Innlent

Nýr meirihluti tekur við völdum

Nýr bæjarstjórnarmeirihluti V-listans og Sjálfstæðisflokks tók formlega við völdum á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum í gærkvöldi eftir að meirihluti V-lista og Andrésar Sigmundssonar úr Framsóknarflokki klofnaði nýlega. Guðrún Erlingsdóttir hjá V-lista verður forseti bæjarstjórnar. Andrés Sigmundsson lét bóka á fundinum að hann lýsti ábyrgð á hendur Lúðvík Bergvinssyni, á því að fyrri meirihluti féll og óskaði eftir sæti í bæjarráði sem áheyrnarfulltrúi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×