Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Allir fangarnir fundnir Fjórir fangar sem sluppu úr fangelsi í Svíþjóð síðastliðinn miðvikudaginn eru allir fundnir. Síðasti fanginn sem náðist var Tony Olsson en hann situr í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa drepið tvo lögreglumenn og fremja bankarán. 30.7.2004 00:01
Stjórn leitaraðgerða flutt Ákveðið hefur verið að leita til þrautar á þeim svæðum þar sem björgunarsveitarmenn eru enn að störfrum, en halda síðan áfram eftirgennslan eftir öðrum leiðum. Þetta var ákveðið á fundi forsvarsmanna sýslumanns, björgunarsveita og ríkislögreglustjóra, sem hafa komið að leit að frönskum ferðahópi eftir óljóst neyðarkall á hálendingu í gær. Margt bendir til þesss að neyðarkallið hafi verið gabb. 30.7.2004 00:01
200 bíða eftir flugi Um 200 manns bíða eftir því að geta flogið til Vestmannaeyja, en ekkert hefur verið hægt að fljúga til Eyja frá því í gær, sökum veðurs. Herjólfur er þessa stundina að leggja af stað frá Þorlákshöfn með um 500 manns. Mikil umferð hefur verið til Akureyrar. 30.7.2004 00:01
Þjóðverji í farbann Erlendur karlmaður sem slasaðist mikið þegar hann kastaðist út úr bíl sem valt á Vatnsskarði á Krísuvíkurvegi á laugardagskvöldið var, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Ökumaður bílsins hefur verið úrskurðaður í farbann, grunaður um manndráp af gáleysi. 30.7.2004 00:01
Handsamar al-Qaeda meðlim Pakistanska lögreglan hefur handsamað einn af meðlimum al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, Achmed Ghailani en hann er grunaður um að hafa átt aðild að sprengingunum í bandarísku sendiráðunum í Afríku árið 1998. 30.7.2004 00:01
Hagnaður Bakkavarar 570 milljónir Hagnaður Bakkavarar nam tæplega 570 milljónum króna fyrir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins, en rúmlega 412 milljónum króna eftir skatta. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri fyrirtækisins sem birt var í dag. 30.7.2004 00:01
Mega halda kjarnorkuvopnunum Bandaríkjamenn hafa fullvissað Ísraela um að ekki verði hróflað við kjarnorkuvopnum þeirra þó reynt verði að koma í veg fyrir að önnur ríki í Miðausturlöndum komi sér upp slíkum vopnum. Þetta lásu menn úr orðum Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, á fundi Likudbandalagsins. 30.7.2004 00:01
Skaut villihund sem drap barn Ástralskur karlmaður sem sagði í viðtali á dögunum að hann hefði skotið dingóhund sem var með lík ungs barns í skoltinum árið 1980 hefur neitað að ræða við lögreglu. Hefði maðurinn greint frá þessu á sínum tíma hefði það getað komið í veg fyrir ein verstu réttarmistök í sögu Ástralíu. 30.7.2004 00:01
Lánveitingarnar gerðu illt verra Afskipti Alþjóða gjaldeyrissjóðsins af efnahagsþrengingunum í Argentínu gerðu illt verra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sjóðsins. 30.7.2004 00:01
Flutt inn í ólympíuþorpið Fyrstu íþróttamennirnir fluttust inn í ólympíuþorpið í Aþenu í gær. Þar var á ferð sex manna ræðaralið Grikklands. 30.7.2004 00:01
Mikið mannfall í Falluja Þrettán Írakar létust og fjórtán til viðbótar særðust í Falluja í fyrrinótt þegar kom til harðra bardaga á milli bandarískra hermanna og íraskra uppreisnarmanna. 30.7.2004 00:01
Viðskiptasamningur Írana og Trykja Íranar og Tyrkir skrifuðu undir tvíhliða viðskiptasamning í gær en hann er liður í átaki sem miðar að því að bæta og auka samskipti ríkjanna. Forsætisráðherra Tyrklands, Recept Erdogan, heimsótti varaforseta Írans, Mohammed Reza, í Teheran þar sem þeir skrifuðu undir samninginn. 30.7.2004 00:01
Hnepptu ferðalanga í gíslingu Reiðir þorpsbúar í indverska þorpinu Santoshgarh stöðvuðu rútur sem fluttu 37 erlenda ferðamenn til að vekja athygli á kröfum sínum um að þrír indverskir verkamenn sem voru teknir í gíslingu í Írak yrðu leystir úr haldi. 30.7.2004 00:01
Fært í flug til Eyja Fært er orðið flugleiðis til Vestmannaeyja, en ekkert hefur verið flogið til Eyja frá því í gær, sökum veðurs. Tvær vélar eru nú farnar í loftið frá Reykjavíkurflugvelli, en samkvæmt áætlun fara 11 vélar í dag með gesti á þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum. 30.7.2004 00:01
Kransar við vegi landsins Krönsum hefur verið komið fyrir víða við vegi landsins. Með þessu vill Umferðastofa vekja athygli á banaslysum í umferðinni og eru kransarnir á stöðum þar sem slys hafa orðið að undanförnum misserum. 30.7.2004 00:01
Hefur synt þriðjung Breiðafjarðar Viktoría Áskelsdóttir, sem syndir nú fyrst manna yfir Breiðafjörðinn, kom til Flateyjar í fyrradag eftir að hafa synt 5,7 km þann daginn. Þá mun hún hafa þreytt um 21,7 km leið suður yfir fjörðinn frá Lambanesi við Brjánslæk. 30.7.2004 00:01
Loftbrú milli lands og Eyja Loftbrú hefur nú verið komið á, milli lands og Eyja, þar sem flugfært er orðið til Vestmannaeyja að nýju. Þegar hafa nokkrar vélar farið frá Reykjavíkurflugvelli, en samkvæmt áætlun fara ellefu vélar þaðan í dag með gesti á þjóðhátíð, alls um 400 manns. Þá er ennfremur orðið flugfært frá Bakkaflugvelli í Landeyjum, og verður væntanlega flogið þaðan fram á kvöld 30.7.2004 00:01
Colin Powell óvænt til Bagdad Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom óvænt til Bagdad í dag og átti fund með forseta Íraka, Ghazi al-Yawer. Powell staðfesti þar ákvörðun stjórnvalda í Washington að styðja áfram bráðabrigðastjórn Íraka. Hann lofaði einnig að hraða fjárstuðningi til uppbyggingar. 30.7.2004 00:01
Hundar í jóga Vegfarendur í Lundúnum urðu heldur betur hissa þegar þeir gengu fram hunda í jógatímum. Tímarnir eru ætlaðir stressuðum hundum og var eigendum mikið í mun að gæludýrin fengju að slappa af og láta teygja á sér. Hundarnir sýndu reyndar margir hverjir öðrum hundum í garðinum meiri áhuga en jóganu en eigendurnir hafa þá hugsanlega getað slappað af í staðinn. 30.7.2004 00:01
Hótelstarfsmenn í verkfall Hótelstarfsmenn í Aþenu ætla að fara í eins dags verkfall í næstu viku en þeir krefjast þess að laun þeirra verði tvöfölduð, hækki úr rúmum fjörtíu þúsund krónum í næstum nítíu þúsund krónur. 30.7.2004 00:01
Almenn lækkun lyfja vænlegri Almenn lækkun á heildsöluverði er vænlegri kostur en reglugerð um viðmiðunarverð lyfja segir fulltrúi lyfjahóps Félags íslenskra stórkaupmanna. Hann segir lyfjaframleiðendur ánægða með samning um lækkun lyfjaverðs, sem undirritaður var í gær. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær hafa Heilbrigðisráðuneytið 30.7.2004 00:01
Yfirheyrslur standa enn yfir Yfirheyrslum yfir Hákoni Eydal, sem hefur játað að hafa banað Sri Rahmawati í byrjun þessa mánaðar, var framhaldið í dag. Deilur Hákonar og Sri um forræði yfir dóttur þeirra eru taldar meðal ástæðna fyrir morðinu. 30.7.2004 00:01
Neistaflug og Innipúkar Búist er við fjölmenni á fjöskylduhátíðinni Neistaflugi í Neskaupsstað um helgina. Þar er sól og hiti og í eftirmiðdag tók fólk að streyma á hátíðina, en boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði. 30.7.2004 00:01
Ein með öllu í góðu veðri Á Akureyri verður fjölskylduhátíðin "Ein með öllu" haldin um helgina. Þar var steikjandi hiti í dag og 2000 manns komnir á tjaldsvæðin. Hátíðin verður sett klukkan hálf níu í kvöld og skipulögð dagskrá verður víða um bæinn alla helgina. 30.7.2004 00:01
Umferðastofa á vaktinni "Við erum í sambandi við lögreglu og Neyðarlínuna og viðum að okkur öllum upplýsingum sem ætla má að hafi aukið öryggi í för með sér og komum þeim á framfæri í umferðarútvarpinu," segir Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu. 30.7.2004 00:01
Besta veðrið fyrir norðan Ef fólk vill flýja vætu er Norðurland eini kosturinn segir Sigurður Þ. Ragnarsson, eða Siggi Stormur, veðurfréttamaður um veðurspána fyrir helgina. 30.7.2004 00:01
Hæstu menn landsbyggðar Akureyringar eru atkvæðamiklir þegar rýnt er í lista yfir þá sem greiða hæstu gjöldin á landsbyggðinni. Sá sem greiðir mest kemur þó úr Vestmannaeyjum. Mikill munur er á efstu mönnum á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. 30.7.2004 00:01
Mikið um dóp í Eyjum Maður var handtekinn með 39 grömm af amfetamíni í Vestmannaeyjum í gær. Að sögn lögreglunnar í Eyjum hafði á þriðja tug fíkniefnamála komið upp í gærdag og var mestmegnis um amfetamín og e-töflur að ræða. Að öðru leyti hafa hátíðarhöldin gengið vel fyrir sig. 30.7.2004 00:01
Björgólfur skattakóngur Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, er skattakóngur Íslands. Honum ber að greiða tæpar 300 milljónir króna í opinber gjöld. Sá sem kemur á eftir Björgólfi í Reykjavík greiðir rúmum 200 milljónum króna minna en hann. 30.7.2004 00:01
Árangurslausri leit brátt hætt Eitt hundrað og tuttugu björgunarsveitarmenn hafa tekið þátt í árangurslausri leit að magaveikum frönskum ferðahópi frá því um miðjan dag í gær. Leitin hófst eftir óljóst neyðarkall sem starfsmaður Ferðafélags Íslands tók á móti. Talið er líklegt að um gabb hafi verið að ræða en kostnaður við leitina hleypur á milljónum. 30.7.2004 00:01
Flogið til Eyja Þjár vélar flugu til Vestmannaeyjar um þrjú leytið í gær. Ekki hafði verið flogið til eyjarinnar frá miðvikudegi og biðu um 500 manns eftir flugi. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Flugfélags Íslands, segir allt flug hafi gengið að óskum nema til Vestmannaeyja. 30.7.2004 00:01
Björgúlfur skattakóngur Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, er skatthæsti einstaklingur sögunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Skattstjóranum í Reykjavík greiðir Björgólfur 295 milljónir króna í opinber gjöld. Hann greiðir því um 800 þúsund krónur í skatt á degi hverjum 30.7.2004 00:01
Skattakóngur Íslandssögunnar "Þetta var ansi bólginn dagur," sagði Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans og skatthæsti einstaklingur Íslandssögunnar, samkvæmt álagningarseðlum skattstjóraembættanna sem birtir voru í gær. Björgólfur greiðir 295 milljónir í opinber gjöld, sem að mestu er fjármagnstekjuskattur vegna sölu og kaupa á eignarhlutum í fyrirtækjum sem eru skráð erlendis. 30.7.2004 00:01
Faldi sig á hlöðulofti Síðasti fanginn af fjórum sem flúði úr fangelsi í Svíþjóð var handtekinn í gær. Tony Olsson sem dæmdur er fyrir rán og morð á tveimur lögregluþjónum hafði falið sig í hlöðu á bóndabæ suður af Stokkhólmi. Hlaðan var skammt frá þeim stað sem flóttabíll þeirra félaga fannst og hinir þrír voru gripnir. 30.7.2004 00:01
