Tala látinna hækkaði um 60 þúsund 19. janúar 2005 00:01
Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni í Suðaustur-Asíu hækkaði snarlega um 60 þúsund manns í dag þegar yfirvöld í Indónesíu uppfærðu skýrslur sínar og þeir, sem áður var saknað, voru taldir af. Fjöldinn nemur alls rúmum 225 þúsundum. Lífið á hamfarasvæðunum verður aldrei samt eins og Ingólfur Bjarni Sigfússon komst að þegar hann heimsótti lítið sjávarþorp á Srí Lanka. Á flóanum sem þorpið stendur við voru yfirleitt um 1500 bátar að veiðum dag hvern. Svo var líka á annan dag jóla. Núna eru nánast engir bátar eftir. Talið er að 4800 manns hafi týnt lífi á svæðinu örlagadaginn mikla. Í þorpinu snerist allt um fisk, báta og net. Netin eru verðmætasta eignin; þau eru ofin og ganga í arf svo kynslóðum skiptir. Nú eru þau í hönk og kafarar leita þeirra sem áttu þau. Ein kona sem ég hitti í flóttamannabúðum var ein hinna heppnu. Hún bjó í tveggja hæða húsi nógu langt frá ströndu til þess að aldan var ekki lengur nægilega kraftmikil til að leggja húsið í rúst þegar hún skall á því. Konan flýði með börnunum sínum upp á aðra hæð og slapp lifandi. En þegar vatnið sjatnaði voru tíu lík í kring. Einn starfsmanna Rauða krossins í flóttamannabúðunum sem veitir áfallahjálp sagði mér að hún hefði rætt við um 3000 manns frá því 26. desember og að þörfin væri mikil. Fólk væri í miklu áfalli og að erfitt væri að hjálpa þessum fjölda. Við hliðina voru sjálfboðaliðar að vinna með börnum, ræða við þau um það sem hafði gerst og láta þau teikna myndir. Myndirnar voru allar frekar keimlíkar og sögðu sína sögu: blátt hafið í forgrunni. Talið er að fjórir af hverjum tíu sem létust á Srí Lanka hafi verið börn og fjöldi þeirra sem lifði af missti foreldra sína. Sú hugsun skýtur óneitanlega upp kollinum hvernig þessar ungu sálir eigi að takast á við allt sem gerst hefur, og bíður þeirra enn.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Sjá meira