Innlent

Vilja línuívilnun burt

Aðalfundur LÍÚ, sem haldinn er í Reykjavík og lýkur í dag. skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að línuívilnun verði afnumin. Í samþykktinni segir að Línuívilnun feli í sér grófa mismunun þar sem einum útgerðarflokki séu veittar auknar veiðiheimildir á kostnað annarra. Ívilnun til línubáta hafi leitt til þess að veiðiheimildir annarra hafi verið skertar um meira en 5000 tonn í þorski, ýsu og steinbít. Mismunun af þessu tagi samrýmist ekki hugmyndum um jafnræði og því að almennar reglur gildi um starfsemi þegnanna. Aðalfundur LÍÚ skorar einnig á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að veiðigjald verði fellt úr gildi, og að beita sér fyrir því að lögum um stjórn fiskveiði verði breytt þannig að heimild til framsals aflamarks og aflahlutdeildar frá skipum í aflamarkskerfi til skipa í krókaaflamarkskerfi verði afnumin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×