Fleiri fréttir

Norski herinn fram úr fjárlögum

Varnarmálaráðherra Noregs, Kristin Krohn Devold, er enn og aftur í slæmum málum. Annað árið í röð fer herinn langt fram úr fjárhagsáætlun. Rúman milljarð norskra króna vantar upp á að endar nái saman núna.

ÍE og SÁÁ rannsaka fíkn

Íslensk erfðagreining og SÁÁ hafa samið um að starfa saman að rannsóknum á erfðafræði áfengissýki og fíknar. Samningurinn er liður í viðamiklu evrópsku samstarfsverkefni átta rannsóknastofa en rannsaka á líffræðilegar orsakir fíknar, eins og fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu.

Landamærum Íraks lokað í kosningum

Landamærum Íraks verður lokað fyrir þingkosningarnar sem fram eiga að fara í lok þessa mánaðar. Að auki verður umferð við kosningamiðstöðvar bönnuð til að draga úr líkum á árásum, en í morgun var gerð sjálfsmorðssprengjuárás á kosningamiðstöð stjórnmálaflokks sjíta. Þar fórst einn og sjö særðust.

Kosið í Danmörku 8. febrúar

Forsætisráðherra Danmerkur tilkynnir nú í hádeginu að þingkosningar verði haldnar í landinu eftir þrjár vikur, þann 8. febrúar, mörgum mánuðum fyrir lok kjörtímabilsins. Ástæðan er sögð sú að skoðanakannanir séu forsætisráðherranum hagstæðar.

Gengi krónunnar í sögulegu hámarki

Gengi krónunnar náði sögulegu hámarki í gær þegar gengisvísitalan mældist lægri en hún hefur verið í fjögur og hálft ár. Á rúmum þremur árum hefur gengi krónunnar hækkað um meira en þriðjung.

Kosningar gætu valdið klofningi

Vonir standa til þess að kosningarnar í Írak verði skref í átt að tilurð frjáls lýðræðisríkis á svæðinu en svo virðist sem þær gætu valdið klofningi frekar en öðru. Árásir á stjórnmálaflokka valda ótta og ringulreið.

Krefjast lausnar Fischers

Lögmenn Bobbys Fischers hyggjast krefjast þess fyrir dómi að honum verði sleppt úr japönsku fangelsi þegar í stað svo að hann geti haldið hingað til lands. Japönsk yfirvöld hafa enn sem komið er ekki tekið neina afstöðu til þess hvort að Fischer má þekkjast boð íslenskra stjórnvalda um hæli hér á landi.

Flugskeytum skotið að byggð á Gaza

Palestínskir skæruliðar skutu flugskeytum að landnemabyggð gyðinga á Gaza-ströndinni í morgun, aðeins nokkrum stundum áður en Mahmoud Abbas, nýr forseti Palestínumanna, mætti þangað til að mæla fyrir nýju vopnahléi. Abbas vonast til þess að slíkt vopnahlé geti liðkað fyrir friðarviðræðum við Ísraelsmenn.

Esso hækkar bensínverð

Olíufélagið Esso hækkaði bensínlítrann um tvær krónur í gær og kostar lítrinn nú liðlega hundrað krónur á sjálfsafgreiðslustöðvum félagsins. Hin félögin hafa ekki hækkað bensínverð.

Stærsta farþegaþota heims kynnt

Airbus-verksmiðjurnar kynntu í morgun stærstu farþegaþotu sögunnar við mikla athöfn í Tolouse í Frakklandi. Þotan tekur 555 farþega og er sögð svar Evrópumanna við hinni bandarísku Boeing 747.

Ofgreitt fyrir Stjörnubíósreit

Reykjavíkurborg borgaði 55 prósentum meira en hæsta markaðsverð á svæðinu þegar hún keypti Stjörnubíósreitinn við Laugaveg. Þetta kemur fram í úttekt sem borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gerðu. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að um hreina spillingu hafi verið að ræða.

Snarpur jarðskjálfti í Japan

Jarðskjálfti upp á 6,3 á Richter skók japönsku eyjuna Hokkaido rétt upp úr klukkan tvö, en hann er talinn eiga uppptök sín um 50 kílómetra suðaustur af eyjunni. Ekki hefur verið gefin út viðvörun um flóðbygju vegna hans og engar fréttir hafa borist um mann- eða eignatjón. Jörð hefur skolfið með reglulegu millibili í Japan undanfarna mánuði en sem betur hefur manntjón verið lítið.

Fagnar áformum um sölu Símans

Frjálshyggjufélagið fagnar í ályktun áformum ríkisstjórnarinnar um að selja Símann en hafnar hins vegar öllum hugmyndum um aukinn ríkisrekstur á heilbrigðissviði. Sala ríkisfyrirtækis sé ekki einkavæðing ef andvirði sölunnar sé notað til að auka ríkisrekstur á öðrum sviðum. Reisa megi nýtt sjúkrahús en ekki á vegum ríkisins.

Selja félagslegar íbúðir

Sveitarfélagið Austurbyggð er nú sem óðast að losna við félagslegar íbúðir sínar, en slíkar íbúðir eru víða þungur baggi á sveitarsjóðum. Þrjár félagslegar íbúðir vour seldar í fyrra og nú er verið að ganga frá sölusamningum um þrjár í viðbót að því er fram kemur á vef Austurbyggðar.

Segir Berlusconi slakan stjórnanda

Francesco Rutelli, sem verður aðalandstæðingur Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, í þingkosningu á næsta ári, segir að Berlusconi sé jafn afburðagóður stjórnmálamaður og hann sé afleitur stjórnandi. Hann sé versti stjórnandi í landinu síðan Mussolini hafi notið við á stríðsárunum.

Guðni stendur við fyrri orð

Guðni Ágústsson segir að yfirlýsing forsætisráðherra staðfesti atburðarásina sem lá að baki ákvörðuninni um stuðning Íslendinga við innrásina í Írak. Íraksmálið hafi verið margrætt. Hins vegar var ákvörðunin sjálf ekki rædd. Hann segist standa við það sem hann hefur áður sagt. </font /></b />

Ákvörðunin ekki rædd fyrir fram

Í yfirlýsingu Halldórs Ásgrímssonar kemur fram að ákvörðunin um að styðja innrásina í Írak hafi ekki verið rædd í ríkisstjórn, né á Alþingi, áður en hún var tekin. Málefni Íraks hafi hins vegar verið margrætt. </font /></b />

ETA sprengir bílsprengju á Spáni

Lögreglumaður slasaðist þegar bílsprengja sprakk í sjávarþorpinu Gexto í norðurhluta Spánar fyrr í dag. Liðsmaður í Sjálfstæðishreyfingu Baska, ETA, hafði hringt í baskneskt dagblað og varað við sprengingunni og var lögregla að girða svæðið af þegar bíllinn sprakk.

Mörg ágreiningsatriði um Impregilo

Ljóst er að fjölmörg ágreiningsatriði eru uppi milli Impregilo annars vegar og hagsmunasamtaka vinnumarkaðarins, að sögn Sivjar Friðleifsdóttur formanns félagsmálanefndar

Fela ekki lengur ólöglega vinnu

Grunur leikur á að útlendingar starfi mjög víða ólöglega að byggingastörfum hér á landi. Samiðn segir, að það séu "smákallarnir" sem standi í því að ráða slíkt vinnuafl. Þeir séu í smáverkum og geti þar látið sitthvað hverfa eins og vinnulaun. </font /></b />

Lægsta tilboð 24% af kostnaði

Lægsta boð í fyrsta áfanga Suðurstrandarvegar reyndist aðeins 23,6 prósent af kostnaðaráætlun en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í dag. Fyrirtækið Vegamenn í Reykjavík bauð lægst, 35 milljónir króna, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 150 milljónir króna.

Rannsaka erfðir á alkahólisma

Íslensk erfðagreining og SÁÁ taka nú til óspilltra málana við rannsókn á erfðum áfengissýki og fíknar. Til þessa verkefnis hefur Evrópusambandið veitt 330 milljónum, sem er stærsti styrkur sem það hefur veitt til íslensks rannsóknarverkefnis. Markmiðið er að lækna og fyrirbyggja. </font /></b />

Staða eldra starfsfólks styrkt

Árni Magnússon félagsmálaráðherra vill að hafið verði sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Hefur nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins lagt það til við stjórnvöld að slíku verkefni verði hrundið úr vör.

