Fleiri fréttir

Grænmetisframleiðslan í óvissu

Að öllu óbreyttu stórhækkar verð á rafmagni til garðyrkjubænda um næstu mánaðamót. Unnið er að lausn málsins því verði ekki að gert mun grænmetisframleiðsla í landinu leggjast af.

Látinna Svía minnst

Svíar halda í dag minningarathöfn um þá sem létust í kjölfar hamfaranna í Asíu á annan dag jóla. Athöfnin verður haldin í ráðhúsinu í Stokkhólmi klukkan tíu að íslenskum tíma og þar verður konungsfjölskyldan sænska og flestir ráðamenn landsins.

Tvær bílveltur í hálkunni

Fimm manns sluppu ómeiddir þegar bíll sem fólkið var í valt út af Vesturlandsvegi á móts við afleggjarann að Bröttubrekku síðdegis í gær. Tveir menn sluppu líka þegar bíll þeira valt út af Biskupstungnabraut á móts við Svínavatn síðdegis. Mikil hálka var á báðum stöðum.

Aðstoðarlögreglustjóri myrtur

Aðstoðarmaður lögreglustjórans í Bagdad var myrtur fyrir utan heimili sitt í morgun. Skæruliðar sátu fyrir manninum og syni hans og skutu þá báða til bana.

Ekkert lát á loðnuveiðum

Ekkert lát er á loðnuveiðunum norður af Langanesi og er langmest af aflanum fryst til manneldis. Hafrannsóknaskipið Árni Friðrikssson er að kortleggja göngurnar og er þess vænst að niðurstöður liggi fyrir upp úr miðri vikunni og að þá verði aukið verulega við kvótann.

Þyrla hrapaði á flóðasvæðunum

Bandarísk þyrla með hjálpargögn hrapaði í námunda við flugvöll í Aceh-héraði í Indónesíu í nótt. Tíu manns voru um borð í þyrlunni og sluppu þeir allir með lítilsháttar meiðsli. Ekki er vitað hvað olli því að þyrlan hrapaði til jarðar en engar vísbendingar eru um að skotið hafi verið að henni að sögn hernaðaryfirvalda í Bandaríkjunum.

Olíufélögin hjá áfrýjunarnefnd

Lögfræðingar olíufélaganna Esso, Olís og Skeljungs mættu til fundar við áfrýjunarnefnd samkeppnismála á Hótel Sögu klukkan níu í morgun. Einnig var fulltrúi samkeppnisstofnunar boðaður á fundinn sem haldinn er vegna áfrýjunar olíufélaganna á úrskurði samkeppnisráðs vegna samráðs olíufélaganna um verðlagningu olíuvara.

Saug fé upp úr stöðumælum

Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt mann sem var með að minnsta kosti kíló af skiptimynt sem hann hafði sogið upp úr stöðumælum með sérútbúinni ryksugu. Það var vaktmaður í bandaríska sendiráðinu sem sá til mannsins og lét lögreglu vita sem gómaði hann þar í grennd.

Engar reykingar á almenningsstöðum

Frá og með deginum í dag geta Ítalir ekki lengur reykt á kaffihúsum eða öðrum almenningsstöðum. Mörgum hugnast hreint ekki reykingabannið sem gengur í gildi í dag og hefur fjöldi kaffihúsaeigenda hótað því að aðhafast ekkert ef að gestir kveikja sér í vindlingum með kaffibollanum.

Loftskip á milli lands og Eyja?

Sky-Cat risaloftskip sem Bretar eru að ljúka við að hanna yrði aðeins 45 mínútur á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Slíkt loftskip virðist betri lausn á samgöngumálum Vestmannaeyinga en Herjólfur eða aðrar hefðbundnar ferjur. 

Seinheppinn þjófur handtekinn

Seinheppinn þjófur var gripinn fyrir þjófnað síðdegis í gær þegar hann ætlaði að tilkynna um að hann hefði sjálfur lent í þjófnaði. Maðurinn hafði stolið fjórum fartölvum en hélt svo að bílnum sínum hafi verið rænt.

Nýtt ferli í Miðausturlöndum

Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, segir að sigur Mahmoud Abbas í forsetakosningunum í Palestínu upphafið að nýju ferli í Miðausturlöndum. Útgönguspár benda til þess að Abbas hafi hlotið ríflega tvo þriðju hluta talinna atkvæða.

Atvinnuleysi minnkar enn

Dregið hefur úr atvinnuleysi undanfarið og líklega mun sú þróun halda áfram á þessu ári, að sögn greiningardeildar Íslandsbanka. Hagvöxtur er mikill um þessar mundir og skilar sér nú í minnkandi árstíðarleiðréttu atvinnuleysi að sögn bankans.

Vefur um verkefni sýslumanna

Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar fyrir þá sem til embætta sýslumanna þurfa að leita. Á vefnum er einnig hvert embætti fyrir sig með eigin síðu þar sem helstu upplýsingar um starfsemi þess koma fram.

200 þúsund heimili enn án rafmagns

Rúmlega 200 þúsund heimili í Svíþjóð eru enn án rafmagns eftir ofsveðrið sem gekk yfir landið sunnanvert um helgina. Þá eru tæplega fjörutíu þúsund dönsk heimili enn án rafmagns. Óveðrið er það versta sem gengið hefur yfir svæðið síðustu þrjátíu og fimm árin og létust að minnsta kosti ellefu manns sökum þess.

Powell smeykur um framtíð Íraks

Colin Powell segist smeykur um framtíð Íraks að afloknum kosningum sem fara eiga fram í landinu þann þrítugasta þessa mánaðar. Utanríkisráðherrann fráfarandi segir þó nauðsynlegt að kosningarnar fari fram á tilsettum tíma, enda komi það ekki til álita að bráðabirgðastjórnin verði við völd áfram.

Gallup svarar ráðherrum

Stjórnendur IMG-Gallups á Íslandi sitja nú á fundi til að móta afstöðu til niðrandi ummæla þriggja ráðherra um skoðanakönnun sem félagið gerði nýverið um viðhorf til lista yfir staðföstu ríkin svonefndu.

Langur málflutningur olíufélaganna

Búist er við að munnlegur málflutningur í olíumálinu fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála standi fram á kvöld. Lögfræðingar stóru olíufélaganna mættu til fundar nefndarinnar í morgun ásamt fulltrúa Samkeppnisstofnunar. 

Sýnilegur árangur hjálparstarfsins

Minningarathöfn stendur yfir í Stokkhólmi um þá sem létust í hamförunum í Asíu. Hjálparstarf er farið að bera sýnilegan árangur á hamfarasvæðunum og íbúar reyna hvað þeir geta að taka upp eðlilega lífshætti. 

Fagna yfirlýsingu Davíðs

Starfsmannaráð Landspítala - háskólasjúkrahúss fagnar yfirlýsingu Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um ráðstöfun söluandvirðis Símans til uppbyggingar nýs hátæknisjúkrahúss. Ráðið segir yfirlýsinguna styðja við mikið undirbúningsstarf sem stjórnendur og starfsfólk sjúkrahússins hafi innt af hendi með heilbrigðisráðuneytinu.

Dómur fyrir innflutning á hassi

Þrítugur karlmaður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir að hafa flutt með sér til landsins rúmlega 190 grömm af hassi. Maðurinn hafði áður hlotið fangelsisdóma, meðal ananrs fyrir rán, tékkasvik, umferðarlagabrot, nytjastuld og meiriháttar eignaspjöll.

Landfylling við Gufunes samþykkt

Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaða gerð landfyllinga við vestan- og norðanvert Gufunes í Reykjavík með því skilyrði að framkvæmdir við gerð grjótvarnargarðs og þvergarða innan hans verði utan göngutíma laxfiska, þ.e. frá 1. maí til 30. september.

Breskum hermönnum í Írak fjölgað

Bretar ætla að senda 400 hermenn í viðbót til Íraks vegna kosninganna þar þann 30. janúar næstkomandi. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá þessu nú síðdegis. Sömuleiðis hefur Leónid Kútsma, fráfarandi forseti Úkraínu, ákveðið að hætta við að kalla herlið landsins heim frá Írak eins og fyrirhugað var.

Komið til móts við bændur

Drífa Hjartardóttir segir flókið mál að reikna út hækkun raforkuverðs til garðyrkjubænda, en málið verði örugglega leyst og þeir verði ekki látnir sitja uppi með 30-100 prósent hækkun.

Fundur ekki ákveðinn

Enn er ekki búið að ákveða hvenær viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna um framtíð varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli munu fara fram.

Standa við könnun

Forsvarsmenn IMG Gallup höfnuðu í gær ávirðingum þriggja ráðherra um skoðanakönnun sem fyrirtækið framkæmdi um stuðning við hernaðaraðgerðir í Írak.

Heimsókn til Kína í boði þingsins

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, mun heimsækja Kína 11.- 18. janúar í boði forseta kínverska þingsins ásamt eiginkonu sinni, Kristrúnu Eymundsdóttur. Með þingforseta í för verða varaforsetarnir Guðmundur Árni Stefánsson og kona hans, Jónína Bjartmarz og eiginmaður hennar, og Sólveig Pétursdóttir ásamt forstöðumanni alþjóðasviðs skrifstofu Alþingis.

Tilkynnt um 80 miltisbrandssvæði

Tilkynningar hafa borist til Sigurðar Sigurðarsonar dýralæknis um 80 svæði á landinu, þar sem grunur leikur á að miltisbrandur sé í jörðu. Enn eru slíkar tilkynningar að berast, en svæðin verða staðsett nákvæmlega og skráð. </font /></b />

Fréttastjóra Stöðvar 2 sagt upp

Sigríði Árnadóttur hefur verið sagt upp sem fréttastjóra á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en hún tók við starfinu fyrir tæp</font />u ári.

Nær 1900 vilja grænar tunnur

Hátt í 1900 íbúar í einbýli í Reykjavík hafa pantað græna sorptunnu að sögn Guðmundar Friðrikssonar hjá Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur.

