Fleiri fréttir

Segja Írönum að hætta auðgun úrans

Íranar verða að hætta starfsemi sinni sem miðar að því að auðga úran fyrir haustið ef þeir vilja vera öruggir um að máli þeirra verði ekki vísað til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna samkvæmt samþykkt Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar.

Októberhátíð sett í 171. skipti

Íklæddur hinum hefðbundnu hnésíðu leðurbuxum setti Christian Ude, borgarstjóri í München, októberhátíðina sem er nú haldin í 171. skipti. Um hálf milljón manna var við setningu hátíðarinnar og viðburði fyrsta dags þessarar hálfs mánaðar löngu uppákomu en alls er gert ráð fyrir að sex milljónir gesta víðs vegar að úr heiminum sæki hátíðina.

Keppa um völdin

Harðlínuþjóðernissinnar og umbótasinnar sem vilja aukin samskipti við Vesturlönd takast á um völdin í sveitarstjórnarkosningum sem fara fram í Serbíu í dag. Umbótasinnar eru taldir líklegir til að halda völdum í höfuðborginni Belgrad en þjóðernissinnum er spáð sigri á landsbyggðinni.

Hringdi í eigin útför

Dóttir Dane Squires fékk taugaáfall þegar faðir hennar hringdi í hana. Hún var þá stödd í útför þar sem ættingjarnir töldu sig vera að kveðja Squires í hinsta sinn.

Stórbruni í Ólafsvík

Fiskverkunarhúsið Klumba í Ólafsvík brann til kaldra kola í fyrrinótt. Talið er að tjónið nemi um 100 milljónum króna. Um 25 manns unnu hjá vinnslunni. Ævar Sveinsson, rekstrarstjóri Klumbu, segir brunann áfall.

Í fallhlífastökk á níræðisaldri

Á annan tug fyrrverandi fallhlífahermanna, sem flestir eru komnir á níræðisaldurinn, stökk úr flugvél og sveif til jarðar nærri Arnhem í Hollandi í fallhlíf til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá orrustunni um Arnhem. Orrustan var hluti af tilraun Breta til að ná nokkrum brúm yfir fljótin Maas, Rín og Waal á sitt vald. Tilraunin mistókst.

Refsiaðgerðum hótað

Súdönsk stjórnvöld verða að binda enda á árásir arabískra vígasveita á þeldökka íbúa Darfur-héraðs í Súdan eða vera viðbúin því að vera beitt refsiaðgerðum. Þannig hljómar samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var með ellefu atkvæðum, en fjögur ríki sátu hjá við afgreiðsluna.

Danska þjóðin undrandi

Danska þjóðin er undrandi á fréttum um skilnað Jóakims Danaprins og Alexöndru, eiginkonu hans. Danir hafa tekið Alexöndru opnum örmum og hjónabandið, sem varað hefur í níu ár, hefur þótt vera hamingjuríkt.

Merki berast frá hrefnum

Merki eru farin að berast frá tveimur hrefnum af fimm sem gervihnattasendar voru settir á í því skyni á fylgjast með ferðum þeirra.

Lyfjaauglýsingar stöðvaðar

Lyfjastofnun hefur stöðvað sjónvarpsauglýsingar frá lyfjafyrirtækinu Glaxo-Smith-Kline um bólusetningar. Einungis er heimilt að auglýsa lausasölulyf, en þó skiptir máli í hvaða miðlum slíkar auglýsingar eru birtar.

Umferðarmet í Ártúnsbrekku

Nýtt umferðarmet hefur verið slegið á fjölförnustu götu landsins, Ártúnsbrekku. Um áttatíu og fimm þúsund bílar hafa ekið hana á einum sólarhring. Meðalhraði í götunni er talsvert yfir löglegum mörkum.

Íslenska óperan gefur blóð

Blóðsúthellingar eru áberandi í óperutryllinum um Sweeney Todd sem Íslenska óperan frumsýnir í byrjun október. Söngvarar óperunnar vildu ekki láta sitt gæðablóð fara til spillis á sýningunum og heimsóttu Blóðbankann í dag.

