Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reyna enn að mynda stjórn Harðlínumenn á sitt hvorum væng norður-írskra stjórnvalda hefja í dag enn eina tilraunina til að mynda starfhæfa ríkisstjórn, nokkuð sem hefur reynst þeim um megn. Viðræðurnar hefjast á sama tíma og þess er minnst að áratugur er síðan Írski lýðveldisherinn tilkynnti um vopnahlé, sem hefur reyndar ekki alltaf haldið. 31.8.2004 00:01
Demókrati í röðum repúblikana Öldungadeildarþingmaðurinn Zell Miller er ansi frábrugðinn öðrum ræðumönnum á flokksþingi repúblikana sem hafa það verkefni að sannfæra Bandaríkjamenn um að kjósa George W. Bush forseta í haust. Ástæðan er einföld. Miller er demókrati og hefur setið á þingi fyrir þá frá árinu 2000 en var um sextán ára skeið vararíkisstjóri í Georgíu. 31.8.2004 00:01
Víst má vinna baráttuna Degi eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í sjónvarpsviðtali að líklega væri ekki hægt að vinna sigur í baráttunni gegn hryðjuverkum virtist hann kominn á öndverða skoðun. "Við hittumst á stríðstímum, þegar land okkar á í stríði sem það hóf ekki en mun fagna sigri í," sagði Bush á fundi með fyrrverandi hermönnum í Nashville. 31.8.2004 00:01
Skaði samkeppnisstöðu Nefnd ráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi leggur til að Samkeppnisstofnun fái heimild til að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Viðskiptaráðherra segir að tillögurnar muni styrkja íslenskt efnahagslíf verði þær að lögum. </font /></b /> 31.8.2004 00:01
Óþarfa hávaði í stjórninni "Langmerkasta niðurstaða skýrslunnar er að það er óþarft að setja sérstök lög um hringamyndun. Það hlýtur að teljast merkilegt í ljósi þess hávaða sem hefur verið innan ríkisstjórnarflokkanna um að vondir auðhringir séu að leggja undir sig ekki aðeins fjölmiðla heldur land og miðin," segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar. 31.8.2004 00:01
Uppstokkunarheimild heftir Einn nefndarmanna auk fulltrúa atvinnulífsins og Kauphallarinnar segja samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja skerðast verði sett lög sem heimili Samkeppnisstofnun að stokka upp fyrirtæki brjóti þau gegn samkeppnislögum. Viðskiptaráðherra segir þessar áhyggjur byggðar á misskilningi. </font /></b /> 31.8.2004 00:01
Borgin úr fjarskiptarekstri Með sölu á Línu.neti lýkur umdeildum rekstri borgarfyrirtækja á fyrirtækjum í fjarskiptarekstri. Gagnaveitur verða áfram á hendi Reykjavíkurborgar. Að minnsta kosti tveir milljarðar hafa tapast í fjarskiptarekstri borgarinnar á síðustu fimm árum. 31.8.2004 00:01
Rækjuveiði lítil og kvóti verðlaus Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs hf., segir ekki borga sig að veiða rækjuna þegar olíulítrarnir sem þarf í veiðarnar eru fleiri en kílóin sem koma í land. Tveir þriðju rækjunnar í vinnslu fyrirtækisins eru keyptir erlendis frá. </font /></b /> 31.8.2004 00:01
120 þúsund mótmæla Yfir 120 þúsund manns fjölmenntu á götur úti í New York borg í gær til þess að mótmæla stjórnunarháttum Bush. Þetta er mesti fjöldi sem tekið hefur þátt í mótmælum fyrir flokksþing í Bandaríkjunum en flokksþing Rebúblikana sem hefst í dag mun standa út vikuna. 30.8.2004 00:01
Eldur á Patreksfirði Talsvert tjón varð þegar eldur kviknaði í bílskúr á Patreksfirði í gærkvöldi, en ýmis verðmæti voru geymd í skúrnum. Slökkvilið var kallað á staðinn og réði það niðurlögum eldsins, en við það urðu vatnsskemmdir til viðbótar skemmdum af eldi og reyk. Eldsupptök eru ókunn. 30.8.2004 00:01
