Innlent

Jarðskjálftamælum komið fyrir

Veðurstofa Íslands er að beiðni Landsvirkjunar að setja upp þrjá nýja jarðskjálftamæla við Kárahnjúka og er það gert til að fylgjast með virkni áður en og á meðan fyllt er í lón virkjunarinnar. Hingað til hefur virkni verið lítil á svæðinu, en hjá Veðurstofunni fengust þó þær upplýsingar að ekki sé víst að öll virkni hafi verið numin vegna þess hve mælanet stofnunarinnar sé gisið á þessum slóðum. Vonir standa til að gögn frá nýju mælunum taki að berast eftir um tvær vikur þegar tölvubúnaði hefur verið komið fyrir. "Vegna þess hve lónið er hátt og djúpt má alltaf búast við að einhverjar hræringar verði þegar fyllt verður í það," segir Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Kárahnjúkavirkjunar. "Síðan verða settir upp frekari mælar en það gerum við á öllum virkjanasvæðum." Sigurður segir að Kárahnjúkastíflan standi utan við mestu skjálftasvæði þó þarna geti vissulega orðið jarðskjálftar. "Öll þessi mannvirki eru hönnuð til að þola meira en jarðskjálfta sem mestir geta orðið á hverju svæði," segir hann og bætir við að stífla eins og við Kárahnjúka þyki hvað öruggust af öllum með tilliti til jarðskjálfta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×