Umdeildar reglur ekki í gildi

Umdeildar breytingar á reglum ferðaþjónustu fatlaðra aldraða taka ekki gildi fyrr en settar verða reglur um akstursþjónustu aldraðra, að sögn Bjarkar Vilhelmsdóttur borgarfulltrúa.

Bíða viðbragða félagsmálaráðherra

ASÍ bíður eftir viðbrögðum félagsmálaráðuneytisins við greinargerð um gagnrýnina á Impregilo. Vonast er eftir viðbrögðum eða fundi í dag. Fjallað verður um málið á miðstjórnarfundi á morgun. </font /></b />

Rannsakar iðnréttindin

Sýslumannsembættið á Seyðisfirði rannsakar nú iðnréttindi nokkurra erlendra starfsmanna Impregilo á Kárahnjúkum, m.a. rafiðnaðarmanna og smiða.

Páll ráðinn í forsætisráðuneytið

Páll Þórhallsson hefur verið ráðinn lögfræðingur á aðalskrifstofu forsætisráðuneytisins samkvæmt auglýsingu sem birt var í byrjun desember. Hann mun m.a. sinna ráðgjöf, skjalagerð og úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna á verksviði ráðuneytisins, einkum á sviði stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttar.

Segir feril Alfreðs senn á enda

Það þarf hins vegar engan sérfræðing til að átta sig á því að eftir 35 ára starf að borgarmálum hlýtur að vera farið að styttast eitthvað í annan endann á stjórnmálaferli Alfreðs Þorsteinssonar," segir Guðjón Ólafur Jónsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, á vef framsóknarmanna, hrifla.is.

Búnaði við klórvinnslu ábótavant

Verkfræðistofa gerði alvarlegar athugasemdir við starfsemi klórverksmiðju Mjallar-Friggjar í haust. Í skýrslum hennar kemur meðal annars fram að búnaði verksmiðjunnar hafi verið ábótavant sem áhættumati. </font /></b />

Ólafur afhenti trúnaðarbréf sitt

Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi, afhenti forseta Þýskalands, Horst Köhler, trúnaðarbréf sitt í dag. Þýskaland hefur um árabil verið stærsta viðskiptaland Íslands og voru heildarviðskipti landanna á síðastliðnu ári tæplega 60 milljarðar króna.

Orkla eignast meirihluta í Elkem

Norska fyrirtækjasamsteypan Orkla hefur eignast meirihluta í Elkem sem meðal annars á Íslenska járnblendifélagið. Orkla hafði þar með betur en Alcoa í baráttunni um Elkem. 

Gallup stendur við könnunina

IMG - Gallup á Íslandi segist standa fyllilega við könnun á afstöðu Íslendinga til þátttöku Íslands á lista hinna viljugu þjóða sem studdu hernaðaraðgerðir í Írak. Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa farið niðrandi orðum um könnunina.

Konungur hvetur til samstöðu

Karl Gústaf Svíakonungur hvatti landsmenn til að þjappa sér saman eftir hörmungarnar í Asíu í ávarpi sem var útvarpað og sjónvarpað beint í gær. "Okkur verður hugsað til allra þeirra sem standa okkur nærri og okkur þykir vænt um, en er ekki lengur á meðal okkar," sagði konungurinn.

Kæru Janúkovitsj vísað frá

Hæstiréttur Úkraínu vísaði í gær frá fjórum kærum Viktors Janúkovitsj, fyrrum forsætisráðherra, þar sem hann krafðist þess að seinni umferð forsetakosninganna yrði dæmd ógild. Talsmaður dómstólsins sagði að kærunum hefði verið vísað frá á grundvelli formgalla og að Janúkovitsj myndi leggja fram nýjar kærur.

Hundruð þúsunda án rafmagns

Nærri helmingur Letta og um nokkur hundruð þúsund Norðurlandabúar bjuggu við rafmagnsleysi í gær í kjölfar óveðursins sem gekk yfir svæðið um helgina og kostaði ellefu manns lífið.

Erfið verkefni liggja fyrir Abbas

Mahmoud Abbas vann yfirburðasigur í palestínsku forsetakosningunum. Nú liggur fyrir honum að semja frið við Ísraela og fá palestínska vígamenn til að láta af ofbeldi gegn Ísraelum. Kjöri hans var fagnað innanlands og utan. </font /></b />

Börn sneru loks aftur í skóla

Börn sneru aftur í skóla sína í Acehhéraði á indónesísku eyjunni Súmötru í gær, í fyrsta sinn frá náttúruhamförunum á annan dag jóla. Sums staðar, svo sem í Aceh Besar bættist fjöldi barna frá þeim svæðum sem verst urðu úti í hóp þeirra sem fyrir voru, annars staðar vantaði marga nemendur.

Fangabúðirnar í Guantanamo 3 ára

Þrátt fyrir að fá verk Bandaríkjastjórnar hafi mætt jafn harðri gagnrýni og fangabúðirnar sem komið var upp í Guantanamo fyrir þremur árum virðist sem þær standi til frambúðar. Uppi eru áform um að byggja þar fangelsi fyrir andvirði 1.600 milljóna króna og geðdeild fyrir rúmar hundrað milljónir króna.

Sjá næstu 50 fréttir