Umsækjendur til Hæstaréttardómara 30. ágúst 2004 00:01
Sjö sóttu um embætti hæstaréttardómara í stað Péturs Kr. Hafsteins sem senn lætur af embætti. Fjórir þeirra sóttu um stöðu dómara í fyrra. Dómsmálaráðherra skipar í stöðuna að fenginni umsögn Hæstaréttar. Þeir sem sækja um embætti hæstaréttardómara eru: Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari, Eggert Óskarsson, héraðsdómari, Eiríkur Tómasson, prófessor, Hjördís Hákonardóttir, dómstjóri, Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor og hæstaréttarlögmaður, Leó E. Löve, hæstaréttarlögmaður Stefán Már Stefánsson, prófessor. Allan Vagn, Eggert, Eiríkur og Hjördís sóttu öll um dómarastöðu í fyrra þegar Ólafur Börkur Þorvaldsson var skipaður og dró sú skipan dómsmálaráðherra mikinn dilk á eftir sér. Bæði taldist dómsmálaráðherra hafa brotið jafnréttislög og einnig taldi Umboðsmaður Alþingis vinnubrögð ráðherra aðfinnsluverð. Hæstiréttur taldi aðra umsækjendur hæfari en Ólaf Börk, en ráðherra hafði þá skoðun réttarins að engu. Það er altalað innan lögmannastéttarinnar að dómurum Hæstaréttar hafi orðið um og ó, þegar þeir fregnuðu að Jón Steinar Gunnlaugsson hefði sótt um stöðuna, en hann hefur mjög látið til sín taka í þjóðmálaumræðu síðustu ára og meðal annars deilt á dóma Hæstaréttar. Heimildir fréttastofu herma að í kjölfarið hafi verið hafin leit að manni sem væri óumdeildur og erfitt yrði að ganga fram hjá. Sá maður sem hafi fundist væri Stefán Már Stefánsson, en hann hefur um langt árabil verið virtur lagaprófessor við Háskóla Íslands og gefið út fjölda bóka og rita, meðal annars um Evrópusambandið og hlutafjárlög. Þá segja flestir lögmenn að Eiríkur Tómasson sé afar óumdeildur og virtur fræðimaður. Hins vegar kom það flestum þeim sem fréttastofa ræddi við á óvart að Eiríkur skyldi sækja um að nýju eftir að hafa verið hafnað í fyrra.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira