Erlent

Handsamar al-Qaeda meðlim

Pakistanska lögreglan hefur handsamað einn af meðlimum al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna, Achmed Ghailani en hann er grunaður um að hafa átt aðild að sprengingunum í bandarísku sendiráðunum í Afríku árið 1998. Ghailani fannst við skyndiáhlaup á þorp í miðju Pakistan síðastliðinn sunnudag. Til átaka kom þegar lögreglumenn hugðust fara inn í húsi þar sem Ghailani hafðist við. Byssubardagar stóðu yfir í nokkra klukkutíma áður en Ghailani gafst upp. Bandaríkjastjórn hafði sett fimm milljónir bandaríkjadala til höfuðs honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×