Basayev ber ábyrgðina

Tétésneski skæruliðaforinginn, Shamil Basayev, hefur lýst ábyrgð á hendur sér á hryðjuverkunum í skólanum Beslan í Rússlandi, þar sem 320 fórust. Þetta kemur fram á heimasíðu hóps téténeskra uppreisnarmanna.

Tjón á kornökrum

Mikið tjón varð víða á kornökrum á Suðurlandi í óveðrinu í fyrrinótt, einkum í uppsveitum. Þar eru dæmi um að bændur hafi misst allt að helming uppskerunnar þar sem þroskuð öxin fuku hreinlega út í buskann.

20 látnir eftir Ivan

Að minnsta kosti tuttugu manns létust þegar fellibylurinn Ivan gekk yfir suðurströnd Bandaríkjanna í gær. Fellibylurinn olli þó minni skaða en óttast hafði verið. Vindhraði Ivans var tvö hundruð og níu kílómetrar á klukkustund. Til samanburðar komst vindhraðinn í kviðum upp í 180 kílómetra þegar illviðrið gekk yfir sunnanvert Ísland í fyrrinótt.

Samþykkt að selja í Eyjum

Meirihluti bæjastjórnar í Vestmannaeyjum samþykkti á fundi sínum undir miðnætti að selja átta fasteignir bæjarins, sem meðal annars hýsa skóla og íþróttafélög, og leigja þau aftur af kaupandanum til þrjátíu ára.

Öryggi breska þingsins í molum

Enn eitt örygishneykslið skekur nú breska þingið, aðeins sólarhring eftir að nokkrir andmælendur refaveiðibannsins, sem samþykkt var á þinginu í gær, tókst að ryðjast þar alveg inn á gafl í mótmælaskyni. Nú upplýsir hasarblaðið Sun að það hafi laumað þjóni inn í þjónalið þingsins á fölsuðum pappírum.

Fundað fram á nótt

Samningafundur í deilu kennara við sveitarstjórnir stóð langt fram á nótt í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Ekki er ljóst hverjar lyktir fundarins urðu eða hvert verður framhald viðræðnanna. Boðað verkfall kennara kemur til framkvæmdar á mánudagsmorgun, náist ekki samkomulag um helgina.

13 fórust í Írak í morgun

Þrettán fórust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í morgun og tuttugu særðust. Talsmaður heilbrigðisráðuneytisins í Bagdad segir ástæðu til að óttast að talan muni hækka, þar sem sprengjan hafi verið mjög öflug. Bíl var ekið upp að eftirlitsstöð lögreglunnar í miðborg Bagdad-borgar og bifreiðin sprengd í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum.

Svíar óhræddir við veikindafrí

Svíar telja það í góðu lagi að taka sér veikindafrí frá vinnu vakni þeir þreyttir og leiðir, samkvæmt nýrri rannsókn. Sextíu og fimm prósent þeirra telja streytu í vinnu góða ástæðu og fjörutíu og eitt prósent telur deilur við yfirmann eða samstarfsfélaga nægja til að taka sér veikindafrí. Félagsmálayfirvöld eru ekki á sama máli og hyggjast því hefja herferð til að fræða almenning um hvenær megi, lögum og reglum samkvæmt, taka sér veikindafrí

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni, sem var handtekinn í Leifsstöð snemma sumars með eitt kíló af amfetamíni og eitt kíló af kókaíni í fórum sínum, til 3. nóvember, eða þar til dómur gengur í máli hans. Þetta er í fjórða skipti sem gæsluvarðhaldsúrskurður er framlengdur yfir honum.

Tilkynning frá Vísi

Vegna tæknilegra vandkvæða hafa verið örðugleikar við að halda Vísi gangandi. Ekki liggur fyrir hver ástæðan er en unnið er að viðgerð. Óvíst er hvenær henni lýkur en vandræðin gætu varað fram eftir degi í dag, föstudag.

Hrópað á Lauru

Móðir bandarísks hermanns sem lést í átökum í Írak var handtekin í gær fyrir að trufla ræðu Lauru Bush, eiginkonu Georgs Bandaríkjaforseta. Konan, íklædd stuttermabol með áletruninni: „Bush forseti: Þú drapst son minn," hrópaði spurningum að Lauru þar sem hélt ræðu á kosningafundi í New Yersey.

Verðbólga hærri hér en í Evrópu

Verðbólga, mæld með vísitölu neysluverðs, hefur verið mun meiri hér á landi síðastliðna tólf mánuði en að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu. Samræmd neysluvísitala í ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins hækkaði um 0,2% í ágúst frá mánuðinum á undan en lækkaði hér á landi um 0,2% á sama tíma.

Harry heldur uppi merkjum Díönu

Harry Bretaprins segist vilja halda áfram góðgerðastarfinu sem móðir hans lagði mikla áherslu á. Hann segist ekki vilja reyna að fylla skarðið sem brotthvarf hennar olli, það geti enginn gert. Hann vill hins vegar gera sitt í von um að móðir hans geti verið stollt af honum.

Kajakmenn heim á ný

Kajakræðrarnir fjórir, sem lentu í sjávarháska við Austurströnd Grænlands í fyrradag, eru væntanlegir til landsins í kvöld, nokkrum dögum fyrr en áætlað var. Þeir komast með leiguflugi Flugfélags Íslands frá Narsarsuak til Reykjavíkur.

Ólgunni linnir ekki í Írak

Blóðsúthellingarnar halda áfram í Írak. Undanfarinn sólarhring hafa um hundrað manns fallið í bardögum og hryðjuverkaárásum. Í skýrslu Bandaríkjastjórnar, sem hulunni hefur verið svipt af, er varað við hættunni á borgarastríði og dregið í efa að lýðræði í Írak sé raunhæft á næstunni. .

Enn einn fellibylurinn af stað

Enn einn fellibylurinn veldur nú usla í Karíbahafinu. Fellibylurinn Jeanne hefur þegar valdið dauðsföllum í Dóminíska lýðveldinu, og bylurinn Ívan kostaði tuttugu manns lífið á suðurströnd Bandaríkjanna.

Breska þingið er skotmark

Talsmaður breska þingsins upplýsti í morgun að leyniþjónustan hefði vitneskju um það að breska þignið væri skotmark Al Qaeda hryðjuverkasamtakanna. Þessi yfirlýsing kemur á afar viðkvæmum tímapunkti þar sem nú er áþreifanlega ljóst að öryggismál þingsins eru í rusli.

Atlantsolía brátt til Reykjavíkur

Atlantsolía stefnir að því að fyrsta bensínstöð félagsins í Reykjavík geti tekið til starfa fyrir áramót, eftir að Borgarráð samþykkti í gær skipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir sjálfsafgreiðslustöð við Bústaðaveg, á móts við Sprengisand.

2 mánuðir fyrir dráttarspilsstuld

Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tekið dráttarspil af jeppa ófrjálsri hendi og selt það. Fyrir dómi bar sakborningur að hann hafi átt í deilum við eiganda spilsins vegna ógreiddra vinnulauna af hans hendi, og hótað að taka spilið

Svíar oft veikir

Svíar taka sér veikindafrí, vakni þeir þreyttir og leiðir. Raunar virðist þeim finnast hvaða afsökun sem er duga, samkvæmt nýrri rannsókn. Yfirvöld telja rétt að bregðast við þessum með fræðsluherferð.

Minnihlutinn kærir

Minnihluti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum ætlar að kæra til félagsmálaráðherra þær samþykktir sem meirihlutinn gerði á umdeildum fundi sínum undir miðnætti, um sölu á nokkrum helstu fasteignum bæjarins.

Verkfalli mótmælt

Mótmælastaða foreldra grunnskólabarna hófst á Austurvelli nú klukkan tólf. Með henni eru foreldrar að mótmæla fyrirhuguðu kennararverkfalli og knýja á um lausn í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla segir að verkfall geti haft afdrifaríkar afleiðingar.

Áframhaldandi veiðibanni mótmælt

Áframhaldandi rjúpnaveiðibann gæti haft alvarleg áhrif á aðra dýrastofna, og leitt til óhóflegrar veiði, og dýrmætu veiðikortakerfi yrði stefnt í hættu. Þetta kom fram á fjölmennum fundi Skotveiðifélags Íslands um rjúpuna, sem haldinn var í Norræna húsinu í gærkvöldi.

Bush gagnrýnir heilbrigðisáform

George Bush, Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt hugmyndir John Kerrys í heilbrigðismálum, sem hann segir þunglamalegar og allt of miðstýrðar. Hann segir að sjálfur búi hann yfir einföldum hugmyndum sem eigi að gera það að verkum að hágæða heilbrigðisþjóunsta verði viðráðanleg fyrir alla

Leigubílstjóri slóst við farþega

Leigubílstjóri á Sauðárkróki hefur kært tvítugan viðskiptavin fyrir líkamsrárás. Sjálfur segist pilturinn, sem var ofurölvi, íhuga að leggja fram kæru á hendur bílstjóranum fyrir það sama.

Kári kynbætir íslenska hesta

Heimur íslenskrar hestamennsku titrar vegna frétta um að Kári Stefánsson sé kominn á fullt í sportið. Hefur Kári þegar keypt upp nokkrar af ættstærstu hryssum landsins og stefnir í áður óþekktar kynbætur á íslenska hestinum með sérfræðiþekkingu sína í erfðafræði að vopni. Nánar í DV í dag.

Tvö ný nöfn á lista ársins

Alþjóðleg nefnd velur nöfn og viðheldur listum yfir heiti fellibylja í Atlantshafi. Svipað fyrirkomulag er haft víða um heim til að halda utan um nöfn fellibylja. Hætt er að nota nöfn mikilla skaðræðisbylja og ný valin í staðinn. Á eftir Ívani kemur til dæmis Jóna.

Símaviðtöl lækna þunglyndi

Símaviðtöl geta bætt líðan þunglyndra samkvæmt nýrri rannsókn lækna í Seattle í Bandaríkjunum. Í rannsókninni, sem náði til 600 þunglyndra einstaklinga af báðum kynjum, var staðalaðri hugrænni atferlismeðferð beitt í 30-40 mínútur með reglulegu millibili í 18 mánuði.

Léleg mæting

Einungis um tuttugu foreldrar mættu á Austurvöll í hádeginu til þess að mótmæla fyrirhuguðu verkfalli grunnskólakennara. Anna María Proppé, framkvæmdastjóra Heimilis og skóla, segir þessa litlu þátttöku vera vonbrigði, en vonast til að fleiri taki þátt í samskonar mótmælum

Áskorun nemenda í Hafnarfirði

Hópur nemenda í Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði hefur hafið undirskriftasöfnun meðal nemenda í unglingadeildum gunnskóla Hafnarfjarðar, þar sem skorað er á samninganefndir grunnskólakennara og sambands sveitarfélaga að ná samkomulagi, svo koma megi í veg fyrir kennaraverkfall.

Umsögn Hæstaréttar afhent

Dómsmálaráðherra verður afhent í dag umsögn Hæstaréttar á hæfi og hæfni umsækjenda um embætti hæstaréttardómara, að sögn Þorsteinn A. Jónssonar, skrifstofustjóra réttarins. Sjö sóttu um stöðu hæstaréttardómara, í stað Péturs Kr. Hafstein, sem lætur af embætti um næstu mánaðamót, en umsóknarfrestur rann út í lok síðasta mánaðar.

Íslandsbanki selur í Straumi

Íslandsbanki seldi í dag rúmlega 8% hlut í fjárfestingarbankanum Straumi, en alls voru seldar 333 milljónir á nafnvirði, eða sem nemur um 2,8 milljörðum króna. Hlutirnir voru annars vegar seldir félagi í eigu Kristins Björnssonar og fleiri fjárfesta, fyrir 233 milljónir á nafnvirði.

Yfirtaka hjá Baugi?

Baugur Group heur ásamt fleirum lýst áhuga á yfirtöku Big Food Group. Baugi hefur verið veitt aðgangur að bókhaldi félagsins og ef um semst gæti kaupverðið numið nálægt 94 milljörðum króna.

Sjá næstu 50 fréttir