Innlent

Nefnd skoðar ásakanir á Impregilo

Sérstakri nefnd ráðuneytisstjóra verður falið að rannsaka þær ásakanir sem hafa komið fram á verktakafyrirtækið Impreglio. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun en alls heyra umsvif fyrirtækisins hér á landi undir tíu ráðuneyti. Alvarlegar ásakanir hafa komið fram á hendur Impregilo, t.a.m. hvað varðar skattskil, launamál og aðbúnað starfsmanna. Árni Magnússon félagsmálaráðherra, sem lagði málið fyrir á ríkisstjórnarfundinum í morgun, segir að óskað hafi verið eftir því að ráðuneytisstjórarnir komi saman sem fyrst til að fara yfir málið. Hann á jafnvel von á því að það verði í þessari viku. Málið verður hins vegar ekki leyst á einum fundi að sögn ráðherrans en hann segir eitthvað í því eiga við rök að styðjast, annað ekki. Mörgum er í fersku minni þegar formaður Framsóknarflokksins þakkaði Impreglio sérstaklega fyrir að hafa boðið í verkið við Kárahnjúka og taldi það boð forsendu þess að hægt var að hefjast handa fyrr en ella. En er komið á daginn að þetta hafi verið mistök? Félagsmálaráðherra segir málið ekki snúast eingöngu um eitt fyrirtæki heldur stærstu framkvæmd Íslandssögunnar og eina stærstu framkvæmd í Evrópu. Það kunni vel að vera að eitthvað í ferlinu þurfi að bæta og þá verði það gert. Þær raddir hafa heyrst að Impregilo hafi kverkatak á stjórnvöldum þar sem allar frekari tafir á verkinu geti kallað á háa skaðabótakröfu frá eigendum álversins - að þetta valdi því að fyrirtækið fái sérstaka meðferð. Félagsmálaráðherra hafnar því að verið sé að taka á fyrirtækinu með silkihönskum heldur fái það sömu meðferð og önnur fyrirtæki. En hvort að verkið tefst eða því verði flýtt segir ráðherra það ekki koma málinu við.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×