ræða. 19.1.2005 00:01
Eþíópímaður dæmdur í fangelsi Eþíópíumaður með sænskt ríkisfang var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir aðstoða par frá Eþíópíu við að komast ólöglega inn í landið. Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð skömmu fyrir áramót ásamt fólkinu sem kom hingað frá Osló, en ferðinni var heitið áfram vestur til Bandaríkjanna. 19.1.2005 00:01
Bretar fyrir rétti vegna pyntinga Írakar, sem sátu í varðhaldi breskra hermanna, meðal annars fyrir að hafa stolið mat handa fjölskyldum sínum, voru barðir og niðurlægðir á ýmsan máta. Ljósmyndir sem þykja sanna þetta hafa verið lagðar fram í réttarhöldum sem nú standa yfir í Bretlandi yfir þremur breskum hermönnum. 19.1.2005 00:01
Kjör eldri borgara versna Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, segir að kjör eldri borgara hafi dregist verulega aftur úr kjörum annarra og opinber þjónusta hafi hækkað verulega umfram kjör þessa hóps. 19.1.2005 00:01
Essó afturkallaði hækkun Essó afturkallað tveggja krónu hækkun á eldsneyti aðeins sólahring eftir að hafa hækkað verðið. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Essó, segir að verðið hafi verið lækkað aftur vegna samkeppninnar á markaðnum. 19.1.2005 00:01
Kennsla aukin í Kópavogi Skólanefnd Kópavogs hefur ákveðið að bæta nemendum 9. og 10. bekkja upp hluta þeirrar kennslu sem féll niður vegna kennaraverkfallsins í haust. 19.1.2005 00:01
Fyrsta íslenska fluguveiðihjólið Fyrsta íslenska fluguveiðihjólið kemur á markað í vor og er sérhannað fyrir hinn sterka íslenska lax. Heiti hjólsins tengist veiðivon og hjátrú. 19.1.2005 00:01
Tala látinna hækkaði um 60 þúsund Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni í Suðaustur-Asíu hækkaði snarlega um 60 þúsund manns í dag þegar yfirvöld í Indónesíu uppfærðu skýrslur sínar og þeir, sem áður var saknað, voru taldir af. Fjöldinn nemur alls rúmum 225 þúsundum. Lífið á hamfarasvæðunum verður aldrei samt eins og Ingólfur Bjarni Sigfússon komst að þegar hann heimsótti lítið sjávarþorp á Srí Lanka. 19.1.2005 00:01
Skoða aðstæður á Kárahnjúkum Fulltrúar ítölsku verkalýðshreyfingarinnar og Alþjóðasambands byggingaverkamanna skoða aðstæður verkamanna hjá Impregilo á Kárahnjúkum í dag. Þeir ætla að segja skoðun sína hreinskilnislega eftir ferðina. 19.1.2005 00:01
Ísraelar ræða við Abbas Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, aflétti í gær samskiptabanni við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Í kjölfarið funduðu yfirmenn öryggismála Ísraels og Palestínu um það hvernig hægt væri að sporna við auknu ofbeldi á svæðinu. 19.1.2005 00:01
Opinberir starfsmenn á sérkjörum Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi sendiherra í Finnlandi, hefur rétt á tæplega 400.000 króna eftirlaunum á mánuði auk fullra launa vegna sendiherrastöðu sinnar, sem nema tæpri milljón króna sem er að stórum hluta skattfrjáls. Sjö fyrrverandi ráðherrar fá greidd eftirlaun þrátt fyrir að vera í fullu starfi á vegum ríkisins og samtals þáðu þeir sautján milljónir í eftirlaunagreiðslur á liðnu ári. 19.1.2005 00:01
Festi bíl sinn á Fróðárheiði Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsvík komu ökumanni til aðstoðar eftir að hann festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði. 18.1.2005 00:01
Enn að heiman Hjálmar Sigurðsson ábúandi á Hrauni í Hnífsdal og fjölskylda hans hafa ekki geta dvalið heima hjá sér síðan að snjóflóð féll á bæ þeirra í síðustu viku. Stór hluti af bænum eyðilagðist í flóðinu, en beðið er eftir efni sem pantað hefur verið til viðgerðar. 18.1.2005 00:01
Hættuástandi aflétt á Vestfjörðum Almannavarnanefnd á Ísafirði ákvað á sjöunda tímanum í morgun að aflétta hættuástandi á Ísafirði og getur fólk, sem rýma þurfti hús sín þar í gær, snúið aftur til síns heima. Hættuástandi hefur líka verið aflétt í Bolungarvík og á Patreksfirði. 18.1.2005 00:01
Rændu erkibiskupi í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu í gærkvöldi erkibiskupi sýrlenska arms kaþólsku kirkjunnar. Hinn 66 ára gamli Basile Casmoussa hefur verið yfirmaður sýrlenska hluta kaþólsku krikjunnar í Írak undanfarin sex ár. Hann var á gangi utan við kirkju sína í borginni Mósúl í gær þegar hann var numinn á brott. 18.1.2005 00:01
Segja að boðað verði til kosninga Danskir fjölmiðlar og stjórnmálaskýrendur búast fastlega við því að Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, muni tilkynna um kosningar í landinu á blaðamannafundi sem boðað er til klukkan hálfellefu að íslenskum tíma. 18.1.2005 00:01
Segist ekki undirbúa árás á Íran George Bush Bandaríkjaforseti neitar því að verið sé að undirbúa innrás inn í Íran eins og Seymour Hersh, einn þekktasti rannsóknarblaðamaður Bandaríkjanna heldur fram. Hersh, sem meðal annars kom upp um pyntingar í Abu Ghraib fangelsinu í fyrra, segir fjölmarga erindreka innan hersins og leyniþjónustunnar fullyrða að undirbúningur að innrás sé þegar hafinn. 18.1.2005 00:01