Erlent

Kosningar hafa áhrif á olíuverð

Í Venesúela voru kjörstaðir opnir lengur en til stóð í gær, en greidd voru atkvæði um það, hvort reka ætti forseta landsins úr embætti. Mjög mikil þátttaka var í kosningunni og greina fréttaritarar frá allt að tveggja kílómetra löngum biðröðum við suma kjörstaði. Útgönguspár voru bannaðar og enn hafa engar niðurstöður borist, en þrír ónafngreindir ráðherrar sögðu Reuters fyrir stundu að Chaves myndi halda stólnum. Órói í landinu hefur mikil áhrif á olíuverð á heimsmarkaði, en það hækkaði enn á ný í morgun. Fatið er nú komið upp í 46 dollara og 85 sent. Þetta hafði einnig áhrif á gengi hlutabréfamarkaða í Asíu í morgun, þar sem ótti ríkir við að síhækkandi olíuverð muni hafa slæm áhrif á efnahagsþróun og afkomu stórfyrirtækja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×