Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ekki rætt um olíubrennslu Nemendum í meistaranámi í umhverfisfræði finnst lítið gert úr þeirri staðreynd að rafskautaverksmiðja á Grundartanga brennir sextíu tonnum af olíu á dag samkvæmt upphaflegu umhverfismati. Forsvarsmenn verksmiðjunnar ætla að draga meira en helming úr framleiðslunni vegna aðstæðna á markaði. 18.11.2004 00:01
SÞ myndu stofna rannsóknarnefnd Forðast ber hættuleg svæði. Þetta segir Steinar Berg Björnsson um atburðina í Kabúl fyrir nokkru. Hann hefur að líkindum meiri reynslu en nokkur annar Íslendingur af friðargæslu og segir að Sameinuðu þjóðirnar myndu stofna rannsóknarnefnd til að kanna hvað hafi gerst. 18.11.2004 00:01
Fái greitt búsetugjald mánaðarlega Nefnd á vegum Byggðastofnunar leggur til að íbúar í Árneshreppi fái mánaðarlega greitt sérstakt búsetugjald. Rafmagn verði niðurgreitt og sérstökum aflaheimildum úthlutað til hreppsins sem verður svo deilt á milli útgerðarmanna á svæðinu. 18.11.2004 00:01
Var vel tekið Það munaði minnstu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir yrði troðin undir, þegar hún heimsótti leikskólann Hof, í dag. Ráðherrann lét sér það vel líka. 18.11.2004 00:01
Ágreiningur um Íraksstríðið Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að vissulega sé ágreiningur milli Breta og Frakka um réttmæti Íraksstríðsins en það sé bara ágreiningur. 18.11.2004 00:01
Vill hreindýr vestur Skotveiðifélag Íslands vill að hreindýrastofninum á Austurlandi verði skipt í tvennt og hluti hreindýranna fluttur á Vestfirði eða í Barðastrandarsýslu. 18.11.2004 00:01
Fresta samræmdum prófum Samræmdum prófum 4. og 7. bekkja grunnskólanna hefur verið frestað fram í febrúar vegna verkfalls kennara. Prófa átti í íslensku og stærðfræði dagana 14. og 15. október. 18.11.2004 00:01
Neðanjarðarborg í Belgrad Neðanjarðarbyrgi tengd saman með leynigöngum hafa fundist í Belgrad, höfuðborg Serbíu-Svartfjallalands. Talið er að eftirlýstir stríðsglæpamenn hafi falið sig í byrgjunum, sem fjölmiðlar í Serbíu-Svartfjallalandi, hafa lýst sem "neðjanjarðarborg". 18.11.2004 00:01
Velja samning eða gerðardóm "Kennarar fara yfir samninginn í skugga þess að hafa fengið lög á kjaradeiluna," segir Ólafur Loftsson formaður Kennarafélags Reykjavíkur. 18.11.2004 00:01
Kennarar greiða samninginn sjálfir Kennarar íhuga hvernig þeir geta tjáð óánægju sína með nýjan kjarasamning án þess að fella hann og hann fari í gerðardóm, segir Hilmar Ingólfsson, skólastjóri Hofstaðaskóla í Garðabæ. Hann segir að litið sé á samninginn sem nauðungarsamning. 18.11.2004 00:01
Fjöldi árangurslausra fjárnáma Fjöldi árangurslausra fjárnáma hjá einstaklingum á árunum 2001 til 15. október 2004 var 17.336 Skipt milli kynja voru þau 12.508 hjá körlum, um 72 prósent af heildinni, en hjá konum 4.828 eða um 28 prósent. 18.11.2004 00:01
Gefur tóninn fyrir aðra Kjarasamningi kennara er fagnað hvarvetna í atvinnulífinu, það sé stöðugleiki í sjálfu sér að friður skapist um starf svo stórs launahóps. Verðbólgumarkmið Seðlabankans er þegar í hættu og margir telja að samningurinn bæti ekki úr skák. </font /></b /> 18.11.2004 00:01
Menn eiga að hlýða lögum Lög eiga að ganga jafnt yfir alla og allir eiga hlýða lögum, hvort sem um olíufursta eða kennara er að ræða. Verkfall kennara er bannað. Kennarar eiga að koma til vinnu. Annars gilda viðurlög samkvæmt lögum. </font /></b /> 17.11.2004 00:01
Áfellisdómur yfir ráðakonum Eftirvænting ríkti meðal foreldra og nemenda í Austurbæjarskólanum í Reykjavík í gærmorgun þegar foreldrar komu með sex, sjö og átta ára börn í skólann. Börnin biðu í ofvæni við hurðina að stofunni og foreldrar settust niður í fatahenginu og ræddu hljóðlega ástandið í skólamálunum. Margir höfðu hringt fyrr um morguninn til að kanna hvort kennsla færi fram, aðrir renndu blint í sjóinn og bara mættu. </font /></b /> 17.11.2004 00:01
Fundað fram yfir miðnætti Samningafundur kennara og sveitarstjórnarmanna hjá Ríkissáttasemjara, sem hófst klukkan tíu í gærmorgun, stóð fram yfir miðnætti. Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambandsins sagðist í viðtali við Fréttastofuna í morgun, hvorki vera bjartsýnn né svartsýnn á að samkomulag næðist fyrir helgi, en þá taka ákvæði laga um gerðardóm, gildi. 17.11.2004 00:01
40 árekstrar í dag Að minnsta kosti fjörutíu árkestrar urðu á höfuðborgarsvæðinu eftir að snjóa tók í gær. Flestir voru þeir minniháttar og ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í þeim. Snjóruðningstæki voru á þönum langt fram á kvöld og byrjuðu aftur snemma í morgun. Með morgninum fór að hvessa á höfuðborgarsvæðinu þannig að kóf verður í vindhviðum. 17.11.2004 00:01
Undrast lausagöngu Scott Ramsays Sú ákvörðun Sýslumannsins í Keflavík að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir Scott Ramsay sem játaði að hafa banað dönskum liðsforingja um síðustu helgi hefur vakið mikla athygli. Rannsóknarlögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu sem DV hefur rætt við segja það algert einsdæmi að maður sem gerst hefur sekur um slíka árás gangi laus strax að henni lokinni. 17.11.2004 00:01
Seltirningar fá 350 milljónir Tekjur Seltjarnarnesbæjar vegna sölu lands og bygginga á Hrólfskálamel og Suðurströnd verða 350 milljónum króna samkvæmt fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta ár. Tekjur aðalsjóðs sveitarfélagsins og stofnana þess eru áætlaðar 1.432 milljónir króna en gjöldin 1.254 milljónir. Hagnaðurinn er því áætlaður 177 milljónir króna. 17.11.2004 00:01
Átök út af áburði í Árbæjarlaug Fastagestir í morgunsundi í Árbæjarlauginni eru að yfirliði komnir út af áburði sem einn gestanna ber á sig í búningsklefanum. Gesturinn telur áburðinn allra meina bót en eigandi Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi þolir ekki lyktina og sparkaði í gestinn með hinn illa lyktandi áburð. 17.11.2004 00:01
Atlantis fundin fyrir strönd Kýpur Bandarískir vísindamenn telja sig hafa fundð hina týndu borg Atlantis úti fyrir strönd Kýpur. Samkvæmt sonar-mælingum þeirra virðast stór mannvirki vera á hafsbotninum milli Kýpur og Sýrlands. Vísindamennirnir segja að umfang mannvirkjanna og stærð þeirra passi við frásagnir Plató af borginni og konungdæminu. 17.11.2004 00:01
Varnarliðið fer ekki Colin Powell, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf það sterklega til kynna á hálftíma fundi með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra í Wasington í gær, að ekki kæmi til greina að að flytja allt varnarliðið héðan. Davíð sagði að fundurinn hafi verið góður og að framvinda mála væri komin í ákveðinn farveg. 17.11.2004 00:01
Reynir allt til að tryggja frið Mahmoud Abbas, sitjandi leiðtogi Palestínumanna, reynir nú allt til að semja við andstæðinga sína um að tryggja frið á svæðinu. Leiðtogar Hamas samtakanna funduðu í gær með Abbas og ræddu þá hvaða hlutverk íslamskir hópar muni hafa í framtíðarstjórn landsins. 17.11.2004 00:01
