Yfirheyrslur standa enn yfir 30. júlí 2004 00:01
Yfirheyrslum yfir Hákoni Eydal, sem hefur játað að hafa banað Sri Rahmawati í byrjun þessa mánaðar, var framhaldið í dag. Deilur Hákonar og Sri um forræði yfir dóttur þeirra eru taldar meðal ástæðna fyrir morðinu. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði í samtali við fréttastofu að enn væru lausir endar í rannsókn málsins. Í tilkynningu lögreglunnar í gær sagði að ástæða morðsins væri bæði langvarandi og skyndileg. Þegar fréttamaður bað um skýringar á þessu orðalagi hjá Ómari og sagði það vekja um fleiri spurningar en svör, sagði Ómar að það væri einmitt tilgangurinn, og vildi ekki skýra það frekar. Hákon og Sri eiga saman unga dóttur. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að fram hafi komið við yfirheyrslur yfir Hákoni að deilur um forræði yfir henni eigi þátt í þessum harmleik. Ómar Smári segir að Hákon hafi fyrir nokkrum árum unnið hjá póstinum í Svíþjóð og að það útskýri sænska póstpokann sem Hákon segist hafa sett líkið af Sri í áður en hann varpaði því í sjóinn við Hofsvík á Kjalarnesi, en Hákon heldur því fram við yfirheyrslur að staðurinn hafi verið valinn af handahófi. Ómar segir svona póstpoka sjaldgæfa hérlendis og því sé ástæða fyrir fólk að láta vita ef það sjái slíkan poka. Hann segir að Hákon verði áfram í yfirheyrslum yfir helgina, jafnframt því sem haldið verður áfram að geðrannsaka hann. Leitinni að líki Sri hefur verið frestað til sunnudags eða mánudags. Þá verður sett út rekald til að kanna strauma á svæðinu, en þá verða sjávarföll svipuð og þegar líki Sri var varpað í sjóinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira