Erlent

Öryggi breska þingsins í molum

Enn eitt örygishneykslið skekur nú breska þingið, aðeins sólarhring eftir að nokkrir andmælendur refaveiðibannsins, sem samþykkt var á þinginu í gær, tókst að ryðjast þar alveg inn á gafl í mótmælaskyni. Nú upplýsir hasarblaðið Sun að það hafi laumað þjóni inn í þjónalið þingsins á fölsuðum pappírum. Hann þjónaði meðal annars John Prescott aðstoðarforsætisráðherra í gær, með eftirlíkingu af sprengju innanklæða, og segist hann hæglega hafa getað sprengt hann í loft upp, hefði hann verið í sporum sjálfsvígs- hryðjuverkamanns. Íhaldssemi og öryggiskröfur togast nú á og segja talsmenn öryggisráðstafana að tími sé kominn til að breska þingið kasti miðaldasjónarmiðum fyrir róða og átti sig á tíðaranda tuttugustu og fyrstu aldarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×