Bysumenn á þinginu í Ekvador Það hitnaði heldur betur í kolunum á þingi miðbaugsríkisins Ekvadors, þegar stuðningsmenn forsetans og andstæðingar tókust þar á og eldheitur stuðningsmaður forsetans dró upp byssu. Öryggisverðir urðu að skerast í leikinn og yfirbuga óeirðaseggina. 17.11.2004 00:01
Aðhaldsaðgerðir framundan? Sérfræðingar Greiningardeild Landsbankans túlka þá ákvörðun Seðlabankans að birta fimm mánaða gamla skýrslu fyrst núna, að bankinn sé að búa menn undir kröftugar aðhaldsaðgerðir í peningamálum á næstu misserum. 17.11.2004 00:01
Ný stöð hjá Atlantsolíu Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra ætlar að taka fyrstu skóflustungu að nýri bensínstöð Atlantsolíu við Sprengisand í Reykjavík í dag. Þetta verður fyrsta bensínstöð félagsins í Reykjavík og sú fyrsta af sex nýjum stöðvum, sem félagið ætlar að reisa víða um land á næstu misserum. 17.11.2004 00:01
Nýr meirihluti tekur við völdum Nýr bæjarstjórnarmeirihluti V-listans og Sjálfstæðisflokks tók formlega við völdum á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi eftir að meirihluti V-lista og Andrésar Sigmundssonar úr Framsóknarflokki klofnaði nýlega. Guðrún Erlingsdóttir hjá V-lista verður forseti bæjarstjórnar. 17.11.2004 00:01
Skjálftar við Grímsey Jarðskjálftahryna hófst austan við Grímsey í gærkvöldi og mældist stekasti skjálftinn 2,7 á Richter um miðja nótt. Síðan hefur dregið úr styrk skjálftanna og er hrynan líklega búin. Skjálftahrynur eru algengar á þessu svæði og boða ekki frekari tíðindi. 17.11.2004 00:01
Samþykkt að hækka útsvar Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að hækka útsvar upp í rúm 13 prósent og að hækka fasteignaskatt líka. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn báðum hækkununum og fulltrúi Frjálslynda flokksins gegn hækkun fasteignaskatts. 17.11.2004 00:01
Heimurinn hættulegri Heimurinn er hættulegri eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Chirac er væntanlegur í opinbera heimsókn til Bretlands á morgun, og sagði í viðtali við BBC meðal annars, að hann teldi engar líkur á að Bretar gætu miðlað málum á milli Frakka og Bandaríkjamanna. <font size="4"></font> 17.11.2004 00:01
Hassan líklega skotin til bana Allar líkur eru á því að konan, sem írakskir hryðjuverkamenn sjást skjóta til bana á myndbandsupptöku sem send var arabískri sjónvarpsstöð í gær, sé Margaret Hassan, yfirmaður CARE-mannúðarsamtakanna í Írak. Henni var rænt í síðasta mánuði og hún meðal annars neydd til að biðja sér griða á myndbandsupptöku. 17.11.2004 00:01
Hátíð með forsætisráðherra aflýst Félag löggiltra endurskoðenda þurfti að aflýsa árshátíð sinni um síðustu helgi. Áhugaleysi félagsmanna var ástæðan þó svo sjálfur forsætisráðherra hafi verið auglýstur ræðumaður kvöldsins. Halldór Ásgrímsson er sem kunnugt er menntaður endurskoðandi. Nánar í DV í dag. 17.11.2004 00:01
Dagur formaður skipulagsnefndar Dagur B. Eggertsson var í gær kjörinn formaður Skipulags og byggingarnefndar frá og með 1. desember. Hann tekur við af Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem lætur af formennsku þegar hún tekur við starfi borgarstjóra af Þórólfi Árnasyni. 17.11.2004 00:01
Flugeldasalar sæki um fyrir 10. desember Frestur til að sækja um tímabundið leyfi til smásölu flugelda rennur út 10. desember. Leyfi eru veitt að uppfylltum skilyrðum ákvæða vopnalaga og gildandi reglugerðar. Ströng skilyrði eru sett um húsnæði, tryggingar og geymslu flugeldanna. Sala hefst 28. desember og má standa til 6. janúar. Meðferð flugelda er einungis heimil á því sama tímabili. 17.11.2004 00:01
Skólahald orðið eðlilegt á ný Skólahald á Suðvesturlandi var með eðlilegum hætti í morgun eftir þá ákvörðun stjórna kennarafélaga og trúnaðarmanna grunnskólakennara í gær, að mæta aftur til vinnu. 17.11.2004 00:01
Rekstur Norrænu í kröggum Rekstur ferjunnar Norrænu er í kröggum og siglilngar hennar gefa Smyril Line of lítið í aðra hönd þannig að fyrirtækið leitar nú leiða til að sameinast Fjord Line í Noregi. Frá þessu er greint í færeyska útvarpinu og staðfestir blaðafulltrúi Smyril Line að svona sé komið. Rekstur ferjunnar yrði þá væntanlega stokkaður upp og leliðakerfið endurskoðað. 17.11.2004 00:01
Banameinið skorpulifur Banamein Jassirs Arafats, leiðtoga Palestínumanna, var skorpulifur. Franska dagblaðið Le Monde greinir frá þessu í dag. Alla jafna er skorpulifur rakin til ofneyslu áfengis, en Arafat er sagður hafa verið vatnsdrykkjumaður mikill. 17.11.2004 00:01
Viljayfirlýsing um þriðju stækkun Hitaveita Reykjavíkur og og Norðurál undirirtuðu í morgun viljayfirlýsingu um raforkuviðskipti vegna þriðju stækkunar álversins á Grundartanga, löngu áður en lokið er við stækkun númer tvö. 17.11.2004 00:01
Reiði og sorg í Írak Reiði og hneykslan ríkir í Írak í kjölfar þess að sýndar voru myndir af því þegar bandarískur hermaður skaut óvopnaðan, illa slasaðan Íraka til bana í Fallujah í gær. Fimm fórust og fimmtán slösuðust í bílsprengingu í morgun. 17.11.2004 00:01
Heimurinn hættulegri en áður Heimurinn er hættulegri en áður eftir Íraksstríðið, að mati Jacques Chiracs, forseta Frakklands. Hann segir stuðning Breta við stríðið engu hafa skilað. 17.11.2004 00:01
Fara hvergi Varnarliðið hverfur ekki héðan. Svo skilja íslenskir ráðamenn orð Colins Powells, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi með Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra í gær. 17.11.2004 00:01
Segja enn loforð hafa verið gefin Stjórnarformenn Olís og Essó halda fast í þær fullyrðingar sínar að fulltrúar Samkeppnisstofnunar hafi lofað að málinu yrði hvorki beint að einstaklingum né færi það í lögreglurannsókn. Það hafi verið forsenda þess að þeir hófu samstarf við Samkeppnistofnun um rannsókn á ólögmætu samráði olíufélaganna. 17.11.2004 00:01
Pattstaða á Dalvík Bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar hefur ekki enn getað komið sér saman um hvort hætta skuli rekstri Húsabakkaskóla eða ekki. Skiptar skoðanir eru um málið milli allra flokka í bæjarstjórn. 17.11.2004 00:01
Kjaradeila kennara að leysast Samningar í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga virðast í augsýn. Samninganefndir hafa setið á fundi hjá ríkissáttasemjara síðan klukkan níu í morgun og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur miðað vel í viðræðunum. Talið er að hugsanlega verði skrifað undir samninga í dag eða á morgun með þeim fyrirvara að þeir hljóta samþykki kennara og sveitarstjórna. 17.11.2004 00:01
Dollarinn lækkar enn Dollarinn er á hraðri niðurleið gagnvart bæði krónunni og Evru. Dollarinn er kominn niður fyrir 67 krónur íslenskar og hefur hann ekki verið lægri í fjölmörg ár. Þá hefur dollarinn aldrei verið lægri í samanburði við Evruna, síðan hún komst á laggirnar. 17.11.2004 00:01
Haldið upp á flauelsbyltingu Tékkar halda í dag upp á 15 ára afmæli flauelsbyltingarinnar svokölluðu, sem leiddi til þess að kommúnistar hrökkluðust frá völdum í gömlu Tékkóslóvakíu. Þann 17. nóvember árið 1989 braut lögregla á bak aftur mótmælaaðgerðir þúsunda stúdenta á götum úti í Prag, sem leiddi til frekari mótmæla og á endanum til falls kommúnista í Tékklandi. 17.11.2004 00:01