Innlent

Einn alvarlega slasaður

Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar fólksbíll, jeppi og fóðurflutningabíll rákust saman skammt ofan við Litlu Kaffistofuna í morgun. Hinir slösuðu voru fluttir á slysadeild Landsspítalans og er annar þeirra alvarlega slasaður. Fóðurbíllinn var með fullfermi og lokaði hann veginum. Opnuð var hjáleið um gamla Kolviðarhólsveginn tímabundið, en rétt fyrir hádegi var vegurinn opnaður á ný.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×