Kostnaður hækkar meira en laun

Kostnaðarliðir heimilanna hækkuðu meira um áramót en laun og ýmsar bætur að mati Alþýðusambands Íslands. Að mati sambandsins má ekki mikið út af bera til að forsendur kjarasamninga bresti og kjarasamningum verði sagt upp í haust.

Össur fái aðeins laun frá flokknum

Formaður Samfylkingarinnar má ekki þiggja laun fyrir það starf frá öðrum en flokknum ef tillaga Birgis Dýrfjörð verður samþykkt á komandi landsþingi flokksins. Samkvæmt eftirlaunalögunum sem samþykkt voru í lok árs 2003 fá formenn stjórnmálaflokka á þingi um 230.000 krónur á mánuði auk þingmannalauna.

Neytendasamtökin styrkja prófmál

Stjórn Neytendasamtakanna hefur ákveðið að samtökin styðji fjárhagslega við bakið á skaðabótamáli einstaklings gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Jóhannes Gunnarsson, formaður samtakanna, segir að þau geti ekki sjálf farið í mál fyrir hönd neytenda. Þess vegna hafi þessi leið verið valin og það hafi verið óumdeilt í stjórninni.

Hluti sekta renni til eftirlits

Ef áfrýjunarnefnd samkeppnismála kemst að þeirri niðurstöðu að olíufélögin eigi að greiða sektir vegna samráðs munu fjármunirnir renna nánast samstundis í ríkissjóð. Í niðurstöðu samkeppnisráðs, sem olíufélögin hafa áfrýjað til áfrýjunarnefndarinnar, kom fram að olíufélögin ættu að greiða tæpa þrjá milljarða í sektir.

Skapar tortryggni í garð HÍ

Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, segir að það kunni að orka tvímælis að starfsmenn skólans taki beinan þátt í rannsóknum á umdeildum þjóðfélagsmálum. Þetta segir hann aðspurður um skýrslu Tryggva Þórs Herbertssonar, forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og Jóns Þórs Sturlusonar, sérfræðings á stofnuninni, sem þeir gerðu í eigin nafni fyrir olíufélögin.

Játar að hafa barið Íraka í haldi

Breskur hermaður, Darren Larkin, játaði fyrir herrétti í dag að hafa barið Íraka sem var í haldi í Írak. Larkin er ásamt tveimur öðrum hermönnum, þeim Mark Cooley og Daniel Kenyon, ákærður fyrir að hafa beitt írakska fanga harðræði og m.a. neytt þá til að afklæðast og fara í kynferðislegar stellingar.

Herinn heim eftir rúmt ár

Verkefnum dönsku herdeildarinnar verður líklega lokið á næsta eina og hálfa ári. Þetta hefur Jyllands-Posten eftir yfirmanni deildarinnar, ofurstanum John Dalby. Hann segir að verkefni landgönguliða muni ljúka á næstu 12-18 mánuðum og að íraska stjórnin muni ekki fara þess á leit við dönsk stjórnvöld að herdeildin verði áfram í landinu. 

Kosið fyrir umdeildar breytingar

Forsætisráðherra Dana kallaði til þingkosninga eftir þrjár vikur á þingfundi í gær. Stærstu flokkarnir lofa að skapa tug þúsunda nýrra starfa á kjörtímabilinu. Núverandi stjórn segir að Íraksmálið verði ekki eitt af kosningamálunum

Konungleg áhrif

Ákvörðun Anders Fogh Rasmussen um að boðað sé til þingkosninga 8. febrúar hefur margvísleg áhrif á dönsku konungsfjölskylduna.

Þungur dómur fyrir árás með öxi

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 25 ára Hafnfirðing, Börk Birgisson, í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps og alvarlegar og hættulegar líkamsárásir. Hann var meðal annars ákærður fyrir að hafa slegið mann í andlitið með flösku sem brotnaði og barið hann síðan með hnefum.

Umferðartafir í Ártúnsbrekku

Miklar umferðartafir eru nú á Miklubraut við Ártúnsbrekku vegna umferðaróhappa sem urðu þar. Ökumaður slapp ómeiddur þegar bíll hans stakkst niður á milli brúnna á Miklubraut yfir Sæbrautina og munaði minnstu að hann hafnaði alveg niður á Sæbrautinni. Þegar björgunarmenn voru komnir á vettvang varð þar einnig árekstur og er verið að greiða úr málinu.

Á sér langa afbrotasögu

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 25 ára Hafnfirðing, Börk Birgisson í sjö og hálfs árs fangelsi, m.a. fyrir að slá annan mann ítrekað í höfuðið með öxi. Hann á sér langa afbrotasögu.

Hóta að drepa átta Kínverja

Uppreisnarmenn í Írak hóta að drepa átta Kínverja sem þeir rændu í dag. Ránið kemur á óvart því kínversk stjórnvöld eru langt frá því að vera stuðningsaðilar stríðsins í Írak. Landamærum Íraks verður lokað fyrir þingkosningarnar og að auki verður umferð við kosningamiðstöðvar bönnuð til að draga úr líkum á árásum.

Frumvarp um rýmri afgreiðslutíma

Matvöruverslunum, sem eru undir sex hundruð fermetrum að stærð, verður heimilað að hafa opið á stórhátíðardögum eins og á jóladag, samkvæmt frumvarpi sem dómsmálaráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Þetta er gert til þess að jafna aðstöðu þessara verslana og til dæmis bensínstöðva sem eru opnar á helgidögum og eru farnar að selja matvöru í auknum mæli.

Setja skorður á ferðafrelsið

Írösk stjórnvöld hyggjast loka landamærunum, setja útgöngubann að næturlagi og takmarka ferðafrelsi innanlands dagana í kringum kosningarnar sem fram fara 30. janúar. Með þessu leitast stjórnvöld við að vernda almenning gegn árásum vígamanna sem reyna að skemma fyrir kosningunum með árásum sínum.

Flugfreyjur semja

Kjaraviðræður Iceland Express og Flugfreyjufélags Íslands eru óhafnar. Samist hefur milli eigenda og flugfreyja Icelandair.

Fleiri en áður vilja málamiðlun

Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, hélt til fundar við leiðtoga Hamas í gærkvöldi og freistar þess í dag að fá þá til að samþykkja að láta af árásum á Ísraela. För sína heldur Abbas í á sama tíma og skoðanakannanir sýna að fleiri Palestínumenn eru reiðubúnir að gera málamiðlun við Ísraela en áður.

Þjóðverjar flytja mest út

Þjóðverjar eru, annað árið í röð, mesta útflutningsríki heims samkvæmt tölum þýsku hagstofunnar. Þar kemur fram að Þjóðverjar hafi flutt út vörur fyrir andvirði 59.600 milljarða króna.

Vill bæta samskipti við önnur ríki

"Heimurinn er að sammælast um að við höfum náð árangri í Írak," sagði Condoleezza Rice þegar hún svaraði spurningum öldungadeildarþingmanna. Öldungadeildin þarf að samþykkja útnefningu hennar sem utanríkisráðherra áður en hún getur tekið við embætti.

Hringbrautin á áætlun

Ekið verður um hluta nýju Hringbrautarinnar í Reykjavík í maí. Hafliði Richard Jónsson, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, segir verklok 15. október.

Kennedy íhugar framboð

Robert Kennedy yngri, sonur Roberts Kennedy sem var myrtur 1968 og bróðursonur Johns F. Kennedy sem var myrtur fimm árum fyrr, íhugar nú að gefa kost á sér í kosningum í New York ríki. Kennedy er sagður hafa rætt við valdamikla demókrata um möguleika á framboði til ríkissaksóknara New York.

Herinn eyddi of miklum peningum

Norski herinn fór tæpa tíu milljarða íslenskra króna fram úr fjárveitingum í fyrra og varð það til þess að yfirmaður hersins bauðst til að segja af sér. Framúrkeyrslan nemur þremur prósentum af heildarfjárveitingum norska hersins.

Sjá næstu 50 fréttir