Góð afkoma hjá Burðarási Fjárfestingarfélagið Burðarás, móðurfélag Eimskipafélagsins hagnaðist um tæpa sjö milljarða á fyrri helmingi ársins sem er meiri hagnaður en nokkurt fyrirtæki hefur skilað á fyrri helmingi ársins. 30.7.2004 00:01
Lugu til um þjóðerni Búlgörskum hjónum með tvær dætur var synjað um hæli í fyrrakvöld. Fjölskyldan kom hingað til lands á fimmtudag með Norrænu frá Noregi og gáfu sig fram við lögregluna á Egilsstöðum þar sem þau sóttu um hæli. 30.7.2004 00:01
Kerry til þjónustu reiðubúinn John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, tók formlega við útnefningu flokksins í gærkvöld og flutti mikilvægustu ræðuna á ferli sínum. Kerry lagði megináherslu á að hann hefði gegnt herþjónustu í Víetnam og að hann yrði sterkur og stöðugur leiðtogi. 30.7.2004 00:01
Þjóðverji í farbann Þýskur maður sem slasaðist í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi á Laugardag fyrir viku síðan lést í fyrradag af sárum sínum. Ökumaður bílsins, sem grunaður er um ölvunarakstur, hefur verið úrskurðaður í farbann til 27. ágúst en hann er einnig Þjóðverji. 30.7.2004 00:01
Leit hætt að ferðamönnum Leit að tuttugu ferðamönnum, sem hófst upp úr hádegi á fimmtudag eftir að neyðarkall kom í gegnum samtal á rás Ferðafélags Íslands, hefur verið hætt í bili. Jónína S. Sigurðardóttir, hjá ríkislögreglustjóra, segir aðspurð þó ekki inn í myndinni að taka neyðarkallið sem gabb. Kallið sé tekið trúanlegt og unnið sé út frá því. 30.7.2004 00:01
Staða Kerrys sterk Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum snýst í auknum mæli um að ná fótfestu í fjórum til fimm ríkjum sem talin eu ráða úrslitum um niðurstöðu kosninganna. 30.7.2004 00:01
Setti líkið í þyngdan poka Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa banað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður með þungu barefli á heimili sínu í Stórholti sunnudaginn fjórða júlí, er enn í einangrun. Hákon segist hafa komið líki Sri fyrir í stórum drapplituðum sænskum póstpoka úr næloni. Samkvæmt heimildum blaðsins þyngdi hann póstpokann áður en hann varpaði honum í sjóinn. 30.7.2004 00:01
Barði Sri með þungu barefli Hákon Eydal hefur játað að hafa banað barnsmóður sinni, Sri Rahmawati, sunnudaginn 4. júlí. Hann hefur setið þögull í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barði hann Sri með þungu barefli. </font /></b /> 29.7.2004 00:01
Ráðherra hissa á Reykjavíkurhöfn Ákvörðun forráðamanna Reykjavíkurhafnar um 184% hækkun vörugjalda á tiltekna flokka neysluvara kom samgönguráðherra í opna skjöldu. Hann kveðst vonast til að forráðamenn hafna í landinu gæti hófs í slíkum gjaldtökum. </font /></b /> 29.7.2004 00:01
Alda og þari torvelduðu leit Umfangsmikil leit lögreglu og björgunarsveitarmanna að Sri Rahmawati stóð yfir langt fram á kvöld í gær. Frekari leit að Sri er ekki áætluð í dag. Um klukkan ellefu verður sett út rekald og því fylgt eftir næstu tólf klukkutímana á eftir. </font /></b /> 29.7.2004 00:01
Hreyfing á menntamálum geðsjúkra Eftir þriggja mánaða óvissutíma lítur út fyrir að komin sé hreyfing á menntamál geðsjúkra. Vel á annað hundrað manns hafa sótt um nám á haustönn, en fjárveitingu hefur skort. Öllum kennurum var því sagt upp, en nemendur lifa í voninni. </font /></b /> 29.7.2004 00:01