Bílvelta á Snæfellsnesi Ökumaður og barn sluppu lítið meidd þegar bíll þeirra valt út af þjóðveginum á móts við Dalsmynni á sunnanverðu Snæfellsnesi undir kvöld í gær. Bæði voru flutt á sjúkrahúsið í Stykkishólmi og fékk ökumaður að fara heim að aðhlynningu lokinni en barnið var vistað þar í nótt undir eftirliti. 30.8.2004 00:01
17 látast í Kabúl Að minnsta kosti 17 manns, þar á meðal börn, hafa farist í sprengjutilræðum í Kabúl um helgina. Fjarstýrð bílsprengja sprakk í gær fyrir utan höfuðstöðvar bandaríska fyrirtækisins DynCorp, en fyrirtækið sér meðal annars um öryggismál fyrir Hamid Karzai forseta Afganistan. Einnig var gerð árás á skóla. 30.8.2004 00:01
Alkhanov forseti Tsétséníu Alu Alkhanov var kjörinn forseti Tsétséníu með nærri 85 prósentum atkvæða í kosningunum um helgina. Segja má að niðurstaðan komi ekki á óvart þar sem Alkanov var valinn af Putin Rússlandsforseta til þess að bjóða sig fram og helsti andstæðingur hans var útilokaður frá framboði. 30.8.2004 00:01
Barði mann með bjórkönnu Fólskuleg líkamsárás á gest í veitingahúsi í Keflavík í nótt var nánast samkvæmt uppskrift úr vinsælli hasarmynd, sem sýnd var hérlendis í bíóum fyrir nokkrum árum. 30.8.2004 00:01
Dældaði bíl og barði mann Lögreglan á Selfossi sleppti manni úr haldi í gær, sem í fór talsvert frjálslega með áfengisflösku aðfaranótt sunnudags og skaðaði mann og bíla með henni. Í fyrsta lagi drakk hann ótæpilega úr flöskunni á almanna færi, sem er brot á áfengislögum. 30.8.2004 00:01
Rán fyrir tilviljun í klámmyndband Nýjasta vopnaða bankaránið í Noregi í nótt rataði fyrir tilviljun inn á klámmyndband og kann það að varpa ljósi á röð ofbeldisfullra stórrána í Noregi upp á síðakstið. 30.8.2004 00:01
Röskun á flugi SAS SAS flugfélagið þurfti að fella niður um það bil tuttugu flug frá Kaupmannahöfn í morgun vegna skyndiverkfalls flugmanna. Flugmennirnir ætla að hefja vinnu á ný fyrir hádegi en ljóst er að veruleg röskun hefur orðið á áætlunarflugi félagsins og þar með að líkindum á ferðum þó nokkurra Íslendinga 30.8.2004 00:01
Farandverkamenn kyrrsettir 240 farandverkamenn á 15 metra löngum trébát hefur verið kyrrsettir, af ítalska sjóhernum, í höfn við ítölsku eyjuna Lampedusa. Meirihluti fólksins segist vera frá Palestínu, en einnig er hluti fólksins frá Bangladesh og Írak. 30.8.2004 00:01
Fellibylurinn Chaba veldur usla Fellibylurinn Chaba gengur nú yfir suðurhluta Japans. Þrír hafa látist og 30 slasast. Um 6000 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna hugsanlegra flóða og hættu á skriðum. 300 þúsund manns á Kyushu eyjum eru án rafmangns. 30.8.2004 00:01
Flugskeyti á Vesturbakkanum Herþyrla Ísraelsher skaut flugskeyti að bíl á Vesturbakkanum í morgun, en í bílnum var sagður vera palestínskur skæruliði. Flugskeytið missti marks og lenti á íbúðarhúsi. Sjö ára stúlka særðist í árásinni. 30.8.2004 00:01
Frestur SÞ rennur út í dag Frestur sem Sameinuðu þjóðirnar veittu yfirvöldum í Súdan til að bæta öryggi í Darfur héraði, rennur út í dag. SÞ hóta aðgerðum ef yfirvöld í Súdan afvopna ekki uppreisnarmenn sem taldir eru hafa drepið þúsundir óbreyttra borgara og neytt marga til að flýja. 30.8.2004 00:01
Halldór Blöndal til Svíþjóðar Halldór Blöndal, forseti Alþingis, fer í opinbera heimsókn til Svíþjóðar í dag og stendur heimsóknin til 1. september. Halldór verður í boði forseta sænska þingsins, Björns von Sydow. Fundur þingforsetanna verður í Sigtuna. 30.8.2004 00:01
Hætti rekstri Vélamiðstöðvar Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem hún tekur undir málflutning borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og telur ámælisvert að Vélamiðstöðin, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, taki þátt í opnu útboði vegna gámaþjónustu á vegum Sorpu byggðarsamlags. 30.8.2004 00:01
Sex sækja um Hæstaréttardómara Að minnsta kosti sex sækja um stöðu Hæstaréttardómara í stað Péturs K. Hafstein, sem lætur af embætti 1. október, en frestur til að sækja um stöðuna rann út um helgina. Nöfn þeirra sem sækja um stöðu Hæstaréttardómara verða gerð opinber klukkan 4 í dag. 30.8.2004 00:01
Breytingar á félagslega kerfinu Umfangsmestu breytingar á félagslega kerfi Þýskalands standa fyrir dyrum. Hnattvæðing og aukin samkeppni knýja á um grundvallarbreytingar, sem almenningur virðist staðráðinn í að láta ekki yfir sig ganga. 30.8.2004 00:01
Flokksþing hefst í dag Forseti Bandaríkjanna á hvorki að vera demókrati né repúblíkani, íhaldssamur né frjálslyndur. Hann á að vera leiðtogi. Þetta eru skilaboðin sem senda á frá flokksþingi repúblíkana sem hefst í New York í dag. 30.8.2004 00:01
Senda neyðarhjálp til Súdan Hjálparstarf kirkjunnar hefur sent eina milljón króna til neyðaraðstoðar í Darfur í Súdan. Þangað hefur ACT, Alþjóðaneyðarhjálp kirkna sem Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að, flutt 200 tonn af hjálpargögnum á síðustu mánuðum og ráðið 39 starfsmenn til hjálparstarfa. 30.8.2004 00:01
al-Sadr fyrirskipar vopnahlé Róttæki sjítaklerkurinn Múktada al-Sadr fyrirskipaði vopnahlé um allt Írak fyrir stundu. Einn nánasti aðstoðarmaður hans tilkynnti að uppreisnarhreyfing al-Sadrs hygðist hasla sér völl í írökskum stjórnmálum með friðsömum hætti. 30.8.2004 00:01
Spellvirki á olíuleiðslum Spellvirki á olíuleiðslum í Írak halda áfram. Í dag sprengdu skemmdarverkamenn upp olíuleiðslu við borgina Bagdad og olíuleiðsla sem lá í olíuhreinsunarstöð var skemmd í gær. 30.8.2004 00:01
Vilja ekki selja Landssímann Þingflokkur Vinstri-grænna vill halda Landssímanum í opinberri eigu, þetta kemur fram í tilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér í dag. Þar segir að það sé úrslitaatriði hvað varðar byggðarþróun og jafna stöðu landsmanna að öllum sé tryggður fullnægjandi og jafngildur aðgangur að nútíma fjarskiptum. 30.8.2004 00:01
Krani fellur á hús Mildi þykir að ekki urðu slys á fólki þegar 50 tonna byggingakrani féll á nýbyggingu í Hafnarfirði síðdegis. Tuttugu manns voru við vinnu í húsinu þegar slysið varð. 30.8.2004 00:01
Blair í samstuði við Berlusconi Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, gengur nú haltur eftir að hafa leikið sér í fótbolta við hús sitt á Sardiníu. Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að ástæðan fyrir meiðslum Berlusconi sé Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. 30.8.2004 00:01
Sprengiefni með handfarangri Ekki er leitað sérstaklega að sprengiefni í handfarangri flugfarþega í Bandaríkjunum. Bandaríska dagblaðið USA Today greindi frá þessu í gær í kjölfar þess að sprengiefni hefði fundist í handfarangri tveggja kvenna sem talið er að hafi grandað tveimur rússneskum farþegaflugvélum í síðustu viku. 30.8.2004 00:01
Ranglega greindur með alnæmi Síðustu átta ár hefur Jim Malone, sem býr í San Francisco, átt við mikið þunglyndi að stríða enda kannski ekki nema von því hann hefur búist við því að geta dáið nánast hvenær sem er. 30.8.2004 00:01
Fjölskylda Escobar tapar málssókn Ellefu ára málssókn kólumbískra stjórnvalda gegn fjölskyldu fyrrverandi eiturlyfjabarónsins Pablos Escobar er nú lokið með sigri stjórnvalda. Fyrrverandi eiginkona og börn Escobars, sem var skotinn til bana árið 1993, þurfa að láta glæsilegt sveitasetur sitt af hendi til ríkisins. 30.8.2004 00:01
Þrjú vopnuð rán á 14 dögum Bankaræningjarnir þrír sem voru handteknir skömmu eftir að hafa rænt peningaflutningabíl á Akers bryggju í Osló eru allir meðlimir í vafasömum samtökum eða klíkum samkvæmt norska dagblaðinu Aftenposten. Ránið er þriðja vopnaða ránið í Noregi á tveimur vikum. 30.8.2004 00:01
Útlendingar í Kabúl á nálum Bandaríkjamönnum í Kabúl er ráðlagt að læðast með veggjum eftir að ellefu verktakar fórust í gær í mannskæðustu árás í tvö ár. Árásin var gerð á höfuðstöðvar fyrirtækis sem sér meðal annars Hamid Karzai, forseta Afganistans, fyrir lífvörðum. Útlendingar í borginni eru sagðir á nálum. 30.8.2004 00:01
Albanar mómæla Hópur Albana mótmæli í Kósóvó í dag og krafðist þess að komist yrði að raun um hvað varð um þúsundir Albana sem hurfu sporlaust í Kósóvó-stríðinu. 3400 manna er enn saknað, en um tíu þúsund týndu lífi í stríðinu, flestir þeirra Albanar 30.8.2004 00:01
Umsækjendur til Hæstaréttardómara Sjö sóttu um embætti hæstaréttardómara í stað Péturs Kr. Hafsteins sem senn lætur af embætti. Fjórir þeirra sóttu um stöðu dómara í fyrra. Dómsmálaráðherra skipar í stöðuna að fenginni umsögn Hæstaréttar. 30.8.2004 00:01
Færri sviptir ökuréttindum Á síðasta ári fækkaði þeim sem sviptir voru ökuréttindum á grundvelli umferðarpunkta um rúmlega helming, úr 148 ökumönnum árið 2002 í 72 í fyrra. Karlar, sem misstu ökuréttindin, eru í miklum meirihluta, eða 94%, og voru rúmlega 67% þeirra 20 ára eða yngri. 30.8.2004 00:01
Rannsóknum á hrefnum haldið áfram Rannsókum á hrefnum verður haldið áfram í haust. Sextán 200 þúsund króna merki verða fest á bak hrefna. Annars vegar tíu merki sem sýna staðsetningu þeirra. Hins vegar sex merki sem safna upplýsingum um köfunarhegðun dýranna. 30.8.2004 00:01
Þorskur í hrefnum fyrir norðan Þorskur hefur fundist í magainnihaldi hrefna norðan við landið við vísindaveiðar Hafrannsóknastofnunarinnar. Þorskur virðist því vera reglulegur hluti af fæðu hrefnu hér við land, segir Gísli Víkingsson hvalasérfræðingu 30.8.2004 00:01
Karlar vinna ekki á fæðingagangi Körlum er meinað að vinna við ummönnun og aðstoð ljósmæðra á fæðingagangi Landspítalans - háskólasjúkrahúsi. Kærunefnd jafnréttismála hefur úrskurðað að leyfilegt hafi verið að hafna umsóknar karlmanns sem sótti um starfið þegar starf hans við býtibúr og ræstingar innan deildarinnar var lagt niður. 30.8.2004 00:01
Skúta sökk norðvestur af Garðskaga Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði og Björg frá Rifi ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF Líf, voru kölluð út á fimmtatímanum í dag eftir að neyðarkall barst frá kanadískri skútu um að hún væri að sökkva 43 sjómílur norðvestur af Garðskaga. 30.8.2004 00:01
Lögreglan ætti að prófa smábíla "Eitt helsta vandamálið er að búnaður lögreglubíla er það mikill orðinn að hann kemst illa fyrir í smærri bílum," segir Guðmundur H. Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embætti Ríkislögreglustjóra. Lögreglubílar á Íslandi eru flestir af stærri gerðinni og vekur athygli að það á líka við um höfuðborgarsvæðið. 30.8.2004 00:01