Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Davíð til starfa Hætt er við að þingstörf lamist að verulegu leyti í komandi viku, þótt þingfundur sé fyrirhugaður á þriðjudag, vegna setu 16 þingmanna og ráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi. 29.10.2004 00:01
Úr bakherberginu Kurr í Hafnarfjarðar-krötum Hugmyndir framtíðarhóps Samfylkingarinnar um einkavæðingu í skólum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum flokksmönnum. Guðmundur Árni Stefánsson og Lúðvík Geirsson leiðtogar flokksins í Hafnarfirði eru þannig ekki ánægðir með að opnað sé á Áslands-skóla-ástand eins og einn flokksmaður orðaði það. 29.10.2004 00:01
Vetrarfríi grunnskólanna aflýst Vetrarfríi grunnskólanna í Reykavík, sem átti að hefjast á miðvikudaginn og standa út vikuna, verður aflýst. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi fræðslunefndar borgarinnar í gær. 29.10.2004 00:01
Hæfilega bjartsýnn Ríkissáttasemjari segist hæfilega bjartsýnn á að miðlunartillagan sem hann lagði fram aðfaranótt föstudags verði samþykkt. 29.10.2004 00:01
Miðlunartillaga er neyðarúrræði Miðlunartillaga er ekki lög fram nema samningsaðilar telji að aðrar leiðir hafi verið reyndar til þrautar. Samkvæmt upplýsingum frá Alþýðusambandi Íslands hefur ríkissáttasemjari lagt fram miðlunartillögu í nokkur skipti. Til dæmis var lögð fram slík tillaga í deilu verslunarmanna árið 1988. 29.10.2004 00:01
Enginn þrýstingur á félagsmenn Miðlunartillagan leiðréttir ekki kjör kennara á þann hátt sem samninganefnd Kennnarasambands Íslands vonaðist eftir að sögn Eiríks Jónssonar, formanns sambandsins. 29.10.2004 00:01
Samþykktin berst seint Formenn allra svæðafélaga kennara á höfuðborgarsvæðinu samþykktu einróma á fundi á fimmtudagskvöldið að ef miðlunartillaga kæmi fram skyldi verkfalli ekki frestað heldur gengið til atkvæða um hana eins fljótt og mögulegt væri. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. 29.10.2004 00:01
Hópur kennara vill fella tillöguna Ólga er meðal stórs hóps kennara sem beinlínis vinnur gegn miðlunartillögu ríkissáttasemjara og vill fella hana. Samkvæmt viðmælundum Fréttablaðsins telur þessi hópur tillöguna vera hreina móðgun við stéttina og kjarabaráttuna sem hún hefur staðið í undanfarnar sex vikur. 29.10.2004 00:01
Laun kennara hækka um 16,5% Miðlunartillaga ríkissáttasemara er á svipuðum nótum og innanhússtillagan sem hann lagði fram á föstudaginn fyrir viku síðan. Kostnaðarhækkun sveitarfélaganna vegna miðlunartillögunnar er rétt rúmlega 26 prósent en var tæplega 26 prósent samkvæmt innanhússtillögunni. 29.10.2004 00:01
Samsæri gegn neytendum Ólöglegt samráð olíufélaganna er samsæri gegn atvinnulífinu og neytendum, segir forstjóri Samkeppnisstofnunar. Samkeppnisráð hefur sektað olíufélögin um tvö komma sex milljarða króna fyrir ólöglegt samráð, en talið er að samfélagslegur skaði vegna brota þeirra nemi um fjörutíu milljörðum króna. Olíufélögin ætla að áfrýja niðurstöðunni. 29.10.2004 00:01
Kennarar ekki á eitt sáttir Verkfall grunnskólakennara hefur verið blásið af. Miðlunartillaga er á leið til allra grunnskólakennara landsins. Forsætisráðherra segist sannfærður um að kennarar muni samþykkja tillöguna, en trúnaðarmenn kennara efast. Kennarar fóru fram á rausnarlega eingreiðslu á fundi Fræðsluráðs í dag til að geta endurskoðað kennsluáætlanir að afloknu verkfalli. 29.10.2004 00:01
Vetrarfrí lagt niður Fræðsluráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að leggja niður vetrarfrí, sem átti að hefjast í næstu viku, þannig að skólastarf yrði með eðlilegum hætti. Formaður Félags grunnskólakennara segir að kennsla í vetrarfríinu kalli á yfirvinnugreiðslu til kennara. 29.10.2004 00:01
Komnir heim Íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sprengjárás í Kabúl um síðustu helgi komu heim í dag. Þeir tjá sig ekki um gagnrýni á yfirmann þeirra. 29.10.2004 00:01
2,6 milljarða sekt fyrir samráð Olíufélögin Essó, Skeljungur og Olís þurfa að greiða 2,6 milljarða króna sektir vegna langvarandi og skipulagðs samráðs um verðlagningu, gerð tilboða og skiptingu markaða. Samkeppnisráð komst að þessari niðurstöðu á fimmtudag. Lögbrotin stóðu yfir í að minnsta kosti níu ár og áætlar Samkeppnisstofnun að samfélagsskaði af þeim nemi yfir 40 milljörðum króna. Olíufélögin þrjú ætla að áfrýja niðurstöðunni til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. 29.10.2004 00:01
Um 500 dæmi um samráð Með ákvörðun samkeppnisráðs um ólögmætt samráð olíufélaganna lauk umfangsmestu rannsókn sem samkeppnisyfirvöld hafa tekist á hendur. Hún hófst með húsleit í aðalskrifstofum olíufélaganna þann 18. desember 2001, eftir að Samkeppnisstofnun fékk vísbendingu um að ýmis háttsemi félaganna stangaðist á við samkeppnislög. 29.10.2004 00:01
Kristinn sló tóninn Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, setti fyrstur fram það viðhorf að ekki væri æskilegt að stunda of harða samkeppni á olíumarkaðnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu samkeppnisráðs. Skömmu eftir að Kristinn tók við sem forstjóri um mitt ár 1990, sló hann þann tón sem að mati ráðsins einkenndi alla samkeppni á olíumarkaði í rúman áratug þar á eftir. 29.10.2004 00:01
Skeljungur fær ekki afslátt Olíufélögin þrjú buðu öll Samkeppnisstofnun aðstoð við að ljúka rannsókn verðsamráðsins. Stjórnarmenn Essó riðu á vaðið nokkrum mánuðum eftir húsleit Samkeppnisstofnunar í húsakynnum olíufélaganna árið 2001. Í kjölfarið óskuðu Olís og Skeljungur einnig eftir að veita aðstoð. 29.10.2004 00:01
Ánægja með lok rannsóknar Ólöglegt samráð verður ekki látið viðgangast að sögn Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Hún segist vera ánægð með að rannsókn Samkeppnisstofnunar skuli vera lokið. "Þarna hefur verið sannað að ólöglegt samráð var haft milli fyrirtækja. Enda hafa fyrirtækin sjálf viðurkennt það." 29.10.2004 00:01
Borgarstjóri í samráði Fram kemur í niðurstöðu samkeppnisráðs um verðsamráð olíufélaganna, að Þórólfur Árnason borgarstjóri hafi í starfi sínu sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Essó átt þátt í samráði félaganna þegar þau buðu í olíusölu til Reykjavíkurborgar árið 1996. 29.10.2004 00:01
Niðurstaðan í marga staði gölluð "Það eru lagaleg atriði í ákvörðun ráðsins sem þarfnast útskýringa og svo teljum við sönnunarkröfur engan veginn uppfylltar," segir Hörður Felix Harðarson, lögmaður Skeljungs. "Við töldum að ekki hefði verið gætt að andmælarétti og auk þess séu meint brot orðin fyrnd. Á þetta var hins vegar ekki fallist." 29.10.2004 00:01
Rannveig forseti Íslandsdeild Norðurlandaráðs hefur tilnefnt Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar, í embætti forseta Norðurlandaráðs, en þing ráðsins hefst í Stokkhólmi á morgun. Rannveig segist ætla að beita sér fyrir mannréttinda- og félagsmálum. 29.10.2004 00:01
Ekkert samræmt kosningakerfi Ekkert samræmt kosningakerfi er við lýði í Bandaríkjunum og hverju ríki er í sjálfsvald sett hvernig það hagar framkvæmd kosninga. Þar sem mjótt er á mununum í mörgum ríkjum er óttast að sama klúðrið setji svip sinn á þessar kosningar og þær síðustu. 29.10.2004 00:01
Óvíst hvort hún tekur gildi Óvíst er hvort hin nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins, sem undirrituð var með mikilli viðhöfn í morgun, tekur nokkurn tíma gildi. Bæði Bretar og Danir eru líklegir til að fella málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. 29.10.2004 00:01
Voru að hlýða skipunum Íslensku friðargæsluliðarnir þrír sem slösuðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl sögðust hafa verið að hlýða skipunum er þeir stóðu vörð um teppabúð sem yfirmaður þeirra var að versla í. Þremenningarnir komu heim í gær. </font /></b /> 29.10.2004 00:01
Undirritun í skugga óvissu Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins undirrituðu stjórnarskrá Evrópusambandsins í Róm í gær. Undirskriftin þýðir þó ekki að allt sé afstaðið því í það minnsta níu aðildarríkjanna ætla að bera stjórnarskrána undir þjóðaratkvæði. 29.10.2004 00:01
Myrti tíu í erfidrykkju Kínversk ekkja sem myrti tíu gesti í erfidrykkju eiginmanns síns hefur verið tekin af lífi. Konan eitraði fyrir gestunum með rottueitri sem hún blandaði út í mat sem hún bauð upp á. 23 til viðbótar veiktust en hafa jafnað sig, yngstur þeirra sem lifðu eitrunina af var þriggja ára drengur. 29.10.2004 00:01
Halliburton aftur í kastljósið Bandaríska stórfyrirtækið Halliburton og tengsl þess við Bandaríkjastjórn eru í brennidepli eftir að bandaríska alríkislögreglan, FBI, hóf rannsókn á úthlutun verkefna í Írak til félagsins án útboðs til að athuga hvort glæpsamlegt athæfi hefði átt sér stað. Rannsóknin snýst að sögn lögreglu ekki að neinum sem starfar í Hvíta húsinu. 29.10.2004 00:01
Innbyggt vantraust Ein helsta ástæðan fyrir því hversu illa Bandaríkjamönnum hefur gengið að koma upp kosningakerfi sem virkar er sterk viðleitni ríkis- og sveitarstjórna á hverjum stað til að ráða sjálf sínum málum, segir Michael T. Corgan, prófessor í flotafræðum og stjórnmálafræði við háskólann í Boston í Massachusetts. 29.10.2004 00:01
Í hlutverki spellvirkjans Michael Badnarik, forsetaefni Frjálshyggjuflokksins, gerir sér ekki vonir um að hafa sigur í einu einasta ríki Bandaríkjanna á kjördag. Hann og stuðningsmenn hans vona hins vegar að þeir geti haft áhrif á úrslitin í tveimur ríkjum þar sem svo litlu munar á George W. Bush og John Kerry að fá atkvæði geta ráðið úrslitum. 29.10.2004 00:01
Á suðupunkti í Flórída Í Flórída er heitt í kolunum vegna klúðurs sem hefur orðið í framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu og ásakana fulltrúa beggja stóru flokkanna í hvors annars garðs. 29.10.2004 00:01
Baráttan nær til Hawaii Íbúar Hawaii upplifa nú nokkuð sem þeir eru ekki vanir þegar forsetakosningar eru annars vegar, nefnilega það að kosningastjórnir forsetaefnanna senda menn til að vinna þá á sitt band. 29.10.2004 00:01
Vísitalan mælir gegn Bush George W. Bush Bandaríkjaforseti nær ekki endurkjöri ef marka má kenningu Jeffrey Hirsch, útgefanda Stock Traders Almanac. Hann segir að þegar Dow Jones vísitalan lækkar um hálft prósent eða meira frá lokum september til kjördags nái forsetinn ekki endurkjöri, nú hefur hún lækkað um 0,75 prósent. 29.10.2004 00:01
Rannsókn að ljúka Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir að nuddstofan sem auglýsi erótískt nudd hefði verið undir rannsókn á þeim forsendum að þar væri stundað vændi. Rætt var við á annan tug viðskiptavina, auk starfsmanna. 29.10.2004 00:01
Keyrt á vörubíl Umferðarslys varð á Ólafsfjarðarvegi í gær þegar fólksbíll, á leið norður fór á rangan vegarhelming og ók framan á vörubíl. 29.10.2004 00:01
Arafat við dauðans dyr? Óttast er að Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu, sé við dauðans dyr eftir að hann hné niður í gær og missti meðvitund um tíma. Þúsundir manna fjölmenntu fyrir utan heimili hans í gær. Vitað er að Arafat hefur átt við alvarleg veikindi að stríða að undanförnu en embættismenn í Palestínu neita enn að staðfesta að ástand hans sé tvísýnt. 28.10.2004 00:01
Ný drög að sáttatillögu Forystumenn samninganefnda kennara og sveitarfélaga hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara fyrir hádegi og samninganefndirnar í heild hafa svo verið boðaðar til sáttasemjara síðar í dag. 28.10.2004 00:01
Snarpur jarðskjálfti í Rúmeníu Snarpur jarðskjálfti varð í Rúmeníu í gærkvöldi. Skjálftinn mældist 5,8 á Richter. Skjálftans varð víða vart í landinu og einnig í Tyrklandi, Moldavíu og Úkraínu. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni en upptök skjálftans voru í Vrancea sem eru 175 kílómetra norðaustur af Búkarest. 28.10.2004 00:01
Þrír slasaðir eftir bílveltu Þrír voru fluttir slasaðir á slysadeild eftir að bíll þeirra valt út af Reykjanesbraut í Kúagerði um klukkan fimm í morgun. Engin þeirra er í lífshættu. Einn var fastur í bílflakinu og þurftu björgunarmenn að beita klippum til að ná honum út. 28.10.2004 00:01
Kveikt í gámum við Sorpu Eldur var kveiktur í tveimur gámum í gámastöð Sorpu við Sævarhöfða upp úr miðnætti í nótt. Logaði glatt í hjólbörðum og rúmdínum þegar slökkvilið kom á vettvang. Slökkviliðsmenn heftu frekari útbreiðslu eldsins og slökktu hann. Brennuvargurinn er ófundinn. 28.10.2004 00:01
Ríkisstjórn Lettlands segir af sér Ríkisstjórn Lettlands, sem var minnihlutastjórn, sagði af sér í morgun eftir að þingið hafnaði fjárlagafrumvarpi hennar fyrir næsta ár. Stjórnin, sem mynduð var í mars, hefur átt undir högg að sækja og í september tókst henni naumlega að verjast vantrauststillögu. 28.10.2004 00:01
Tunglmyrkvinn sást víða Tunglmyrkvinn sást vel víðast hvar á landinu í nótt en skyggni tók að versna á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan tvö í nótt þegar sjálfur almyrkvinn var að hefjast. Hann sást hins vegar vel víða á landinu. 28.10.2004 00:01
Kosningastarfsmönnum rænt í Kabúl Þremur erlendum kosningastarfsmönnum var rænt í Kabúl í Afganistan í morgun að sögn yfirvalda þar í landi. Starfsmennirnir eru frá Bretlandi, Kosovo og Filippseyjum og er um að ræða tvær konur og einn karlmann. 28.10.2004 00:01
Barroso dregur í land Jose Manuel Barroso, tilvonandi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, virðist að nokkru leyti ætla að draga í land með val sitt á framkvæmdastjórn sambandsins vegna þrýstings víða að. 28.10.2004 00:01
58 þúsund atkvæði týnd? Fimmtíu og átta þúsund utankjörfundartkvæða í Flórída er saknað. Af 60 þúsund greiddum atkvæðum hafa aðeins tvö þúsund skilað sér og segja yfirmenn póstsins í Flórída að það sé hreinlega útilokað að heil 58 þúsund atkvæði hafi týnst og því virðist sem eitthvað gruggugt sé á seyði. 28.10.2004 00:01
Ástand Arafats enn alvarlegt Enn er óttast um heilsu Jassers Arafats, leiðtoga Palestínu, sem er ásamt fjölskyldu sinni, fjölda lækna og embættismanna á heimili sínu á Vesturbakkanum. Arafat fór þó til messu í morgun en var afar veikburða að sögn sjónarvotta. 28.10.2004 00:01