Fordæmalaus neyðaraðstoð 13. október 2005 15:20
Þjóðir heims hafa heitið 320 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum. Aðstoð af þessari stærðargráðu á sér ekkert fordæmi og hefur komið í veg fyrir hungur og farsóttir á hamfarasvæðunum, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Stærsta áhyggjuefnið er að tryggja að öllu söfnunarfénu verði varið í þágu fórnarlambanna. Rúmlega áttatíu lönd hafa heitið framlögum og koma hæstu upphæðirnar frá Ástralíu, Þýskalandi og Japan. Alls vilja Sameinuðu þjóðirnar að lagðir verði fram 400 milljarðar. Neyðaraðstoðin hefur gengið vel og hættan á farsóttum, sem menn óttuðust mjög, virðist liðin hjá. Jan Egeland, yfirmaður neyðaraðstoðar Sþ, segir að ekki hafi orðið vart við farsóttir eða hungursneyð því tekist hafi að ná til fólksins hraðar en nokkur gat búist við. Fulltrúara landanna funduðu í dag með fulltrúum Sþ um hvernig fénu verði sem best varið. Einnig er lögð áhersla á að vanrækja ekki hjálparstörf og aðstoð á öðrum svæðum heimsins, eins og í Darfúrhéraði í Súdan og í Tsjetsjeníu. Áður hefur komið fyrir að þjóðir hafi heitið framlögum sem síðan voru aldrei greidd. PriceWaterhouseCoopers hefur verið fengið það verkefni að fylgja eftir loforðum um framlög og rannsaka allar ásakanir um svik, eyðslu eða misnotkun peninganna. Egeland segir að Sþ hafi ekki efni á að einhver vafi leiki á því hvort þetta fordæmislausa örlæti hundruð þúsunda manna, fyrirtækja og ríkisstjórna hafi verið nýtt á árangursríkan hátt.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira